Dagblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 2
2
✓
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. APRIL 1978.
Takk,
Ritari: Ég er ekki i nokkrum vafa um
að djassþættir Jóns Múla hafa orðið
til að vekja áhuga margra á þeirri
tónlist.
»
K
Múli
forgang
Maður er búinn að heyra það í mörg
ár að það eigi að koma vegur yfir
Steingrímsfjarðarheiði, en ekkert
hefur skeð ennþá, hvernig stendur á
þvi. En ég veit það að 1976—1977 var
ruddur upp örstuttur kafli, sirka 700
Lmetra langur, og sá kafii er frá Högná
að sæluhúsinu, sem er næstum
hrunið. En t>essi vegarkafli, sem var
ruddur upp, er bölvuð ómynd í alla
staði, en hvað um það. Það var um
1974—1975 sem mælingamenn komu
að vestan og mældu fyrir veginum yfir
Steingrimsfjarðarheiði, en hvað hefur
skeð? Ekki neitt. Að okkar mati hér
um slóðir er þetta leikur einn, vegar-
stæði er það bezta sem völ er á, svo
styttir þetta leiðina að vestan og suður
um 40 km. Það munar nú um minna.
Steingrímsfjarðarheiði er ekki nema S
km milli brúna. Svo hefur það verið
stefna hjá ráðamönnum að fá flest-
allar vinnuvélar fyrir utan sýsluna.
Svona stefnu er ekki hægt aö líða. Mér
finnst að heimamenn eigi allan for-
gang að allri vinnu hafi þeir sambæri-
legar vélar, það væri annað mál ef
vélar og bila vantaði á vinnusvæðið,
sem sé i sýslunni.
Ég vona að alþingismenn i okkar
kjördæmi og fjárveitingarnefnd reyni
að skrapa saman nokkrum ráðherra-
launum eða einhverju slíku og séu
sammála um veg yfir Steingrims-
fjarðarheiði. Við vitum héma að hægt
verður að hafa veg þennan snjólausan
með öllu. Þorskafjarðarheiði er
hins vegar sú mesta fannakista sem til
er. Það er ekkert álitamál hvaða leið á
að fara. Númer eitt er vegur yfir Stein-
grimsfjarðarheiði. 5140—1131
fyrir tilviljun hlustaði ég á djassþátt
hjá Jóni Múla og reyndar varð útkom-
an sú að ég beið eftir næsta þætti.
Hann „matreiðir” tónlistina þannig
að maður fær ósjálfrátt áhuga á efn-
inu. Siðan fer maður að skilja það og
nú er svo langt gengið að ég bíð með
tilhlökkun eftir djassistunum, sem
væntanlegir eru á listahátíðina.
Alveg er ég sannfærður að ef aðrar
greinar tónlistar væru kynntar á sama
hátt og djassinn (t.d. klassíkin) yrði
þaö til að kveikja áhuga margra hluslt-
enda.
Reyndar býður djassinn liklegast
upp á strákslegustu og skemmtilegustu
kynningarnar. Þóætti að vera hægt að
kynna poppið skemmtilega og sumir
strákanna eru líka aðeins að
komast upp á lagið með það. Annars
finnst mér þeir flestir of alvarlegir og
taka málið of hátíðlega. Það ætti að
vera óþarfi, tónlistin er og á að vera
skemmtun, grin ogsprell. —
Vegur
yfir
Stein-
gnms-
fjaiðar-
heiði hafi
Láttu ekki happ úr hendi sieppa.
BIAÐIÐ
Irjálst, úháð dagblað
Verðlaun í áskrifendaleik Dagblaðsins.
Chevrolet Nova 1978 bíður afhendingar 15. apríl n.k.
Sértu áskrifandi, þá andaðu rólega.
Ef ekki, þá hringdu strax og pantaðu áskrift að Dagblaðinu í
síma 27022.
Vaxandi djassunnandi hringdi:
Ég vil aðeins koma á framfæri þakk-
læti til Jóns Múla fyrir djassþætti hans
og jafnframt vekja athygli á þeim.
Fyrir nokkrum árum hafði ég engan
áhuga og jafnvel andstyggð á djass, en
Raddir
lesenda
Bíður hann þín ?