Dagblaðið - 23.08.1977, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. AGUST 1977.
íþróttir íþróttir
Jón nærri Islandsmeti
Svavarsímflu
Hrcinn Halldórsson, Evrópu-
meistari í kúiuvarpi, varð annar
á Hálandaleikunum í frjálsum
íþróttum í kúluvarpi — varpaði
20.03. Sigurvegari varð
Wladyslav Komar, Olympíumeist-
arinn frá Munchen, en hann
varpaði líka 20.03. Jafnara gat
það ekki verið.Komar sigraði hins
vegar þar sem næstlengsta kast
hans var lengra en Hreins.
Jón Diðriksson keppti einnig á
Hálandaleikunum — og hann var
nærri íslandsmeti Svavars heitins
Markússonar — hijóp míluna á
4:07.2 en íslandsmet Svavars er
4:07.1.
Þá voru íslendingar í Donetsk í
Sovétríkjunum á Evrópu-
meistaramóti unglinga. Þórdís
Gísladóttir komst í úrslit í há-
stökki — en stökk aðeins 1,70 m,
sem er nokkuð frá hennar bezta.
Sigurður Sigurðsson hljóp í 100
og 200 metra hlaupum. — Hann
hljóp 100 metrana á 11.03 m og
200 metrana á 22.20 en komst
ekki áfram í riðlum sínum.
Valur eða Skaginn — já, hver
verður íslandsmeistari? Nú er
aðeins eftir ein umferð í íslands-
mótinu í knattspyrnu — og fara
fram þrír leikir í kvöld. Vals-
menn og Skagamenn berjast nú
hatrammri baráttu um Islands-
meistaratign — bæði lið með 26
stig og aðeins ein umferð eftir.
En það er ekki aðeins barizt um
Islandsmeistaratign — þeir Pétur
Pétursson og Ingi Björn heyja og
mikla keppni um markakóngs-
titilinn i ár.
Pétur Péturssson, á sínu fyrsta
ári í 1. deild hefur skorað 15 mörk
í leikjum sínum með Akranesi —
en Ingi Björn Albertsson hefur
skorað 13 mörk í l.deild með Val.
Fast á hæla þeim fylgir Sigurlás
Þorleifsson, hinn markheppni
Eyjamaður.
Urslit ráðast í vikunni. í kvöld
leika í Eyjum ÍBV og Skaginn.
Skagamenn verða bókstaflega að
sigra ætli þeir sér sigur í 1. deild.
Sér í lagi verða þeir að sigra þar
sem þeir hafa unnið upp tveggja
stiga forustu Vals. Með sigri í
kvöld setja Skagamenn pressu á
Val — sem verður þá að sigra
Víking á fimmtudagskvöldið.
Já, baráttan er hörð og
skemmtileg. Þá stefnir nokkuð
örugglega í að KA og Þróttur úr
Reykjavík komist í 1. deild og
taki þar sæti KR og Þórs sem
þegar eru fallin í 2. deild.
Staðan í 1. deild íslandsmótsins
þegar aðeins ein umferð er eftir í
mótinu:
Akranes 17 12 2 3 34-13 26
Valur 17 11 4 2 35-15 26
IBV 17 9 3 5 27-17 21
Víkingur 17 6 7 4 19-20 19
Breiðablik 17 7 4 6 25-23 18
Keflavík 17 7 4 6 26-26 18
FH 17 4 6 7 21-28 14
Fram 17 4 5 8 23-34 13
KR 17 3 3 11 23-33 9
Þór 17 2 2 12 19-43 6
Fimm siðustu leikir 1. deildar
eru — í kvöld — ÍBV-AkraneSi
FH-Þór, Keflavfk-Breiðablik. A
morgun — Fram-KR og síðasti
leikur Islandsmótsins verður
milli Vals og Víkings.
Markhæstu leikmenn íslands-
mótsins eru:
Pétur Pétursson 1A 15
Ingi Björn Albertssim Val 13
Sigurlás Þorleifsson ÍBV 12
Sumariiði Guðbjartsson Fram 8
Tómas Pálsson IBV 8
Atli Eðvaldsson Val 7
Sigþór Ómarsson Þór 7
Kristinp Björnsson ÍA 6
Ólafur Júlíussop, ÍBK 6
Þróttur sigraði Selfoss í gær-
kvöld fyrir austan, 2-0, með
mörkum Páls Ólafssonar. Staðan í
leikhléi var 0-0, en staðan í 2.
deild er nú?
KA 14 11 1 2 43-19 23
Þróttur, R. 14 10 2 2 32-14 22
Haukar 14 6 7 1 22-11 19
Ármann 14 7 3 4 23-17 17
Isafjörður 14 5 5 4 16-17 15
Reynir, S. 14 5 4 5 21-23 14
Völsungur 14 3 4 7 14-22 10
Þróttur N. 14 3 3 8 17-26 9
Selfoss 14 2 2 10 11-29 6
Reynir, Ar. 14 1 3 10 13-32 5
s
V
til Víkings
Víkingar hafa ráðið bót á
þjálfaravandamálum sínum í
handknattleik — eftir að
Pólverjinn Kutcha tilkynnti að
hann kæmi ekki sneru Víkingar
sér til Karls Benediktssonar, hins
góðkunna þjálfara.Karl hefur nú
byrjað æfingar með liði Víkings
en Karl Benediktsson gerði
Viking að Isiandsmeistara 1975.
Karl Benediktsson hefur með
góðan mannskap að gera, þeir
Arni Indriðason og Kristján Sig-
mundsson hafa báðir gengið í
raðir Víkinga og hafið æfingar
með félaginu.
Þá hefur Hörður Hilmarsson
tekið að sér þjálfun 2. deildarliðs
Stjörnunnar í vetur og mun
Hörður leika með félaginu í
vetur.
Nú fer óðum að draga nær
úrslitum í hinum ýmsu riðlum víðs
vegar um land, víða hafa félög
þegar tryggt sér þátttöku í úrslita-
keppni 3. deildar. Þau sex lið, er
komast upp úr riðlunum, leika í 2
riðlum — á Akureyri og fyrir
sunnan. Siglfirðingar eru nú óðum
að tryggja sér sigur i E-riðli, þeir
mæta Fylki og Tindastól á Akur-
eyri. í hinum úrslitariðlinum verða
liklega Austri frá Eskifirði, Leiknir
úr Breiðholti og síðan Grindavík.
Hins vegar hefur vakið furðu
hvernig sigurvegari 3. deildar
verður útnefndur, því vissulega
verður um útnefningu að ræða.
Sigurvegararnir í hvorum riðli um
sig leika ekki til úrslita, eins og ætla
mætti, heldur á markatala að ráða
um sigurvegara — án þess að liðin
mætist. Slíkt hefur vakið furðu —
langeðlilegast er að sérstakur
úrslitaleikur fari fram.
F-riðill:
En lítum fyrst á F-riðil, þar er
baráttan hvað hörðust en lík-
legastur sigurvegari er Austri þegar
aðeins ein umferð er eftir fyrir
austan. Austri sigraði um helgina
Hrafnkel Freysgoða frá Breiðdals-
vík á Eskifiðri, 4-2. Austri á eftir að
leika við Leikni frá Fáskrúðsfirði og
nægir væntanlega jafntefli til að
tryggja sigur.
Mörk Austra skoruðu Halldór
Árnason, 2, Leifur Helgason og
Bjarni Kristjánsson í sanngjörnum
sigri. Einherji frá Vopnafirði
heldur enn í von um úrslitasæti,
Einherji vann góðan sigur á Horna-
firði gegn Sindra — fyrsta tap
Sindra á Hornafirði í sumar. Að
vísu voru úrslit tvísýn lengi framan
af en þeir Baldur Kjartansson,
Kristján Davíðsson, Sveinn Hreins-
son og Helgi Ásgeirsson skoruðu
mörk Einherja. Mörk Sindra
skoraði Einir Ingólfsson.
Þriðji leikurinn fyrir austan var
viðureign Hattar og Leiknis á Egils-
stöðum. Leiknir sigraði 3-2 með
mörkum Baldvins Reynissonar 2, og
Svans Kárasonar. Snæbjörn Vil-
hjálmsson og Hafliði Pálsson
skoruðu mörk Hattar.
Staðan í riðlinum er nú.
Austri 11 8 1 2 23-9 17
Einherji 11 8 0 3 28-10 16
Hrafnkell 11 6 2 3 16-15 14
Leiknir 11 5 1 5 20-17 11
Huginn 11 5 1 5 13-21 11
Sindri 12 2 2 8 12-24 6
Höttur 11 1 0 10 9-25 2
Það hefur iðulega viljað brenna
við að kærur hafa verið í gangi á
Austfjörðum — og er svo í sumar.
Austri kærði jafnteflisleik sinn
gegn Sindra á Hornafirði og er
Austri liklegur til að vinna þá kæru.
Þá kærði Hrafnkell leik gegn
Sindra — og aftur er líklegt að
Sindri tapi kærunni. Þriðja kæran
er kæra Hugins á hendur Leikni en
sennilegt er að Huginn dragi hana
til baka.
S.G.
D-riðill:
Efstu liðin í D-riðli, Tindastóll og
Víkingur, léku í Ólafsvík og sigruðu
Víkingar örugglega, 5-2. Staðan í
leikhléi var 2-0 Víkingi í vil með
mörkum Atla Alexanderssonar og
Magnúsar Sigurðssonar. En Birgir
Rafnsson minnkaði muninn í 2-1
fljótlega í síðari hálfleik, Þorgrímur
Þráinsson jók svo forustu Víkings i
3-1, Karl Ólafsson minnkaði muninn
í 3-2 fyrir Tindastól en þeir
Jóhannes Kristjánsson og Helgi
Kristjánsson tryggðu stóran sigur
Víkings í hörðum leik þar sem
Víkingarnir voru mun ákveðnari.
En úrslit leiksins hafa engin
endanleg áhrif á sigurvegara í riðl-
inum, þar er Tindastóll öruggur
sigurvegari.
Iþróttir
íþróttir
TV/NCffCSTER
HAGLABYSSUROGRIFFLAR
Haglabyssur:
Einhleypa 12 cal og 16 cal. Verð. 18.590,-
12 cal. pumpur 5 skota með og án lista 2VC' og 3”
verð 54.720.- — 54.720.- — 58.440.-
12 cal. pumpur 5 skota:
2H” án lista kr. 54. 720.
3” án lista kr. 58.440 magnum
23A með lista kr. 62.010
3” með lista kr. 65.725, magnum
23/\ með lista og winchoke 62.455.
12 cal. pumpa sjálfvirk 3 skota 23A" með winchoke kr. 71.230.-
Rifflar:
22 cal. rilfill boltaciion magazine 12-18 skota verð kr. 20.820.
22 cal. riffill clip magazine 10 skota verð 23.790.-
22. cal. riffill. Sjálfvirkur. 15-17 skota verð 29.590.-
222 cal. riffill magaziní 5 skota verð 73.010.
243 cal. riffill magazine kr. 75.010 5 skota.
22. cal. riffill Lever action 15-21 skota verð kr. 56.500,-
Póstsendum
Utilíf
Glæsibæ — Sími 30350
Valur eða ÍA
Ingi eða Pétur
— úrslit ráðast um helgina, hverjir
hreppa íslandsmeistaratign
og markakóngstign
Iþróttli
KSoí
frá úi
— sigruðu bæðií
íhdp F]
Karl Ben,