Dagblaðið - 11.11.1977, Side 19
DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1977.
19
Fyrrverandi vinkona Ringós, söngkonan Linsey de Paul, og hann sjálfur. A þeim tíma sem myndin er
tekin fékk hann orð á sig fyrir að vera mikill glaumgosi.
virðist hann vilja láta það koma
fram strax frá byrjun að hann sé
aðalstjarnan, ekki einhver annar
og það sé hann sem ráði.
Hér í eina tíð var alltaf hægt að
hlæja með Ringó því hann var
mjög fyndinn og sagði brandara
eins og að drekka vatn. En þetta
er alveg horfið að því er virðist úr
skapferli hans. Nú stekkur
honum varla bros. Og falli honum
ekki við vinnubrögð einhvers sem
með honum starfar frystir hann
þann mann einfaldlega úti. Þá er
eins gott fyrir hann að fá sér aðra
vinnu.
Vit á seðlum
Ringó var líka þekktur fyrir
annað hér á meðan Bítlarnir voru
og hétu. Það var lítið vit hans á
peningum. Fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri fyrirtækis Bítlanna
Apple, Ron Kass, hefur sagt að
þeir Ringó og John Lennon hefðu
aldrei getað skilið gildi peninga.
Þeir vildu bara eyða því jafn-
óðum sem þeir unnu sér inn. Þeir
vildu helzt troða ferðatösku fulla
af seðlum og halda eitthvað út í
buskann. Eitt sinn ákvað Ringó að
halda upp á afmælið sitt í Grikk-
landi. En þangað mátti hann ekki
sömdu lögin og hentu þeim á
síðustu stundu i Ringó og sögðu
honum að „tromma með“. Nú
Elsie, móðir Ringós, talar ennþá
um Richie eftir upphaflegu nafni
hans.
koma með nema takmarkað fé og
það gat hann hreinlega ekki
skilið. Málið lenti í hálfgerðum
ógöngum þar sem útvega þurfti
peninga eftir á þar sem hann var
kominn i skuld við hótelið sem
hann bjó á.
Nú er Ringó hins vegar farinn
að meta peninga og vill helzt lifa
fremur sparlega miðað við það
sem hann gerði áður. Flestum
myndi þó líklega finnast kjör
hans nokkuð góð þar sem hann
flakkar vítt og breitt um heim-
inn.
Rótlaus
Kass hefur sagt að Ringó lifi
núna hálfrótlausu lífi. Hann á
ekkert raunverulegt heimili.
Hann býr að vísu i Monte Carló
en það kallar Kass ekki heimili
heldur hús sem búið er alls konar
furðuhlutum, sem gerðir eru ein-
ungis fyrir augað.
. Kass telur þó mjög nauðsynlegt
fyrir hann að koma sér upp
heimili og grafa rætur sínar djúpt
á einhverjum stað.
Peningarnir
Ringó hefur eins og áður hefur
Núverandi vinkonan. Blöðin eru sífellt að skrifa um annað hvort
væntanleg giftingaráform eða vinslit.
verið sagt frá lært að skilja gildi
fjármuna. Hann viðurkennir það
núna að hann njóti þess að vera
ríkur og þekktur. Þá gfeti hann til
dæmis orðið sér úti um sæti á
veitingahúsum þegar öðrum sé
vísað frá.
Hann rifjar þó upp með nokkr-
um biturleika að peningarnir geri
það að verkum að fólk hugsi um
hann á annan hátt en það gerði
fyrr. Hann nefnir sem dæmi að
eitt sinn er hann hafði lokið sköla-
námi átti hann erindi í gamla
skólann. En þá mundi ekki
nokkur maður eftir því að hann
hefði svo mikið sem komið þar
inn fyrir dyr. Nú er hins vegar
mönnum sýndur stóllinn sem
hann sal á og borðió stm hann sat
við.
Ringó telur að hann eigi auð-
legð sfna fyllilega skilið. Það sé
ekki sízt honum að þakka að
Bítlarnir urðu það sem þeir urðu.
Aldrei aftur
En Ringó telur að Bítlarnir
byrji aldrei saman á nýjan leik.
Þeim hefur verið boðið gull og
grænir skógar ef þeir gerðu það.
„En við byrjuðum ekki saman
vegna peninganna þá svo það er
rangt að gera það núna. Við
hófum að syngja saman af því að
við höfðum þörf fyrir það. Nú er
sú þörf ekki lengur fyrir hendi.
Við höfum farið hver sína leið og
eigum ekkert sameiginlegt
lengur."
DS þýddi og endursagði.
w
Frá 1. apríl gilda ný afsláttarfargjöld, sem viö
köllum „almenn sérfargjöld”.
þau eru 25 - 40% lægri en venjuleg fargjöld og eru
eingöngu háö því skilyrði aó dvalartími erlendis sé
lágmark 8 dagar og hámark 21 dagur (í flestum
tilfellum).
„ Almenn sérfargjöld” gilda allt áriö á flugleiöum frá
íslandi til 57 staöa í Evrópu.
25-40%
LÆGRI FARGJÖLD
SEM GILDA
ALLT ÁRIÐ
flucfélac LOFTLEIDIR
/SLAJVDS