Dagblaðið - 21.09.1977, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977.
Ruth Reginalds:
Tekst bezt upp
i hröðu lögunum
RUTH REGINALDS
Útgefandi: Hljómplötuútgáfan hf.
Stjórn upptöku: Þóröur Ámaton, Vilhjálmur
Vilhjálmsson.
Upptökumenn: Richard Ashley, Tony Cook,
Jónas R. Jónsson, Jón Þór Hannosson.
Upptakan fór fram í HljóArita hf. í apríl og
maí '77.
Það hlýtur að vera einsdæmi
að tólf ára gömul stelpa hafi
sungið inn á heilar fjðrar
hljómplötur á sinni stuttu ævi.
Þetta hefur Ruth Reginalds þó
gert og fer stöðugt fram. Á nýj-
ustu plötu sinni, sem út kom
fyrir nokkrum vikum, syngur
hún tólf lög, ýmist erlend eða
innlend, og ég held að ég hafi
heyrt þau flest í óskalagaþætti
yngstu hlustendanna. Þar er
Ruth langvinsælust.
Ef bornar eru saman tvær
siðustu plötur Ruthar
Reginalds koma ótvfræðar
framfarir í ljós. Rödd söngkon-
unnar er orðin mun þroskaðri
en áður og raddbeiting öll þjálf-
aðri. Hún er dálítið hás og
getur þvi rifið röddina
skemmtilega á viðeigandi stöð-
um. Bezt tekst henni upp í
hröðum lögum, svo sem Tóm
tjara, Rúna og Eg skal. Þó er
ekki þar með sagt að rólegu
lögin séu léleg — þar sýnir
Ruth þó ekki eins mikið öryggi
og í hinum.
Val útgefenda á erlendu
lögunum á plötunum hefur
tekizt þokkalega. Flest eru þau
vel þekkt og íslenzkir textar við
þau eru við hæfi barna. — Þó,
ef litið er á plötuna I heild, er
hún mun minni barnaplata en
til dæmis Simmsalabimm sem
kom út í fyrra. — En það eru
íslenzku lögin sem athyglin
beinist fyrst og fremst að.
Lag Jóhanns G. Jóhanns-
sonar, Tóm tjara, er tvímæla-
laust bezta lag plötunnar og
jafnframt það bezta sem heyrzt
hefur frá Jóhanni G. það sem af
er þessu ári. Þetta er létt lag og
skemmtilegur texti sem auðvelt
er að syngja með, hvort sem er í
huganum eða upphátt. Jóhann
er ekki sérlega sleipur í gerð
íslenzkra texta, en þarna hefur
hann sannarlega verið í stuði.
Jóhann semur tvö lög til við-
bótar á plötunni. Þau eru Lík-
aminn er mitt hús og Lalli. í því
fyrrnefnda syngur listamaður-
inn sjálfur með Ruth. Þessi lög
eru þokkaleg sem slík, en
standa tjörunni nokkuð að
baki.
Þau íslenzku lög, sem þá eru
óupptalin, eru Menn eiga að
vinna eftir Ölaf Hauk Símonar-
son og Komdu niður eftir Jón
Sigurðsson. Komdu niður hefur
hljómað í útvarpi árum saman
og maður er orðinn vanur við
það þannig. Kannski er það
þess vegna, sem mér finnst
lagið ekki eiga heima á þessari
plötu og að það stingi nokkuð í
stúf við hin lögin.
Lag Ölafs Hauks er þokka-
legt, en lætur ósköp lítið yfir
sér.
Hljóðfæraleikur á plötu
Ruthar Reginalds er í höndum
þeirra Ragnars Sigurjónssonar,
Tómasar Tómassonar, Þórðar
Árnasonar, Gunnars Ormslev
og hljómborðaleikaranna
Magnúsar Kjartanssonar,
Jakobs Magnússonar^jgg Val-
geirs Skagfjörð. Þeir sleppa
allir vel frá sínu eins og við er
að búast. Mesta athygli vekur
þó gítarleikur Þórðar Arna-
sonar, léttur og skemmtilegur.
Þá er komið að stærsta galla
plötunnar — bakröddunum.
Þær sér Vilhjálmur Vilhjálms-
son aðallega um, en einnig
Magnús Kjartansson og Jóhann
G. Jóhannsson. Það passar
engan veginn við, að fullharðn-
aðir karlmenn syngi bakraddir
hjá barnasöngkonu. Það styngi
álíka í stúf ef Vilhjálmur léti
Ruth syngja allar bakraddirnar
Utljósmyndir/ Ami Páll.
á plötum sínum. Miklu betra
hefði verið að fá barnakór til að
taka þetta að sér. Það hefði
ekki hljómað eins og skrattinn
úr sauðarleggnum. Undantekn-
ingin frá þessu er í laginu
Menn eiga að vinna þar sem
Vilhjálmur syngur með Ruth.
Þar passar rödd hans vel.
- AT-
Hyggjast hreinsa til í fátækra-
hverfum fyrir ágóðann afplötunni
Letfs Clean Up
The Ghetto:
Niu tónlistarmenn, allir frá
borginni Philadelphia I Banda-
ríkjunum, hafa tekið höndum
saman við gerð hljómplötu sem
ber nafnið Let’s Clean Up The
Ghetto. Allir gefa þessir músík-
antar vinnu sína svo og fyrir-
tækið sem gefur plötuna út, en
það er Philadelphia International
Records.
Ágóðanum verður siðan varið
til að hreinsa til í fátækrahverf-
um Bandaríkjanna, eins og nafn
plötunnar bendir til. Þeir, sem
þarna eru á ferðinni, eru Lou
Rawls, Dee Dee Sharp Gamble,
Teddy Pendergrass, The Three
Degrees, O’Jays, Billy Paul,
Archie Bell & The Drells, Intrud-
ers og Harold Melvin & The The
Blue Notes.
Alls eru tíu lög á plc,unni Let’s
Ciean Up The Ghetto. Flest eru
þau ný, eða sjö talsins. Þrjú
þeirra hafa áður komið áður út á
plötum Af þeim mun vera einna
frægast lagið Year of Decision
sem Three Degrees gerðu vinsælt
fyrir nokkrum árum.
í titillagi plötunnar sameinast
flestir aðilarnir sem að plötunni
standa og leggja til söng og leik
Þetta lag hefur jafnframt komið
ít á lítilli plötu og náði fyrsta sæti
soulvinsældalistans í Banda-
ríkjunum. Um síðustu helgi var
lagið í fjórða sæti og í því fyrsta í
Bretlandi. LP platan sjálf var i 17.
sæti á bandariska listanum eftir
að hafa verið sex vikur á
markaðnum.
A Let’s Clean Up The Ghetto
eru eingöngu soullög, og flest
ágæt sem slík. Flytjendurnir hafa
verið í fremstu röð síðustu ár á
sínu sviði. The Three Degrees
munu vera einna bezt þekktar hér
á landi, en aðrir eru þó allvel
kunnir líka. Þar má helzt nefna
O’Jays, BiIIy Paul og Harold
Melvin & The Blue Notes. Þessir
skemmtikraftar hafa allir átt
vinsæl soullög á þessu ári sem
leikin hafa verið í diskótekum
hérlendis sem erlendis.
A bakhlið plötuumslagsins rit-
ar sá kunni lagasmiður, Kenneth
Gamble, nokkur orð. Þar segir
hann meðal annars að fátækra-
hverfi stórborganna séu fyrst og
fremst til komin vegna andlegrar
fátæktar kerfisins, sem viðgengst.
Hann segir að eina leiðin til að
hreinsa til í fátækrahverfunum,
sé að byrja á andlegu fátækra-
hverfunum og koma á jákvæðri
hugsun.
Kenneth Gamble hefur samið
fjögur laganna á Let’s Clean Up
The Ghetto í samvinnu við félaga
sinn, Leon Huff. Þeir útsetja
einnig og stjórna upptökum
þeirra laga. -AT-
L Verzlun Verzlun Verzlun J
'BáUtrwínn
Hverfisgötu 76 sími 15102.
Sjálfvirk hurðaropnun
..•' Meðeðaán
“ radiofjarstýringar
Bílgeymslur
Einstaklinga
Fyrirtæki
Stofnanir
Stáltœki — Bankastrœti 8 — sími 27510.
Viking-Sofasett
Austurlenzk
undraveröld
opin á í
Grettisgötu 64 t
SIMI 11625
Skrifstotu
SKRIFBORD
Vönduð sterk
skrifstofu skrif-
borð i þrem
stærðum.
A.GUÐMUNDSSON
Húsgagnaverksmiöja.
Auöbrekku 57. Kópavogi, Simi 43144
Borgarljós
Grensósvegi 24 — sími 82660
Baðljós nýkomin
Verð fró kr. 1150.- — 3700.-
GlæsileglTÖLSK smáborð
Kigum gla-silegl úr-
val af póleruðum
smáhorðum m/-
blómaútflúri í borð-
pliilu. Kinnig
rokóko-horð m/út-
skurði og/eða Onix
horðplötu.
Sendum um allt
land.
Siminn er 16541.
SJSIýja ,
©ólsturgGrði i
w t AUGAVEGI 134w REYKJA' <