Dagblaðið - 29.04.1978, Side 15

Dagblaðið - 29.04.1978, Side 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1978. 15 Þetta er viiman og áhugamálið Rætt við SteinarBergum útgáfustarfsemi fyrirtækjanna Steina og Ymis Sem stendur er verið að vinna að hljómplötum fyrir útgáfufyrirtækin Steina og Ými 24 klukkustundir á sólarhring I Hljóðrita og þannig verður það út maí að mestu. Önnur plata Fjörefnis er nú langt komin og hljómsveitin Brimkló er i miðjum klíðum með þriðju plötu sina. Þá er Gunnar Þórðarson að vinna að tvö- faldri sólóplötu fyrir fyrirtæki sitt, Ými. „Randver byrjar að taka sína plötu upp 29. april, það er í dag, Dúmbó og Steini eru bókaðir i kringum 20. maí og loks verður byrjað á nýju Spilverks- plötunni einhvers staðar á bilinu 10. og 20. maí,” sagði Steinar Berg fram- kvæmdastjóri Steina hf., er Dagblaðið spurðist fyrir um útgáfustarfsemina. Steinar er þriðji útgefandinn, sem Dagblaðið ræðir við að þessu sinni. Á siðasta laugardag birtist viðtal við Jóhann P. Valdimarsson hjá Iðunni og á laugardaginn þar áður var rætt við Jón Ólafsson hjá Hljómplötuútgáf- unni hf. Steinar Berg bætti þvi við að byrjað væri að vinna að þremur verkefnum til viðbótar til útgáfu hjá fyrirtæki sínu. Hann vildi ekki gefa upp á þessu stigi, hvaða verkefni það væru. ' Fyrsta platan erkominút „Nú, og ef við snúum okkur að Ými, þá er fyrsta platan komin út hjá því fyrirtæki, það er Lummur um land allt,” sagði Steinar. „Auk sólóplötunn- ar áætlar Gunnar Þórðarson að gera tvær til þrjár plötur til viðbótar. Sam- anlagt má búast við þvi að fyrirtækin tvö gefi þvi út svo sem fimmtán plötur á þessu ári.” Á síðasta ári gáfu Steinar út fimm plötur og Ýmir eina. Þvi er um veru- lega aukningu að ræða og Steinar Berg var því spurður hvort hann teldi mark- aðshorfur betri fyrir íslenzkar plötur en í fyrta. „Plötusalan í fyrra var litil sem eng- in fyrr en á síðustu mánuðunum, en nú þegar er þetta orðið öðruvísi. Við erum búnir að selja sex þúsund eintök af nýju Lummuplötunni og eigum eftir að selja að minnsta kosti sex þús- und til viðbótar. Ég vil ekki kenna neinu öðru um en efni þeirra platna, sem komu út fyrri- partinn í fyrra, hversu illa seldist. Ég er smeykur um að listamennirnir hafi i flestum tilfellum frekar verið að hugsa um sjálfa sig en kaupendurna þegar þeir völdu efnið á plötur sínar.” Spilverksplatan dýrust „Það er jú anzi mikið að gefa fimmtán plötur út á einu ári. Ég er samt sannfærður um að þær eigi allar eftir að ganga. Kostnaður verður i meðallagi við gerð flestra þeirra, sem þýðir að þær verða að seljast í 2500— 3000 eintökum til að borga sig. Eina platan, sem ég legg mikið fé i er Spil- verksplatan og ég get sætt mig við að tapa á henni. Þó reikna ég frekar með hagnaði á henni líka. Þó að útgáfuaukningin hjá mér sé hundrað og fimmtiu prósent frá fyrra ári, þá á ég von á því að svipað magn af plötum komi út nú og í fyrra. Aðal- hættan hjá mér er að ég lendi i sam- keppni við sjálfan mig. Þess vegna verður þeim plötum, sem nú er verið að hljóðrita, dreift á allt árið. Það væri óviturlegt i meira lagi að senda þær á markað allar í einu, þó að þær séu teknar upp um svipað leyti. í raun og veru þykir mér ákaflega óþægilegt að vera með meira en eina plötu í takinu í einu,” hélt Steinar Berg áfram. „Ef tvær eru í sölu i einu, þá er hætt við því að önnur fái ekki nógu mikla aðhlynningu.” Innflutningur og innkaupastjórn Tilgangur Steina hf. er ekki ein- göngu útgáfustarfsemi. Fyrirtækið flytur einnig inn talsvert af erlendum plötum. Auk þess stjórnar Steinar Berg innkaupum fyrir hljómplötudeild Karnabæjar, en hún rekur sjö verzl- anir viða um land. — Kamabær á helming Steina hf. á móti Steinari. — Hann var að þvi spurður, hvort jafn viðamikil starfsemi útheimti ekki mikla vinnu. Steinar svaraði: „Ég er nú svo stálheppinn að þessi vinna fer saman við áhugamál rnitt, hljómplötuna. Auðvitað tekur fyrir- tækið mikið af þeim tíma minum. Ég eyði hér oft löngum kvöldum, en það er engum til hrellingar nema konunni minni. Stærsti hlutinn af veltu Steina hf. er til kominn vegna erlendu platnanna. Það útheimtir mikla vinnu að flytja inn slíkan varning og sömuleiðis mikið samstarf milli okkar annars vegar og kaupenda okkar, plötukaupmann- anna, hins vegar. Velta fyrirtækisins milli ára hefur margfaldazt að undanförnu, sem hefur í för með sér að ég þarf að bæta við mig starfsfólki i hlutfalli við það.” Vegna íslenzku platnanna, sem koma út í ár, benti Steinar Berg á, að fjöldina.væFr meðal annars tilkominn Steinar Berg: Ég verð að gxta þess að fara ekki I samkeppni við sjálfan mig. DB- mynd: RagnarTh. Þegar stór plata hefur selzt I einni milljón eintaka I Bandarikjunum eru flytjendurnir sxmdir platinuplötu að launum. Útgefandi Saturday Night Fever hefði þurft að punga út tiu plötum handa Bee Gees, þegar platan náði tiu milljón eintaka markinu. Hann gat ómögulega staðið I slikum plötuaustri en sxmdi þá I staðinn Cadillac bifreið — úr platinu að sjálf- sögðu. vegna þess áð búið hefði verið að taka ákvörðun um útgáfu nokkurra platna siðastliðið ár. en ekki unnizt tínti til að vinna í þeim fýrr en nú. Hann sagðist ekki vera einváldur um verkefnaval. heldur hef^i hann fullt samstarf við eigendur Karnabæ.iar. „Ég sé um daglegan rekstur fyrir- tækisins, en allar ákvarðanir eru teknar i fullu samráði við Guðlaug Bergmann og Pétur Björnsson, þegar við hittur.ist á hlaupum," sagði Stein ar. - ÁT - Bee Gees efstirá blaði í Englandi, Bandaríkjunum og Ves tur-Þýzkalandi Night Fever, lag Gibbbræðra'nna i Bee Gees, er nú i efsta sæu bæði i Englandi og Bandarikjunuitt. Það leysti lag Showaddvwaddv, I WonHer Why, af hólmi i Englandi. en hefur verið á toppnum vestra síðustu áua vikur. Engin hljómsveit hefur koipizt jafn oft á toppinn i Bandarikjunum á þessum áratug en einmitt Bee Gees, og hún verður vart slegin út héðan af. Tvöfalda platan með lögum úr kvikntyndinni Saturday Niglu Fevxr hefur nú selzt i liátt á elleftu milljon eintaka. Engin hljómplata hefur skilað útgefanda sinurn jafn miklum ágóða ogeinmitt hún. Ef vinsældalistarnir eru skoðaðir, er ákaflega lítið að gerast á þeim þessa vikuna. Wings eru eina nýja nafnið i Bandaríkjunum á topp tiu. Þau eru á nokkuð góðu skriði upp á við með lagið With A Little Luck. Það lag er í sjötta sæti í Englandi.. Wings eru númer eitt i V-Þýzkalandi, en þar er gamla lagið Mull Of Kintyre á toppnum. v ÁT. ENGLAND - Melody Maker 1.(6) NIGHT FEVER....................BEE GEES 2.1 7 ) TOO MUCH, TOO LITTLE, TOO LATE ........JOHNNY MATHIS AIMD DENIECE WILLIAMS 3. I 2) MATCHSTALK MEN AND MATCHSTALK CATS AND DOGS....................BRIAN AND MICHAEL 4. ( 5 ) IF YOU CANT GIVE ME LOVE.SUZI QUATRO 5. ( 4 ) NEVER LET HER SLIP AWAY.ANDREW GOLD 6. ( 8 ) WITH A LITTLE LUCK . ........WINGS 7. ( 1 ) I WONDER WHY.......SHOWADDYWADDY 8. (10) FOLLOW YOU FOLLOW ME.........GENESIS 9. ( 3 ) BAKER STREET.........GERRY RAFFERTY 10. (18) SINGIN’ IN THE RAIN.. SHEILA B. DEVOTION BANDARIKIN - Cash Box ......BEEGEES YVONNE ELLIMAN BARRY MANILOW 1. (1) NIGHT FEVER....... 2. ( 4 ) IF I CAN'T HAVE YOU. 3. ( 2 ) CAN'T SMILE WITHOUT YOU . . . 4. ( 5 ) THE CLOSER I GET TO YOU ..........ROBERTA FLACK AND DONNY HATHWAY 5. (13) WITH A LITTLE LUCK..........WINGS 6. ( 7 ) RUNNING ON EMPTY..JACKSON BROWNE 7. ( 6 ) JACK AND JILL.............RAYDIO 8. ( 3 ) DUST IN THE WIND.........KANSAS 9. ( 9 ) GOOD BYE GIRL.........DAVID GATES 10. ( 8 ) LAY DOWN SALLY.......ERIC CLAPTON VESTUR—ÞÝZKALAND 1.(1) MULL OF KINTYRE................WINGS 2.1 2 ) TAKE A CHANCE ON ME..........ABBA 3. ( 6 ) FOR A FEW DOLLARS MORE....SMOKIE 4. ( 3 ) LOVE IS LIKE OXYGEN. . . .-.SWEET 5. ( 5 ) DON'T STOP THE MUSIC.BAY CITY ROLLERS 6. ( 4 ) LOVE IS IN THE AIR.JOHN PAUL YOUNG 7. ( 8 ) RUNAROUND SUE.........LEIF GARRETT 8. ( 7 ) ROCKIN' ALL OVER THE WORLD.STATUS QUO 9. ( 9 ) FREE ME................URIAH HEEP 10.(10) (IF PARADISE IS) HALF AS NICE.ROSETTA STONE HOLLAND 1. (1) RIVERS OF BABYLON..........BONEY M 2. ( 2 ) ARGENTINA...........CONQUISTADOR 3. (4)UOME............................LUV 4. ( 3 I ONLY A FOOL .... MIGHTY SPARROW AND BYRON LEE 5. ( 6 ) COME BACK MY LOVE.......THE DARTS 6. ( 5 ) STAYIN' ALIVE............BEEGEES 7. ( 7 ) DENIS................... BLONDIE 8. ( 8 ) WUTHERING HEIGHTS......KATE BUSH 9. (14) STARSHIP 109..............MISTRAL 10.(24) AMORAMOR................ROD MCKUEN HONG KONG .......BEEGEES . . . . GENE COTTON ..........SWEET SAMANTHA SANG ......BILLYJOEL 1. ( 2 ) STAYIN' ALIVE...... 2. (10) BEFORE MY HEART FINDS OUT . 3. ( ? ) LOVE IS LIKE AN OXYGEN. 4. ( 1 ) EMOTION............ 5. ( 4 ) JUST THE WAY YOU ARE. 6. ( 5 ) SWEET TALKING WOMAN ...................ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA 7. (12) CAN'T SMILE WITHOUT YOU.BARRY MANILOW 8. (13) DUST IN THE WIND..............KANSAS 9. ( 3 ) (LOVE IS) THICKER THAN WATER.ANDY GIBB 10. ( 6 ) WONDERFUL WORLD ..........SIMON, GARFUNKEL AND JAMES TAYLOR

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.