Dagblaðið - 21.09.1977, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 21.09.1977, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUH 21. SF.PTEMBER 1977. 15 ÁSGEIR TÓMASSON Nyjasta nýtt: RAFFLYGILL Tæknibylting Japana hefur fyrir löngu markað sín spor í framleiðslu hljóðfæra og hljómflutningstækja og nú um helgina var tónlistarmönnum og fleiri gestum boðið að skoða hið nýjasta nýtt frá Yamaha, rafmagnsflygil. Menn komu nú heldur vantrúaðir á þennan fund en þar voru samankomnir margir af okkarfremstu píanóleikurum (að vísu vantaði Askenasy) og virtu þeir fyrir sér gripinn með furðu. Rafflygillinn er mun minni en hinir venjulegu og Paul Bernburg, sem flytur flygilinn inn, veitti þær upplýsingar að hægt væri að taka flygilinn sundur í tvo hluta en tveir hátalarar fylgdu. AUt í allt vegur flygillinn um 120 kg. Og hljómurinn. Menn voru sammála um að þessu hefðu þeir ekki átt von á. Varla er hægt að greina nokkurn mun á hljóminum úr honum ogvenjuJegumkonsert- flygli og voru margir fúsir til þess að taka lagið. Stutt er síðan Yamaha hóf framleiðslu á þessum flvgli og hefur hann þó náð gífurlegri út- breiðslu. Meira að segja fiestar stórstjörnur í poppinu not.. hann og nefna má sem dæmi að ABBA notaði slíkan flygil á tónleika- ferðalagi sínu um Evrópu í vor. -AT. Eftirvæntingin ieyndi sér ekki og voru menn einbeittir á svip er Karl Sighvatsson settist við hljóðfærið. Karl Möller og Guðmundur Ingólfs- son þurftu einnig að skeggræða um gripinn. DB-mynd Bjarnleifur. Dennis Wilson sinn að semja lag um brimreið. Brian samdi þá lagið Surfin. Þetta lag var fljótlega hljóð- ritað og þá datt einhverjum f hljómplötufyrirtækinu í hug að hljómsveit þeirra bræðra yrði að hafa nafn, sem minnti á lagið. Beach Boys (Stranda- glópar!) varð fyrir valinu. Síðar fyigdu fleiri brimreiðar- lög f kjölfarið, svo sem Surfin’ Safari, Surfin USA og Surfer Giri. Nýlega skiptu Beach Boys um hljómplötufyrirtæki og starfa nú fyrir CBS. Sólóplata Dennis, Pacific Ocean Blue, kemur út hjá því fyrirtæki og sömuleiðis næsta plata hljóm- sveitarinnar. Hún kom nýlega fram á lokuðum tónleikum sem fyrirtækið efndi til f London fyrir starfsfólk sitt og þótti ekki standa sig nægilega vel. Víst er um það að yfirleitt hefur hún staðið sig betur í stúdfóum en á híjómleikapöll- um. - ÁT BKACII BOYS — í árdaga. Frá vinslri eru Brian Wilson, Mike Love, Dennis Wilson, Carl Wilson og Alan Jariden. Fyrsti Beach Boys meðlimurinn gerir sólóplötu — Dennis Wilson ríður á vaðið Eftir að Beach Boys hafa starfað saman í heil sextán ár, er loksins komið að því að einn meðlimurinn geri sólóplötu. Þar er á ferðinni Dennis Wilson, —r sá í miðið af Wilson- bræðrunum — sem hefur lengst af séð um trommuleik hjá hljómsveitinni. Á plötunni, sem ber nafnið Pacific Ocean Blue, eru 12 lög, öll eftir Dennis sjálfan. Lög þessi eru yfirleitt róleg og mjög þung. Fjöldi hljóðfæraleikara kemur fram á plötunni, sem Dennis stjórnaði upptökunni á sjálfur. Þar má helztan telja Bruce Johnston sem eitt sinn starfaði með Beach Boys. Dennis hefur gert dálítið af því um ævina að semja lög sem síðan hafa komið á plötum Beach Boys. Lög eins og Steamboat og Only With You eru bæði eftir hann og eru ágætis samanburður við það efni sem hann býður upp á á Pacific Ocean Blue. I raun og veru er það Dennis Wilson að þakka að Beach Boys hlutu það nafn en ekki eitthvað annað. Hann var sá eini í hljóm- sveitinni sem hafði gaman af fþrótt þeirri sem kallast surf riding, eða brimreið eins og það kallast á íslenzku, sem er tfðkuð mjög á vesturströnd Bandaríkjanna. Dag nokkurn árið 1961, þegar Dennis kom heim af ströndinni eftir erfiðan dag, bað hann Brian bróður

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.