Dagblaðið - 21.09.1977, Page 7

Dagblaðið - 21.09.1977, Page 7
wMM, DACiBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAtiUR 21. SEPTEMBER 1977. 7 Erlendar fréttir REUTER Danmörk: Rifizt á allsherjarþinginu ut af Kambodiu — þingMscttrgor Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna var sett i 32. sinn i New York í gær. Tvö ný ríki hafa verið tekin inn í samtökin, Víetnam og Djibouti. Nú eru ríkin orðin 149. Þingið var tveim tímum á eftir áætlun, vegna þess að rif- izt var um það hvort Kambódía ætti að hafa kosningarétt eða ekki. Kosinn var nýr forseti, Lazar Mojsov frá Júgóslavíu. Kambodía skuldar miklar fjárhæðir til Sameinuðu þjóðanna og hefur ekki greitt árgjald sitt þetta árið. Talið er að landið skuldi 200 þúsund dollara til samtakanna. Þessar skuldir eru að minnsta kosti tveggja ára, en landið hefur ekkert greitt til Sameinuðu þjóðanna síðan Rauðu khmerarnir tóku þar völdin. Suður-Afríka hefur ekki haft atkvæðisrétt síðan árið 1974 en landið skuldar einnig miklar fjárhæðir til samtakanna. LÖGREGLUMAÐUR RÆNDIBANKA —fór með fenginn burt ílögreglubfl Lögregluþjónn sem starfaði í deild þeirri sem hafði með rán að gera, var nýlega handtekinn fyrir að hafa framið bankarán. Hann rændi um 20 þúsund dönskum krónum úr Andelsbankanum í Árhúsum. Lögregluþjónninn kom vopnaður inn í bankann, með nælonsokk yfir hausnum. Hann beindi byssu sinni að gjaldkeran- um og heimtaði féð af honum. Fékk hann afhentar um 20 þús- und danskar krónur og hvarf síðan á brott í bíl. Bíllinn sem maðurinn ók á er í eigu lögregl- unnar, en þegar hann ók burt, þá náði starfsmaður í Provinsbank- anum númerinu á bílnum, en sá banki er í næsta húsi við Andels- bankann. Gjaldkeranum í Andelsbankan- Helt i sig heimsins bezta bjór Munchenarhátíðin stendur sem hæst Hin árlega hátíð í Miinchen í Þýzkalandi stendur nú sem hæst. Þar keppast menn nú við að hvolfa í sig heimsins bezta bjór, að ógleymdum öllum þeim góða mat sem þar er einnig á boðstólum. Næstu vikurnar eða svo munu um fimm milljónir gesta koma á hátíðina í Munchen, alls staðar að úr heiminum. Eins og allir vita er bjórinn aðeins mældur í lítrum á Miinchenar- hátíðinni og þar belgja menn sig út eins og þeir mögulega geta. Það lízt ekki öllum á blikuna þegar þeir eiga að fara að borga þetta árið, vegna þess að allt hefur hækkað svo'mikið undan- farin ár. Þar er ekkert undan- skilið og lúðrasveitirnar ætla ekkert að gefa blásturinn þetta árið. Sapporo í Japan er vinaborg Múnchen og þaðan var um 40 gestum boðið á hátíðina. Að líkindum tæmast margar litrakrukkur af bjór á Miinchenarhá- tíðinni í Þýzkalandi. SÍMI í MÍMI ER 10004 Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám. um tókst að ýta á neyðarbjöllu, sem heyrist ekkert í í bankanum sjálfum. Lögreglan komst því fljótt á spor mannsins og fann bíl hans í bílageymslu lögreglunnar, en þar hafði ræninginn skilið hann eftir. Hann tók svo strætis- vagn heim til sín, en þar geymdi hann feng sinn. Við yfirheyrslur játaði lög- reglumaðurinn að hafa framið ránið, en hann var dæmdur I fjögurra vikna gæzluvarðhald. Maðurinn á yfir höfði sér margra ára fangelsi. Jagger Rollingur skilinn Rollingurinn frægi, Mick Jagg- milljónir króna við skilnaðinn, en Dóttir hjónanna, Jade, sem er er, og kona hans, Bianca, hafa hún vil einnig fá tæpar tvær fimm ára, verður þar sem hún ákveðið að skilja. Þau hafa fengið milljónir á mánuði í lífeyri næstu hefur verið hingað til, hjá barna- sér lögfræðing til að ganga frá þrjú árin. píunni sinni. málum sinum. Frúin vill fá 900

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.