Dagblaðið - 06.04.1978, Síða 3

Dagblaðið - 06.04.1978, Síða 3
Spurning dagsins 3 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 1978. Punkið er engin heimspeki Geirmundur Sigvaldason skrifar: Þar sem ég er hljómlistarunnandi og tilheyri svokölluðu þungu poppi sá ég mig tilneyddan til að svara Dr Punkenstein. Fyrst er ég fór að lesa um punkæðið varð ég mjög spenntur að heyra þá músik sem þvi fylgdi, en þar sem ég fékk enga kynningu frá rikisútvarpinu var ég tilneyddur til að kaupa plötu með einni virtustu punk-hljóm- sveitinni, sem heitir RAMONES, og hvílík vonbrigði. Þessu rusli mætti likja við ROLLING STONES þegar þeir voru að byrja. nenia hvað þetla er helmingi verra. Svo er Dr. Punken- stein að tala um að textarnir fjalli um félagsleg og stjórnmálaleg vandamál. I don't care, I don’t care about this world. Svona er eitt lagið í gegn og platan öll eftir því. Þvilik speki i félags legum og stjórnmála vandamálum. Svo dirfist Dr. Punkenstein að gera David Bowie að punkara. Þvílik fjar- stæða. Eg efast um að Dr. Punken- stein þekki svart frá hvítu. Vart telst það til heimspeki að gela dauðann og djöfulinn i allt og alla, að mati bréfritara. Þinn bíll 15. apríl n.k., - sértu hinn heppni áskrifandi Dagblaðsins. Verðmæti er 4.4 miljónir króna. Gerstu áskrifandi að Dagblaðinu strax í dag. Áskriftarsími 27022. Opiö til 10 í kvöld. - BUUUB frýálst, úháð dagblað Bréfritari telur að stækka mcgi kökuna með að láta varnarliðsmenn greiða skatta og skyldur eins og íslendinga. Af hverju ekki að stækka kökuna? Chevrolet Nova Custom78 ar. Það sem að minunt dómi er stærstur galli á hinum margumtöluðu efna- hagsráðstöfunum rikisstjórnarinnar er að skerða laun þeirra lægstlaunuðu. Það nær vitanlega engri átt. byrjunar- kaupskerðing hefði ekki átt að koma til framkvæmda fyrr en komið var fast að 200 þúsundum á mánuði. þá greiða - nokkrarspurningar tilGuðmundar J. og DavíðsSch. Verkamaður skrifar: í sjónvarpi nú eftir áramótin var þáttur sem Gunnar G. Schram sá um. Voru þar fyrir svörum Guðmundur J. Guðmundsson og Davið Scheving Thorsteinsson. Var rætt um fyrirhug- uð mótmæli stéttarfélaga gegn efna- hagsfrumvarpi rikisstjórnarinnar. Það merkilega kom fram hjá báðum þess- um andstæðu mönnum á fyrirhug- uðum mótmælum, að báðir töldu kaup láglaunafólks of lágt og væri því ósanngjarnt að skerða þess hlut. En kakan sem skipta á væri of lítil, hana þyrfti að stækka, því ekki væri hægt að skipta meiru en til væri (orð Daviðs). Því ekki að stækka kökuna um helming þar sem við með öllum rétti getum það eins og aronistar hafa sýnt fram á. Okkur ber að engu leyti skylda til að láta NATOdátana á Mið- nesheiði vera undanþegna skatti og aðstöðugjaldi að öllu leyti, þar sem enginn hefur fært rök fyrir hinu gagn- stæða, nema þetta sé gert vegna þjóðarstolts. Þá vil ég skora á formann Verkamannasambandsins, GJG, að svara þessu með rökum þvi hann vilji ekki fylgja þessari stefnu, til að geta greitt sinu láglaunafólki hærri laun, sem virðist vera hans áhugamál. Án undanbragða, hrein svör við þessari spurningu. Annars tel ég að hugur fylgi ekki máli. Sama áskorun til formanns iðnrek- enda, DST, úr þvi hann vill bæta kaup iðnverkafólks, þvi ekki að fara þessa áðurnefndu leið og hafa þannig stærri köku til að skipta, ef hann ber i raun hag iðnverkafólks fyrir brjósti eins og var að heyra í sjónvarpsþættinum. Hrein mótrök frá þinni hendi að kak- an skuli ekki stækkuð með þessum ráðum. Annars mun ég álita að hugur hafi ekki fylgt máli i téðum sjónvarps- þætti. Við vitum svar forsætisráð- herra, þjóðarstolt, en nú getur hann axlað um og notað þetta orð um er- lenda skuldasöfnun sinnar rikisstjórn- eins og er helmings kaupuppbót, halda þvi til 300 þúsund á mánuði. úr því greiða l/4 kaupuppbót til 400 þúsund. Þar fyrir ofan enga kauphækkun. Af þeirri upphæð getur hver lifað sóma- samlega. Þannig hefði rikisstjórnin i raun framkvæmt að hluta til hina margumtöluðu launajöfnunarstefnu, sem höfð hefur verið á oddinum i mörg ár i kjarasamningum en því miður ekki séð dagsins ljós, hver er ástæðan. Því svara þeir sem staðið hafa að kjarasamningum undanfarin ár. Raddir lesenda Ertu búinn að ákveða hvaða flokk þú ætlar að kjósa í alþingis- kosningunum? ÞArarína Samúelsson, vinnur hjá ritsím- anum: Ég kýs ekkert af þessum aula bárðum. Ef Alþýðuflokkurinn ætti al- vöru stjórnanda, hefði ég kosið hann. Guðmundur Eriendsson Ijösmyndari: Já. það er langt slöan og er algert leyndar mál. Guðjón Jónsson tæknifræðingur: Nei. ég ákveð það eflaust ekki fyrr en daginn fyrir kosningar. Það er eflaust santa hvað kosið er. það er sami grauturinn i sömu skál. Það vantar eitthvað nýtt og ferskt. Sigursteinn Hcrsveinsson útvarpsvirkja- meistari: Já. það er gontul og gróin saga. Kristján Norðdal málari: Nei. það verður nokkuð erfitt og er allt á huldu ennþá. Guðlaugur Jónsson ver/.lunarmaður: Já. auðvitað kýs ég Sjálfstæðisflokkinn. Ég hef kosið hann i mörg ár.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.