Dagblaðið - 18.05.1978, Page 1
4. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 18.MAh978— 102. TBL.
RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGARÓG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSImI 27022]
^ Stéraukin viðskipti við Nígeríu? ]--
Fáum ohu í stad flugs,
tækniþekkingar og skreiðar
íslenzkir aðilar hyggjast gera könn-
un á stóraukinni skreiðarsölu til
Nigeriu með því að kaupa þaðan olíu.
Dagblaðið telur sig hafa áreiðanlegar
heimildir um að frumathugun sé þegar
hafin á slikum viðskiptum.
Nigeríumenn hafa um langt skeið
verið meðal stærstu kaupenda ís-
lenzkrar skreiðar. Nú hafa þeir gert
mjög stóran verksamning við fyrirtaek-
ið Scanhouse Ltd., sem í raun selur
stjórnvöldum i Nigeríu tækniþekkingu
við húsbyggingar.
Nigeriumenn hafa einnig keypt
flugþjónustu, bæði pílagrímaflug og
vöruflutninga með flugvélum, af
islenzkum flugrekstraraðilum. Þessi
viðskipti hafa verið báðum aðilum
mjög hagstæð.
Á síðustu þróunaráætlun Nígeríu-
stjórnar var ákveðið að verja stórfé til
rannsókna á sviði sjávarútvegs og fisk-
veiða. Á þvi sviði gætum við veitt
tækniaðstoð. Meðal annars má geta
þess að hér á landi er nú verið að
hanna hraðfrystihús fyrir nígeriska
aðila.
Hugmyndir eru uppi um að flytja
óunna olíu frá Nigeríu til Portúgal.
Þar mætti ná samningum við verk-
efnalitlar olíuhreinsunarstöðvar um
hreinsun oliunnar. Þaðan yrði hún svo
flutt til íslands. Fyrir olíuhreinsun
mætti greiða með saltfiski á góðu
verði.
Hér hafa verið rakin frumdrög að
hugmyndum framkvæmdaaðila. ís-
lendingar gætu samkvæmt þeim selt
tækniþekkingu á vissum sviðum til
þróunarlands, sem slegizt er um við-
skipti við. Þá yrði með vöruskipta-
verzlun auðvelduð sala á skreið og
saltfiski til gamalla viðskiptalanda
okkar. Stærsta auðlind Nigeríu er olía.
íbúar landsins eru yfir 80 milljónir.
Frumkönnun er hafin á ofangreind-
um möguleikum.
- BS
Ölvaðirmenn
í ránsferð
Tveir ungir menn voru handteknir á
Akureyri I nótt vegna gruns um að þeir
hefðu stolið bifreið. Vegna ölvunar voru
þeir settir i geymslu en er á leið nóttina
komu upp fleiri mál sem rakin eru til
þeirra.
Fyrst var tilkynnt um innbrot í Ferða-
nesti sunnan Akureyrar. Þar var stolið
20 þús. krónum, vindlingum, og smá-
vörum. Síðar var tilkynnt um innbrot i
verzlunina Augsýn i Strandgötu. Mjög
liklegt er talið að bæði innbrotin megi
rekja til þeirra sem i morgun sváfu hjá
lögreglunni. ASt.
Hvað vilja þeir?
Mosfellssveit
- bls. 8-9
Reyðarfjöiður
- bls. 15
Arftaki „Jack The Ripper”
áfevð íBretlandi
Idi Amin vill að 1978 sé ár friðar,
ástaogsátta
— sjá erlendar fréttir á bls. 6 og 7
Jafnréttið á Akranesi
Stærsti sigurVals
gegnFramíl4ár
— Valur sigraði Fram 3-0, en 1964 vannst
7-3sigur. — Sjá íþróttiríopnu
AtvinnuUf á Akranesi er sagt blómlegt
og urðu blaðamenn DB varír við það
er þeir voru þar á ferð fyrir skðmmu.
Akurnesingar státa einnig af jafhvægi i
atvinnulifinu og þá jafnrétti eins og
þessi mynd Ragnars af bensínaf-
greiðslumanni þar í bx ber með sér.
Ragnar hefur auga fyrir svona bensin-
afgreiðslumönnum en hætt er við að
svipur þeirra verði enn súrarí en á
þessum, ef að llkum lætur, því ekki
horfir vel með bensinbirgðir i landinu.
- HP
Hafnarfjövðurí gærkvöldi:
SLÖKKVISTÖD ÁN
SÍMASAMBANDS
Tjaldið mannlausa yfir skurðinn þar
sem talið er að orsök „óhappsins” sé
að finna.
Slökkvistöð án símasambands við
umheiminn skapar næsta litið öryggi
og má getum að þvi leiða hvað slíkt
ástand getur haft í för með sér.
í gærdag varð það „óhapp” að allt
símasamband og talsvöðarsamband
rofnaði til slökkvistöðvarinnar í
Hafnarfirði. Fór sambandið af kl.
17.42 og kom ekki á aftur fyrr en
20.45 eða liðlega þremur timum siðar.
Skammt frá var tjaldað yfir skurð
þar sem vinnuflokkur hafði verið að
verki, en þar var enginn er DB-menn
bar þar að. „Óhappið" með simasam-
— ámeðan
fylltisthús
afreyk
bandi tiL slökkviliðsins er þó rakið til
þessa tjalds.
Jón Pálmason varðstjóri sem var á
vakt í slökkvistöðinni á Flatahrauni
sagði að eina sambandið við umheim-
inn hefði verið í gegnum talstöðvar bil-
anna til lögreglunnar. Um þá leið kom
svo útkall meðan símar stöðvarinnar
voru dauðir. Barst kallið kl. 19.20 en
þá hafði eldur komið upp í húsi að
Hverfisgötu 19. Fylltist húsið af reyk
en eldinn tókst fljótt að slökkva.
A.St.
Jón Pálmason varðstjórí á vaktinni. Starf hans er í því fólgið ad biða eftir bruna-
útkalli ef það berst. Það verður næsta tilgangslaust þegar símarnir þrir eru sam-
bandslausir við umheiminn. — DB-mynd Ragnar Th. Sig.