Dagblaðið - 06.05.1978, Page 4

Dagblaðið - 06.05.1978, Page 4
Konu, sem er karlmannleg, kannégekkiað meta DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978. —V Vísur og vísnaspjall ’fpj) Jön Gunnar Jónsson v 1 sambandi við stofnun lýðveldis á Íslandi 1944 var efnt til samkeppni um hátíðaljóð og síðan um lög við þau. Flest kunnustu tónskáldin kepptu. Þó ekki Karl O. Runólísson. Var um þetta rætt niðri i útvarpi og þeir lögðu þar orð til Páll tsólfsson.og Þórarinn Guðmundsson. — En hann hefur þó samið forsetasönginn, sagði Þórarinn. Og það er nokkur bót I máli. En þá var Sveinn Björnsson, nýkosinn forseti, byrjaður yfirreið sína um landið. En viðstaddir áttuðu sig ekki strax á því, við hvaða lag Þórarinn myndi eiga. — Den farende Sven, bætti hann því við. Það var almannarómur, þegar Sveinn Björns- son sendiherra I Kaupmannahöfn var kvaddur heim og gerður að ríkisstjóra og siðar kosinn forseti, að vel væri ráðið, kona hans hafði sem sendiherrafrú aflað sór almennra vinsælda. Ort var: Var til frama vegur beinn, varð svo enn að nýju. Lands við hjarta situr Sveinn með sinni Georgiu. ★ Á striösárunum var þingmönnum fjölgað með nýjum kosningalögum, svo að þeir urðu 52, jafnmargir og spilin. Eftir næstu kosningar var því nokkuð breyttur svipur á alþingi. Ekki leist öllum jafn vel á hópinn. Sigurður Sigurðsson Vigur, sýslumaður i Skagafiröi orti þá: Þú hefur talað þjöðin min, það er kunnugt orðið. Ekki sparað spilin þfn, — spánný lagt á borðið. Lengi hefur það viljað við brenna á alþingi að stjórnarþingmenn ráði flestum málum til lykta utan þings og að mál séu siðan hespuð i gegn, lítið hlustað á rök stjórnarandstöðunnar. Héðinn Valdimarsson komst einhverju sinni svo að orði, að alþingi væri orðið einskonar vofu- þing. Um þetta var ort þingvísa: Verði þetta vofuþing, vist skal rofinn haugur til að sækja á hönd þér hring, Héðinn erkidraugur. ★ Á kreppuárunum var byggt skólahús í Mos- fellssveit og voru menn misjafnlega ánægðir með þessa framkvæmd. Þrir menn fóru framhjá húsinu í bíl. Bjarni alþingismaður á Reykjum sagði: Húsið byggt við héraðsbraut. Kolbeinn í Kollafirði bætti við: Hreppur Mosfells á það. Hjálmar á Hofi botnaði: Ætti að standa ofan f laut, svo enginn þyrfti að sjá það. ★ Þegar grafið var fyrir grunni Hóladómkirkju 1759 var komið niður á kistur fjögurra Hóla- biskupa og þær færðar til. Þá var þetta kveðið: Ekki er von, að uppi á fold ýtum veitist friður, fyrst biskupanna hefur ei hold hvfld í moldu niður. önnur mjög gömul staka: Þvingar angur hringameið, hungrið stranga spennir. Syngur Manga löngum leið, lungun ganga f henni. Stúlku, heldur vitgrannri, var talin trú um, að það sæist á augum kvenna, ef þær væru ekki hreinar meyjar. Hún spurði vin sinn hvað hann héldi um þetta, því hún hafði af þessu áhyggjur. Hann svaraði: Enginn maður á þér sér, og enginn til þess geta, væn þótt stundum værír mér, vissuiega, Beta. ★ Hér eru nokkrar gamlar hestavísur: 1. Heitir Valur hesturínn, honum skai ei farga, ei er falur fákurinn fyrir dali marga. 2. Rauður bera manninn má, mun hann vera þungur, eins og þytur er að sjá yfir hraun og klungur. 3. Gráni veginn fljótt umfer, finnst hann eigi slakur, yngismey á baki ber, blakkur fleygivakur. 4. Hljóp ég þar sem hófamar Helgi skar af móði, sleðafar og slóð hjá var og sletturnar af blóði. 5. Skást af öllum skeiðandi, skellir I fjöllum duna, fram á vöUinn freyðandi faxatröUin bruna. Ragnar Ásgeirsson garðyrkjuráðunautur starfaði lengi í Gróðrarstöðinni í Rvík. Þar vann stúlka, sem var að búa sig á skemmtun og uppgötvaði sótblett á áberandi stað í andliti sinu. Hún greip til þess ráðs að púðra yfir blettinn í stað þess að þvo hann burt. Þá varð Ragnari að orði: Þetta er svei mér þrífin snót, það er ekki slúður, fyrst er púður, svo er sót, svo er aftur púður. ★ Jón Pálmason alþingismaður á Akri var vinsæll maður, ekki eingöngu meðal sjálfstæðis- manna, heldur hvar sem hann kom og fór, og án þess að farið væri i pólitískt manngreinarálit. Heimamaður, Bjarni frá Gröf, orti þessa vísu: Vísnaslyngur, vandar mál, vel um Þingið sér ann Hýr f kríngum hestaskál. Húnvetningur er hann. ★ Séra Magnús Einarsson á Tjörn dó 1794. Hann orti: Endast dagur, eg það finn, eitthvað er nú á ferðum. Drottinn leiði drösulinn minn, dimmt er i Bakkagerðum. Ekki þurfa mörg aukaorð að fylgja þessari stöku, hún segir sitt: Böli manns á margan veg meyjar hrundið geta, en konu, sem er karlmannleg, kann ég ekki að meta. En spyrjir þú um spilin þin, sem spilað mun innan stundar, þér að segja, þjóðin min, þar eru of margir hundar. ★ J.GJ.-S. 41046. Fatahreinsun Fatahreinsun á góðum stað til sölu eða leigu. Á sama stað er einnig tæplega 70 fm verzlunarhúsnæði til leigu. Upplýsingar í sima 34129 eða 86170. Hjúkrunarskóli íslands Nýir nemendur verða teknir inn i skólann 4. september 1978 og 8. janúar 1979. Umsóknar- frestur er til 10. júní næstkomandi. Um- sóknareyðublöð og upplýsingar er að fá í skólanum. Skóiastjóri. Dansk-íslenzka f élagið Aðalfundur Dansk-íslenzka félagsins verðpr haldinn föstu- daginn 12. maí kl. 20.30 í Norræna húsinu. Venjuleg aðalfundarstörf, Kosning stjórnar, tillaga um hækkun félagsgjalda. Að loknum aðalfundarstörfum verður kvik- myndasýning. Stjómin MEÐ „FLÖKKULEIKRITIД GALDRALAND UM NA-LAND Aðalsteinn Bergdal og Gestur E. Jónasson fara með hlutverk trúðanna Skralla og Malla i Galdralandi. Þriðji trúðurínn er leikinn af Ásu Jóhannesdóttur. „Sextánda sýningin á Galdralandi eftir Baldur Georgsson veröur kl. 2 á laugardaginn en meðalsýningarfjöldi á Akureyri hefur verið 10—12 og þykir gott,” sagði Brynja Benediktsdóttir leik- hússtjóri á Akureyri í samtali við DB. „Þetta verður siðasta sýningin á Akureyri. Við erum að leggja upp i leikferð til Norðausturlands með verkið. Þess vegna verður einnig að flýta sýningum á Hunangsilmi því leikararnir eru þeir sömu í báðum leikritunum. Höfundur Galdralands, Baldur Georgs, og félagi hans Konni, verða nú fastir gestir á sýningunum og koma fram á öllum sýningunum framvegis. Leik- stjóri Galdralands er Erlingur Gislason. Sýningar á Hunangsilmi hafa einnig gengið frábærlega vel. Verður niunda sýning á föstudagskvöld og tíunda sýning á sunnudagskvöld. Leikstjóri Hunangsilms er Jill Brooke Árnason,” sagði Brynja. „Galdraland var upphaflega hugsað sem „flökkuleikrit” en aðeins eru þrír leikendur í verkinu. Við höfum þegar sýnt það á Dalvík, á Húnavöku á Blönduósi og um síðustu helgi vorum við á Ólafsfirði. Við eigum von á önnumst hvers konar matvælareykingar fyrir verslanir, mötuneyti og einstaklinga. REYKIÐJAN HF. SMIÐJUVEGI 36 & 7 63 40 Vopnfirðingúm I heimsókn á laugar- daginn en þeir ætla að sýna hjá okkur leikritið Sá sem stelur fæti eftir Dariel Fo. Ætlunin er að endurgjalda Vegna misskilnings og nokkurra orða, sem féllu niður úr viðtali við mig um bæjarstjórnarmál á Seltjamamesi i Dagblaðinu sl. þriðjudag, vil ég bæta hér við örfáum orðum. Nú er unnið að endurskoðun á aðalskipulagi bæjarins. í því sambandi þurfa menn að gera sér sem ljósasta grein fyrir þvi, hvert stefna skuli í þróun bæjarins og þess samfélags, sem þar er. Gerð aðalskipulags nær þannig til nær heimsóknina og sýna Galdraland á Vopnafirði i næstu viku,” sagði Brynja leikhússtjóri. allra þátta bæjarmálanna. Á Seltjamar- nesi eru útivistarsvæði, sem eru sérstæð á höfuðborgarsvæðinu og verður að leggja mikla áherzlu á varðveizlu þeirra. Það er þvi ekki mikið rúm fyrir frekari' útþenslu byggðar vestast á nesinu. Hvar mörkin eiga að liggja er eitt af þvi, sem taka verður ákvörðun um, áður en lengra er haldið. Seltjarnarnesi, 2. maí 1978 Guðmundur Einarsson. -A.Bj. Skipulagá Seltjarnarnesi

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.