Dagblaðið - 15.03.1978, Page 7

Dagblaðið - 15.03.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1978. 7 HEIFTARLEG ÁRÁS ÍSRAELSMANNA GEGN SKÆRULIÐUM PLO — Þúsundir hermanna réðust inn í Suður-Líbanon í nótt — Lof tárásir og stórskotaliðsárásir á búðir skæruliða Þúsundir hermanna ísraels réðust inn í Líbanon í nótt og gerðu viðamestu árás á búðir palestínskra skæruliða sem gerð hefur verið. Herinn réðst yfir landamæri Líbanons með skrið- dreka og orrustuþotur. Utvarpið í ísrael sagði að árás- inni væri beint gegn austurhluta Suður-Libanon á svæði sem nefnt er Fatahland. „Það er ekki ætlun israelska hersins að ráðast á óbreytta borgara eða líbanska herinn," sagði talsmaður Israels- stjórnar. „Það verður aðeins ráðizt á hryðjuverkamenn og þá sem aðstoða þá, til þess að tryggja líf og öryggi ísraelskra borgara. Það er ekki ætlun árásarinnar að hefna fyrir glæpi hryðjuverka- manna, vegna þess að ekki er hægt að bæta fyrir villimannlega slátrun saklauss fólks, karla, kvenna og barna. En það er agtlun okkar að verja ríkið og koma í veg fyrir árásir Fatah og PLO, sem nota líbanskt landsvæði til þess að gera árásir á ísraelska borg- ara.“ Mikill viðbúnaður herliðs hefur verið við landamæri tsraels að Líbanon. allt frá því að skærulið- ar gerðu árás á ísraelskan lang- ferðabíl á laugardag er 33 létust og fjölmargir særðust. Herliði, skriðdrekum og stórskotaliðs- vopnum hafði verið safnað saman. Begin forsætisráðherra hafði boðað í þinginu, Knesset, að hinn illi armur PLO yrði högg- vinn af, þannig að búizt var við hefndarráðstöfunum ísraels- manna. Begin mun fara til Washington i næstu viku til viðræðna við Carter forseta um friðarhorfur í Miðausturlöndum, og þegar eftir að árásin inn i Líbanon var hafin Hin hlóðuga árás Palestínuskæruliða á langferðabíl í Israel á laugardaginn, þar sem 33 fórust og margir slösuðust, er undirrót aðgerða ísraelsmanna nú. Mvndin sýnir menn með andlitsgrímur leita i rústum langferðabílsins, en mörg líkanna voru óþekkjan.leg vegna bruna. sendi Begin Carter skeyti, þar sem hann greindi frá áætlunum ísraelsmanna. Formaður utanríkis- og varnar- málanefndar ísraelska þingsins, Moshe Arens prófessor, sagði að hann teldi að árás tsraelsmanna hefði ekki áhrif á frekari friðar- viðræður. ísraelska útvarpið sagði að u.þ.b. 6 þúsund palestínskir skæruliðar væru í Fatahlandi, þar sem Israelsmenn gerðu loftárásir í nótt. Ekki lágu fyrir fréttir af manntjóni í morgun. ísraelskar herflugvélar réðust á , búðir skæruliða i Bint Jbeil og Maroun JONAS HARALDSSON REUTER Al-ras, að sögn talsmanns Palestínumanna. Bint Jebeil er um 8 km f.vrir innan líbönsku landamærin. Talsmaður Palestínumannanna sagði einnig: „Þetta er mikil að- gerð. 1 þetta skipti ætla þeir að t,era útaf við okkur". BIMM MM Póstsendum Vesturgötu Sími13570 Nýkomið: Grófrífflaðar flauelsbuxur Anorakar Al Capone-peysur BIMM BAMM Þægilegustu mokkasínur\ sem við höfum verið með hingað til. Litir: Svartar, gráar, brúnar ogljósbrúnar. Raunveruleg stærð nr. 36. 6 cm hæll. Stærðir36-40 í hálfum númerum. Verð kr. Póstsendum Opið laugardaga 8.950.- Skóbúðin Suðurverí Siigam45 Sími83225

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.