Dagblaðið - 21.09.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 21.09.1977, Blaðsíða 1
3. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 21. SEPT. 1977. — 207 TBU. RITSTJÖRN SÍÐUJHOLA 12. AUGLVSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSÍMI 27022 Sáttatillagan í deilu BSRB og ríkisins: } Launin verði á bilinu 88 til 262 búsunú krónur Tilboð ríkisins um lægstu flokka óbreytt, miðjuflokkar hækki um 6-7% og 30 þúsund kr. „jólaglaðningur” til þeirra elztu Sáttatillaga i deilu BSRB og ríkisins barst rétt fyrir miðnættið í nótt. Dagblaðið hafði samband við Harald Steinþórsson, framvkæmdastj. BSRB í morgun og spurði hann um efni tillögunnar. Hann sagði að neðstu launastigarnir væru óbreyttir frá tilboði ríkisins. Síðan væri 6-7% hækkun á miðju flokkunum og síðan hjaðnar það út til endanna. Ekki er um flokka- hækkun að ræða eins og hjá sveitarfélögum á Reykjanesi. Þá er gert ráð fyrir 30 þús. króna tekjuuppbót í desember fyrir þá, sem hafa langan starfsaldur. Orlof hefur ekki tekið nein- um breytingum, og er ekki endurskoðunarréttur á samningstímabilinu, en BSRB lítur á þann rétt sem veiga- mikið jafnréttisatriði á við önn- ur stéttarfélög. Vaktaálag er örlítið breytt, þ.e. hækkun á en þó ekki samningana næturvöktum, líkingu við Reykjanesi. Talserður mismunur er á flokkum og þannig komið til móts við þær tillögur sem BSRB hefur lagt 'fram, þótt ekki hafi verið fallizt á jafna krónutölu milli flokka. Þessi sáttatillaga þýðir að lægstu laun í byrjendaflokki verða 88 þúsund krónur, en hæstu laun fara upp í 262 þúsund. Ekki bjóst Haraldur þó við að margir færu í þann flokk, en eftir er að raða í flokkana. Hann vildi ekki tjá sig um það hvort hann teldi samningana viðunandi, fyrr en eftir fund í samninganefnd BSRB í dag, þar sem afstaða verður tekin til samninganna. Allsherjaratkvæðagreiðsla um samningana fer síðan fram 2. og 3. október nk. -JH. „Ekki ástæða til þess að brosa..." Starfsmenn BSRB höfðu farið yfir sáttatillögu sáttanefndar i kjaradeilu BSRB og rikissjóðs í nótt, en tillagan er mikið plagg, 54 síóur alls. Þeir Kristján Thorlacius formaður BSRB og Haraidur Steinþórsson fram- kvæmdastjóri voru enn að velta tiilögunni fyrir sér í morgun og sögðu þeir, að ekki væri ástæða til þess að vera brosandi á þessari mynd. Að öðru leyti vildu þeir ekki tjá sig um viðbrögð BSRB við tiilögunni. -HP/DB-mynd: Hörður. Vilhjálmur vill komast í VíðÍShÚSÍð — bls.5 Skilja dýrín kannski ekki ensku?: Enskur dýralæknir fær ekki atvinnuleyfi við dýraspítalann ________________________— bls.9 Gamla fólkið fær gott tilboð: Tveir vetrarmánuðir í sumarsól fyrir ellistyrkinn _ bis. 9 Lögreglumaður rændi banka — sjá erlendar f réttir á bls. 6 og 7 r Víðishiísið: " Nýtt stigahús og hreinlætisaðstöðu — þarf m.a. svo húsið verði nothæft „Hreinlætisaðstaða sú, sem nú er í húsinu er svo litilfjörleg að telja má að hreinlætisað- staða sé ekki fyrir hendi, nema hvað viðvíkur stofnlögn á ein- um stað“. Þetta er orðrétt til- vitnun í skýrslu sem gerð var á vegum þess opinbera um hús- næði það sem ríkissjóður hyggst kaupa fyrir 259 milljón- ir króna, og gera siðan upp fyrir 340 milljónir. Þarna er auðvitað um að ræða Víðishúsið hans Guðmundar Guðmunds- sonar, að Laugavegi 166. Margt fróðlegt kemur í ljós þegar að gluggað er í skýrslu bessa og sannast sagna hlýtur þeim sem les lýsingar þær sem þarna koma fram á húsnæðinu að ofbjóða að nokkur skuli vilja kaupa húsið á 259 milljónir. „Frágangur á stigahúsi er lé- legur og verður vart gerður við- unandi, nema með miklum til- kostnaði. Ætti að gera bót á stigum hússins, kæmi helzt til greina að byggja nýtt stigahús utan við bygginguna“, segir i skýrslunni. Kemur m.a. í ljós að þannig hefur verið staðið að byggingu hússins upphaflga að burðar- bitar hússins eru það síðir að þeir ná niður fyrir efstu brún glugga svo ekki er hægt að klæða allt loftið af í einum fleti, ef ekki á að klæða fyrir glugg- ana. „1 álmu meðfram Nóatúni eru tvær súlnaraðir, langs eftir húsinu, ca 5 m frá útvegg og með 5 m millibili. Af þessum sökum er erfitt að koma fyrir skemmtilegum sk-ifstofuher- bergjum, án þess að taka mjög mikið í ganga, eða einhverjar geymslur inni í miðju húsinu", segir í skýrslunni. Ennfremur er niðurstaðan á athugun hitalagnarinnar í Víðishúsinu sú að: „Telja má fullvíst að svotil ekkert verði eftir af núverandi lögnum og ofnum, þegar búið væri að gera nauðsynlegar breytingar á hita- lögnum“. Verðmæti Víðishússins er metið samkvæmt opinberum skýrslum ekki nema 135 milljónir króna, þar eð það telst vera mitt á milli þess að vera fokhelt og tilbúið undir tré- verk. Engu að síður er ætlun stjórnvalda að greiða 259 milljónir fyrir húsið. Svo sem DB hefur skýrt frá var tilboð rikisins í húsið hækkað á sínum tíma úr 220 milljónum í 259 milljónir króna. 39 milljónirnar, sem parna ber á milli munu, sam- kvæmt áreiðanlegum heimild- um, renna nær óskiptar í flokkssjóð Sjálfstæðisflokksins, enda tvennar kosningar fram- undan, blá bók, og mikil útgjöid jafnt hjá Sjálfstæðisflokknum sem öðrum flokkum. i .

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.