Dagblaðið - 21.11.1977, Side 28

Dagblaðið - 21.11.1977, Side 28
FANNST EFTIR EINN OG HÁLFAN TÍMA Snjóskriða f éll úr Ingólfs- fjalli: MHann er á líf i og það er mest um vert,” sagði faðir drengsins Fimm ára aanskur drengur, Rune Lunbek, var hætt kominn síðdegis á laugardag, er snjóskriða féll á hóp fólks sem var í gönguferð í hlíðum Ingólfsfjalls, skammt frá Hveragerði. Grófst drengurinn í fönnina en foreldrar hans og fjöldi fólks, sem dreif að skömmu eftir að snjóskriðan féll, fundu hann á lífi tæpum einum og hálfum tíma síðar. Hafði hann getað hreyft sig lítillega og þannig myndað loftrými og var ekki kalt, enda vel klæddur. Drengurinn var fluttur á Sjúkrahúsið á Selfossi og er talið að hann fái að fara heim í dag. „Hann var búinn að jafna sig að. mestu eftir fjóra til fimm tíma,“ sagði Jannik Lunbek, faðir drengsins, í viðtali við DB í gær. Jannik starfar á heim- ilinu að Sogni, skammt frá Hveragerði, en þaðan hafði hann ásamt konu sinni, Ullu, og börnum þeirra hjóna, Rune og Penille, sem er ellefu ára haldið i gönguferð ásamt fleira fólki. „Læknarnir vildu halda honum á sjúkrahúsinu til þess að ganga úr skugga um hvort hann hefði skaddazt eitthvað í lungunum en hann hafði hóstað upp blóði er hann lá undir þessum gífurlega þrýstingi. Konan mín er einnig á spítalan- um, hana kól eitthvað á hönd- um er við leituðum drengins og er ekki vitað nema taki verði framan af tveimur fingrum annarrar handar á henni.“ Jannik sagði að þau hefðu verið komin allofarlega í hlíðar fjallsins er snjóskriðan hefði skyndilega fallið á þau. Tölu- vert hefur snjóað í fjallið að undanförnu og snjór því safn- azt fyrir á stöku stað. „Skriðan bar okkur öll af stað,“ sagði Jannik. „Ég hugsaði um það eitt að reyna að halda mér á yfirborðinu en fór a.m.k. tvisvar í kaf áður en ég stöðvaðist. Tókst mér að rífa mig lausan og fór svo með okkur öll. Hins vegar kom strax í ljós að Rune vantaði og hófum við þegar að vaða um snjóskriðuna í leit að honum. Svo heppilega vildi til að Lars Andersen, sem er for- stöðumaður heimilisins hafði snúið við skömmu áður og var kominn langleiðina niður að bænum. Var hann þó í kallfæri og kom hann fljótlega með skóflur en boð voru látin ganga til björgunarsveita og lögreglu uin það sem gerzt hafði. „Það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvaða maður hugsar á svona andartökum," sagði Jannik. „Við reyndum bara að finna Rune, stungum niður í fönnina og hrópuðum á hann stanzlaust. Við höfðum borizt með skriðunni rúmlega fimmtíu metra og þurftum því að leita á stóru svæði." ..Skvndilega var kominn fjöldi manns á staðinn og hófm þeir allir leitina með okkur. Þá datt okkur í hug að hann hefði alls ekki borizt með okkur niður eftir, heldur grafizt undir snjóinn og fórum við að leita þar sem skriðan hafði fallið á okkur. Þar heyrði einn mannanna hljóðin í Rune og við grófum hann upp, allt hvað af tók. Hann var orðinn nokkuð kaldur og öskugrár í framan og var meðvitundarlítill en var á lifi og það var mest um vert.“ „Ég hef lítið sofið síðan í gær, um leið og ég loka augunum sé ég snjó og fólkið sem var að leita. Þetta fólk þekkir okkur ekki neitt og við ekki það og það er dásamleg tilfinning að vita til þessarar samhjálpar þegar hluti eins og þessa ber að höndum. Skrifaðu fyrir mig að ég sé öllum innilega þakklátur." Mikill fjöldi fólks leitaði drengsins á laugardaginn, slökkviliðsmenn og hjálpar- sveit skáta frá Hveragerði auk fjölda sjálfboðaliða og lögreglu- menn og björgunarsveitin Tryggvi Gunnarsson frá Selfossi. -HP. 10 ára gamalt einbýlishús — ÓNYTT Nýlega átti þetta fallega öðru ári neyddust íbúar þess til að einbýlishús 10 ára afmæli. Húsið flytja úr þvl. Húsið var bókstaf- er þó ekki eins vel úr garði gert lega heilsuspillandi vegna þess að og það ætti að vera. Fyrir hálfu það lak vatni og vindi. Málaferli standa yfir og matsmenn verið skipaðir til að meta skemmdirnar. A morgun birtum við viðtal við eiganda hússins og húsbyggjand- ann. Hver er ástæðan fyrir sorgar- sögu þessa húss? — Lesið Dagblaðið á morgun. Prófkjör sjálfstæöismanna íReykjavík: VANTAR AÐEINS 32 ATKVÆÐI TIL AÐ KJÖRH) SÉ BINDANDI Prófkjör Alþýðu- flokksins íVestur- landskjördæmi: 1155tóku 50% aukning Þátttaka í alþingisprófkjöri Alþýðuflokksins í Vesturlands- kjördæmi voru 1155 atkvæði greidd. 1 seinustu alþingiskosn- ingum voru Alþýðuflokknum greidd 771 atkvæði. Aukning þátttöku er þvi 49.8% frá þeim kosningum. Atkvæði verða talin síðar i dag, senniloga í Borgarnesi. Fæst þá úr þvi skorið hvor þeirra Eiðs Guðnasonar eðr Guðmundar Vésteinssonai verður í efsla sæti lista Alþýðu- flokksins í Vesturlandskjör- dæmi í næstu alþingiskosning- um. Þamaka varð pessi a kjor- stöðum, eftir þvi, sem næst verður komizt: Akranes 600, Glafsvik 161, Borgarnes 178, Stykkishólmur 80, Hellissand- ur 69, Grundarfjörður 40, Búðardalur 27. Til dæmis má geta þess, að í síðustu bæjar- stjórnarkosningum greiddi 381 Alþýðuflokknum atkvæði á Akranesi. •BS —prófkjörinu lýkur í kvöld kl. 20.30 Sjö þúsu'nd níu hundruð sjötíu og fimm — 7.975 — atkvæði höfðu verið greidd í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík, þegar kjörstöðum var lokað í gær- kvöldi. Eru þátalin með utankjör- staðaatkvæði og atkvæði greidd á kjörstöðum á laugardag og sunnu- dag. Til þess að kosning geti orðið bindandi fyrir kjörstjórn, þurfa 8007 atkvæði að vera greidd í alþingisprófkjörinu. Vantar því aðeins 32 atkvæði til að sú þátt- taka náist. Ljóst er að sú þátttaka fæst í dag, síðasta reglulega kjör- dag af þremur í þessu prófkjöri. Kl. 20.30 lýkur prófkjörinu. „Talning atkvæða hefst þegar að loknum kjörfundi í dag,“ sagði Björgvin Sigurðsson hrl.. for- maður yfirkjörstjórnar 1 viðtali við DB. Þá verður langt komið undirbúningi undir talningu og má vænta lokatalna nokkru eftir miðnætti i kvöld. Fyrirhugað hafði verið að telja atkvæði úr skoðanakönnun þeirri sem gerð var samhliða prófkjör- inu síðar. Að sögn Björgvins Sigurðssonar höfðu eindregnar óskir komið fram um að talið yrði úr skoðanakönnuninni samhliða prófkjörstalningunni. Taldi hann líklegt að reynt yrði því að verða við þeim óskum. Nærri 2 þús. manns greiddu atkvæði á laugardag og tæplega 6 þúsund manns i gær. Utankjör- staðaatkv. voru um 200. - BS frjálst, úháð dagblað MANUDAGUR 21. NÓV. 1977. Storkar veðri og heim- skauta- myrkri Meðan frost og kuldi hrjáir landsmenn og hvert stórhríðar- veðrið af öðru æðir yfir haf og land er þýzkur sægarpur einn á ferð á skútu sinni kringum land- ið. Hann kom til Siglufjarðar I síðustu viku og lagði þaðan vestur um land fyrir síðustu stórhríðar- lotu nyrðra. Sigldi hann síðan fyrir Horn og kom til Þingeyrar. Hvorki vindar, ísing eða hríðar- veður, né myrkur skammdegisíns virðast hafa áhrif á ferðir þessa þýzka siglingagarps. Frá Þingeyri lagði hann á sunnudagsmorgun kl. 10 og hélt til suðurs. Samband hefur hann við heimaland sitt og áhugamenn á radíósviðinu I Reykjavík, en daglegri tilkynningaskyldu vill hann ekki vera háður. Hvort eða hvenær hann kemur til Reykja- víkur er ekki vitað, en kannski siglir hann inn einhvern daginn. - ASt. Grafinn í snjóflóði í 2 klukku- stundir Feðgaráferðí Stöðvarfirði hætt komnir Feðgar frá Stöðvarfirði, Þorsteinn Kristjánsson, lög- regluþjónn og Heimir, 11 ára gamall sonur hans, lentu í snjóflóði í Þverárgili í Stöðvarfirði í gærdag. Voru þetr að huga að kindum sem Þorsteinn á. Höfðu þeir fundið þær en ekki náð þeim. Er þeir voru um það bil að koma upp úr Þverár- gili tók snjór að skríða und- an þeim og slðan fór allt af stað og snjóhengja kom ofan úr gilinu og keyrði þá um leið 25 metra leið niður gilið, m.a. framaf um 5 m háum klettabjörgum, en i gilinu er mjög bratt og klettótt. Þorsteinn fór aldrei í kaf og tókst að losa sig á 10-15 mín. Leitaði hann síðan sonar síns en fann ekki. Gekk hann þá heim að Stöð, sem er 10-15 mín. ganga, og bað um hjálp. Komu heima- menn á vettvang svo og margt manna af öðrum bæjum og neðan úr þorpinu. Fannst Heimir mjög fljótt er leitað var með stöngum. Lenti ein stanganna á einhverju öðru en klöpp og þegar grafið hafði verið hátt í tvo metra kom drengurinn í ljós. Mun hann hafa misst meðvitund og var orðinn nokkuð dofinn af kulda. Vel vár að honum búið og hann síðan fluttur í nýja sjúkrabílnum til Fáskrúðs- fjarðar. í gærkvöldi var hann orðinn hress og mun væntanlegur heim í dag, ómeiddur. Sömu sögu er að segja af föður hans. Hann er stirður eftir, en ómeiddur. -ASt.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.