Dagblaðið - 10.12.1977, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 10.12.1977, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1977. AÐ KIKNA UNDAN JOLUNUM Nú fer að höndum helsta hátíð ársins, jólin, og það gengur sannarlega ekki hljóð- laust fram hjá manni. Blöðin þykkna undir belti og ekki bara af beinum auglýsingum, heldur eru líka í þeim dálkur upp og dálkur ofan um rarítetin sem hellast yfir um jólin, svo sem eins og allar góðu bækurnar og þar fram eftir götunum. Sjón- varpið kýlist út af auglýsingum og náttúriega líka útvarpið, og hinir árlegu dyraskransalar klappa hurðir og bjóða varning sinn. Vafalaust vill enginn vera án jólanna, og á hverju ári hugsar maður sér að vera nú ekki með neina skinhelgi, heldur taka verslunarbrag jólanna eins og sjálfsögðum hlut án þess að ergja sig yfir honum. En þegar út í orrahríðina kemur fer þessi góði ásetningur út i veður og vind. Ég hef það eftir áreiðan- legum heimildum, að á hverju ári fyllist allar geðdeildir og taugadeildir at húsmæðrum, sem taka jólaundirbúninginn svo nærri sór, að hann verður þeim ofraun. Sama cr raunar að segja um páska og fermingar- vertíðina. Getur þetta verið til góðs, þetta kapphlaup og þetta stríð sem gengur svona nærri heilsu mannfólksins? Hvers vegna i ósköpunum erum við að búa okkur til allar þessar þarfir fyrir jólin? Hver er krafan? Lágmarkskrafan er að gefa sínum nánustu eitthvað til að gleðja þá um jól, en hver segir, að sá glaðningur þurfi að kosta morð fjár? Ein eftir- minnilegasta jólagjöf, sem ég hef fengið, var lítil, lauflaus grein af birkitré, á að giska 20 sentimetra há. Hún var sprautuð snjóhvít og fíngerðu n glimmer sáldrað í lakkið meði n það var blautt. Síðan vort hengdar 35 krónur (þetta var fyrir hartnær þrjátíu árum) hér og þar í sprota greinar- innar, fimmeyringar, tjeyringar, tuttugu og fimm- eyringar, krónur, túkallar snyrtilega boraðir örsmáum götum til að hengja þá upp í, tveir tíkallar fagurlega brotnir saman til að mynda vængi og lauf. Og með þessu fylgdi ofur- lítill boðskapur: „Peningar vaxa víst á trjánum." Margar góðar jólagjafir hef ég fengið síðan, og margar miklu dýrari í útlögðum peningum heldur en þessa. Samt minnist ég hennar ævin- lega þegar jólagjafir koma í hugann, og ég sé mest eftir að hafa lesið ávexti peningatrésins í stað þess að eiga það enn. En krónan var nú þyngri í þá daga. Nú virðist lágmarkskrafan vera sú að gefa gjafir sem eru minnst hundraðfaldar að verð- mæti við þá krónutölu sem óx á peningatrénu mínu forðum, og helst þó snöggtum meira. Þar á ofan þarf að mála allt í hólf og gólf, leggja ný teppi, nýjan gólf- dúk, endurnýja húsgögn og hljómflutningstæki, helst líka, einmitt núna. að fá litasjón- varpstæki. Eg skal fúslega játa að allt er þetta eftirsóknar- vert og vafalaust markmið, sem ber að keppa að — en af hverju endilega fyrir jólin? Hvers vegna á fólkið að vera úttaugað og örþreytt þegar kemur að því að halda jólahátíðina? Það er áhrifamáttur aug- lýsinganna sem þessu ræður, ásamt hjarðhvötinni — þörf- inni til að vera eins og hinir — ekki minni, helst heldur meiri. Það kynni að koma í ljós, að hluti af kapphlaupinu er vegna þess að flestir ætla að aðrir hafi það svona og því megi þeir ekki dragast aftur úr, og þannig magni hver sig í samanburði við annan. Það er að minnsta kosti ekki einleikið hvað allir eru domm í janúar, þegar þessari törn er lokið. Jólagjafavertíðinni verður ekki við snúið, og kannski er það alls ekki eftirsóknarvert. Hugsið ykkur bara, hve bóka- þjóðin yrði annarlega bóklaus, ef bókaflóðið fyrir jólin stíflaðist. En íburðarkapp- hlaupið í kringum sjálft jóla- haldið má að skaðlausu kyrrast nokkuð, að minnsta kosti að því' marki að það gangi ekki næst geðheilsu manna og þreki yfir- leitt. Því engin jól geta orðið svo veraldlega dýrleg, að þau réttlæti að þeim ■ sé fórnað heilsunní C Háaloft ) SigurðurHreiðar Hreiðarsson Og svo strax á eftir kemur janúar. Þá veitir manni svo sannarlega ekki af þvf að hafa sansana hjá sér. Þvi þá þarf að gera skattskýrslu, með allri þeirri tiltekt, sem henni fylgir. Og flestum fer þannig, að það vefst fyrir þeim að koma skýrsl- unni saman f tæka tíð, þótt ekkert sé á hana að setja annað en þetta allra venjulegasta. Eg tala nú ekki um, hvaða tilfæringar þarf ef maður hefur verið svo heppinn að eiga milljónirnar sfnar f þýskum banka en ekki dönskum. Vísurogvísnaspjall Elska bara kona náungans Vestur-fslenska skáldið Kristján Nfels Jónsson, sem kallaði sig Káinn, heilsaði lesendum ljóðabókar sinnar 1920 með þessum orðum: Mín eru ljóð ei merkileg, mínir kæru vinir, en oft og tfðum yrki ég öðruvísi en hinir. Og þessa kristilegu hugvekju ásamt útileggingu hefur enginn annar en Ká- inn ort: Náunga þinn elska heitt þú átt og aldrei honum skapraun gera mátt. Þó fyrir allt, sem gjörir honum gott, hann gjaldi aldrei nema háð og spott. En það er kunnugt þeim sem vfða fer, og þetta hefur sannast best á mér, og það er innsta eðli kristins manns, að elska bara konu náungans. Það eru ekki til miklar sagnir af Kristjáni Níels Jónssyni — Káinn — frá þeim árum er hann var að alast upp í Eyjafirði. í bernskuminningum Kristins Guðlaugssonar á Núpi, en hann var eyfirðingur að ætt, er minnst á Káinn með nokkrum orðum. Hér segir frá þvf er leiðir þeirra lágu saman. — Þetta mun hafa verið fyrir 1880, en skömmu sfðar fór Kristján til Ameríku: „Hann var þá milli fermingar og tvftugs, myndarlegur piltur, kvikur i hreyfingum, vel vaxinn og íþróttamaður góður. Létt var honum um að koma fyrir sig orði og gat verið meinyrtur, ef þvf var að skipta. En allt mun það hafa verið græskulaust, og vist var það, að frekar en flestir aðrir á hans aldri lét hann til sfn taka hagi þeirra, er lítt voru sjálf- bjarga eða fáa áttu að. Man ég það t.d. að í Helgárseli var gamall maður á fram- færi, þvínær lagstur f kör. Honum leið vel á heimilinu eins og öðrum að því er fæði snerti. En hirðingu hans að öðru leyti mun hafa verið ábótavant. Húsmóðirin var orðin ölduð og heilsu- lítil, en vinnukonunum ekki svo sýnt um þessháttar störf sem þurfti. Hár hans og skegg var hirðulítið, og hafði þvf safnast þar óværð, sem var honum til mikils ama, en heimilisfólkinu óljúft af þessum sökum að sýsla mikið viðhannÞá var það að Kristján tók sig til ótilkvaddur, klippti hár hans og skegg, þvoði hann og þreif eftir þvf sem hann hafði aðstöðu til. Flestir lögðu honum þetta til lofs. Þó varð þess vart, að hann væri talinn gera þetta til þess að vekja á sér eftirtekt. En mjög fjarri sanni mun það hafa verið. Þó að Kristján væri hrókur alls fagnaðar, heyrði ég þess aldrei getið, að hann hneigðist til ásta. Hinsvegar var það á margra vitorði. að í Heleárseli var hann samtiöa stúlku, sem lagði a hann ástarhug. Húsmóðirin hafði kjöfið þessa stúlku til þess að þjóna Kristjáni, og var það á orði haft, að mörg tár hefði hún fellt f föt hans. En Kristján mun hafa verið henni fráhverfur með öllu, enda var hún talsvert eldri en hann. En vera má að þetta hafi átt þátt f því, að hann ílengdist ekki í Helgárseli." Káinn var ungur þegar hann yfirgaf Island. Um viðkvæm einkamál er hann fáorður. Hann virðist vfða skýla sárum með gamanyrðum. Einhverju sinni sem oftar, þegar Káinn var beðinn um vfsu, varð þessi til: Mér er óðar erfitt stjá, enginn ljóðasvanur; yngisfljóðum er ég hjá, ekki góðu vanur. Við unga stúlku orti hann í glensi: Strax til hvflu glaður gengi glaumi lífsins frá um tíma og eilífð, ef ég fengi Önnu sofið hjá. Og hann vár að vinna hjá bónda, sem átti dætur, glaðar, góðar og fallegar. Sorg uppræta mina má muna innst úr djúpi; dag'a og nætur dvel ég hjá dætrum Björns frá Núpi. ------------------------------ Hann gefur líka þessi góðu ráð. Að þvi gái öldin fróm: ef áttu að hæla sprundum, best er þá að brúka tóm bögumæii á stundum. Hér talar hann undir rós: Mínum dögum yngri á, oft á skemmtifundum kvenfélögum hef ég hjá haft í seli stundum. Og hér. Ég f meyjarauga leit, — á augabragði sá, að innst i hennar hjarta reit hreint var allt og fágað. I annarri snótarvísu kemst hann svo að orði: Forðum daga fann ég snót, þá flakk ég lagði í vana. Yrði saga ekki ljót, ef ég segði hana. Melankólíska hefur hann kallað þessa. Gleðisunna glæst er byrgð, geislar fáir skína. Margt f dapri dauðakyrrð dreymir sálu mína. Skáldið svaf f næsta herbergi vié konu. Millibilið fáein fet farsæld skilur beggja; gegnum þilið fram í flet finn ég ylinn leggja. Jón Gunnar Jónsson - s. 4io46. __-__y — Viltu sækja fleiri skrautteiknibólur, svo ég geti lokið við hermennina? segir jólasveinsstrákurinn við Júlia. — Já, það skal ég gera með músarhraða, segir Júlli. Eg stytti mér leið gegnum músargat. Júlli sækir bólurnar í næsta herbergi. En allt í einu kemur kötturinn hlaupandi, og Júllí missir teiknibólurnar. — Hjáip, kötturinn er að elta mig! — Jæja, þetta var mátulegt á þig fyrir að vera að elta litla saklausa mús, segir Júlli við köttinn. Nú máttu standa þarna til jóla — en það eru bara 14 dagar þangað'til.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.