Dagblaðið - 10.12.1977, Side 5

Dagblaðið - 10.12.1977, Side 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1977. 5 Ustahátíðir velta tugum milljóna ,,Með því að byrja nógu snemma á undirbúningi er hægt að ná mun betri árangri í öllum samningum," sagði Hrafn Gunnlaugsson fram- kvæmdastjóri Listahátíðar- innar á fréttamannafundi í fyrradag. Þetta er í fyrsta sinn sem nægilega tímanlega hcfur verið byrjað á undirbúningi listahátíðarinnar en nú cr um það bil ár siðan sá undirbúning- ur hófst. „Listahátiðir velta tugum milljóna, velta listahátiðar- innar í fyrrasumar var um 60 milljónir. Heimsfrægir lista- menn bóka sig gjarnan citt og hálft ár fram í timann og algengt var er við sendum fyrir- spurnir til þeirra um að koma fram, að þeir voru löngu bókaðir því fvrirvarinn var svo stuttur. En þvi var oft bætt við að þeir vildu gjarnan koma næst. Nú hefur okkur tokizt að fá toppmenn á tónlistarsviðinu og allir listamennirnir sem koma standa á hátindi frægðar sinnar," sagði Hrafn. A.Bj. Hluti framkvæmdanefndar Listahátíðarinnar á blaðamann'afundin- um. talið frá vinstri: Erik Sönderholm. forstjóri Norræna hússins, Hrafn Gunnlaugsson framkvæmdastjóri framkvæmdanefndar- innar, Kristinn Hallsson varafonnaður og Vigdís Finnbogadóttir leikhússtjóri. DB-mynd Hörður. Þrjátíu einþáttungar Framkvæmdanefnd Lista- hátíðar 1978 efndi til sam- keppni um einþáttunga. Þegar skilafresturinn rann út 1. desember sl. höfðu borizt hvorki meira né minna en þrjátíu einþáttungar. sagði Vigdís Finnbogadóttir leikhús- stjóri á fréttamannafundi Listahátíðarinnar. Vinnur dómnefnd nú að því að lesa alla þættina og mun skila áliti um áramótin. Vigdis benti á að þetta bæri þess glöggan vott hve listahátiðin væri mikil hvatning f.vrir íslenzka listamenn. Hafa bæði leikhúsin í höfuð- borginni tilkynnt sig fús að sýna efni þetta á listahátíðinni. Maraþontónleikar á Listahátíð Finn dagskrárliður Lista- hátíðar 1978 verður Mnraþon- tónleikar í Laugardalshöll. Kristinn Hallsson varafor- maður framkvæmdanefndar- innar sagði fréttamönnum að svo skemmtilega vildi til að Landssambönd hlandaðra kóra og ísl. karlakóra ættu bæði stór- afmæli og h.vgðust halda upp á það með miklu tónleikahaldi. í ráði er að lokatónleikar þcssara kóra verði á listahátíðinni. Einnig hefur verið rætt um að fram fari lokakeppni í söng- móti norrænna barnakóra sem jafnan fer fram á vcgum út- varpsstöðva Norðurlandanna annað hvert ár. Auk þess er ráðgcrt að þarna komi fram lúðrasveit barna og cinnig dansarar úr Þjóðdansa- félagi Reykjavíkur. Verður þetta framlag áhugamanna til listahátíðarinnar. Þarna koma fram hátt í tvö þúsund manns. Þá hefur verið rætt um að hljómleikunum ljúki með poppi. A.Bj. Kemur í einkaþotu til að syngja á Listahátíðinni Einn frægasti tenór veraldar. Pavarotti, scm syngja mun á Listahátíð 1978 syngur nú við Govent Gardcn óperuna í London. Hann kcmur hingað í einkaþotu DECCA hljómplötu- fyrirtækisins sunnudaginn II. júní, en þotan mun bíða eftir honum og flytja hann heim að loknum tónleikunum. Söngvar- inn hefur aðeins 24 klukku- stunda frí í óperunni og notar hann tímann til þess að koma hingað á listahátíðina. Hljómplötufyrirtækið DECCA hcfur hugsað sér að hljóðrita tónleikana, sem haldnir verða í Laugardalshöll- inni. Er þetta feikilega góð kynning á listahátíðinni í Rcykjavík, sem nú þegar er orðin viðurkennd meðal umboðsmanna frægra lista- manna erlendis og erlondra listahátiða. A.Bj. riieOrcuí Paviiroi Erro á Kjarvalsstöðum Jafnan hefur verið venja á listahátíðum að fá íslenzka listamenn sem búsettir eru er- lendis til þess að koma hingað til þátttöku í hátíðinni. Að þessu sinni verður það Erró er hingáð kemur en hann er trúlega einn þekktasti núlif- andi íslenzki listamaðurinn. Hann hefur verið búsettur í París um árabil. Verk hans munu fylla báða sali Kjarvalsstaða, en hann fær lánaðar myndir úr söfnum víða um heim. Hyggst Erró reyna að koma þarna á yfirlitssýningu á verkum sínum. Einnig er hugsanlegt að nokkrar nýjar m.vndir Errós verði til sölu. t sýningarsölum Norræna hússins verður sýning á verkum finnska listamannsins Seppo Mattinen og konu hans Helle-Vibeke Erichsen. Þau eru bæði málarar og grafíklista- menn. A.Bj. Joan Sutherland og Pavarotti í óperuhlutverkum. MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT #//ör»f*«il OPIÐ TIL KL. 22ALLA DAGA Bökunarvörur á tilboðsverði Hátiðamatur á hvers manns borð Ódýru reyktu rúllupylsurnar Hangiframpartar ágamla verðinu meðan birgðirendast Það verða gleðilegjól íKjörvali VERIÐ VELKOMIN Þverholti - 270 Mosfellssveit - Sími 66620 íslenzkar bækur. Leikföng frá Airfix, Bambola, Lego, Matchbox, Playmobile og m.fl. Jólakort og jólaskraut i úrvali, fallegt jólakort af Lágafellskirkju. Ritföng. Erlend blöð. Vasabrotsbækur. Filmur, filmuframköllun. Hop- timistarnir vinsælu. Gjafavara. Opið til kl. 8 alla virka daga nema föstudaga til kl. 10. Opið laugardaga. Verið veikomin og reynið viðskiptin. RADÍÓVAL SF. MOSFELLSSVEIT - SÍMI66640 Útvarps- ogsjónvarpsverkstœði - Tiljólagjafa: verzlun Mikið úrval af hljómplötum og kassettum, kassettutöskum. Plötustatif, hillusett, skúffuskáp- ar, ferðatæki, segulbönd, tölvuúr, vasatölvur og m.fl. Útvarpstæki, kassettutæki, bíl- tæki, bíltæki m/kassettum, kass* ettutæki í bíla, hljómflutnings- tæki, hátalarar í bila, sjónvarps, loftnet. Opið 9-8 virka daga, einnig á laugardögum ÞVERH0LT MOSFELLSSVEIT BENSÍNOG OLÍUR FRÁSHELLOGBP —Filmur og tóbak— —ís ogístertur — Gos ogsœlgœti— A th. Mikið úrval afkonfektkössum MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT - MOSFELLSSVEIT

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.