Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 23.09.1977, Qupperneq 8

Dagblaðið - 23.09.1977, Qupperneq 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1977. Þaö stefnir í verkfall opinberra starfsmanna — þeirteljaað 15% vanti upp á að laun þeirra séu sambærileg við frjálsan vinnumarkaðinn 7 Að loknum fundi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja á mið- vikudagskvöldið, þar sem stjórn bandalagsins og samninganefnd kom saman ræddi DB við nokkra opinbera starfsmenn og bað þá að segja nokkur orð um álit þeirra á sáttatillögunni og stöðu samn- ingamála. A fundinum var einróma sam- þykkt ályktun þar sem skorað er á opinbera starfsmenn að fella sáttatillögu sáttanefndar. Um hana verður kosið á 46 stöðum á landinu dagana 2. og 3. október næstkomandi. ÓG Valgerður Jönsdóttir hjúkrunarfræðingur á Landspítala: „Ekkert tillit tekið til krafna heilbrigðisstétta” „Til krafna okkar í heilbrigðis- stéttum hefur við fljótlega yfir- ferð sáttatillögunnar ekkert verið tekið tillit,“ sagði Valgerður Jóns- dóttir hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum. „Finnst mér það fuiðulegt í ljósi þess skorts sem er á starfsliði á sjúkrahúsunum. 1 því sambandi má benda á þann óróa sem varð á nokkrum sjúkrahúsum fyrir nokkrum mánuðum þegar 90% hjúkrunarfræðinga sagði upp störfum. Þær uppsagnir eru í gangi enn þá. Hækkun launaflokka um miðju launastigans er algjörlega ófull- nægjandi og einnig vil ég benda á að gildistími samningsins er alltof langur eða tvö ár,“ sagði Valgerður að lokum. ÓG Guðrún Helgadóttir deildarstjóri hjá Tryggingarstofnun ríkisins: „Fáránlegt að miða við maflaun” — sömu kennsluskyldu ígrunnskólum „Þessi sáttatillaga er langt undir kröfum BSRB. Fáránlegt er að miða við laun í maí síðast- liðnum, þegar rætt er um launa- hækkun. Ég vil benda á að samningur okkar rann út 30. júní og við erum ekki að semja um það sem við fengum í síðustu samningum. Við náum ekki þeirri 27% hækkun, sem Alþýðusambandið náði í júlí og ekkert tillit er tekið til uppsagnarákvæði launaliða ef röskun verður á kaupmætti. Hinum lægstlaunuðu er hvergi nærri boðið upp á nægilega hækkun. Launin eru langt undir kjörum annarra stétta. Þessa sáttatillögu ber að fella. Almenn þróun í kjara- samningum er að verða sú að kjarabætur fást með sér- samningum en ekki með hækkun launaflokka. Það finnst mér vera hættuleg þróun og þar eiga verka- lýðsfélög að spyrna við fótum. Haukur Helgason skólastjóri í Hafnarfirði: „Söðulbakið á samningnum verðuraðrétta” Ekki ber á öðru en Nína litla Guðbjörg kjósi heldur heimsmeistaranum Ali. að fara til móður sinnar, öldu, heldur en vera hjð Litla stúlkan oghnefaleikakappinn Það eru ekki allir sem hafa látið heimsmeistara f hnefa- leikum halda á sér og kjassa. Þetta upplifði þó hún Nína Guðbjörg Jóhannsdóttir, tveggja ára, sem stödd var á sjúkrahúsinu í Orlmond Street í London í sfðasta mánuði. Þetta er f annað sinn sem Nína Guðbjörg fór til London í hjartauppskurð f fylgd foreldra sinna, þeirra Jóhanns Jóhanns- sonar og öldu Ingólfsdóttur. 10. ágúst voru þau Jóhann og Alda stödd á sjúkrahúsinu f heim- sókn hjá dóttur sinni sem var þar að jafna sig eftir uppskurð. Bar þá þangað að Muhamed Ali heimsmeistara í hnefaleikum, en hann hugðist færa sjúkra- húsinu einn heljarinnar sjúkra- bfl að gjöf, auk nokkurrar pen- ingaupphæðar. Stóð starfsfólk og sjúklingar utan dyra f blfðviðrinu og beið eftir meistaranum. Þegar hann mætti tók hann upp hvert barnið á fætur öðru og kjassaði, þar á meðal Nfnu Guðbjörgu, virtist þessi sterki maður vera afar barngóður og börnin hænd að honum. Gaf meistarinn sér góðan tíma með börnunum áður en hann hélt á braut f hópi fjölda lífvarða. Sjúkrahúsið í Orlmond stræti er þekkt um allan heim fyrir hæfileika starfsliðsins f hjarta- skurðlækningum. Dvaldi Nfna Guðbjörg einnig á sjúkrahúsi þessu i fyrra og þegar Muhamed Ali bar þar að lágu sex íslenzk börn á sjúkra- húsinu. Alls munu um 30 börn hafa farið héðan af landi árlega til lækninga við sjúkrahúsið og fengið þar hina beztu aðhlynn- ingu. BH — náum ekki Alþýðusambandssamningum Þórhallur Halldórsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar : „Varnagla um samningstfmann skortir algjörlega í sáttatillöguna. Ákvæði um slíkt eru til dæmis í hinum nýgerðu samningum við félög starfsmanna í Reykjanes- kjördæmi," sagði Haukur Helga- son skólastjóri í Hafnarfirði. t öðru lagi vil ég segja að launa- stiginn er hreinlega alltof lágur. Rétta verður á honum söðulbakið um hann miðjan, fyrr erum við ekki ánægð. Ég fagna því að hreyft er ýmsum mikilvægum atriðum sem kennarar hafa farið fram a, þó skortir nokkuð á að nægilega langt sé farið. Sérstaklega vildi ég sjá fyrir endann á mismunandi kennslu- skyldu f grunnskóla. Einnig að kennarapróf tekið á mismunandi tíma verði metið til jafns við greiðslu launa. ÓG „Verkfallsvopnið ávallt tvíeggjað” — steinrunninn hugsunarháttur íkerfinu „Við starfsmenn Reykjavfkur- borgar og starfsmenn bæjar- félaga höfum oft bent á að sam- skipti okkar við hinn almenna borgara væru meiri og nánari en annarra opinberra startsmanna," sagði Þórhallur Halldórsson for- maður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. „Þessi sérstaða okkar hefur ÖrlygurGeirsson formaður Starfs- mannafélags stjórnarráðsins: „Vantar 20-30% til að ná öðru skrifstof ufólki” 220/12 volta spennubreytir fyrir ferðatæki — segul- bönd — talslöðvar og hvaðeina annað, ávallt fyrirliggjandi. Ileildsala — smásala. BENC0 Bolholti 4. S. 91-21945. „Ég tel í það minnsta þrjú meginatriði sem eru aðfinnslu- verð,“ sagði örlygur Geirsson for- maður Starfsmannafélags stjórnarráðsins. „Ekkert tillit er tekið til megin- krafna BSRB um að laun séu sambærileg við almennan vinnu- markað. í þvf félagi sem ég er fulltrúi fyrir er langmest um skrifstofu- fólk. Bilið þar milli launa hjá því opinbera og einkafyrirtækja er um 20—30% þrátt fyrir að tekið sé tillit til hækkunar sáttatillög- unnar. Ég tel sáttatillöguna ekki ganga eins langt og nýgert sam- komulag við starfsmenn Kópa- vogsbæjar og fleiri sveitarfélaga f Reykjaneskjördæmi gaf tilefni til að vonast eftir. Uppsagnarákvæði er einnig ófullnægjandi. Eg tel ekki ■ nokkurn möguleika að binda samninga við tvö ár f þvf efna- hagsástandi sem við búum við. ■ Við verðum að hafg möguleika á leiðréttingum ef miklar breyt- ingar verða í þeim efnum. Slfkt er raunar mjög lfklegt á næstunni. Og hver getur spáð um hvað gerist eftir væntanlegar kosningar f vor.“ ÖG verið viðurkennd og metin að nokkru af viðsemjendum okkar hingað til,“ sagði Þórhallur enn- fremur. „Nú f yfirstandandi samning- um höfum við haft náið samstarf fram að þessu við rlkisstarfsmenn og starfsmenn annarra sveitar- félaga. Okkur er þó kappsmál að reyna að halda okkar sérstöðu og munum reyna til þrautar að ná samkomulagi án verkfalls. Er það skoðun mfn að það takist og byggi ég það á fyrri reynslu af samskiptum félagsins við launa- málanefnd Reykjavfkurborgar. Að lokum vil ég undirstrika þá skoðun mfna, að góð tengsl og gagnkvæmt traust samningsaðila eigi betur við í nútfma kjara- baráttu heldur en verkfalls- vopnið, sem ætfð verður að telja tvfeggjað." En af hverju sóttuð þið opinberir starfsmenn þá svo fast að fá verkfallsrétt? „Jú, við vorum löngu orðnir fullsaddir af þvf að hafa f reynd nánast aðeins málamynda samningsrétt um kaup okkar og kjör. Jafnvel enn þann dag í dag má finna dæmi um viðhorf innan ,,kerfisins“ sem vitna um stein- runninn hugsunarhátt varðandi meðferð kjaramála," sagði Þórhallur Halldórsson að lokum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.