Dagblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MlDVIKUDAGUR 14. DErCMBER 1977. Erlendar fréttir 8 REUTER i Bandarískir ferðamennafturá fomarslóðir Nærri tvö hundruð umboðs- menn ferðaksrifstofa fóru í gær frá Bandaríkjunum til Havana á Kúbu til að kanna hvaða aðbúnað Kúbumenn gætu boðið bandarísk- um ferðalöngum, sem mega koma til eyjarinnar í næstu viku. Er þá lokið sautján ára hléi á ferðum Bandaríkjamanna til Kúbu en það hófst er upp úr sauð milli ríkj- anna árið 1960 og Bandaríkin settu algjört viðskiptabann á Kúbu. Áður fyrr fóru Bandaríkja- Imenn svo hundruðum þúsunda’ skipti í vetrarfrí til Kúbu enda var ferðamannaiðnaður þá mjög mikilvægur atvinnuvegur á eyjunni. Efnahagsleg ítök Banda- ríkjamanna voru þar mjög mikil áður fyrr. Koma bandarískra ferðamanna til Kúbu er liður í viðleitni Jimmy Carters Bandaríkjaforseta til að bæta samskiptin við Kúbu en við- skiptabanni Bandaríkjanna, sem varð mjög afdrifaríkt fyrir efna- hag Kúbu, var að nokkru aflétt í 1 marz síðastliðnum. Litarefniímat- vælum bönnuð Matvælaeftiriit Bandaríkjanna hefur tilkvnnt að fimm tegundir litarefnis hafi verið bannaðar til notkunar í matvælum og snyrti- og hreinlætisvörum. Ástæðan. fyrir banninu er sögð sú, að talið er að efnin sem litirnir eru unnir úr geti valdið krabbameini. Einnig hefur efni sem veldur bláum blæ á matvöru vérið bann- að vegna þess að framleiðendur höfðu ekki allir látið verða af þvi að geta hans á umbúðum. Litarefnin fimm, sem bannað hefur verið að nota í matvælum á Bandaríkjamarkaði, framkölluðu fjögur rauða liti og eitt gulan lit. •' Bann matvælaeftirlits Banda- ríkjanna er liður í því að kanna og endurmeta allar leyfisveitingar um notkun litarefna í matvælum, drykkjarvörum og snyrtivörum. 1 fyrra var ákveðið að athuga nokkur litarefnanna nánar og stöðva notkun þeirra um tíma. Af þeim eru 28 enn í athugun, nítján hafa verið bönnuð, sautján efni viðurkennd sem óskaðleg og heimiluð til notkunar. Bretland: Slökkviliðsmenn hafna tilboðinu Slökkviliðsmenn í Bret- landi virðast ætla að hafna tilboði ríkisstjórnarinnar um 10% launahækkun strax og mikla hækkun á tímabilinu fram í nóvember 1979. Fundir hjá slökkviliðs- mönnum í stórborgum eins og London, Manchester, Liver-_ pool og fleiri felldu sáttatil- boðið. Ertaliðvíst að forustu- menn þeirra, sem hittast á fundi á morgun, muni form- lega hafna tilboði ríkis- stjórnarinnar. Slökkviliðs- menn í Bretlandi hafa verið í verkfalli síðan 14. nóvember sl. Vitað vqr i gær að starfs- bræður þeirra í nokkrum minni borgum vildu sam- þykkja tilboðið, sem tryggja á slökkviliðsmönnum sömu tekjur og iðnaðarmönnum í lok ársins 1979. Síðan verkfallið hófst hafa hermenn gegnt störfum þeirra en þeir hafa aðeins úr- elt tæki sér til hjálpar við eldvarnirnar. Bandaríkin: Tuttugu og átta körfu- boltamenn fórust í fíugslysi í nótt Að minnsta kosti tuttugu og átta manns fórust þegar DC-3 Douglas Dakota flugvél hrapaði rétt eftir flugtak á velli við borgina Evansville í Indiana- fylki í Bandaríkjunum i gær- kvöldi. Samkvæmt opinberum heimildum var þrjátíu og einn farþegi með flugvélinni Þrír þeirra voru á lífi þegar komið var á slysstaðinn, um það bil einn kílómera frá enda flug- brautarinnar. Þar af var talið að tveir væru svo alvarlega slasaðir að þeim var vart hugað líf. Um borð i flugvélinni var hópur körfuknattleiksmanna ásamt þjálfurum og aðstoðar- mönnum. Voru þetta leikmenn í liði háskólans í Evansville. Þegar slysið varð var mikil rigning, þoka og slæmt skyggni. Malaysk farþegaþota hrapaði á fenjasvæði í Malaysiu skömmu eftir að flugstjóri hennar hafði tilkynnt að hún væri á valdi flugræningja. Ekkert er vitað um ástæður fyrir hrapi vélarinnar og ekki er Ijóst hverjir, eða á hvers vegum, þeir voru sem ramdu þotunni. Þotan og þeir sem í henni voru sprungu i tætlur og lítið hefur fundizt sem gæti gefið til kynna hvað kom fyrir. Raforkuverkfall á Grænlandi Verkfall fjörutíu og fimm vél- stjóra við raforkustöðvar í Græn- landi á að skella á á morgun og mundi þá öll rafmagnsframleiðsla stöðvast þar. Danski Grænlands- málaráðherrann Jörgen Peder Hansen reynir nú að fá sett bráða- birgðalög til að koma í veg fyrir verkfallið. Vill ráðherrann, að vélstjórun- um verði skipað með lagaboði að vinna samkvæmt þeim launakjör- um, sem sáttasemjari danska rík- isins stakk upp á en þeir höfnuðu í gær. Verkfall hjá öllum raforku- stöðvum í Grænlandi gæti sam- kvæmt heimildum í Kaupmanna- höfn haft mjög alvarlegar afleið- ingar. Mundi öll rafmagnsfram- leiðsla stöðvast auk þess sem hús eru rfiikið kynt með raforku. Efnahagsbandalagið: ODYRT SMJOR UTAN LANDHELGINNAR Húsmæðrum í löndum Efna- hagsbandalags Evrópu gefst kostur á að spara á næsta ári með því að kaupa smjör og fleiri vörur : um borð í skipum, sem fara út fyrir þriggja mílna lögsögu land- anna. Sparnaðurinn liggur í því að bandalagið hefur ákveðið, að greiða útflutningsbætur á ýmsar landbúnaðarvörur sem seldar eru á þennan hátt. Ákveðið var á fundi sér- fræðinga Efnahagsbandalagsins og samþykkt af landbúnaðarráð- herrum ríkjanna, að hver kaup- andi mætti kaupa ákveðið magn af hverri vöru i hvert skipti. 1 reglunum er til dæmis tiltekið, að kaupa megi eitt kílógramm af smjöri, osti og kjöti. Tvö kiló- grömm af vörum eins og sykri. Einnig er heimilað að kaupa tvo lítra af sterkari drykkjum eða vini, sem blandað er með vínanda. Um nokkurt árabil hafa neyt- endur í Vestur-Þýzkalandi not- fært sér þessa möguleika óspart að spara með því að kaupa vörur í ferjum, sem sigla frá höfnum í 'af smjöri á þennan hátt, 4000 Norður-Þýzkalandi. I fyrra festu tonnum af osti og 2500 tonnum af neytendur kaup á 14000 tonnum ýmiss konar pvlsum og áleggi. Opinn fundur verður í TÓNABÆ miðvikudaginn 14. des. n.k. kl. 21 Rsðumaður Avötdsins verður fró Bandaríkjunum Mól hans verður ekki þýtt Allir velkomnir Samstarfsnefnd. RANGE R0VER árg. ’76, ekinn 5000 km. IWOLKSWAGEN 1200L árg. ’76, ekinn 14000 km. MAZDA616 árg. ’76 V0LV0 144 árg. ’73. Skipti á ódýrari. VOLKSWAGEN 1200 árg. ’74 AUDI 100 LS árg. ’77. Skipti á ódýrari. CHEVROLET NOVA árg. '74. Skipti á ódýrari. BR0NC0 ' ár'g. ’66-’68-’70-’74. MORRIS MARINA STATI0N árg. '74, greiðsluskilm. mjög góðir. BENZ 1519 árg. ’74 SCANIA VABIS 80 Super árg. ’72 ALLS KONÁR BÍLAR Á ALLS K0NAR KJÖRUM. Bflasala Guðmundar Bergþórugötu 3 Símar 19032 — 20070. Matsuni júdóbúningar Rucanor Nylonskór nr. 34-45 Verökr. 1.933.- AllStar körfubottaskór Póstsendum Laugavegl3 Sími13508

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.