Dagblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 08.04.1978, Blaðsíða 14
14_________________________DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. APRlL 1978. MÁNAÐARKAUPH) Á TÓLF OG HÁUFUM DEGI? Líklega er skynsamlegast að byrja háaloftið í dag á því að þakka þeim, sem hafa hringt I mig undanfarið til þess að skeggræða við mig um þessa pistla, ég hef jafnan haft hinn mesta Iróðskap af þeim samræðum. Þó er mér jafnvel enn ofar i huga dýpsta þakklæti til allra þeirra, sem ekki hafa hringt i mig; ég efast ekki um löngun þcirra til þessogdáist þvi meir aðsjálf- stillingu þeirra og tillitssemi. 'iv.irs er það sannast sagna, að þe;^a siundina er ég á mörgum áttum með hvað ég ætla að ræða í þessum pistli lað lokinni ofangreindri þakkar- gjörð). Ég hef verið í löngu og góðu páskafrii frá fréttum og dægurþrasi; þess háttar fritaka vetkar eins og and- legt þrifabað, á eftir hefur maður fjarska litla þörf til að hvolfa úr skálum anda síns yfir landslýð. Þetta er kannski ekki alveg rétt orðað, heldur hitt, að skálarnar eru nokkuð margar og engin stór. Stærsta skálin er liklega sú, sem hefur inni að halda þá merkilegu játn- ingu fjármálaráðuneytisins til handa félagsmönnum ríkis og bæja, sem út var látin ganga skömmu fyrir páska. Um það leyti gerði hið háa ráðuneyti kunnugt, að þeir sem hefðu strækað úr þeim röðum hinn fyrsta mars, skyldu hýrudregnir um 8 prósent, þeir sem strækuðu bæði fyrsta og annan mars, skyldu hýrudregnir um 16 prósent, og þetta var — að mér skildist — miðað við mánaðarkaup. Ekki veit ég, hvort þetta var ein- hvers konar sæt mynd, sem fjármála- ráðuneytið var að draga upp, eða hvort það var bara veldi tilfinning- anna.sem þvi svall í brjósti. En hitt virðist mér einsætt, ef þessi tilkynning hefur ekki verið forskot á aprilgabb, að þama hafi starfsmenn ríkis og bæja komist næst því að vera réttilega metnir til fjár, sem þeir hafa komist um dagana. Því ef ekki hefur komið afturkippurí þessa tilkynningu, sem þá hefur farið fram hjá mér, jafngildir þetta yfirlýs- ingu af hálfu hins háa ráðuneytis, þess efnis, að opinberir starfsmenn — þeir, sem yfirlýsingin náði til — vinni fyrir mánaðarkaupinu sinu á 12,5 — tólf og hálfum — degi. Það er að segja, ef þeir vinna fyrir átta prósentum af mán- aðarkaupinu á einum vinnudegi, eru þeir ekki nema tólf og hálfan dag að vinna fyrir því hundrað prósent. Ef Háalottið vinnudagar i mánuði eru 21, sem nærri lætur miðað við fimm daga vinnuviku, er þar með uppvíst, að um 40% af vinnu opinberra starfsmanna eru hrein gjöf til ríkisins og þar með þjóðarinnar. Þetta var raunar það sem margan opinberan starfsmanninn grunaði, þótt mér vitanlega hafi fjár- málaráðuneytið ekki viljað fallast á þaðfyrren nú. Ég minnist þess ekki — og vona að það stafi ekki bara af því að ég hef snúið baki við dægurmálum um hríð, eins og fyrr greinir — að hafa séð miklar umræður um þessa uppljóstr- un. Liklega eru bara opinberir starfs- menn fórnfúsasta stétt landsins, úr því hún leggur tvo fimmtu hluta vinnu sinnar fram sem sjálfboðastarf og gjöf, auk þess sem hún borgar að sjálfsögðu skatta og skyldur möglunarlaust eins og alltaf. Mér er til dæmis sem ég sæi Loft- leiðaflugmenn svona göfuglynda! Myndlist Textflfélagið í sókn íslenska textílfélagið sem er ungt að árum, stofnað 1974, er bráðgert barn sem ölast hefur skjótan vöxt og þroska, svo sem sjá má af sýningu félagsmanna sem opnuð var í sölum Norræna hússins þ. 1. apríl sl. Mörgum er eflaust í fersku minni norræna vefjarlistarsýningin sem stóð að Kjarvalsstöðum i ársbyrjun 1977, en þar sönnuóu íslensku þátttak- endurnir eftirminnilega að þeir stand- ast fyllilega samanburð við starfs- félaga sina á hinum Norðurlöndunum. islenskum konum, sjá að þar fer sam- an frumleiki, þjálfaö form og litaskyn og aðdáunarvert handbragð. Öldum saman hefur íslensk vefjalist verið nytjalist fyrst og fremst, nú fyrst hefur hún verið leyst undan þeirri kvöð og er þvi mikils að vænta í framtíðinni. Sýning Textílfélagsins i Norræna húsinu er ákaflega aðlaðandi sýning og vel fyrir komið þannig að verkin þrengja ekki hvert að öðru en það . hefur mikið að segja að yfirfylla ekki sýningarsali eins og því miður oft á sér stað. Það er erfitt að telja upp og gera skil öllu sem þar er að sjá, en sérstaklega vakti athygli mina vefþrykk Ásrúnar Kristjánsdóttur nr. 10 og 11, stór og kröftug mynstur með Ijóðrænu ivafi, andlitsmynd Hildar Hákonardóttur af skáldkopunni Huldu, svart-hvit Ijós- mynd sem flutt hefur yfir í vef með fullu tilliti til sérgildis vefsins, er hrein og yfirlætislaus persónulýsing. Gamli kirkjugarðurinn sem unninn er af Rögnu Róbertsdóttur er ákaflega ein- lægt og skemmtilegt verk og Ásgerður Búadóttir hefur enn einu sinni sýnt að hún er einn af okkar ágætustu lista- mönnum. Ekki hefur nein opinber inn- kaupanefnd höndlað á sýningunni þegar þessar línur eru skrifaðar (6. apríl), sem er miður þvi þarna eru verk HrafnhildurSchram sem eiga sér fyllilega tilverurétt i is- lenskri listasögu. Efniviðurinn sjálfur er ekki það sem skiptir máli, heldur hvernig unnið er úr honum en óneit- anlega hefur vefjalistin það forskot fram yfir aðrar listgreinar að þarna er um að ræða efni sem allir þekkja og hafa komist i nána snertingu við. Eitt- hvað virðist þó eima eftir af þeirri gömlu skoðun að vefjalistin sé sérsvið kvenna og að það sé ókarlmannlegt at- ferli að slá vef og er það viðtekið víðar en á lslandi. Jafnvel i austantjalds- löndunum, þar sem verkskipting kynj- anna virðist vera á hröðu undanhaldi, eru fáir karlvefarar. Er hér ekki einstakt tækifæri fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir að klæða þó ekki væri n;ma litinn hluta steinsteypuveggja sem þessar bygg- ingar geyma því ekki er hægt að hugsa sér heppilegri verk seri bæði mýkja upp og setja mannlegri blæ á nýbygg- ingar. Ég vil eindregið hvetja alla til að sjá þessa frisklegu og skemmtilegu sýn- ingu Textilfélagsins sem lýkur 10. april. Hrafnhildur Schram. Hef ég orð pólska vefarans Magda- lenu Abakanowicz, eins frægasta vefjaiistamanns í dag, fyrir því að framlag Islands vakti sérstaka athygli hennar á þeirri sýningu. Ég held að al- menningur geri sér nú Ijóst að þessar konur, þvi ennþá eru það svo að segja eingöngu konur, sem sinna vefjalist, þó við getum státað af einum íslensk- um karlvefara, Óskari Magnússyni, taka listgrein sína alvarlega og er sannarlega kominn timi til að hætta að líta á verk þeirra sem hvert annað handavinnudútl. Margar vinna fullan vinnudag á eigin verkstæðum, en vandi þeirra liggur kannski helst í því hve erfitt er að koma verkunum á framfæri. Þess vegna hlýtur stofnun Textilfélagsins og sýningar þess að vera félagsmönn- um í senn andlegur og fjárhagslegur stuðningur. Ekki eru margir áratugir síðan listsköpun íslenskra kvenna tak- markaöist við hvítsaum, baldýringar og aðrar hannyrðir |að undanteknum þeim örfáu sem fengust við skáldskap og ritstörf) en óhætt er að fullyrða að það var ekki vegna þess að islenskar konur skorti sköpunargáfuna og hug- vitið til þess að sinna öðrum listgrein- um, heldur einfaldlega vegna jiess að lækifærin gáfust ekki. Þeir sem ganga um Þjóðminjasafnið og skoða þar gömul klæði og önnur dýrindi gerð af ASA og rósaviður Miöe og 26”, hnota A myndlampi. Yfir 30 ára IfUO Suðurlandsbraut 10 R. Sfmi 81180. Húsbyggjendur, byggingaverktakar: Eigum á lager milliveggjaplötur úr gjalli. Stærð 50 x 50 cm. Athugið verð og greiðslu- skilmála. Loftorka sfi Dalshrauni 8 Hafnarfirði, simi 50877. DRÁTTARBEIZLI — KERRUR Vorum að taka upp 10" tommu hjólaatell fyrír Combi Camp og flairi tjaldvagna Höfum á lagar allar staaröir af hjólastallum og alla hluti í karrur, sömulaiðis allar garðir af karrum og vögnum. ÞÓRARINN KRISTINSSON Klapparstíg 8. Simi 28816 (Haima 72087) Tilvalinn stóll til fermingargjafa. Framleiðandi: Stáliðjan Kópavogi KRÓM HÚSGÖGN SmMjuvegi S. Kópavogi. Simi 43211 Ferguson litsjónvarps- tækin. Amerískir inn- Íínumyndlampar. Amer- ískir transistorar og díóður. ORRI HJALTASON Hagamel 8, sfmi 16139. G.G. Innrömmun Grensásvegi 50, simi 35163, opW frá kl. 11-8. Afiur Njálsgötu 106. Tökum allt til innrömmunar og aðstoðum við ramma- val. Strekkjum á blindramma. Gott úrval af útlendum •og innlendum rammalistum. Höfum einnig matt gler og glært gler. Póstsendum um land allt. >

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.