Dagblaðið - 06.04.1978, Side 12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. APRlL 1978.
12
I
Sþróttir
iþróttir
-
• ** ■
Englandu-21
í undanúrslit
Enska landsliAið u-21 árs trygKÖi sér
sæti í undanúrslitum Evrópukcppni
landsliða undir 21 árs í gærkvöld — í
Róm skildu Ítalía og England jöfn, 0-0,
þar sem ítalir sóttu stift en vöm Eng-
lands með þá David Peach, Southamþ-
ton og Paul Futcher, Luton var mjög
stcrk.
Danir voru slegnir út úr átta-liða úr-
slitum í Sofiu í Búlgaríu i gærkvöld, biðu
lægri hlut gegn Búlgörum i Evrópu-
keppni landsliða u-21 árs, 0-3. Danir
unnu fyrri leikinn 4-1 og Búlgarir
komust því í undanúrslit á útimarkinu.
Staðan í leikhléi var 0-0 — og Búlgarir
skoruðu þriðja mark sitt átta mínútum
fyrir leikslok en áður höfðu Danir mis-
notað vitaspyrnu.
Í Ungverjalandi tryggðu Júgóslavar
sér sæti í undanúrslitum með þvi að sigra
2-0 i Bakescaba. Ungverjar höfðu sigrað
1-0 i .Júgóslavíu — en Júgóslavar
skoruðu siðara mark sitt á siðustu mín-
útu leiksins eftir látlausa sókn Ungverja.
A-Þýzkaland varð þriðja austantjalds-
þjóðin til að tryggja sér sæti i undanúr-
slitum Evrópukeppni landsliða u-21 árs
— sigraöi Tékka 5-2 í Halle í A-Þýzka-
landi. A-Þjóðverjar komust áfram
samanlagt, 6-5. A-Þjóðverjar mæta
Búlgörum og Englendingar leika við
Júgóslava í undanúrslitum.
Sannfærandi
sigur Póiverja
íPoznan
Pólverjar — bronsliðið frá HM í V-
Þýzkalandi — unnu sannfærandi sigur á
Grikkjum í Poznan i Póllandi í gær-
kvöld, 5—2. Áhorfendur voru 35 þúsund
— og voru vel með á nótunum. Yfir-
burðir Pólvcrja voru miklir, sér í lagi í
fyrri hálfleik en staðan í leikhléi var 4—0
Pólverjum í vil.
Grzegorz Lato skoraói fyrir Pólverja
þegar á 12. mínútu og fimm mínútum
síðar skoraði fyrirliði Pólverja, Deyna,
með þrumuskoti eftir laglegan samleik
með Szrmach. Og Pólverjar létu ekki
staðar numið — á 20. minútu var staðan
orðin 5—0 Pólverjum í vil er bakvörður-
inn Zmuda skoraði eftir hornspyrnu.
Hreint ótrúlegir yfirburðir Pólverja —
því Grikkir hafa síður en svo staðið sig
illa undanfarið. Á 33. mínútu voru Pól-
verjar enn á ferðinni — enn Deyna og
enn eftir laglegan samleik með
Szrmach .
Jacek Gmoch, þjálfari Pólverja, skipti
þeim Deyna og Szrmach útaf i leikhléi
til að lofa yngri mönnum að reyna sig.
Þegar i þriðju minútu síðari háifleiks
skoruðu Pólverjar sitt fimmta mark,
Boniek var þá á ferðinni. En Pólverjar
slökuöu á — og Karvitis og Mayros
náðu að svara fyrir Grikki.
Þróttur og HK
í Höllinni
Þróttur og HK mætast í Laugardals-
höll í kvöld í fyrri leik liðanna um réttinn
til að leika við sjöunda liðið i I. deild um
sæti meðal þeirra beztu á næsta kcppnis-
timabili. Leikurinn í kvöld hcfst kl. 9.30
en síðari lcikurinn fer fram að Varmá í
Mosfellssveit á laugardag.
í A hyggst nú ráða framkvæmdastjóra
í hálfs dags starf en starfsemi ÍA hefur
vaxið mjög á undanförnum árum, sem og
annarra íþróttafélaga. Þeir er kunna að
hafa áhuga á starfinu snúi sér tii Þrastar
Stefánssonar á Akranesi.
Gústaf Björnsson — bezti maður Fram skorar eitt átta marka sinna. DB-mynd
Bjarnleifur.
Ármann á bari
í 2. deild, Fram
— Fram sigraði Armann í 1. deild í Lau§
Fram forðaði sér af hættusvæði 1.
deildar með sigri gegn neðsta liöinu i
dcildinni, Ármanni, í Laugardalshöll í
gærkvöld, 18-14. Ármann virðist nú
dæmt til að falla, leikur liðsins i gær-
kvöld var leikur fallliðs —aðeins einn
leikmaður barðist af krafti, náði að sýna
frumkvæði, og það var Björn Jóhanns-
son en hann skoraði 10 af 14 mörkum
Ármanns. Aðrir leikmenn voru nánast
statistar í leiöinlegum, tilþrifalitlum leik
Ármanns.
Leikur Fram og Ármanns bauð ekki
upp á mikil tilþrif — Fram hafði yfir
meiri breidd að ráða og Gústafi Björns-j
syni og það gerði gæfumuninn. Þessi!
snjalli leikmaður skoraði mörg lagleg
mörk inn úr horninu, framtak hans ylj-
aði í leik meðalmennskunnar.
Annars er það alveg dæmalaust hve
leikur Fram og Ármanns í vetur hefur
verið misjafn — á köflum hafa liðin náð
að sýna skínandi leik. Sér i lagi hefur
Fram verið ráðgáta — á köflum leikið
góðan handknattleik en sýnt á milli til
burði liðs úr 2. deild. Ármann hefur og
átt misjafna leiki — mikið býr í liði Ár-
manns. Um það eru flestir sammála.
Liðið hefur orðið fyrir miklum skakka-
föllum í vetur vegna meiðsla lykilleik-
manna. Sjálfstraust leikmanna er rokið
Forest með aðra hönd
á enskri meistaratign
— Nottingham Forest sigraði á Villa Park, 1-0 en Everton
tapaði gegn Liverpool, 1-0.
Frank McLintock hættir hjá Leicester
Nottingham Forest tryggði enn stöðu
sina í efsta sæti 1. deildar á Englandi
með sigri á Villa Park í Birmingham
gegn Aston Villa. Helzti keppinautur
Forest um meistaratign, Everton, beið
lægri hlut i viðureign liðanna við ána
Mersey, Liverpool. Nottingham Forest
hefur nú fjögurra stiga forustu á Everton
og þrjá leiki til góða — yfirburðir Forest
eru miklir, hreint ótrúlegir. Deildabikar-
inn þegar kominn til City Ground i
Nottingham, meistaratign fylgir i kjöl-
farið — glæsilegur árangur Brian
Clough.
Raunar náði Nottingham Forest ekki
að sýna sínar beztu hliðar á Villa Park,
Aston Villa sótti mjög allan leikinn —
en vörn Forest var sterk með Kenny
Burns enn frábæran. Raunar virtist
Forest sleppa við vítaspyrnu er Kenny
Burns handlék knöttinn innan vitateigs
— en þetta fór framhjá dómaranum.
Brian Little var vörn Forest erfiður en
eins og oft áður í vetur skoraði Forest í
lokin er Tony Woodcock sendi knöttinn
framhjá Jimmy Rimmer, markverði
Villa. 2 stig til Forest, raunar keppn-
isstimpill yfir sigrinum en- vilji lið sigur
í baráttunni um enska meistaratitilinn
þá þarf heppni, mikla heppni og hana
Öraggur sigur
Hollands
Holland sigraði Túnis 4-0 í vináttu-
landsleik þjóðanna í gærkvöld. Hollend-
ingar —silfurliðið frá síðustu HM —
höfðu yfirburði gegn Túnis sem nú er í
fyrsta sinn í úrslitum HM.
Nanniga skoraði fyrir Holiendinga á
13. mínútu og annað mark fylgdi í kjöl-
farið á 41. mínútu. Vermeulen var þá að
verki. í siðari háifleik bættu Hollend-
ingar tvcimur mörkum við, á 63. minútu
Leewen og Vermeulen bætti við sínu
öðru marki á 89. mínútu ieiksins —
áhorfcndur voru 35 þúsund.
hefur Forest haft í rikum maéli í vetur.
Því stefnir í fyrstu meistaratign Notting-
ham Forest — glæsilegt hjá liðinu er
komst naumlegaupp í 1. deild siðastliðið
vor er Bolton bókstaflega færði Forest
þriðja sætið á silfurfati — tapaði klaufa-
lega mörgum stigum í lokin og aðeins
munaði einu stigi er upp var staðið.
Nú, David Johnson, fyrrum leik-
maður Everton, skoraði eina mark leiks
Everton og Liverpool — þegar á 13.
mínútu. Everton náði aldrei að brjóta
niður sterka vörn Evrópumeistara Liver-
pool og þær litlu vonir er Everton hafði
um að ná meistaratigninni frá Notting-
ham Forest hurfu endanlega á Goodison
Park i gærkvöl d.
Einn leikur fór fram í 3. deild í gær-
kvöld — Hereford og Lincoln skildu
jöfn, 1-1.
Frank McLintock, framkvæmdastjóri
Leicester, sagði af sér í gærkvöld aðeins
10 mánuðum eftir að hann tók við stjórn
Leicester. Leicester er nú i neðsta sæti 1.
deildar, með aðeins 20 stig að loknum 37
leikjum. Miklir erfiðleikar hafa hrjáð
Leicester i vetur — meiðsli lykilleik-
manna hafa veikt liðið mjög. McLintock
keypti leikmenn fyrir um hálfa milljón
punda — þeirra kunnastan Roger
Davies frá FC Brugge.
Að lokum skulum við lita á stöðu
efstu liða í 1. deild.
Nottingham F. 34 23 8 3 63-21 54
Everton 37 22 6 9 66-39 50
Arsenal 36 18 10 8 53-29 46
Manch.City 35 18 9 8 65-41 45
Liverpool 34 19 6 9 49-29 44
Coventry 36 17 9 10 68-52 43
Rangers í úrslit
skozka bikarsins
- Celtic sigraði Hibernian 2-1 og
Rangers sigraði Dundee Utd.
2-0 á Hampdení bikarnum
Rangers tryggði ster sæti i úrslitum
skozka bikarsins eftir 2—0 sigur gegn
Dundee United i gærkvöld. Rangers
mætir annaðhvort Aberdecn eða Partick-
Thistle i úrslitum á Hampden —
Rangers hefur þegar sigraði i deilda-
bikarnum.
Rangers átti i erfiðleikum með að
brjóta niður sterka vörn Dundee United
á Hampden í gærkvöld — staðan i leik-
hléi var 0—0. Það var svo \ siðari hálf-
leik að Rangers tókst að tryggja sigur
sinn — Derek Johnstone kom Rangers
yfir og John Greig innsiglaði sigur
Rangers með góðu marki.
Á Park Head i Glasgow áttust við
Celtic og Hibernian en þessi lið berjast
um sæti í Evrópukeppni næsta vetur,
UEFA-keppninni. Celtic sigraði 2—1.
George McClusky skoraði bæði mörk
Celtic í síðari hálfleik en hann hefur átt
við þrálát meiðsli að stríða um langt
skeið, raunar hans fyrsti leikur í gær-
kvöld.
Celtic er nú þremur stigum á eftir
Hibernian en á leik til góða. Hibernian
er í þriðja sæti með 33 stig að loknum 30
leikjum en Celtic hefur nú hlotið 30 stig
að loknum 29 leikjum — hörð barátta
um UEFA-sæti milli þessara tveggja
liða.
út i veður og vind — Árm.ann virðist
hafa sætt sig við fall í 2. deild.
Þegar 10 minútur voru af fyrri hálf-
leik hafði Fram yfir 3-2 — virtist stefna í
jafnan og tvísýnan leik. En fimm mörk
Fram i röð, staðan breyttist í 8-2, breytti
öllu slíku, yfirburðastaða Fram, bil er
Ármann náði aldrei að brúa. Staðan í
leikhléi var 8-4 Fram í vil. Ármann náði
að minnka muninn í tvö mörk i síðari
hálfleik, 10-8, en Gústaf Bjömsson sá
um að Ármenningar ógnuðu ekki sigri
Fram — hann skoraði næstu fimm mörk
fyrir Fram, öruggur sigur í höfn þó loka-
KR van
a vara
— KR vannsinnþri
KR vann sinn þriðja leik i 1. deild
Íslandsmótsins i handknattleik 1 vetur,
sigraði FH 27—22 f gærkvöld i Höllinni.
KR hefur nú hlotið 8 stig, þremur stigum
meir en Ármann, er nú virðist dæmt til
að falla I 2. deild. KR er aðeins stigi á
eftir ÍR, en sjöunda liðið f 1. deild leikur
við lið númer tvö f 2. deild um sæti i 1.
deild í haust. KR hefur því enn mögu-
leika á að forðast aukaleik, við annað
hvort Þrótt eða HK.
Já, KR sigraði unglingalið FH með
Geir Hallsteinsson, þjálfara KR í broddi
fylkingar. Alla leikreyndari leikmenn
FH — utan Geir Hallsteinsson, vantaði.
Liðið hefur orðið fyrir miklum skakka-
föllum í vetur. Ýmsir af kunnari leik-
mönnum FH hafa hætt í vetur. Þá léku
þeir Janus Guðlaugsson Guðmundur
Árni Stefánsson og Birgir Finnbogason
ekki með í gærkvöld svo og Árni
Guðjónsson. FH hefur orðið fyrir meiri
skakkaföllum í vetur en nokkurt annað
lið. Leikmenn hafa hætt, verið meiddir
eða ekki leikið. Það skyldi þó ekki vera
eitthvað að suðúr í Hafnarfirði?
Nú, þrátt fyrir að KR mætti 2. flokki
FH með Geir Hallsteinsson fremstan i
flokki — meistara sinn þá hafði FH yfír
lengst af í fyrri hálfleik. Hinir ungu pilt-
ar FH komu á óvart og innan urii eru
mikil efni. Sér i lagi virðist Tómas Hans-
son efniiegur leikmaður er með meiri
styrkleika og aldri á áreiðanlega eftir að
hrella íslenzka markverði. KR komst
þegar i upphafi i 4—1 en hinir ungu leik-
menn FH sneru dæminu við, jöfnuðu
Jóhannes Stefánsson var KR drjúgur —
I____(.Jnlré HD .