Dagblaðið - 25.08.1977, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. AGÚST 1977.
" '
Ófremdar-
ástand í
skipa-
viðgerðum:
Hllögur um stofnun
öflugs félags
Hægt yrði að framkvæma viðgerðir á öllum skipastólnum
Aóstaða til skipaviógerða
hefur veriö óviðunandi í
Reykjavík og hefur það verið
viðurkennt í skýrslu um at-
vinnuþróun í Reykjavík undan-
farin ár. Stjórn Félags járn-
iðnaðarmanna hefur þvi boint
því til borgarráðs Raykjavíkur
að borgin gangist fyrir stofnun
öflugs hlutafélags eða sam-
eignarfélags til að byggja upp
og roka fullkomna skipalyftu
og þurrkví ásamt skipaviðgerða
og skipasmíðastöð í Reykjavík.
Bygging slíkrar stöðvar miðist
við það að hægt verði að fram-
kvæma allar viðgerðir á stærri
fiskiskipum og öllum kaupskip-
um ísl. skipastólsins.
Dagblaðið ræddi við Guðjón
Jónsson formann Félags járn-
iðnaðarmanna og sagði hann
brýna þörf á að ráðast f þessar
framkvæmdir sem fyrst.
Aðstaða í og við Slippinn f
Reykjavík væri fyrir neðan all-
ar hellur. Skipalyftan þar þyldi
ekki stærri skuttogarana og
kaupskipin og þvf færi mest af
viðgerðum á þeim fram erlend-
is, en nokkuð á Akureyri, þar
sem hægt væri að taka togarana
upp. Enginn krani væri heldur
f Slippnum og flytja þyrfti
ýmislegt úr vélsmiðjunum í
gegnum alla borgina.
Guðjón sagði að Reykjavíkur-
borg hefði ráðgert athafna-
svæði fyrir slfka starfsemi við
Elliðaárvog, norðan við Gelgju-
tanga. Þar væri að mati jarð-
fræðinga auðvelt að grafa út
þurrkví og þar væri landrými
fyrir athafna- og byggingar-
svæði fyrir iðnfyrirtæki sem
starfa að viðhalds- og viðgerðar-
þjónustu við skip.
Auk Reykjavfkurborgar
telur Félag járniðnaðarmanna
eðlilegt að vélsmiðjur, járn-
iðnaðarfyrirtæki, útgerðar- og
skipafélög og tryggingafélög
taki þátt í þessari félagsstofn-
un.
- JH
Læknar mannleg
mein með iljanuddi
Eigirðu við óþægindi að stríða í
blöðruhálskirtli, milta eða eggja-
stokkum, eða ert kannski með
harðar axlir og hálsvöðva, þá
kann ráðið að vera nudd á réttum
stað undir ilinni. Þetta er í stuttu
máli kenning Eunice D. Ingham á
Zone Terapi eða svæðameðferð-
inni svonefndu.
í bók sem Örn og örlygur hafa
sent frá sér um þetta efni er skýrt
í smáatriðum frá þrýstinudds-
aðferð Inghams á fleti taugavið-
bragða. Segir í bókinni að f
Bandaríkjunum viðurkenni máls-
metandi menn þessa aðferð sem
vísindalega tilraun til áhrifa á
vefi fyrir tilstuðlan taugavið-
bragða f fótum, auki slökun, sem
feli í sér ómetanlega lækninga-
möguleika.
Höfundurinn nuddar bónda sinn.
„Tími sögu-
sagnanna”
segir Bjarni
Guðnason
„Það gef ég ekkert út á,“
sagði Bjarni Guðnason prófess-
or er Dagblaðið spurði hann,
hvort hann hygði á óháð fram-
boð í næstu alþingiskosningum.
„Fólk er vafalaust að velta'
ýmsu fyrir sér, en ég hef ekkert
um framboð að segja. Þetta er
tími sögusagnanna," sagði
Bjarni ennfremur. . jjp
Stundum verður hamagangurinn
slíkur að hieypt er inn f gusum.
Það er ekki um neitt annað að
ræða en bíða.
DB-myndar R.Th. Sig.
sala
Enn lifir sá hugsunarháttur
meðal íslenzku þjóðarinnar að
það borgi sig að fara á útsölur.
Þrátt fyrir verðbólguna og orða-
tiltækið um að það borgi sig ekki
að spara fjölmennir þjóðin, sér-
staklega kvenþjóðin, enn á útsöl-
ur. Þegar blaðamaður og ljós-
myndari DB gengu í gær niður
Laugaveginn komu þeir auga á
biðröð fyrir utan eina af tízku-
verzlunum bæjarins. Þar fyrir
innan dyrnar var útsala og
komust færri inn en vildu. Þegar
svo inn var komið var um að gera
að kaupa nógu mikið til þess að
ferðin borgaði sig.
- DS
1»
Laglegar sumarpeysur, — hljóta
að vera vei nothæfar f vetur líka?
FÝLAN ÆTLAR KEFLVÍK-
INGA LIFANDIAÐ DREPA
„Það eru allir að gefast upp á
þessu,“ sagði Erna Sigurbergs-
dóttir, Iláaleiti 28 f Keflavík, í
viðtali við DB og átti þar við
hina megnu fýlu sem leggur
yfir Keflavíkurbæ þegar brætt
er i Fiskiðjunni. „Við erum al-
veg að kafna, ekki er hægt að
hafa börnin utan dyra því þá
— úldin
loðnulykt
affatnaði og
börnin æla
fara '•þau að æla. Fötin okkar
anga af bræðslulyktinni og hús-
in öll," hélt Erna áfram og lýsti
hinu hörmuiega astaudi sem
Keflvfkingar eiga við að búa f
mengunarvörnum. „Svo virðist
sem fyrirtækið fái að bræla yfir
okkur ár eftir ár, allan timann
á undanþáguleyfi frá heil-1
brigðisráðuneytinu. Mér finnst
að í þessum málum þurfi að
gera eitthvað róttækt, skikka
verksmiðjuna til að draga úr
fýlunni, eins og málum er nú
komið gengur þetta ekki mikið
lengur."
- BH