Dagblaðið - 18.05.1978, Side 2

Dagblaðið - 18.05.1978, Side 2
Umfcrðin í höfuðborginni síðdegis á föstudögum er ekki lik neinu sem þekkist á byggðu bóli — hún er brjáluð: DB-mynd Ragnar Th. Þakkir til lögreglunnar fyrir veitta aðstoð í brjálaðri liðið álíka og hún væri að taka þáttj grínleik sjónvarpsins (sbr. konuna í vélarlausa bilnum á Reykjanesbraut- inni í þættinum Á vorkvöldi). En þetta var alls ekki neitt grin heldur helkald- ur raunveruleikinn. Það geta sannar- lega kallazt vandræði þegar springur á bílnum hjá manni á Hverfisgötunni, — en að það geti gerzt þrisvar sinnum næstum þvi I sömu andránni, og það i brjálaðri föstudagsumferð, er með ólíkindum. föstudagsumferð Bandarísk kona sem ekur Cortina bifreið af árgerð 1973 kom að máli við DB. Sagðist hún hafa lent i miklum erfiðleikum mitt i allri föstudagsum- ferðinni. Hún varð fyrir því óláni að þrisvar sinnum sprakk hjá henni á Hverfisgötunni. Margir buðu fram aðstoð sina og er konan afar þakklát öllum sem buðu hana fram. Sérstaklega vill hún koma á framfæri þakklæti til unga lögreglu- mannsins sem eyddi tveimur klukku- tímum i að hjálpa henni við að koma dekkjunum i viðgerð og þeim síðan uitdir bílinnaftur. Sagðist konan vonast til þess að ungi lögregluþjónninn sæi kveðju þessa. Konan sagði ennfremur að sér hefði DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. MAl 1978. Ekki ætlunin að móðga kisurnan „Hef aldrei selt kisu á tvö þúsund” — segir GuðrúnÁ. Símonar Hefðarkisur hafa auðvitað aldrei verið seldar á tvö þúsund kall! „Mér þótti þú helduren ekki móðga kisurnar mínar í DB þvi ég hef aldrei selt kisu á tvö þúsund krónur,” sagði Guðrún Á. Simonar er hún hringdi á föstudaginn. „Gangverðið er hins veg- ar milli 70 og 80 þúsund en ég hef selt þær ódýrari ef þær hafa farið á góð heimili,” sagði Guðrún. Hún sagði einnig að það hefði oft komið fyrir að krakkar hefðu komið að máli við sig og beðið sig að taka kettina sina af því að mamma og pabbi ætluðu að láta skjóta þá. Við biðjum Guðrúnu og kettina hennar velvirðingar á móðguninni — það var alls ekki ætlunin að móðga neinn. A.Bj. Merki Skjaldhamra Leikhúsgestur hafði samband: Mér skilst að um 45 þúsund manns hafi nú séð leikrit Jónasar Ámasonar. Skjaldhamra. Margar ástæður eru til þess að ég hef ekki getað séð þetta margrómaða leikrit. Og núna á loka- spretti sýninga Skjaldhamra hef ég sifellt verið ein þeirra sem EKKI hafa fengið aðgöngumiða. Mér er kunnugt um að á siðustu sýningarnar var upp- seltástuttum tima. Ég vil þvi skora á ykkur hjá Leikfé- lagi Reykjavikur að sýna þetta verk nokkrum sinnum enn. Áreiðanlega mundi þaðgleðja marga gesta ykkar. « Skjaldhamrar eru líklega það leikrit islenskt sem sýnt hefur verið víðast í heim- inum. Meðfylgjandi mynd er frá Midland, Ohio I Bandaríkjunum, þar sem leikrit- ið var tekið til sýninga i fyrra. Vonandi verður sýningum ekki hætt þótt fjórðung- ur þjóðarinnar hafi séð leikritið. Skjaldhamrar eru að verða að eins konar „Músagildru” hjá okkur en það leikrit eftir Agötu Christie hefur verið sýnt í yfir 25 ár í London! Raddir lesenda

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.