Dagblaðið - 15.04.1978, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1978.
4
.....................
Jeppa „hetjur” á ferð:
Tvívegis kærðir
fyrir gróðurspjöll
Tveir piltar sem báðir réðu yfir Piltarnir voru á jeppum merktum
jeppabílum fengu á dögunum tvær utanbæjarnúmerum en sjálfir eru þeir
kærur með stuttu millibili fyrir úr Kópavogi og Reykjavik. Léku þeir
tryllingsakstur á grónum svæðum lægðirnar ofan hesthúss Fáks illa, því
utan vegar í Selásnum. Það var frost var í jörðu en þítt yfirlag. Virtist
Árbæjarlögreglan sem stóð þá að ánægja þeirra vaxa eftir því sem förin
skemmdarverkunum i bæði skiptin og urðu dýpri og sárin stærri sem þeir
sendi kærur vegna þeirra til réttra ollu í graslægðunum.
aðila. ASt.
Ódýrir en góðir
æfinga-
skór
Litur: Blátt m/tveim
hvítum röndum.
Stœrðir 27-33 kr. 3.100.-
Stœrðir 34-39 kr. 3.200.-
Stærðir 40-45 kr. 3.495.-
PÓSTSENDUM
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Kiapparstig 44. — Simi 11783.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjáEsgötu 49 - Sími 15105
Blaðburðarbörn óskast:
Austurbrún, Norðurbrún,
Kleifarvegur,
Kópavogur (vesturbæi),
Skjólbraut,
Kópavogsbraut2-18
Uppl. i síma27022
■ÚBIABIB
Gjörið svo vel að koma við, slappa af og kynnast starf-
seminni.
VERIÐ ÖLL VELKOMIN í
SÝNINGARDEILD OKKAR,
húsi 2, neðri sal.
Vörulistinn er til afgreiðslu ásamt ókeypis happdrættis-
miða, vinningur: sólarlandaferð.
naust h.f
SlÐUMÚLA 7—9 - SlMI 82722
REYKJAVlK
Stéttarfélagstarfsfólks tannlækna stofnað
Á AÐ AUKA STARFS-
MENNTUN 0G GÆTA
HAGSMUNA FÉLAGA
Starfsstúlka hjá einum tannlækninum i
Reykjavik. Hæfir kraftar geta verið
tannlækninum að ómetanlegu gagni, en
misbrestur hefur verið á að sómasamlega
hafi veríð gengið frá kjörum stúlknanna I
sumum tilfellum. — DB-mynd R.Th.Sig.
„Við höfum verið að leita okkur eða í skóla, sem er það sem við kjósum
upplýsinga erlendis frá, ef hægt væri helzt ■ Þetta er mjög stutt á veg komið
að koma okkur á einhver námskeiö hjá okkur, nema aö við erum búnar að
stofna félag sem ber vissulega að
fagna,” sagði Erla Ingólfsdóttir, sem
kosinn var formaður nýstofnaðs
Stéttarfélags starfsfólks tannlækna.
Tilgangur félagsins er að gæta hags-
muna félagsmanna og semja um kaup
og kjör við tannlækna.
„Kaupið hefur verið mjög misjafnt
enda starfið misjafnt. Það hefur verið á
valdi hvers og eins tannlæknis hvers
konar starfskraft hann hefur valíð og
eins hvað hann hefur greitt í laun.”
Á stofnfundi þessa félags gckk á
annað hundrað manns i félagið,- ein-
göngu stúlkur. Þessi starfshópur Iiefur
ekki verið í samtökum launafólks og
því var mikill áhugi á félagsstofnun-
inni.
— Hvaða menntunar hefur verið
krafizt af starfsfólki tannlækna?
„Það er ákaflega mismunandi með
menntunarkröfur hér. í nágranna-
löndunum eru alls staðar annáðhvort
skólar eða námskeið. Til eru tveggja
ára skólar sem útskrifa svokallaða
„hygeista” en þeir fá að gera meira á
tannlæknastofunum en hinir sem
aðeins hafa verið á námskeiði. En
þetta er mismunandi eftir löndum,”
sagði Erla.
„Viðbrögð tannlæknanna verða
sjálfsagt upp og ofan, en við höfum
aðeins fundið jákvætt viðhorf þeirra.
Annars eigum við eftir að afhenda
þeim bréf þar sem farið er fram á
viöræður við þá um launakjör,” sagði
Erla Ingólfsdóttir.
A.Bj.
Tannlæknar um nýja félagið:
„Anægöir”
— og búast við auknu starfsliði til
fræðslustarfa og tannvemdar
„Okkur lízt mjög vel á félagsstofn-
unina. Þetta félag hefði átt að vera
komið fyrir löngu,” sagði Sverrir
Einarsson tannlæknir sem er for-
maður Tannlæknafélagsins.
„Nú má búast við að við fáum svo-
kallaða „hygeista” eða tanntækna-
sem hér hefur alltaf vantað í sam-
bandi við tannvernd og fræðslustarf.
Það er verkefni sem við höfum ekki
haft tíma til þess að sinna. Við von-
umst til að nýja félagið verði til þess aö
auka þetta starfslið.
Það hafa ekki verið til neinar reglur
um hvaða laun aðstoðarfólk á tann-
læknastofum skuli fá, en þvi hefur
verið greitt samkvæmt verzlunartaxta.
Stúlkurnar hafa þó nokkurt bókhald
og simavörzlu með höndum. Ég held
að launin hafi I flestum tilfellum al-
mennt verið 130— 140 þúsund, en fólk
er auðvitað yfirborgað í þessu starfi
eins og öðrum,” sagði Sverrir.
A.Bj.
Söngur á Kjarvalsstöðum
í siðustu viku gekkst Listráð fyrir all-
sérstæöum tónleikum á Kjarvalsstöðum.
Var þar komin ungversk söngkona frá
Svíþjóð, Ilona Maros, og flutti þar með
aðstoð Þorkels Sigurbjörnssonar verk
eftir sænsk og ungversk tónskáld.Ilona
Maros er frábær sópransöngkona, sem
hefur tækni og lónskyn fullkomlega á
sinu valdi, enda fæst hún aðallega við
flutning tónverka, sem krefjast mikils
þreks og kunnáttu; þ.e. verka seinni tíma
tónskálda.
Efnisskráin sem flutt var á Kjarvals-
stöðum bauð upp á talsverða fjölbreytni,
hvað viðkemur stíl og formi, þó hvergi
væri stefnt ýkja hátt í frumlegri tján-
ingu. Þarna voru tónverk eftir fimm tón-
skáld, Eskil Hemberg, Miklós Kocsár,
Sven-Erik Báck, Daniel Börtz og Mikós
Maros, sem allir eru í miklu áliti heima
hjá sér, hafa jafnvel náð að verða for-
menn og ritarar í tónskáldafélögum, en
það þykir ekki síður gott þar en hér. En
einhvernveginn náðu verk þeirra ekki
miklu sambandi, í það minnsta við
undirritaðan, þó þar væru viðhafðar
ýmsar góðar tónbrellur yngri og eldri.
Væri því ekki úr vegi að biðja um eitt-
hvað eftir gjaldkerana næst, því þeir
leyna oft á sér. Kannski hefur lika verið
flutt eftir þá á tónleikum Kammer-
sveitar Reykjavíkur á sunnudaginn, en
þar stjórnaði Miklós Maros nokkrum
sænskum verkum og kvartett flutti verk
eftir John Speight, sem hér mun hafa
starfað sem tónlistarkennari um árabil.
Undirritaður varð því miður að heiðra
þá samkomu með fjarveru sinni, vegna
baráttu við aðra gjaldkera og óbil-
gjamari en tónskáldafélagsins, og hefur
því fátt um hana að segja. En hún hlýtur
að hafa verið góð, því Kammersveitin
stendur í það minnsta alltaf fyrir sínu og
Miklós Marosersnjall í sínu fagi.
Leifur Þórarinsson
Tónlist
LEIFUR
ÞÓRARINSSON