Dagblaðið - 06.04.1978, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. APRlL 1978.
„Ástandið” í miðbæ Akureyrar:
Unglingamir fríðsamir og ófullir—
þeir futtorðm hins vegar verrí
„Þá má ekki falla I þá freistingu að
fordæma allan skóginn vegna eins
fölnaðst laufblaðs og ekki unglingana á
Akureyri upp til hópa út af einni ferð
um miðbæinn," segir í grein eftir Jón
Björnsson félagsmálastjóra Akureyrar í
nýlegum íslendingi.
Ástæðan til þess að Jón reit þessa
grein er sú að skömmu áður en þetta var
skrifað komu fulltrúar Æskulýðsráðs
ríkisins þar norður og leizt þeim ekki á
það sem þeir nefndu „ástandið” i miðbæ
höfuðstaðar Norðurlands. Var efnt til
fundar með norðanmönnum þar sem
lýst var nokkrum ugg og miðbænum likt
við Hallærisplanið fræga í Réykjavík.
Til þess að kanna þetta nánar fóru Jón
og ýmsir samstarfsmenn hans út tvö
kvöld og könnuðu hverjir það væru sem
sæjust á götum miðbæjarins eftir að
kvölda læki og hvernig þeir höguðu sér.
Talinn var heildarfjöldi og reynt að segja
til um hvernig fólkið skiptist eftir aldri
og hvort það hafði neytt víns eður ei.
Niðurstaðan var m.a. þessi:
„Það vakti athygli hve friðsamur og í
raun prúður þessi stóri hópur var, a.m.k.
þessi kvöld. Hann sýndi ekki nein merki
skemmdarfýsnar (flöskubrot undan-
skilin) eða árásargirni, áflog urðu ekki né
illindi, vegfarendur fengu að fara ferða
sem fylgir fólki á rangli um miðbæinn.
Menn aka þar um bílum og mótor-
hjólum. lítt eða ekki hljóðdeyfðum, og
valda þeir íbúum miðbæjarins miklu
hugarangri. Enda er það svo að ibúum
þar fækkar, sérlega þó unga fólkinu. Þó
telur Jón að steininn muni fyrst taka úr
með brottflutninginn ef tillaga um nýjan
skemmtistað þar verði samþykkt. Gert
er ráð fyrir að skemmtistaðurinn yrði á-
Hverfisgötu 100, við hliðina á Hótel
Akureyri. Húsið er bæði gamalt og litið
og myndi það vera eins og hátalari í
miðjum bænum, bæði vegna hljómlist-
arinnar sem inni er og hávaðans frá
þeim sem safnast að á kvöldin. Jón telur
vænlegra að skemmtistað verði komið
upp utar í bænum og umferð þannig
beint frá miðbæjarsvæðinu. Fleiri
skemmtistaði vantar, sérstaklega fyrir
unglinga á aldrinum 16—18 ára. Jón
telur að slíkri þjónustu eigi að dreifa eins
og annarri og þá breytist kannski það komið fram mun meinlausara en fyrst
sem Æskulýðsráðið kallaði „ástand” kom fram.
sem Jón telur þó eins og áður hefur -DS.
Jón Björnsson félagsmálastjóri.
sinna óáreittir, rúður voru ekki brotnar,
bílar voru ekki skemmdir. Til alls þessa
voru þó ótæmandi möguleikar; þessi
hópur átti miðbæinn einn. Að þessu
leyti voru umrædd kvöld ekki undan-
tekning; skemmdarverk í miðbænum,
segja kunnugir, eru oftast óviljaverk.”
Þetta segir í grein Jóns um unglinga þá
sem staddir voru í miðbænum.
En fullorðna fólkið fær ekki eins
góðan vitnisburð:
Margir gestanna (úr Sjálf-
stæðishúsinu) gátu illa staðið i fæturna
og þaðan af síður stýrt þeim. Flestir
hurfu fótgangandi fráSjálfstæðishúsinu,
trúlega heim á leið, en allstór hópur
gesta og áhorfenda staulaðist næstu
klukkustund inn á Ráðhústorg og var
þar fullorðið fólk i meirihluta, margt
mjög drukkið," segir enn í grein Jóns.
Jón kemur einnig inn á þann hávaða
Eiríkurum nýju
áningarstöðina:
Menn ekki
búnirað
missa af
strætó
Eiríkur Ásgeirsson forstjóri
SVR hafði samband við blaðið og
vildi koma á framfæri nánari
skýringum við frétt sem birtist í
blaðinu í gær um nýja áningarstöð
strætisvagna á Hlemmtorgi.'
Eiríkur sagði að stjórn strætis-,
vagnanna ynni nú að þvi að gera
tillögu um hvers konar þjónusta
þar ætti bezt heima og hvernig
henni yrði bezt fyrir komið. Eftir
að búið væri að taka afstöðu til
þeirra hluta yrði auglýst opinber-
lega eftir slíkum aðilum og því
væru menn ekki búnir að missa af
þessum eina sanna strætisvagni ef
beir vildu sækja um.
DS.
Gróður
traðkaður
niðurf
göngugöt-
unni
Byggingamenn ganga oft duglega
fram 1 framkvæmdum sínum og leik-
mönnum finnst sem ýmis verk séu sótt
af óþarflegu kappi. Þannig blöskraði
mörgum meðferðin á graseyju á göngu-
spottanum í Austurstræti í gær. Vegna
byggingaframkvæmda milli verzlunar
Karnabæjar og Nýja Bíós þurftu bilar að
komast að og aðstaðan þröng. Varð eyj
an illa úti, rótaðist upp og grindverk
brotið niður. Ekki var hirt um að setja
ökufærar plötur yfir til hlífðar en böðl-
azt yfir eyjuna þvers og kruss. Lögreglan
hafði afskipti af málinu og vænta má að
eyjan komist í samt lag fyrir tilstilli
byggingaraðila.
Myndin sýnir hvemig umhorfs var í
göngugötunni eftir að bilum var ekið
yfir grasið. — DB-mynd Sv. Þorm.