Dagblaðið - 21.09.1977, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977.
prottir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Knapp.
Ellert sá
Skota vinna
Tékkana!
Skotland sigraði Tékkó-
slóvakíu 2-1 í Edinborg í gær í
Evrópukeppni landsliða,
leikmenn 21 árs og yngri. Ellert
Sehram, formaður KSÍ, var eftir-
litsmaður UEFA á ieiknum. Þeir
Burley og Sturrock skoruðu mörk
Skota, en Krupa fyrir Tékka.
Ahorfendur voru 14.015.
í sömu keppni í Varsjá sigruðu
Pólverjar Dani með 1-0. Sigur-
mark Póllands skoraði Janusz
Kupcewicz á 53,mín.
Kuwait og Wales gerðu jafn-
tefii i landsleik í knattspyrnu í
Kuwait í gær. Ekkert mark var
skorað. Áhorfendur 6000 og þetta
er annar jafnteflisleikur land-
anna á stuttum tíma. Fyrri leikur-
inn var í Wales.
„Þetta er hreint fra-
bær landsliðshópur”
— sagði Tony Knapp, landsliðsþjálfari, og var hinn hressasti í Belfast
í morgun. HM-leikurinn við Norður-íra kl. 15.30 í dag. Nánar
gætur verða hafðar á George Best.
„Þetta eru hreint frábærir
strákar í landsliðshópnum — ég
held ég hafi sjaidan eða aldrei
verið með samstilltari hóp“, sagði
Tony Knapp, landsliðsþjálfari,
þegar blaðið ræddi við hann í
Belfast í morgun. „Nýliðarnir
hafa fallið mjög vei inn í hópinn
— sérstaklega skemmtiiegir
piltar," sagði Knapp og var hinn
hressasti. Það var ekki kvíða að
finna hjá honum fyrir HM-
leikinn við Norður-fra, sem háður
verður á Windsor-Park — stærsta
leikveliinum í Belfast — kl. 15.30
í dag. Það verður sem sagt ekki
leikið í flóðljósum eins og í fyrstu
var reiknað með. Lýsing i út-
varpinu á leiknum hefst kl. 16.25
og mun Hermann Gunnarsson
annast hana.
,,Við æfðum 'vívegis í gær —
en í dag verði ; .ifinu tekið með
ró fram að landsleiknum. Það er
greinilega hugur í landsliðs-
strákunum — og ég veit, að við
getum náð árangri. Strákarnir
telja sig ekki þá næstbeztu, þegar
að leiknum kemur,“ sagði Tony
Knapp ennfremur. „Ég hef ekk-
ert verið að minnast á það við þá
hve marga fastamenn okkur vant-
ar í leikinn í dag — heldur stillt
inn á það, að við séum með gott
lið, sem getur gefið Norður-írum
mikla og harða keppni," sagði
Knapp.
Islenzka landsliðið var tilkynnt
í gær og undirritaður fær ekki
annað séð en að skipan liðsins
hafi tekizt mjög vel. Jón Gunn-
laugsson verður miðvörður eins
og við spáðum í mánudagsblaðinu
— en Marteinn Geirsson færður
fram sem framvörður. Guðgeir
Leifsson verður í framlínunni
með Matthíasi Hallgrímssyni —
en þeir Atli Eðvaldsson og Árni
Sveinsson hvenær sem er tilbúnir
að aðstoða þá með framrásum á
köntunum. George Best er í írska
liðinu. Það verða hafðar góðar
gætur á honum, en ekki settur
maður beinlínis til að gæta hans.
Ekki í það minnta fyrst í stað.
Landsliðið er þannig: Sigurður
Dagsson, Val, Janus Guðlaugsson,
FH, Viðar Halldórsson, FH,
Jóhannes Eðvaldsson, Celtic,
fyrirliði, Jón Gunnlaugsson, ÍA,
Atli Eðvaldsson, Val, Marteinn
Geirsson, Union, Ásgeir Elíasson,
Fram, Árni Sveinsson, ÍA,
Matthías Hallgrímsson, Halmia,
og Guðgeir Leifsson, Bulle. Vara-
menn: Þorsteinn Bjarnason, ÍBK,
Vilhjálmur Kjartansson, Norby,
Kristinn Björnsson, ÍA, Ölafur
Danivalsson, FH, og Einar
Þórhallsson, Breiðabliki. Skipta
má um tvo leikmenn í leiknum.
Irska liðið er nákvæmlega hið
sama og lék í Reykjavík í vor að
því undanskildu, að George Best
kemur í stað Jackson, Manch.
Utd. Jackson var reyndar
ekki lengi inn á og kom Spence,
Blackpool, í hans stað. Var eftir
það hættulegasti framherji Ira —
en Spence er nú ekki einu sinni
varamaður, og heldur ekki
Jackson.
Irska liðið byrjar þannig:
Jennings, Arsenal, Rice, Arsenal,
Nelson, Arsenal, Nicholl, Manch
Utd., Hunter, Ipswich, McCreery,
Manch. Utd., O’Neil, Notm. For-
est, Mcllroy, Manch. Utd., Mc-
Grath, Manch. Utd., Best, Fulh.,og
Anderson, Swindon. Varamenn
eru Platt, Middlesbro, Chris
Nicholl, Southampton, Hamilton,
Millwall, Cochrane, Burnley,
Caskey, Glentoran.
Einn leikur var í enska deilda-
bikarnum í gærkvöld. Oldham og
Brighton, tvö lið úr 2. deild, léku í
Leicester og Oldham tókst að
sigra eftir framlengingu 2-1. í
þriðju umferð keppninnar leikur
Oldham á útivelli gegn Hull, en
sú umferð verður háð 25. október.
1 3. deild gerðu Carlisle og
Chester jafntefli 0-0, en i 4. deild
vann Doncaster Southport 2-1 á
heimavelli.
Veður í Belfast er sæmilegt —
hvorki vont né gott.
-hsím.
Jón Pétursson.
„ÞAÐ A AÐ DÆMA SLIKA LEIKMENN
í KEPPNISBANN FRÁ LANDSLIÐINU”
— segir Jón Pétursson, Fram, fyrrum fyrirliði islenzka landsliðsins
Nokkrir leikmenn, sem leitað
var til í sambandi við HM-leikinn
við Norður-íra í dag, gáfu ekki
kost á sér af ýmsum ástæðum, þó
meiðsli spiluðu þar ekki inn í.
Það kom á óvart — og reyndar
nýtt í svo ríkum mæli í sambandi
við landsliðið. Er ekki lengur tal-
inn heiður að leika fyrir ísland á
alþjóðlegum vettvangi — leika í
íslenzka landsliðinu? — Við
lögðum þessa spurningu fyrir Jón
Pétursson, Fram, sem var fasta-
maður í landsliðinu undanfarin
ár og fyrirliði landsliðsins, sem
náði svo athyglisverðum árangri í
Moskvu 1975 — gegn ólympíuliði
Sovétríkianna. f sumar hefur Jón
lítið sem ekkert getað leikið
vegna meiðsla. Hann sagði:
„Jú, ég tel það mikinn heiður
að leika í íslenzka landsliðinu.
Alla vega finnst mér það og ég
veit að það sama á við um aðra þá
landsliðsmenn, sem ég lék með.
Það á að vera keppikefli fyrir
hvern leikmann að komast í
landsliðið.
Það hefur komið mér á óvart
sem fleirum þau forföll sum, sem
átt hafa sér stað í sambandi við
landsliðið nú. Ég tel, að leikmenn
þurfi að hafa mjög góða ástæðu til
að neita að gefa kost á sér í lands-
lið. Ef ástæður, sem leikmenn
gefa, þegar þeir segjast ekki geta
leikið með landsliðinu, eru ekki
fullnægjandi — beinlínis fyrir-
sláttur — og slík mál á KSl að
kanna niður í kjölinn — þá á að
dæma slíka leikmenn í keppnis-
bann frá landsliðinu, — lands-
leikjum — í eitt til tvö ár.
Það getur líka verið betra að
vera án leikmanna, sem fara í
landsleiki með hálfum huga.
Leggja sig ekki alla fram I þeim.
Við slíka menn hefur landsliðið
ekkert að gera.
Hér áður fyrr var talað um, að
ekki væri gert nóg fyrir leikmenn
landsliðsins. Þeir töpuðu bein-
línis fé á því að leika í landslið-
inu. Nú er því ekki lengur til að
dreifa. Auk vinnutaps fá leik-
menn greidda dagpeninga, svo
fjárhagslegt tjón í sambandi við
landsleiki er ekki lengur fyrir
hendi. Þess vegna er líka hægt
fyrir KSÍ að krefjast meira.
Þá finnst mér að KSl ætti að
stefna að því að leika EM og HM-
leiki í október. Alls ekki septem-
ber eins og nú er gert. Þeir leikir
eiga að vera erlendis. Það lengir
keppnistímabilið — og það á að
stefna að því, að þessir leikir séu
á sömu dögum og hjá öðrum
Evrópuþjóðum. Þá skapast minni
vandamál að fá atvinnumenn
okkarlausa.
Að lokum vil ég taka fram, að
ég tel að Tony Knapp, landsliðs-
þjálfari, hafi unnið mjög gott
starf með landsliðið og hann eigi
hiklaust að halda áfram með það.
Hann er mjög góður þjálfari.
Hefur mikinn aga, en er samt
sanngjarn og skipulag hans fyrir
landsleiki er til mikillar fyrir-
myndar. En landsliðið þarf og
verður að skipa meiri sess í ís-
lenzkri knattspyrnu — leiktíma-
bilið má ekki vera svo ásetið, að
engar skipulegar æfingar lands-
liðsins geti átt sér stað,“ sagði Jón
Pétursson.
STEINAR, SEM HITTU EKKI í MARK
Markvarzlan varð til þess, að
árangur íslenzka landsliðsins í
HM-leikjunum gegn Belgíu og
Hollandi varð lakari en efni stóðu
til, skrifaði undirritaður hér í
blaðið sl. föstudag. Þessi grein
hefur heldur betur raskað sálarró
Steinars Lúðvíkssonar i Mbl. ef
marka má heilsíðu skrif hans í
Morgunblaðinu í gær.
Svo forhertur er Steinar i grein
sinni, að hann segir að ég hafi
skellt skuldinni af töpunum á tvo
leikmenn íslenzka liðsins, mark-
verðina Sigurð Dagsson og Arna
Stefánsson. Það hefur aldrei
komið fram í greinum mínum.
Eftir því, sem ég hef komizt næst,
hafa sjónvarpsmyndirnar frá
leikjunum aðeins staðfest þær
umsagnir, sem ég sendi heim frá
leikjunum. Það langt, sem sjón-
varpsmynd getur sannað eitthvað.
Þær eru oft svo fjarri raunveru-
leikanum í allri sinni samþjöppun
aðdráttarlinsa.
Greinilegt, að Steinar hefur
ekkert fylgzt með skrifum Dag-
blaðsins í sambandi við umrædda
leiki. Það kemur engum á óvart.
Hann er svo önnum kafinn við
flest annað en íþróttaskrif.
Þar var ekki svifið í skýjum eða
sagt*að við hefðum tapað leikjum
vegna óheppni eða mistaka mark-
varða. Hins vegar að árangur
hefði orðið lakari en efni stóðu til.
Um Belgaleikinn sagði ég: —
„Belgar unnu verðskuldaðan
sigur. Það fór ekki á milli mála.
Aðeins að sigurinn hefði komið á
annan hátt en þennan. Hve miklu
frekar hefði maður óskað —
svona eftir á — að þeir hefðu
skorað úr góðum tækifærum, sem
þeir fengu. Urslitin þá ekki eins
sár.“
„Fyrri hálfleikur er með því
lakasta, sem íslenzka landsliðið
hefur sýnt. Slðari hálfleikurinn
með þvi bezta," hafði ég eftjr
Tony Knapp hér í blaðinu eftir
leikinn við Hollendinga. Að Tony
Knapp hafi sagt eftir þann leik að
íslenzka liðið hafi ,átt“ siðari hálf-
leikinn eða ,,átt“ 70 mín. af 90 í
leiknum, er einhver mesta rang-
túlkun — fölsun — sem hugsazt
getur.
Lítið veizt þú, Steinar Lúðvíks-
son, um gang mála í íslenzkri
knattspyrnu ef þú telur það alvar-
lega ásökun, að ákveðnir menn
hafi lagt stein í götu íslenzka
landsliðsins í sumar. Tökum
aðeins nýjustu dæmin.
Hvers vegna fékk Atli Eð-
valdsson, Val, ekki að æfa með
FH-ingunum Janusi, Viðari og
Ölafi — og Einari Þórhallssyni,
Breiðabliki, í síðustu viku hjá
Tony Knapp? Það er með þeim
leikmönnum, sem heima voru,
fyrir landsleikinn við Ira í dag?
Þú þarft ekki að svara þessari
spurningu. Svarið er of augljóst.
Jlvers vegna eru aðeins tveir leik-
menn Vals i landsliðinu i dag,
þegar leitað var til sex Valsmanna
að fara til írlands? Þrír gáfu ekki
kost á séraf „persónulegum ástæð-
um“. Þú þarft heldur ekki að
svara þessari spurningu, Steinar.
Greinilegt, að þitt Valshjarta
hefur slegið einum of hratt, þegar
þú skrifaðir heilsíðu-langloku I
þínum kunna „mikið má vera —
sennilega — vel má vera“-stll.
Tökum dæmi. Heldur þú, að Frið-
rik Ölafsson, eftir jafna byrjun
við stórmeistara, en léki svo
skyndilega af sér tveimur
hrókum, stæði óbeygður eftir slík
áföll?
Það tókst íslenzka landsliðinu
ekki í Belgíu.
Hallur Simonarson.
DAGBLADID MlDVIKUDAt.UR 21. SEl'TEMBER 1977.
13
tir íþróttir íþróttir
íþróttir
Ný stórlyfta
íBláfjöllum
Fyrir veturinn er fyrirhugaö að koma upp
almennri stórlyftu sunnan Kóngsgils á tind
702. Þetta verður tveggja rása lyfta með
einföldum diskasætum og lítur hún væntan-
lega svipað út eins og meðfylgjandi mynd
sýnir þegar henni er að fullu lokið.
Hönnun lyftunnar hófst fyrir um það bil
tveimur árum þegar tæknifræðinemi frá
Islandi notaði lyftu þessa sem lokaverkefni
við skóla sinn erlendis. Smiði lyftunnar
verður innlend að svo miklu leyti sem við
veróur komið. enda beita íþróttafélög þeirri
aðferðnúna til þess að halda kostnaði niðri.
Framkvæmdanefnd og fjáröflunarnefnd
eru starfandi, jarðvegsrannsókn fer nú fram
og unnið hefur verið að fullnægingu ýmissa
formsatriða. Samþykki landeiganda er
fengið til framkvæmdanna en málið er í
athugun hjá náttúruverndaraðilum, en lyfta
þessi er í samræmi við samþykkt skipulag.
Lyftan mun verða til þess að bæta úr því
ófremdarástandi sem ríkt hefur á þessum
slóðum og er þetta eina varanlega lyftan sem
fyrirhugað er að setja upp í Bláfjöllum fyrir
næsta skíðatímabil.
Að framkvæmdinni stendur skíðadeild
Ármanns, en í henni eru um 600 skráðir
félagar. Lyftan verður að sjálfsögðu opin
öllum almenningi jafnt og félögum
deildarinnar.
RITSTJORN
HALLUR
SIMONARSON
Landslið
Skota valið
Skotar leika hinn þýðingar-
mikla HM-leik við Tékka í Glas-
gow í kvöld. Skozka liðið var valið
í gær og þar vantar kunna leik-
menn, Donachie, Manch. City, og
Buchan og Macari, Manch. Utd.
Liðið er annars þannig skipað:
Rough, Partick, Jardine,
Rangers, Forsyth, Rangers,
McQueen, Leeds, McGrain,
Celtic, Masson, QPR, Rioch,
Everton, Hartford, Man. City,
Dalglish, Liverpool, Jordan,
Leeds, og Johnstone, Rangers.
Þá verður einnig HM-leikur í
Varsjá. Pólverjar leika þar við
Dani. Pólverjar hafa sigrað í
öllum fjórum leikjum sínum í
riðlinum.
w
Tékkar unnu Júgóslava
— á Evrópumeistaramótinu íkörfuknattleik ígærkvöld
Tékkar og ítalir urðu sigurveg-
arar í riðlunum á Evrópu-
meistaramótinu i körfuknattleik
í Belgíu — en keppni í þeim lauk
í gær. Þá sigruðu Tékkar
Júgóslava með 111-103 og það var
fyrsti tapleikur Slavanna í
keppninni. Ítalir sigruðu Búlgari
með 100-81.
Júgóslavar náðu í byrjun sex
stiga forskoti á Tékka, en
Tékkarnir gáfust ekki upp og
tókst að snúa leiknum sér í hag
fyrir hlé. Staðan í hálfleik 49-36
fyrir Tékka og um tíma í s.h. voru
Tékkar með 20 stiga forustu, 90-
70. Hinn öruggi sigur þeirra var
allóvæntur. Italir náðu fljótt 13
stiga forskoti á Búlgari. Urðu þá
kærulausir og Búlgörum tókst um
tíma í s.h. að ná forustu, 48-46. Þá
slógu ítalir aftur í og unnu örugg-
an sigur.
I öðrum leikjum í gær unnu
Sovétríkin stórsigur á Frökkum,
115-74, eftir að hafa náð 28 stiga
forustu fyrir hlé. Þá vann ísrael
Austurríki 103-87 og Belgar unnu
stórsigur á Hollandi. Þá vann
Spánn Finnland 85-78.
Ursiitin í keppninni verða i
Liege á fimmtudag og laugardag.
Liðunum verður skipt í þrjá riðla.
Leikir undanúrslita- og úrslita
leikir. í aðalriðlinum leikur Italia
við Júgóslavíu og Tékkóslóvakía
við Sovétríkin. Sigurvegararnir
í þessum leikjum leika um
Evrópumeistaratitilinn á laugar-
dag. Sami háttur verður hafður á
um röðina í keppninni.
I undankeppninni hlutu
Tékkar 10 stig í A-riðlinum í
Ostende. Unnu alla sína leiki.
Júgóslavía hlaut 9 stig, Belgía,
Holland og Spánn 7 stig og Finn-
land hlaut fimm stig, þó svo
Finnar töpuðu öllum sínum leikj-
um.
I B-riðlinum í ijege, hlutu
Italir 10 stig, Sovétríkin 9,
Búlgaría 8, Israel, 7, Frakkland 6
og Austurríki 5.
Heimsmet
Roberto Urrutía, Kúbu, kom
mjög á óvart á EM og HM-
keppninni í lyftingum I Stuttgart
I Vestur-Þýzkalandi í gær. Hann
var sigurvegari í iéttvigt og setti
nýtt heimsmet í snörun —
snaraði 142.5 kg. Þá jafnhattaði
hann 172.5 kg, og setti því einnig
heimsmet samanlagt 315 kg. I
öðru sæti varð Sergei Pevsner,
Sovétríkjunum, með 302.5 kg.
Forsíðuvidtal við HaukJo
leikhúsfræði og starfaðn
Karl Bretaprins og kvenfi
Coco Chanei, lífhemmr, t
Tvær smásögur.áÉtafsag