Dagblaðið - 08.04.1978, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978.
iH intech
SSB TALSTÖÐ
tfyrir báta
Tónleikar
íMennta-
skólanum
víð
Hamrahlíð
□ Tíðnisrið 2— 5,2 MHZ
□ 75 wött.
□ 8 rása.
□ Einföld í notkun.
Veitum allar nánari upp-
lýsingar.
Viðgerða-
og varahlutaþjónusta.
Friðrik A. Jónsson h.f.
Bræðraborgarstíg 1,
Sími 14135 — 14340.
Kammersveit Reykjavíkur heldur tónleika í Mennta
skólanum við Hamrahlið sunnudaginn 9. april kl. I7.
Á efnisskránni verða verk eftir sænsku tónskáldin
Ingvar Lidholm, Miklós Maros, Sven-David Sand-
ström, Eskil Hemberg og Sven-Erik Báck. Þá verður
og frumfluttur strengjakvartett eftir John Speight sem
stundað hefur hér tónlistarkennslu undanfarin ár.
Einsöngvari á tónleikunum er söngkonan Illona
Maros. Hún lærði i Búdapest og Stokkhólmi. Hún'
hefur sungið um gjörvalla Svíþjóð, viða um lönd og
einnig inn á plötur. Hún er einkum þekkt fyrir túlkun
sina á samtímatónlist og hafa mörg þekktustu tón-l
skáld Norðurlanda samið verk sérstaklega fyrir hana.
Hún hefur áður komið hingaö til lands og söng með
Sinfóníuhljómsveit íslands, og á kammertónleikum i
Norrænum músíkdögum hér í Reykjavik 1976.
Stjórnandi á tónleikunum er Miklós Maros. Hanr
nam tónsmiöar í Búdapest og Stokkhólmi m.a. hjá
Ingvari Lidhoim. Hann starfar i Stokkhólmi að tón-
smíðum, hljómsveitarstjórn, leggur stund á raftónlist
og er kennari við tónlístarháskólann í Stokkhólmi, og
á sæti í stjórn sænska tónskáldafélagsins. Miklós
Maros er eitt þekktasta tónskáld Svía af yngri
kynslóöinni.
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
* Peugeot 204 árgerð '69. Fiat 850 sport
árgerð '72. Fiat 128 árgerð '72.
Merzedes Benz árgerð '65.
Benz 319 dísil. Volvo Amason.
Einnig höfum við urval af kerruefni,
tildæmis undir vélsleða.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 - Simi 11397
Hjallafiskur
Msrkið s«m vann harðflsknum nafn
Farsthjd: kjötbUÐJN borg
Laugavegi.
Hjallur hf. • Sölusími 23472
Hafnfirðingar
Hjá nýja umboðsmanni okkar, Kolbrúnu
Skarphéðinsdóttur, er tekið á móti kvörtunum
og nýjum áskrifendum. Sími 54176.
wmBuua
Dani i Icelandernum stnum. Ungt par i Icelander-peysum — umhverfið er kunnuglegt fyrir tslendinga en danskt
þó — Nýhðfnin i Kaupmannahöfn.
Norræn samvinna í verki:
ANICELANDER
FRÁ DANMÖRKU
Danska utanríkisráðuneytið kynnir forystuhlutverk Dana í uliariðnaði
„Það er kannski tákn hinnar nánu
samvinnu Norðurlandanna að Danmörk
hefur nú tekið forystu í útflutningi á
hlýjum, notalegum peysum sem eru
prjónaðar eftir margvislegum mynztr-
um og þekktar undir nafninu Icelanders.
Þessar peysur vega 650-750 grömm og
eru gerðar úr 100% hreinni ull. Þær
hafa náð geysilegum vinsældum um alla
Evrópu bæði sem útifatnaður og tízku-
fatnaður við ýmis tækifæri.”
Þessi orð er að finna i nýútkomu hefti
af Danmark Review sem er gefið út af
danska utanríkisráðuneytinu. Er þetta
ekki ómerk staðfesting á þvi peysustriði
sem geisað hefur milli ullarframleiðenda
i Danmörku og á tslandiað undanförnu.
1 klausu sem fylgdi mynd af peysu-
klæddu pari á sömu síðu blaðsins er
komizt svo að orði:
„Peysur eins og þessar hafa sennilega
haldið hita á vikingunum er þeir sigldu
til strandhögga á Bretlandseyjum og
fundu Norður-Ameriku. Peysur þessar
eiga sér langa sögu og eru fáanlegar í
öllum blæbrigðum hreinnar ólitaðrar
ullar. Vikingar heyra nú sögunni til en
peysurnar lifa. Handprjónaðar úr ull frá
Færeyjum, íslandi og Norður-Noregi
sameina þær alla kosti hreinnar ullar,
hlýju og þægilegheit auk þess sem þær
uppfylla kröfur nútima tizku.”
Eftir svona kynningu getur enginn
efazt um gildi norrænnar samvinnu.
A.St.
Fermingí
Fríkirkjunni
Ekki bólar á endurskoðun stjórnarskrárinnan
ENN EITT
FRUMVARP í
UPPSIGLINGU
ing f Fríkirkjunni I Reykjavfk sunnudaginn 9.
kl. 2 a.h. Prestur séra Þorsteinn Bjömsson
jAnna María Sigurðardóttir, Lynghaga 3.
Áma Ingibjörg María Guðjónsdóttir, Klcppsvcgi 66.
jÁstriður Ingibjörg Einarsdóttir, Birkigrund 50.
Auður Jónsdóttir Aspar, Kóngsbakka 3.
IDagmey Valgeirsdóttir, Unufclli 27.
ÍFjóla Sigurðardóttir, Vikurbakka 24.
Guðrún Hanncsdóttir, Laugarásvegi 64.
Guðrún Leósdóttir, Hraunbæ 102D
PTrafnhildur Karó Norðdahl, Baldursgötu 27.
ilónina Ingibjörg Samúelsdótir, Granaskjóli 8.
Margrét Erlingsdóttir, Álfheimum 26.
Margrét Lára Pétursdóttir, Skaftahlið 32.
Sigrún Sif Karlsdóttir, Sundlaugavegi 7.
Svana Ingibjörg Steinsdóttir.ökrum viö Nesveg.
Þórunn Jóna Krístinsdóttir, Suðurlandsbraut 92A
Erlendur Jón ólafsson, Hringbraut 97.
Gísli Ágústsson, Grýtubakka 24.
punnar Guðjónsson, Hofsvallagötu 20.
Gunnar Jón Hilmarsson, Grettisgötu 49.
Haukur Stefánsson, Asparfelli 12.
Kristinn Ingi Ásgeireson, Haðalandi 6.
Pétur Hörður Pétursson, Langagerði 18.
Sigurbjörn Gunnar Utley, Jórufelli 10.
Sæinundur Helgason, Miötúni 18.
Þórir Már Einarsson. Þingholtsstræti 12.
Þorkell Atlason, Kaplaskjólsvegi 83.
Nokkrir stjórnarþingmenn hafa nú i
hyggju að leggja fram á Alþingi frum-
varp til breytinga á kosningalögum I þá
átt að fjölmennustu kjördæmi fái fleiri
uppbótarþingmenn en núgildandi reglur
gera ráð fyrir.
Sem flutningsmenn hafa verið nefndir
þeir Ólafur G. Einarsson, Ellert B.
Schram, Guömundur H. Garðarsson og
Jón Skaftason. Þessir þingmenn eru sem
kunnugt er fulltrúar þeirra tveggja kjör-
dæma þar sem hvert atkvæði vegur
minnst miðað við fjölda þingmanna.
Ekki er vitað um meðflutningsmann úr
Norðurlandskjördæmi eystra sem næst
mundi komast að njóta góðs af breyting-
unni sem frumvarp þetta felur I sér.
Þvi fer víðs fjarri að eining sé um
þetta frumvarp I þingflokkum flutnings-
manna sem allir eru stjórnarliðar. Má
jafnvel búast við átökum innan þeirra
flokka um frumvarpið. Ekki er líklegt að
stjórnarandstaðan leggi frumvarpinu lið.
-B.S.
VORUBILAR
BENZ
VOLVO
1623 m/búkka árg. '68.
|1519 árg. '71—'73.
1418 árg. '65—'67.
1413 órg. '66-'69.
485, 495 og Titan, ýmsar
árg.
F86 2ja öxla árg. 1974.
F88 m/búkka árg. '67-'74.
FB88 árg. 1968, dráttarbíll
með malarvagni.
VAGNHÖFÐA 3 REYKJAVÍK.
SÍMI 85265.
VINNUVÉLA- & VÖRUBIFREIÐASALA.
SCANIA
75 sup. m/búkka árg. '62
76 sup. m/búkka árg.
'65—'67.
80 sup. árg. '69 og '74.
110 sup. árg. '71—'74.
140 sup. árg. '74.
M.A.N.
19.230 ha 3ja öxla framdr.
15.200 árg. 1972 m/krana
árg. '74.
9.186 Fárg.'69.
9.186 ha, framdríf, árg. '70.
9.168 Fárg.'73.
Fjöldi annarra bifreiða á söluskrá. Stórt sýningarsvæði.
Skoðunar- og viðgerðarþjónusta.
Dráttarvagnar — beizlisvagnar — pallar og grjótpallar,
einnig bílkranar af ýmsum stærðum.
Einnig mikið úrval af ýmsum gerðum og tegundum vinnu-
véla.