Dagblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 6. MAt 1978.
3
Um Reykjavík, hina dauðu borg:
Frá 1. maí í ár — bensínleysið í Reykjavík var ekki algjört. Geysilöng bílalest á Langholtsvegi. Bæjarleiðir hlupu nefnilega
undir bagga i vandræðum bíleigenda. DB-mynd Sv. Þorm.
Hurðum skellt á
andlit almúgans
Bileigandi skrifar:
Skrifin í Dagblaðinu um Reykjavík,
dauða borg, voru sannarlega orð i
tíma töluð. Yfirstjórn borgarinnar er
ábyrg fyrir dauða borgarinnar. En
það eru fleiri sem koma inn í myndina.
Verkalýðsfélögin virðast t.d. stefna að
því að banna félögum sínum að vinna
nema rétt yfir bládaginn. Eða eru það
kannski vinnuveitendurnir sem bera
ábyrgð á öllu þjónustuléysinu?
Þann 1. mai ár hvert gerist það að
ALLAR bensinsölur þessarar
dauðustu stórborgar á jarðriki eru
LOKAÐAR. Hvergi er dropa að fá af
þessum dýra vökva, bensíninu.
Nú er ég ekki á móti því að fólk eigi ~
frí, ég tala nú ekki um 1. maí. En
málið er bara það að á frídögum
virðist óumflýjanlegt að ýmsar stéttir
verði að’ vinna, bókstaflega talað til
þess að frídagurinn geti heppnazt.
Viss hluti bileigenda þarf til dæmis
á bensíni að halda á helgum degi.
Ástæðurnar geta verið fjölmargar. En
þá koma til skjalanna aðilar sem telja
sig hafa veri kjörna til að „hafa vit
fyrir almenningi”, borgarfulltrúar, nú
eða þá verkalýðsleiðtogar, eða at-
vinnurekendur, og skella öllum
hurðum framan i andlitið á al-
’menningi, þessum sauðsvarta almúga
sem þeim er í raun ætlað að þjóna.
Ég legg til að ný borgarstjórn,
hvernig sem hún verður samansett,
leggi höfuðin í bleyti til lausnar hin-
um alvarlega dauða borgarinnar.
Reykjavík lifi!
Fyrirspurn
tilVilmundar.
Afhverju
erAlþýðu-
bandalagið
komma-
flokkur?
Óskar Jónsson hringdi:
Hann langaði til þess að koma á
framfæri fyrirspurn til Vilmundar
Gylfasonar:
Vilmundur talar aUtaf um Alþýðu-
bandalagið sem komma en mig langar
til þess að vita hver sé munurinn á
Alþýðubandalaginu núna og Alþýðu-
flokknum í byrjun fjórða áratugsins og
hvað það sé sem geri Alþýðubanda-
lagið frekar að kommúnistaflokki en -
krataflokki.
Ég leyfi mér að halda þvi fram að
Alþýðubandalagið sé ekkert annað en
krataflokkur.
Raddir
lesenda
Spurning
dagsins
Hefurðu bragðað
karfa?
Sigmundur Guðbjarnarson verzlunar-
maður: Já, það hef ég gert. Hann er
ágætur, með betri fiski sem maður
bragðar. Synd hvað litið er borðað af
honum hérna við sjóinn.
Henry Franzson sendibifreiðarstjóri: Já,
já, það er ég nú hræddur um. Hann er
ágætur steiktur. Þó er skötuselurinn
ennþá betri.
Hræðslan skapar fordómana gegn nýjustu hljómlistarbylgjunum, segja bréfritarar.
Mosavaxnir kerfis-
þrælar skilja ekki
framúrstefnu
Skakkur Óvis og Illur Allsherjar
(1905—61041(9722—9252) skrifa:
Slugslags einblínistefna er þetta,
einhver þumbi þykist hafa tónlistar-
og fyrirbrigðavit fyrir Punkenstein og
öðrum (til dæmis David Bowie) og
dæma heila tónlistar-, stjórnmála- og
tizkustefnu eftir einni plötu með
Ramones (sem er að okkar „álkt”
vægast sagt allt of litið og lélegt dæmi
um PUNK og NEW WAVE, kauptu
þér frekar plötu með t.d. Stranglers,
Jam, Clash, 999, Sex Pistols, Heart-
breakers, Richard Hell, Radio Stars,
Talking Heads, Dead Boys.... o.fl.
o.fl...Þetta er ætti að nægja til að
gefa forsmekkinn af tónlistinni, en
hvað um hugmyndafræðina?
Punkarar gefa skit i kerfið, þjóð-
höfðingja og önnur mosavaxin fyrir-
brigði, sem gera einstaklinginn aö
nafnnúmerum hjá skattstofunni.
„Þetta er della,” segja mosavaxnir
kerfisþrælar, en hvað er „ljótt” og
hvað er „faUegt”? Er „Ijótt” ekki bara
„fallegt”? Punk gefur skít í öU hefð-
bundin viðhorf með framkomu og
klæðnaði. En af hverju er punk
fordæmt? Það er kannski öfund hjá
eldra fólkinu þar sem þvi datt þetta
ekki i hug i sinu ungdæmi. En þetta er
aðeins endurtekning, hneykslunin er
ekki meiri en viö bitlaæöiö, að ekki sé
talað um Rolling Stones sem gerðust
svo djarfir að hafa hár og vera ekki í
hljómsveitarbúningum (að hugsa sér).
En hvaða tilgangi þjóna þessar bylgjur
eins og bítlaæðið og punkið? Þær
koma nýjum stefnum af stað bæði í
tónlist og framkomu (þær brjóta, eða
leitast viö að brjóta, niður kerfis-
bundið álit manna á öðrum mönnum).
Þetta vonum við að verði til góðs. Og
finnst okkur mjög sorglegt að vita ein-
hvern imba vera að eyða prentsvertu
sem keypt er fyrir vorn takmarkaða
gjaldeyri.
Með óhugnanlegum kveðjum til
kerfisþræla.
Taktu af þér augnlokin
ILLA ÞÝDDUR SERPÍKÓ
Dóra skrifar.
Jón Thor Haraldsson, þýðandi sjón-
varpsins, mætti nú heldur fara að
gæta sín og þýða þætti sína eins og
maður. Ég horfði á vin minn Serpikóá
þriðjudagskvöld og mér ofbauð svo
þýðingin að ég átti ekki orð (og er þá
mikið sagt). Dæmi: Serpíkó sagði við
konu eina: take off your eyelashes, og
það var þýtt: taktu af þér augnlokin,
hver sem getur það. Jóni til upplýs-
ingar skal þess getið að Serpikó var að
fara fram á það að konan tæki af sér
gerviaugnhárin. Seinna í sama þætti
bauð þessi sama kona löggu einni,
kvenkyns, þessi umtöluðu augnhár og
sagði: do you want some eyelashes? og
þaðþýddiJón viltu augnlok? Það þarf
ekki nema meðalgáfur til að sjá að
jafnvel konur taka ekki af sér augnlok
og rétta öðrum og hvert barn í
menntaskóla veit að gerviaugnhár eru
iaftur á móti meðfærilegri i þeim efn-
um.
Endur-
sýnið
Charly
1623—9259 skrifar
Mikið væri ég nú þakklát sjónvarp-
inu ef það vildi gera mér og fleirum
þann stóra greiða að endursýna mynd-
ina Charly sem það var með á laugar-
dagskvöldið. Ég sá ekki nema seinni
hluta myndarinnar og sýndist að hún
væri ein sú allra bezta sem komið
hefur í íslenzku sjónvarpi um mína
daga. Leikur Cliffs Robertsson var
alveg frábær og nærri óhugnanlega
góður á köflum.
Væri ekki hægt að sýna þessa mynd
aftur? Ég geri mér grein fyrir að sífellt
er verið að kvabba í stjórnendum sjón-
varps um emjursýningu. á hinu og
þessu én þar sem myndin var' svona
góð fyndist mér það engin goðgá.
Fávitinn orðinn „vitur” og kominn á
séns, atriði úr Charly.
Edwin Petersen sendibifreiðarstjóri:
Nei. Ég hef aldrei hugsað út í það. Mér
hefur ekki verið boðinn hann og ég hef
ekki beðið um hann aðfyrra bragði.
Aðalheiður Helgadóttir húsmóðir: Já,
karfabollur. Ég bjó þær til sjálf svo ég
þori ekki að segja um hvort þær voru
góðar. Ég hef ekki bragðað steiktan
karfa.
Hilmar Þór Sigurðsson safhvörður: Nei,
og mig langar ekki til þess.
Þórarinn Guðmundsson innheimtu-
maður: Já, já. Hann er ágætur fiskur,
hvort heldur sem er steiktur eða soðinn
W nýruppúrsjónum.