Dagblaðið - 25.08.1977, Side 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. AGUST 1977.
13
Iþróttir
Iþróttir
Bþróttir
róttir
I
Olympmmeistarinn kúb-
anski lék sér að Boit
—f rábær árangur í mörgum greinum á stórmóti í f rjálsum íþróttum
íZurich ígær. Þjóðverji sigraði Walker í1500. Komar sigraði
íkúluvarpi og bezti heimsárangurinn náðist ítveimur greinum
Loksins kom að hinu langþráða
einvigi i 800 m hlaupi milli
kúbanska ólympíumeistarans
Alberto Juantorena og Mike Boit,
Kenýa. Þetta gerðist í Ziirich í
Sviss í gær, á miklu frjáisíþrótta-
móti. Það fór aldrei á milli mála
hvor hlauparanna var sterkari.
Kúbumaðurinn, sem setti heims-
met á vegalengdinni fyrir viku í
Sofía, vann nær átakalaust. Hann
var sekúndu á undan Boit, en
þetta var í fyrsta skipti sem þeir
mættust á hlaupabrautinni. Juan-
torena var rétt við heimsmet sitt,
hijóp á 1:43.64 mín. — heims-
metið er 1:43.44 mín.— en Boit
Grænt I jós
hjá Marteini
— Standard tapaði
fyrir Anderlecht
ígær
Það er nú orðið ijóst, að ég get
leikið báða HM-Ieiki íslands í
næstu viku, sagði Marteinn Geirs-
son þegar blaðið ræddi við hann i
morgun. Leikurinn við Holland
næstkomandi miðvikudag var
öruggur en vafi með leikinn við
Belga annan laugardag. I gær
fékk ég grænt ljós hjá félagi
mínu, Union, og get þvi leikið
báða HM-leikina. Sama er að
segja um Asgeir Sigurvinsson og
Guðgeir Leifsson, sagði Marteinn
ennfremur.
Umferð var í 1. deiidinni
belgísku i gær. Þá léku Standard
Liege við Anderlecht og tapaði
sínum fyrsta leik. Leikið var í
Brussel og Anderlecht, vel stutt
af áhorfendum, var mun betra
liðið í þeirri viðureign og sigraði
3-1. Þeir Nielsen, sem er
nýkominn frá Molenbeek tii
Anderlecht, holienzki landsliðs-
maðurinn Are Haan og van der
Elst skoruðu mörk Anderlecht.
Eina mark Standard skoraði
Riedel. Asgeir Sigurvinsson átti
góðan leik með Standard en það
nægði ekki gegn hinum sterku
mótherjum. Það var mikið talað
um það i belgíska sjónvarpinu í
gær, þegar leikurinn var sýndur,
að þar léku 10 útlendingar með
báðum liðunum.
Royale Unión lék æfingaleik í
gær við annað lið úr 2. deild. Þeir
Marteinn og Stefán Halldórsson
léku báðir með Union. Jafntefli
varð, 0-0. Næsta sunnudag leikur
Union í bikarkeppninni en
keppnin í 2. deild er ekki hafin.
Waregem hefur forustu eftir
þrjár umferðir í 1. deildinni,
hefur sex stig. Anderlecht og
meistarar FC Brugge, sem
sigruðu Boom á útivelli 0-1 í gær,
eru með fimm stig. Standard er
með fjögur stig. Þá má geta þess
að Charleroi sigraði í gær — liðið
sem Guðgeir hefur leikið með tvö
síðustu árin.
varð annar á 1:44.64 mín. Þriðji i
hiaupinu varð Miiovan Savic,
Júgóslaviu, á 1:46.14 mín. og Tom
McLean, Bndaríkjunum fjóðri á
1:46.65 mín.
Annað stórhlaup var í 1500 m á
mótinu í Ziirich. Þar áttust við
Johnny Walker, Nýja-Sjálandi, og
Vestur-Þjóðverjinn Thomas
Wessinghage. Walker virtist
öruggur með að sigra í hlaupinu,
hafði gott forskot um tíma í loka-
sprettinum, en Þjóðverjinn var
harður, smávann upp forskotið
og v-ann heimsmethafann í mílu-
hlaupinu á lokametrunum.
Wessinghage fékk tímann 3:37.37
mín., Walker hljóp á 3:37.41 mín.
og Bernhard Vifian, Sviss, varð
þriðji á 3:32.2 mín. sett í febrúar
1974.
Mjög góður árangur náðist í
mörgum greinum á mótinu. í 110
m grindahlaupi kom það á óvart
að Bandaríkjamaðurinn Charles
Foster sigraði kúbanska heims-
methafann Casanas. Foster hljóp
á 13.49 sek. en Kúbumaðurinn á
13.51 sek. svo minni gat munur-
inn ekki verið. Þá kom líka á
óvart að ólymípumeistarinn Don
Quarrie, Jamaíka varð að láta sér
nægja annað sætið í 100 m.
hlaupinu. Hann hljóp á 10.22 sek.
en sigurvegari varð hlauparinn
kunni, Steve Williams, USA, á
10.16 sek.
Bezti árangur heims náðist í
tveimur hlaupum. Pólska hlaupa-
konan heimsfræga, Irena Szer-
winska, hljóp 200 m. á 22.37 sek.
og varð vel á undan Eckert,
Austur-þýzkalandi, sem hljóp á
22.63 sek. Tími þeirra pólsku er
sá bezti á vegalengdinni í ár. Þá
hljóp bandarísk sveit 4x100 m
boðhlaup á 38.56 sek., sem er
bezti heimstíminn, en í sveitinni
hlupu Bill Collins, Steve Riddick,
Cliff Wiley og Steve Williams.
Sveitin hafði algjöra yfirburði í
hlaupinu.
Pólski ólymípumeistarinn í
kúluvarpinu frá 1972, Vladislav
Komar, sigraði í sinni grein,
varpaði 20.54 m og var hinn eini
sem varpaði yfir tuttugu metrana.
Næstur varð Ralf Reichenbach,
V-Þýzkalandi, með 19.94 m og í
þriðja sæti Terry Albritton, USA,
með 19.78 m.
I 5000 m hlaupinu náðist frá-
bær árangur. Bandaríkjamaður-
inn Marty Liquari gerði sér lítið
fyrir og sigraði heimsmethafann
Dick Quax, Nýja-Sjálandi, og setti
nýtt, bandarískt met, hljóp á
13:16.00 mín. Quax hljóp á
13:17.32 mín. Miruts Yifter,
Eþíópíu, varð þriðji á 13:18.12
mín., sem er nýtt landsmet.
Samson Kimowbwa, Kenýa, varð
fjórði á 13:21.56 mín. og landi
hans, Rono, fimmti á 13:22.18
min. I sjötta sæti varð Frakkinn
Jacky Boxberger á 12:23.59 mín.
sem er franskt met.
Af úrslitum í öðrum greinum
má nefna að Dwight Stones, USA,
sigraði í hástökki, stökk 2.30
metra. Rory Kotinek, USA, varð
annar með 2.27 m en pólski
ólympíumeistarinn Jecek Wszola
varð að láta sér nægja þriðja
sætið, stökk 2.21 m. í 400 m
grindahlaupi sigraði Edwin
Moses, USA,á 48.60 sek. en Wes
Williams, USA, varð annar á
49.33 sek. Marlies Oelsner, A-
Þýzkalandi, nýi heimsmethafinn i
100 m hlaupi kvenna, sigraði á
þeirri vegalengd á 11.21 sek. en
Irefna Szewinska varð önnur á
11.27 sek. í 200 m hlaupinu tókst
Don Quarrie að hefna fyrir
ósigurinn í 100 m, hljóp á 20.26
sek., en Steve Williams varð
annar á 20.42 sek. Clancy Edwars,
USA, varð þriðji á 20.51 sek. og
Steve Riddick, USA, fjórði á 20.56
sek. í stangarstökki sigraði
Kozakiewicz, Póllandi, stökk 5.60
metra, en landi hans, Buciarski,
varð annar með 5.45 m. Annie
Robinson, USA, sigraði í lang-
stökki, stökk 8.22 m og Wolfgang
Schmidt, A-Þýzkalandi, sigraði í
kringlukasti, kastaði 68.28 m.
Heimsmethafinn Mac Wilkins,
USA, varð annar með 66.34 m.
hsím.
Þola Valsmenn
pressuna, eða verður
ÍA íslandsmeistari
Víkingur og Valur mætast íLaugardal ísíðasta leik mótsins
Reykjavíkurliðin Valur og Vík-
ingur mætast í 1. deild íslands-
mótsins og bæði verða að sigra
vilji þau fá aukaleik um sæti í
Evrópukeppni í ár. Já, leikurinn í
kvöld er vissulega mikilvægur
báðum liðum. Valsmenn verða að
sigra vilji þeir knýja fram auka-
leik við Skagamenn um íslands-
meistaratign í ár. Víkingur hins
vegar á ekki möguleika á að sigra
í íslandsmótinu en sigri Víkingar
í kvöld knýja þeir fram aukaieik
við ÍBV um sæti í UEFA-
keppninni að ári.
Það er greinilega til mikils að
vinna fyrir bæði lið þó auðvitað sé
meira í húfi fyrir Valsmenn —
íslandsmeistaratign. Pressan er
því öll á Val, hinum ungu leik-
mönnum Vals.
Valur hefur dalað nokkuð
knattspyrnulega séð í síðustu
leikjum, hverju um er að kenna
er erfitt að segja. Hitt er að álagið
á leikmönnum Vals hefur verið
gífurlegt í sumar. Valsmenn hafa
staðið í eldlínunni í 1. deild, þeir
hafa þegar tryggt sér sæti í
úrslitum bikarsins og í sumar
hafa þeir átt flesta fulltrúa í
landsliði allra félaga. Því hefur
hver leikur verið Val úrslita-
leikur og þreytumerki verið að
koma fram.
Valsmenn hafa í síðustu tveim-
ur leikjum sínum aðeins fengið
tvö stig en í báðum leikjum, gegn
FH og Fram, jafnað undir lokin.
Pressan, sem hefur verið á leik-
mönnum, hefur greinilega sýnt
sig, komið fram á leikmönnum..
Valsmenn náðu alls ekki að sýna
sínar réttu hliðar í þessum leikj-
um og Sigurður Dagsson, hinn
annars trausti landsliðsmark-
vörður, fengið heldur ódýr mörk
á sig.
Víkingar hafa hins vegar engu
að tapa. Þeir hafa aftur á móti
fengið aðeins eitt stig í síðustu
þremur leikjum sínurti og Vals-
menn ættu því ekki að vera í
erfiðleikum með sigur ef litið er á
síðustu leiki. '
Það stefnir því í stðrleik mikil-
vægasta leik Vals á keppnistíma-
bilinu, og, reyndar, Víkingar
eygja skyndilega möguleika á
sæti í Evrópukeppni. Leikurinn í
kvöld fer fram á aðalleikvangin-
um í Laugardal og hefst kl. 7.
h.halls.
fDómari. Eg þarA ( Bomnú. hvernig")
L-ui.i'i L’ptnrrtii. ---
© KinR Features Syndicatu, Inc.. 1975 World r.Bht,
Juantorena
hlaupi.
tapar aldrei
Austurríki
vann Pólland
Austurríki sigraði Pólland i
landsleik í knattspyrnu í Vínar-
borg í gær, 2-1. Stering skoraði
fyrra mark Austurríkis á 14. mín.
og Krankl það síðara á 29. mín.
Lið„ Austurríkis hafði mikla yfir
burði í fyrri hálfleik til mikillar
ánægju fyrir 28.500 áhorfendur.
Pólverjar sluppu vel að fá ekki á
sig fleiri mörk.
í siðari hálfleiknum voru
gerðar þrjár breytingar á pólska
liðinu og það náði betur saman.
Eina mark liðsins skoraði vara-
maðurinn Kmicek á 71. mínútu.
Nec efst
íHollandi
Fjórða umferð í 1. deildinni
hollenzku var háð í gær og eftir
hana er Nec efst með átta stig.
Ajax hefur sömu stigatölu en
lakara markahlutfall. PSV
Eindhoven hefur sjö stig og
Sparta sex. Helztu úrslit í gær
urðu þessi:
Venlo-Amsterdam 3-0
Nec-Volendam 2-1
Haag-Telstar 3-0
Sparta-Deventer 4-0
PSV-Rodá' 4-0
Twcnte-Fejenoord 1-1
Haarlem-Breda 0-0
Ajax-Arnhcm 3-1
AZ '67-Utrecht 4-1
Nec er frá borginni Nijmegen,
þar sem HoIIand og Island leika
HM-leikinn næstkomandi mið-
vikudag