Dagblaðið - 21.11.1977, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1977.
Dráttarbílar til sölu
Aftakaveður íMosfellssveit:
Scania 140 super, dráttarbíll árg. 74 2
drifhásingar, með vagni, og 6 tonna
krana stálpallur fylgir. Toppbíll.
Mach ’53. Dráttarbíll með vagni. Drif
á öllum h.iólum. Nýgegnumtekinn,
dráttarspil að framan og aftan.
MARKAÐSTORGIÐ EINHOLTI8
SÍMI28590
Lausar stöður
Félagsmálastofnun Reykjavíkur óskar
eftir að ráða starfsfólk til starfa í
fjölskyldudeild. Æskilegt er að
umsækjandi sé félagsráðgjafi eða hafi
menntun á sviði félagsvísinda.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist Félags-
málastofnun Reykjavíkur, Vonar-
stræti 4, 101 Reykjavík, fyrir 25.
nóvember nk.
Vegg- og loftklæðningar
á ótrúlega hagstæðu verði
Koto Kr. 1.990.-
Gullálmui' Kr. 2.590.-
Oregoo piie Kr. 3.150.-
Eik Kr. 3.370.-
Tekk Kr. 3.370.-
Hoo*a Kr. 3.440.-
Palisa'idei' Kr. 3.580.-
Strigaáferð Kr. 1.410.-
Öll verð pr. fermet-a
— með söluskatti.
Ennfremur eigum við
furu- og grenipanel
í 6 mismunandi gerðum.
Gerið verðsamanburð
— það borgar sig.
''Bif£»c»ÍMí».3eörui’erzíuMÍ>v,
BJÖRNINNl
Skúlatúni 4. Simi 25150. Reykjavik
oliuetti
Skrifstofutækni hf.
Tryggvagötu, Reykjavik.
mBEUWB
án rikisstyrks
Annasamur sólar-
hringur hjá björgun-
arsveitinni Kyndli
Gríðarlegt óveður var í
Mosfellssveit aðfaranótt sunnu-
dags, bæði var mikið rok, skaf-
renningur og ofanhríð. Segja
mátti að nær ófært væri um
sveitina. Björgunarsveitin
Kyndill var kölluð út til þess að
bjarga mönnum sem fest höfðu
bíla sína.
,,Við vorum komnir út um hálf
eitt leytið og vorum að til klukkan
fimm í morgun. Hjá Leirvogs-
tungu tepptust litlir bílar í
miklum skafli sem myndaðist.
Það voru líklega um tuttugu bílar
sem við drógum úr skaflinum og
við þurftum einnig að koma
nokkrum sem höfðu bleytt sig í
gang,“ sagði Erlingur Ölafsson
formaður Kyndils í samtali við
DB í gær.
,,Það var vont að eiga við þetta
því aftakaveður var þarna á
melnum. Mjög var misjafnt
hvernig bilarnir voru útbúnir,
sumir voru ágætlega búnir til
vetraraksturs en aðrir laklega.
Ekki varð ökumönnum eða
farþegum meint af,“ sagði
Erlingur.
Björgunarsveitarmenn notuðu
björgunarsveitarbíl sinn og höfðu
auk þess annan bíl til umráða.
Alls voru sex björgunarmenn-
irnir að störfum þarna um
nóttina.
„Við vorum annars búnir að
eyða deginum í að bjarga hesti
sem var í svelti í svokölluðum
Sköflungi, sem er fjallgarður sem
gengur út úr Henglinum. Fórum
við á vélsleða og skiptumst svo á
að teyma hestinn," sagði
Erlingur.
„Menn sem voru að gá að.
kindum sáu til hestsins þar serri
hann var í sjálfheldu og orðið
algjörlega haglaust hjá honum.
En hesturinn var samt furðanlega
á sig kominn. Líklega hefur hann
verið þarna í mánaðartíma en
nægur hagi hefur verið þar til nú
fyrir viku.
Við teymdum hestinn niður að
Heiðarbæ i Þingvallasveit og
tókum hann svo i hestakerru yfir
heiðina, Veðrið var ekki orðið
eins vont og um kvöldið, gekk á
með éljum,“ sagði Erlingur.
Þetta var því annasöm helgi hjá
þeim Kyndilsmönnum. Þeir eru
ellefu talsins en hafa jafnan á
takteinum aukalið sem kallað er
út þegar mikið liggur við.
Færð var orðin sæmileg á
Vesturlandsvegi í gærdae en
mikil hálka var á veginum. A.Bj.
SKAFRENNINGUR MEÐAN
SNJÓRINN ENTIST í EYJUM
„Hér var norðan þurrarok og
skafrenningur á meðan einhver-
snjór var sem gat fokið,“ sagði
lögreglan í Vestmannaeyjum í
samtali við DB.
Skemmdir urðu á húsum,
gluggar fuku upp og þakplötur af
húsum. Einingahús í byggingu í
nýju hverfi, Búhamri, lagðist
saman í rokinu. Ekki urðu slys á
fólki í óveðri þessu.
Engin úrkoma var í Eyjum og
snjórinn sem þar var er nú allur
fokinn á haf út samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar. A.Bj.
Ofsaleg hálka á vegunum
í nágrenni borgarinnar
Um ellefu leytið í gærmorgun
valt fólksbíll út af Vesturlands-
vegi rétt á móts við Vallá. Tveir
voru í bílnum en sluppu þeir við
meiðsli en billinn skemmdist
mikið. Mikil hálka var á Vestur-
landsvegi. Sömu sögu er að segja
um Hafnarfjarðarveg. Þar var
ofsaleg hálka og að sögn Hafnar-
fjarðarlögreglunnar var rétt með
naumindum að vegurinn lokaðist
ekki aðfaranótt sunnudags vegna
vonzkuveðurs.
A.Bj.
Bflar yfirgefnir á Hellisheiði, íKömbum
og Ölfusi vegna veðurof sans
Mikið óveður var austanfjalls á
laugardaginn samkvæmt
upplýsingum Selfosslögregl-
unnar. Var bæði mikið rok og
skafreijningur eins og víða
annars staðar á landinu. Fólk
gekk frá bílum sínum bæði á
Hellisheiði í Kömbum og ölfusi.
Lögreglan þurfti að aðstoða fólk
við að komast leiðar sinnar
aðfaranótt sunnudags. Gekk
veðrið niður þegar komið var
undir morgun í gær.
AÞBj.
ALLT í ÁTTINA Á AKUREYRI
Þetta er allt í áttina hjá okkur
sagði lögreglumaður á Akureyri í
samtali við DB eftir hádegi I gær.
- Veðrið að skána, ekki nema
þriggja stiga frost og rafmagnið
komið. Hér var hálfgerð stórhríð
á laugardag og nokkuð hvasst.
Dálitil ófærð myndaðist á götum
en Akureyringar eru vanir að
keyra í ófærð og hafa bara garnan
af því að brjótast um í sköflum.
„Nú er búið að ryðja allflestar
götur og að verða fært um allan
bæ,“ sagði lögreglumaðurinn.
A.Bj.
OFSAVEÐUR GEKK YFIR
HÚSAVÍK ÞAR SEM MIKILL
SNJÓR ER OG ÓFÆRÐ
Ofsaveður með hvassviðri, skaf-
renningi og éljum gekk yfir Húsa-
vík á laugardag og aðfaranótt
sunnudags. Gekk veðrið niður
þegar komið var framundir
morgun og um hádegi í gær var
komið ágætisveður á Húsavík.
Götur kaupstaðarins voru
mokaðar á föstudaginn og höfðu
myndazt um tveggja metra háir.
ruðningar meðfram götunum i
gær. I hvassviðrinu fauk allt til
aftur og mikil ófærð var í gær.
Aðeins fært eftir aðalgötunni og
upp að sjúkrahúsinu.
Húsavikurlögreglan hafði nóg
að gera í fyrrinótt við að draga
bíla úr snjósköflum og koma fólki
heim. Dansleikur var á laugar-
dagskvöld en honum lauk áður en
venjulegur balltími var úti
vegna þess að rafmagnið fór af.
„Þá bilaði rútan frá Akureyri,"
sagði Guðmundur Gunnlaugsson
lögreglumaður í samtali við DB.
„Menn voru dauðhræddir um að
fá ekki helgarglaðninginn sem
með rútunni átti að konia. Það
bjargaðist þó. A timabili á laugar-
daginn voru menn hræddir um
togarann okkar, Júlíus Havsteen,
þar sem hann lá við bryggju.
Mikill sjógangur var en ekki
nein slys í höfninni."
Mikið er af vélsleðum á Húsa-
vík. Sagði Guðmundur lögreglu-
maður að vöruflutningabílarnir
kæmu með þetta tvo. þrjá og
stundum fjóra vélsleða í hverri
ferð.
„Við erum ekkert sérlega
hrifnir af allri þessari vélsleða-
eign og teljum sleðana auka á
sl.vsahættu." sagði Guðmundur.
„Það gengur illa að fá þá skráða
og þeir eru óþjálir í umferðinni
þegar þeir eru látnir vaða áfram á
fullri ferð. A.Bj.