Dagblaðið - 23.09.1977, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1977.
KiÖTBORG
Búdargerði 10
Símar34945-34999
Meðan á iðnkynningu í Reykjavikl
stendur munum við veita allt að \ T
25% álagningar AFSLATT
á islenzkum iðnaðarvörum.
ÞESSAVIKU:
ORA vörur — M jallar hreinlætisvörur
Frön kex
KJÖTBORG
Búðargerði 10
Si'mar 34945 - 34999
UTBÖTF
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir
tilboðum í lagningu ferskvatnsæða og
rafstrengja við Svartsengi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitu Suðurnesja Vesturbraut
10A Keflavík og ó verkfræðistofunni
Fjarhitun hf. Álftamýri 9, Reykjavík
frá og með 26. september 1977 gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu
Hitaveitu Suðurnesja fimmtudaginn
6. október 1977 kl. 11.00.
HITAVEITA
SUÐ URNESJA
í
Lærið
að
fljúga
Flug er heillandi tömstundagaman og
eftirsóknarvert starf. Kf þú hefur
áhuga á flugi þá ert þú velkominn til
okkar í reynsluflug — það kostar þig
ekkert.
rté/G/M///r
uamla fiufíturninum
KovkjavikurlluKvclli
Simi 2SI22.
Röska listakona:
Vmnur að gerð myndar
um Alþingi 930
„Kvikmyndin er eitthvert víðtækasta listform sem um getur, þó oft sé
illa með það farið.“
Listakonan Róska lauk nýlega
við gerð kvikmyndar um Ólaf
Liljurós og þar með áttundu kvik-
myndinni í nokkurs konar mynda-
flokki um ísland sem hún hefur
unnið að allt frá árinu 1973.
Fyrstu myndirnar sjö voru allar
teknar í svart-hvítu en sú áttunda
og nýjasta, kvikmyndin um Öiaf
Liljurós er litkvikmynd. Spanna
kvikmyndir Rósku afar vítt svið,
frá jarðfræði og sögu íslands og
einnig alhliða um menninguna
hér á landi. Hefur Róska selt
ítalska sjónvarpinu sýningar-
réttinn að fyrstu sjö myndunum,
sem hún gerði á árunum 1973 til
1975 og hafa þær þegar verið
sýndar í ítalska sjónvarpinu.
„Enginn þjóðsaga sprettur af
sjálfu sér,“ segir Róska um nýj-
ustu kvikmynd sína, Olaf Lilju-
rós. „Bak við hverja þjóðsögu
hlýtur að vera einhver þjóðfélags-
legur bakgrunnur". Og við gerð
kvikmyndar sinnar um Ölaf Lilju-
rós hefur hún reynt að draga
fram hvað býr í þjóðsögunni um
Ólaf, hvaða þjóðfélagslegi
veruleiki þar býr að baki. Hefur
Róska því blandað saman tveim
sögum, tveim þemum, þar sem
sögu ævintýrisins er fylgt og
annarri sögu og nýrri.
„Huldufólk voru myndgerð
ímynd hinna verr settu i þjóð-
félaginu um velferðarþjóðfélagið.
Huldumenn lifðu í vellystingum
og klæddust skrautklæðnaði dags
daglega, þetta var ímynd al-
mennings um betra þjóðfélag.
Yfirvöld reyndu að koma alls
kyns óþverra yfir á huldu-
mennina, reyndu að gera hinn
betri heim sem almenningur sá í
Engin þjóðsaga sprettur af sjálfu
sér...
(DB-myndir Bjarnleifur).
huldufólkinu tortryggilegan með
því að ljúga upp á það morðum og
alls kyns hlutum öðrum,“ segir
Róska.
„Kvikmyndin er eitthvert
víðtækasta iistform sem um getur
þó oft sé illa með það farið,“ segir
Róska og brosir við. Byrjaði hún
að fást við kvikmyndun árið 1968
er hún var við nám í listum 1
Rómaborg. Fékk hún og nokkrir
félagar hennar þá lánaða kvik-
myndatökuvél sem þau héldu
með til Parísar og festu þar á
filmu mikið af þeim atburðum,
sem þá áttu sér stað þar. „Eg
hafði þá lært hvað voru form og
litir en aldrei snert á kvikmynda-
tökuvél áður. Kynntist ég þá þeim
möguleikum sem kvikmyndin
hefur upp á að bjóða og einnig
Bílvelta varð á Rangárvöllum
aðfaranótt sunnudags af næsta
skrítnum ástæðum. Tveir piltar
voru að koma frá Hellu á leið að
Hvolsvelli. Lentu þeir þá á forláta
borðstofuborði á mi’ðjum vegin-
um. Bilstjórinn missti stjórn á
bílnum og valt hann út af vegin-
um og er talinn nær ónýtur. Pilt-
arnir sluppu ómeiddir og fóru
kynntist ég því hversu mikill
munur er að starfa í hóp eins og
við kvikmyndatöku eða einn sér
eins og við flesta listsköpun."
Aðspurð hvað hún hygðist
vinna að nú þegar vinnu við Ölaf
Liljurós væri lokið, kvaðst Róska
taka til við kvikmyndahandrit
sem lýsti stofnun Alþingis á Þing-
völlum árið 930 og hver hafi vprið
upphaflega hugmyndin að stofnun
þingsins. Svo synd væri að segja
að Róska væri ekki þjóðleg í hugs-
un og hefði með kvikmyndatök-
um sínum stuðlað að mikilli og
góðri landkynningu, eins og t.d. á
Ítalíu þar sem hún hefur hvað
mest starfað og selt italska sjón-
varpinu kvikmyridir sínar.
þeir að athuga aðstæður nánar.
Blasti þá við töluvert af húsgögn-
um á veginum, því auk eikar-
borðsins góða voru þar þungir
hægindastólar og fleira þarna í
náttmyrkrinu. Eigandi húsgagn-
anna hefur ekki fundizt, en lík-
lega hafa þau týnzt af bíl í flutn-
ingi. En eigandi bilsins, sem var
af gerðinni Toyota árgerð 1973,
situr eftir með sárt ennið í
hægindastól.
•BH.
LENTI í ÁREKSTRIVIÐ
F0RLÁTA ST0FUHÚSGÖGN
HLUTA
VELTA
ARSINS
Sunnudaginn 25. sept. kl. 13,30
í kjallara Iðnaðarmannahússins við
Hallveigarstíg.
ENGINNULL —
EKKERT HAPPDRÆTTI
Stærsti vinningurinn er sumarbústaða-
leiguland á fegursta stað.
Fleiri þúsund vinningar.
FERÐAKLÚBBURINN ÚTÞRÁ
- JH
Bruni á
Hvolsvelli
— Skemmdirá
járnsmiðju
Kf. Rang.
Eldur kom upp í járnsmiðju
Kaupfélags Rangæinga á Hvols-
velli um kl. 7 á föstudagskvöld.
Vinnu var hætt í smiðjunni um kl.
4 um daginn en maður sem átti
leið hjá sá eldinn um kvöldið.
Slökkviliðið var þegar kvatt á
staðinn og tókst að ráða niðurlög-
um eldsins á u.þ.b. hálftíma. Tjón
varð nokkuð af eldi og reyk. Sam-
kvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Hvolsvelli eru upptök
eldsins ekki kunn.
- JH