Dagblaðið - 11.11.1977, Side 7
DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1977.
KYNÞATTAKUGUN:
Suður-Afríka
einangrast
í íþróttum
Nefnd á vegum Sameinuðu
þjóðanna, sem kannað hefur
kynþáttaaðgreiningu í íþrótt-
um, mælti með því einróma í
gær að þjóðir sem slíkt stund-
uðu yrðu útilokaðar frá alþjóða-
samskiptum.
Alyktun nefndarinnar er sér-
staklega beint gegn Suður-
Afríku.
Það er þó ekki sérstaklega
tekið fram í tillögunni heldur
tekið fram að hver sú þjóð sem
mismuni kynþáttum verði
rekin úr öllum alþjóðasamtök-
um vegna íþróttastarfsemi.
Áður en hægt er að telja
áyktunina samþykkta af Sam-
einuðu þjóðunum, verður að
ræða hana og afgreiða á Alls-
herjarþinginu.
Þar er ekki talinn vafi á að
hún verði samþykkt. t nefnd-
inni, sem ályktunina gerði, var
hiín samþykkt samhljóða.
Kemur hún aðeins nokkrum
dögum seinna en samþykkt
öryggisráðsins um vopnasölu-
bann á stjórn Suður-Afríku.
t ályktuninni um íþróttasam-
skipti er gert ráð fyrir að
gerðar verði sérstakar ráð-
stafanir gagnvart þeim íþrótta-
hópum og einstökum iþrótta-
mönnum sem ekki færu eftir
væntanlegri samþykkt.
Ákvæði eru um að hinir
brotlegu ættu engan rétt á að-
stoð frá alþjóðaíþróttasamtök-
um, fengju ekki að taka þátt í
keppni á íþróttavöllum og
mættu ekki taka við neinum
verðlaunapeningum eða al-
þjóðaviðurkenningum.
Nefndin gerir einnig ráð fyr-
ir að allar olympíunefndir ríkja
innan Sameinuðu þjóðanna
geri ráðstafanir til að ekki fari
fram keppnir gegn íþróttafólki
frá Suður-Afríku.
Fjórir Svíar íhass-
leiðangri í Frakk-
landi
Fjórir ungir Svíar voru hand-
teknir í gær í borginni Toulon í
Frakklandi.
Eru þeir sakaðir um fíknilyfja-
smygl og að sögn frönsku lögregl-
unnar fundust 110 kilógrömm af
hassi I báti sem þeir komu á.
Er talið að þeir hafi tekið
hassið um borð í bát sinn i
Gíbraltar en það var í 250
gramma töflum, sem vafðar voru
innan í vatnsheldan dúk.
Yfirvöld segja fíkniefnin af lé-
legri tegund. Hassið væri frá
Marokko og virði þess talið um
það bil 450.000 dollarar eða jafn-
virði um það bil 100 milljóna fs-
lenzkra króna á svörtum markaði.
Verðið sem Svíarnir greiddu
fyrir vöruna er þó ekki talið vera
nema jafnvirði tæpra 5 milljóna
króna.
Bifreiðastillingar
NIC0LAI
Brautarhotti 4 — Séni13775
Tilsölu:
Búðargerði
4ra herb. sérhæð, suðursvalir,
harðviðarinnréttingar, tvöfalt
verksmiðjugler. Verð 14 millj-
ónir, út. 9—10 milljónir.
Granaskjól
Mjög góð 4ra herb. íbúð um 113
ferm. Sérhiti, sérinngangur.
Verð 10,5 milljónir, útb. 7—7,5
milljónir.
Garðahreppur
Húseign á stórri sjávarlóð. Hús-
ið skiptist þannig: Stofa, eld-
hús, 3 svefnherbergi og bað.
Gott geymslurými í kjallara.
Einnig um 40 ferm viðbygging.
Teikning og nánari uppl. á
skrifstofunni.
Vesturberg
Glæsilegt endaraðhús á einni
hæð. Húsið er fullfrágengið.
Utb. 12—13 milljónir.
Langholtsvegur
3ja herb. íbúðarhæð, um 80.
ferm, ásamt herbergi í risi.
íbúðin er nýstandsett. Útb. 8
milljónir.
Kaplaskjólsvegur
4ra herb. íbúð um 100 ferm á
tveimur hæðum. Á hæðinni er
stofa, svefnherbergi, eldhús og
bað, 2 herbergi og snyrting í
risi. Mjög góð íbúð. Útb. 7,5—8
milljónir.
Álfheimar
3ja herb. íbúð um 95 ferm á 2.
hæð. Útb. 7,5—8 milljónir.
Hóaleitisbraut
4ra herb. íbúð um 117 ferm
ásamt rúrrigóðu herbergi með
snyrtingu I kjallara. Bílskúrs-
réttur. Útb. 8.5 milljónir. Skipti
á 3ja herb. íbúð æskileg.
Rónargata
2ja herb. kjallarafbúð. Sérinn-
gangur. Útb. 3 milljónir.
Kleppsvegur
4ra herb. íbúð, um 100 ferm, á
6. hæð. Útb. 7,5—8 milljónir.
Kaplaskjólsvegur"
3ja herb. íbúð um 100 ferm.
Útb. um 8 milljónir.
Akranes
Nýbyggt einbýlishús um 138
ferm ásamt 46 ferm bílskúr.
Húsið er að mestu leyti frá-
gengið. Vel byggt og vandað að
öllu leyti. Útb. 7,5 milljónir.
Selfoss
Einbýlishús um 120 ferm (Við-
lagasjóðshús). Skipti á 4ra
herb. íbúð í Reykjavík æskileg.
Rigningar og vatnsflóð drógu mjög úr kusningaþátttoKu í New York
á dögunum. A myndinni sést að mikið hefur rignt því maðurinn,
sem er að tala í símaklefa, stendur nærri því upp í mitti í vatni.
H
il
Bahamasveifla
íVíkmgasal!
Bahaniakynning 10.-16. nóvember
í samvinnu við Flugleiðir hf. efnir Hótel Loftleiðir til Bahama-
kynningar í hótelinu dagana 10. - 16. nóvember n.k.
Framreiddur verður þjóðarréttur Bahamabúa, Conch fritters
(skelfiskur).
Hin víðkunna hljómsveit Count Bernadion kom beint frá
Bahamaeyjum til þátttöku í þessari kynningu. Hljómsveitin
flytur fjörug og fjölbreytt skemmtiatriði af þeim léttleika og
lífsgleði, sem einkennir íbúa Karabísku eyjanna.
Vinningur: Flugfar til Bahamaeyja fyrir tvo.
Matarmiði gildir sem happadrættismiði. Vinningurinn.flugfar
til Bahamaeyja fyrir tvo verður dreginn út 21. nóvember n.k.
Spariklæðnaður
Borðpantanir hjá veitingastjóra í síma 22321
HQTEL
LOFTLEIÐIR