Dagblaðið - 14.12.1977, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1977.
Iþróttir
Sjötti sigur Stenmark
í röð á Italíu í gær
—Sigraði með gíf uiiegum yf irburðum í svigkeppni heimsbikarsins
„Það var mjög ánægjulegt að
sigra hér í dag —en einmitt hér
vann ég minn fyrsta sigur i
keppni héimsbikarsins fyrir
þremur árum,“ sagði Ingemar
Stenmark, sænski heimsmeistar-'
inn og handhafi heimsbikarsins
siðustu tvö árin eftir að hann
hafði sigrað með miklum yfir-
burðum í svigi i Madonna di
Campiglio á Ítalíu i gær. Það var
annar sigur hans í þeim tveimur
mótum, sem hann hefur keppt i i
keppni heimsbikarsins nú og 6.
sigur hans i röð frá því keppnis-
timabilið hófst í siðasta mánuði.
Francis Larrieu, Bandarikjun-
um, setti nýtt ástralskt met í 1500
m hlaupi á móti í Melbourne á
laugardag. Hljóp á 4:12.5 min. A
mótinu kom mjög á óvart að Don
Commons, Astralíu, sigraði
bandariska meistarann Milan.
Tiff i þrístökki. Commons stökk
16.52 m en Tiff 16.20 metra.
Superstjörnurnar í tennis,
Chris Evert og Jimmy Connors
gengu í það heiiaga í síðustu viku.
Voru gel'in saman í St. Louis.
Aður hafði slitnað upp úr trúlof-
un þoirra oftar en einu sinni. Þau
hafa verið fremstu tennisleikarar
heims um árabil.
Jafnframt var þetta 23. sigur
Ingemars á mótum í heimsbik-
arnum og skortir hann nú aðeins
einn sigur til að jafna met ítalans
fræga, Gustavo Thoeni.
Eftir fyrri umferðina í sviginu í
gær var hinn 21 árs Svíi í þriðja
sæti. Síðari umferð hans var stór-
kostleg og samanlagt var hann
með meira en einni og hálfri sek-
úndu á undan næsta manni. ,,Ég
varð að taka alls konar áhættu í
síðari umferðinni til að vinna upp
mismuninn á Heidegger. Það var
mjög vandasamt, en mér tókst að
ná frábærum lokakafla," sagði
Ingemar. Hann náði tveggja sek-
úndna betri tíma en Klaus
Heidegger, Austurríki, í umferð-
inni.
„Ég er öruggur um að mér tekst
að sigra Stenmark fljótlega. Ef
mér hefðu ekki orðið á mistök
undir lokin í síðari umferðinni
hefði þetta ef til vill orðið minn
dagur,“ sagði Heidegger eftir
keppnina. •
Stenmark hefur nú tekið
örugga forustu í stigakeppni
heimsbikarsins. Hlotið 50 stig eða
hámarksstigatölu. Tími hans í
gær var 110.81 sekúnda.
Heidegger varð annar með 112.13
sek. I þriðja sæti varð júgóslavn-
eski Evrópumeistarinn frá ung-
lingakeppninni í vor, Bojan
Kraizaj á 112.51 sek. og það er
bezti árangur, sem hann hefur
náð i keppni heimsbikarsins. Atti
bezt áður sjötta sæti. í fjórða sæti
var Phil Mahre, USA, eins og í
stórsviginu í Val d’Isere. Næstum
tveimur sekúndum á eftir Sten-
mark.
Ahorfendur urðu fyrir miklum
vonbrigðum með sina menn. Á
þessu móti í fyrra urðu Italir í
þremur efstu sætunum. Hinn tví-
tugi Mauro Bernardi var fimmti
og er i mikilli framför. Radici var
sjötti og honum urðu á margvís-
leg mistök í síðari umferðinni.
Olympiumeistarinn Piero Gros,
sem var með annan bezta tímann
eftir fyrri umferðina, náði mjög
slökum tíma i síðari umferðinni.
Stanzaði næstum í hvert skipti,
sem hann fór í gegnum hlið. Hann
varð þó tíundi — og Gustavo
Thoeni tókst ekki að ná betra sæti
en því þrettánda. 1 7.—9. sæti
urðu Andreas Wenzel, Lichten-
stein, Peter Popangelov,
Búlgaríu, og Christian Neu-
reuther, V-Þýzkalandi. Af árangri
annarra keppenda má nefna að
Stig Strand varö nr. 20, Thorstein
Jakobsson, báðir Svíþjóð, í 24.
skyldi vera auðveldast að finna I úrval af alls kyns vörum á alls
hagnýtar og skemmtilegar kyns verði. Þú finnur það sem
jólagjafir á viðráðan- þig vantar í Domus.... og
legu verði? Við leyfum
okkur að mæla með
Domus. A einum stað
bjóðum við geysilegt
gleymdu ekki kaffi-
teríunni ef fæturnir
eru farnir að lýjast!
Urval af fatnaöi
frá Marks og Spencer
Leikföng í þúsundatali
Búsáhöld, gjafavörur,
raftæki og skrautvörur
★
Jóladúkar og handklæði
H Skíðavörur
Domus hefur nú á
boðstólum mikið úrval
pf skíðavörum.
í hillunum má m.a.
finna:
Dachsteln skíðaskór
HarnastærAir
L'nglingastarAir
Dömu- og herrastærAir
kr. 8.670,-
kr. 10.990,-
kr. 12.550,-
Vestur-þýsk skíði með
stálköntum og
öryggisbindingum
LnglingaslærAlr kr. 21.850,-
Dömu- og herrastærAir kr. 25.560,-
KaruaskiAi meA öryggis-
bimlingum og stöfum kr. 7.950,-
Skiðablússur
L'rval af litum og lcgundum
VerA frá kr........... 6.850,-
DOMUS
sæti og Björn Gefle, Noregi, í
þrítugasta sæti.
Eins og áður segir hefur Sten-
mark nú 50 stig en næstur er
jHeidegger með 26 stig. Keppt
jverður í stórsvigi í Madonna di
ÍCampiglio í dag.
Enn selur QPR
Brian Clough brást hart við og
keypti i gær David Needham frá
QPR fyrir 140 þúsund sterlings-
pund. Hann kemur i stað Larr.v
Lloyd sem miðvörður hjá
Nottingham Forest en á iaugar-
|dag brotnaði bein í fæti Lloyd í
leiknum gegn Coventr.v. Llovd
var enskur landsliðsmaður hér á
árum áður með Liverpool. Hóf
leikferil sinn hjá Bristol Rovers
!—en hefur auk þess leikið með
iCoventrv.
David Needham er 28 ára og
hefur aðeins verið sex mánuði
hjá QPR. Hafði áður leikið 429
deildaieiki með Notts County og
kostaði QPR 90 þúsund sterlings-
pund. Undanfarna mánttði hefur
QPR selt nær helminginn af leik-
mönnunum i 1. deildarliði sínu —
og fleiri vilja komast frá félaginu
eins og Gerrv Francis og Don
Givens.
Þá má geta þess að í síðustu
viku kevpti West Hant David
t:ross frá WBA fvrir 160 þúsund
pund.
Við ætlum
ekki að verjast
— sagði fyrirliði Wales
Við erum ekki komnir til að
verjast hér í Dortmund, heldur
munum við sækja, sagði Terry
Yorath, f.vrirliði landsliðs Wales,
sem leikur við heimsmcistara
Vestur-Þýzkalands í kvöld.
Wales, sem leikur i sama riðli og
Þjóðverjarnir í Evrópukeppn-
inni, hefur ekki skorað í siðustu
fjórum landsieikjum sínum.
Mike Smith hefur valið lið
Wales og er það þannig skipað:
Dai Davies, Leighton Phillips,
Maicolm Page, Davé Jones, Joey
Jones, Brian Flynn, Terry
Yorath, Alan Curtis, Carl Harris,
Nick D'eacv og Leighton James.
Varamenn verða John Pillips,
John Mahone.v, Les Tibbott, Mike
Thomas og Donato Nardiello.
Nær allt leikmenn úr 1. deildinni
ensku.
Jón Tómasson — skoraði þrennu gegn N<
Sonur fullti
hjá SÞ sl<
í knattSF
„Þegar fólk áleit að glæsidagar
knattspvrnuliðs Rve Neck-skólans
væru á enda kom Jón Karisson fram á
sjónarsviðið" er upphafið að fjögurra
dálka grein í The Daily Times í New
York-fvlki ekki alls fvrir löngu. Þar er
borid mikið lof á Jón sem knattspyrnu-
mann og haft eftir þjálfara hans, A1
Zimmerman, að hann sé einn bezti
knattspyrnumadurinn i Westchester,
borgarhverfi rétt utan New York
borgar, sem telur um eina milljón
ibúa. Þó er Jón aðeins fimmtán ára.
Fa*ddur 1962.
Jón Karlsson sem skrifað er um er
Jón Tómasson á íslenzka vísu, eldri
sonur Tómasar Karlssonar, fulltrúa
tslands hjá Sameinuðu þjóðunum, og
eiginkonu hans, Ásu Jónsdóttur. Yngri
sonur þeirra hjóna, Jökull, sem er 13
ára er einnig efnilegur knattspyrnu-
maður.
Jón Tómasson er miðherji skólaliðs
Rye Neck — á fjórða ári i skólanum —
og hefur skorað mikið af mörkum hjá
mótherjum sínum. Eldsnöggur og leik-
inn.
í greininni í The Daily Times, sem
Dagblaðinu barst frá Önnu Sigríði
Atladóttur í New York, er sagt i löngu
máli frá leik Rye Neck við North
Salem. Rye Neck sigraði 5-2 og Jón
Tómasson var greinilega kóngurinn á
vellinum. Skoraði þrjú af mörkum liðs
síns og átti heiður af hinum tveimur. I
fyrri hálfleiknum skoraði Rye Neck
þrívegis. Fyrsta markið kom eftir
tæpar 10 mín. þegar Jón tók horn-
spyrnu. Knötturinn barst yfir mark-
vörð North Salem og Bob Natell
skoraði. Þremur mín. fyrir leikhléið
skoraði Jón og þegar aðeins 28 sek.
THF. DAILY TIMES, Mamaroneck, N.Y.,
Karlsson leads R}
victory over Nort]
BY BILL MURPHY
Sports Editor
Just when people began
ihlnkiruí. that Jlve Neck
vain to resurrect the Ma-
maroneck school’s soccer
program. Now in his sec-
ond scason of varsity com-
petition, Karlsson, a native
kicking. At 9:40,
grade sensation
high corner kick |
Bob Natell for
thprs’ second sct
Skemmum ekki aðra '
Járnstöng...