Dagblaðið - 06.05.1978, Side 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 6. MAl 1978.
15
Megas á Evróputúr
— treðurupp á Norðurlöndum ogí Frakklandi
Megas karlinn gerir þaö víðreisl
þessa dagana. í þyrjun mánaðarins
hélt hann utan i boði samtaka
Islendinga i Kaupmannahöfn.
Árósum og Lundi, þar sem hann muri
halda hljómleika. Sömuleiðis et
áformað að hann troði upp i
Stokkhólmi, Ósló og París. AUs staðar
treður Megas upp einn síns liðs, utan
1 Kaupmannahöfn. Þar nýtur hann
aðstoðar íslenzkrar rokkhljómsveitar,
sem þar hefur starfað um nokkurt
skeið, eins og segir í fréttatilkynningu
frá Iðunni, hljómplötuútgáfu Megas-
ar. Þarna mun sennilega vera átt við
hljómsveitina Pelikan.
Á efnisskrá Megasar eru baeði
gömul lög og ný. Þau nýju eru tekin af
plötunni Nú er ég klaeddur og kominn
á ról, sem áaetlað er að komi á
markaðinn 1 byrjun júnl. Platan sú er
hin fimmta sem Megar. syngur inn á.
Megas söng siðast á erlendri
BoneyM færistí aukana:
BABYLONFUÓm
FLÆÐAYFIR
Það eru fleiri en Hollendingar, sem
gleypa við Rivers of Babylon, nýjasta
lagi Boney M. Það var í 21. sæti i
Englandi i siöustu viku, en aeðir nú
upp i þriðja sætið. Þetta er jafnvel
stærra stökk en lagið tók á hollenzka
vinsældalistanum fyrir nokkrum
vikum, en hraðinn var svo sem nógur
þálika.
Ekki þarf að taka það fram lengur,
að Bee Gees eru alls ráðandi á
vinsældalistum víöa um heim þessa
vikuna eins og síðustu mánuði á und-
ÁSGEIR
TÓMASSON
HOLLAND
1. (1) RIVERS OF BABYLON...........................BONEYM
2. (2) ARGENTIN A.............................CONQUISTADOR
3. ( 3 ) U O ME........................................LUV
4. ( 4 ) ONLY A FOOL............MIGHTY SPARROW AND BYRON LEE
5. (15) SUBSTTTUTE....................................CLOUT
6. (5) COME BACK MY LOVE...........................THE DARTS
7. ( 6 ) STAYIN' ALIVE..............................BEEGEES
8. ( 9 ) STARSHIP 109...............................MISTRAL
9. (10) AMORAMOR..................................RODMCKUEN
10. (17) OH, HEIDEROOSJE........................HAVENZANGERS
HONG KONG
1. (1) STAYIN' ALIVE...........................BEE GEES
2. (4) EMOTION.......................... SAMANTHA SANG
3. (2) BEFORE MY HEART FINDS OUT...........GENECOTTON
4. (3) LOVEIS LIKE AN OXYGEN....................SWEET
5. ( 7 ) CANT SMILE WITHOUT YOU..........BARRY MANILOW
6. (5) JUSTTHEWAY YOU ARE.....................BILLYJOEL
7. ( 8 ) DUSTIN THE WIND.......................KANSAS
8. (17) NIGHT FEVER............................BEEGEES
9. (16) IT AMAZES ME.......................JOHN DENVER
10. (9) (LOVEIS) THICKER THAN WATER...........ANDY GIBB
ENGLAND — Melody Maker
1. (1) NIGHT FEVER.............................BEE GEES
2. (2) TOO MUCH, TOO LITTLE,TOO LATE......JOHNNY MATHIS
.....................................AND DENIECE WILUAMS
3. (21) RIVERS OF BABYLON......................BONEYM
4. (12) AUTOMATIC LOVER...................DEE D. JACKSON
5. (5) NEVER LETHER SLIP AWAY..............ADNREWGOLD
6. (10) SINGIN' IN THE RAIN.............SHEILA B. DEVOTION
7. (7) IWONDERWHY........................SHOWADDYWADDY
8. (4) IF YOU CANT GIVE ME LOVE.............SUZI QUATRO
9. (3) MATCHSTALK MEN AND MATCHSTALK CATS AND DOGS
........................................BRIAN AND MICHAEL
10. (8 ) FOLLOW YOU FOLLOW ME...................GENESIS
BANDARÍKIN - Cash Box
1. (1) NIGHT FEVER.............................BEEGEES
2. (2) IFICANTHAVEYOU....................YVONNE ELLIMAN
3. (4) THE CLOSER IGETTO YOU..............ROBERTA FLACK
.....................................AND DONNY HATHAWAY
4. ( 5) WITH A LITTLE LUCK.......................WINGS
5. ( 5 ) CANT SMILE WÍTHOUT YOU...........BARRY MANILOW
6. (12) YOU'RE THE ONE THAT IWANT....OLIVIA NEWTON — JOHN
.......................................ANDJOHNTRAVOLTA
7. (7) JACK AND JILL............................RAYDIO
8. (20) TOO MUCH, TOO LITTLE,TOO LATE.....JOHNNY MATHIS
.....................................AND DENIECE WILUAMS
9. (8) DUSTINTHEWIND............................KANSAS
10. (13) COUNTONME.....................JEFFERSON STARSHIP
VESTUR—ÞÝZKALAND
1. {2) TAKE A CHANCE ON ME........................ABBA
2. (1) MULL OF KINTYRE...........................WINGS
3. (4 l LOVEIS LIKE OXYGEN.......................SWEET
4. (3) FOR A FEW DOLLARSMORE. ..................SMOKIE
6. ( S) DONT STOPTHE MUSIC...............BAY CFTY ROLLERS
8. (6) LOVEISINTHEAIR...................JOHN PAUL YOUNG
7. (7) RUNAROUNDSUE........................LEIFGARRETT
8. (9) FREEME................................URIAHHEEP
9. (8) ROCKIN'ALLOVERTHEWORLD................STATUSQUO
10. (10) (IF PARADISEIS) HALF AS NICE......ROSETTA STONE
grundu árið 1975, er hann tókþáttí
Aiternativ Festevalet i Stokkhólmi.
Þeir hljómleikar voru haldnir i og með
til að mótmæla Eurovison söngva-
keppninni, sem haldin var i
Stokkhólmi um svipað leyti.
Annað kvöld gefst sjónvarpsáhorf-
endum færi á að sjá Megas í kvik-
myndinni Ólafur Liljurós. Þar leikur
hann stórt hlutverk jafnframt því sem
hann hefur útsett alla tónlist i
myndinni.
an. Trióið er i efsta sæti þriggja af
þeim fimm listum, sem Reutersfrétta-
stofan sendir út um heim og eru birtir
hér. Eftirtektarvert er þó að Vestur-
Þjóðverjar hafa enn ekki tekið við sér
og ekkert Gibb-æði virðist þar
ríkjandi. Þetta sést einnig, þegar þýzk
poppblöð eru skoðuð. Varla er minnzt
einuorðiá Bee Gees þar.
John Travolta, einn vinsælasti
leikari í heimi þessa stundina fyrir
aðalhlutverk sitt i kvikmyndinni
Saturday Night Fever, er í sjötta
sæti í Bandarikjunum ásamt söng-
konunni Olivia Newton-John. Lag
þeirra nefnist You’reTheOneThat I
Want, sæmilegt lag áheyrnar, en að
öðru leyti ekkert sérstakt. Þau tvö fara
með aðalhlutverkin í nýrri kvik-
mynd, sem nefnist því fituga nafni,
Grease.
-ÁT.-
Nýrgítarleikari
í Chicago
Söngvarinn og gítarleikarinn
Donnie Dacus hefur verið valinn til að
taka við stöðu Terrys heitins Kath í
hljómsveitinni Chicago.
Dacus er 26 ára gamall og hefur
meðal annars leikið með Steve Stills og
Boz Scaggs. Um þessar mundir leikur
hann I kvikmynd þeirri, sem verið er
aðgera upp úr leikritinu Hair.
Eins og Dagblaðið skýrði frá á sín-
um tíma lézt Terry Kath af voðaskoti.
Hann var byssusafnari og tók eitt
kvöldið tvær pístólur með sér I sam-
kvæmi. Þar lék hann alls kyns listir
með byssumar. Meðal annars miðaði
hann þeim að höfði sínu og hleypti af.
önnur skammbyssan reyndist vera
hlaöin, og skaut Kath sig til bana.
Úr BILLBOARD
SkólakórGarðabæjarsyngurinnáhljómplötu:
FYRSTA PLATA SEM GEF-
IN ER ÚT í GARÐABÆ
—upplagið er óvenja Iftíð—450 eintök
Út er komin hljómplata með söng
35 skólabarna úr Flataskóla i Garða-
bæ. Plata þessi er út gefin í. tilefni
tuttugu ára afmælis Flataskóla. Á
henni eru sautján lög, upplestrar og
fleira. Það er hljómplötudeild Fálkans,
sem annast sölu og dreifingu plötunn-
ar.
Meðlimir skólakórs Garðabæjar eru
á aldrinum 9—13 ára. Kórinn var
formlega stofnaður í desember 1976
og hefur viða sungið síðan. Til dæmis
fór hann I söngför til Færeyja fyrir um
ári siðan. í byrjun næsta mánaðar
leggja félagar hans land undir fót og
halda í söngferðalag norður í land.
Afmælisplata skólakórsins er fyrsta
platan, sem gefin er út í Garðabæ.
Upplag hennar er óvenju lítið, aðeins
450 eintök. Stjórnendur kórsins eru
Guöfinna Dóra Ólafsdóttir og Guð-
mundur Norðdahl. Á annarri hlið
plötunnar eru eingöngu lög eftir Guð-
mund við texta úr bamaleikritunum
Hlyna kóngssyni og Sæbjörtu, eftir
Ragnheiði Jónsdóttur. Hinum megin
eru þjóðlög frá ýmsum löndum og lög
eftir og í útsetningu Jórunnar Viðar,
Jóns Þórarinssonar, Jóns Ásgeissonar,
Egils Friðleifssonar, Lajos Bardos,
Mozart og fleiri.
Hljóðritun plötunnar fór fram i
Rikisútvarpinu, Garðakirkju og Há-
skólabíói.
GladysKnightáí málaferlum
Gladys Knight, söngkona hljóm-
sveitarinnar Gladys Knight And
The Pips, hefur höfðað sex
milljarða króna skaðabótamál á
hendur fyrrverandi útgáfufyrirtæki
sinú, Buddah Records. Fyrirtækið,
sem ekki á lengur fyrir skuldum,
seldi samning sinn við Gladys i
hendur annarri útgáfu, Arista
Records, og við það er söngkonan
ekki sátt.
í ákæru sinni, sem Gladys Knight
sendi hæstarétti í Los Angeles I
síðustu viku, sakar hún Buddah og
Arista um samsæri gegn sér, sem
leiði til þess að hún geti ekki samið
við það eða þau útgáfufyrirtæki sem
hana lysti. Þá er þess getið að
tvisvar hafa eitt hundrað þúsund
dollara ávisanir til Gladys frá
Buddah Records reynzt vera inni-
stæðulausar, erátti aðskipta þeim.
„Söngurinn er líf mitt og yndi
auk þess sem ég lifi af honum,” sagði
Gladys Knight. „Ég vil I raun og
veru aðeins vinna hjá útgáfu, sem
gefur mér kost á að njóta min, en
ekki vera leiksoppur tveggja fyrir-
tækja.”
T