Dagblaðið - 18.05.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1978.
9
Betri fjármálastjórn
lykill allra f ramfara
— segir GuðmundurSigurþórsson efsti
maður A-listans
„Efst á blaði hjá mér er að koma upp
félagsmiðstöð þar sem hin mörgu félög í
Mosfellssveit gætu haft aðstöðu til
funda og annarrar starfsemi, eldra fólkið
komið saman, en fyrst og fremst þarf þar
að vera afþreyingar- og samastaður fyrir
unglingana sem hafa nú ekki i önnur
hús að venda en götuna eða kvöldsöl-
urnar," sagði Guðmundur Sigurþórsson
deildarstjóri, efsti maður á lista Alþýðu-
flokksins i Mosfellssveit.
Guðmundur kvað mikinn hug i
alþýðuflokksfólki í sveitinni, sem nú
fylkti sér um sérstakan lista, en síðast
bauð flokkurinn fram í samvinnu við
Framsókn og Alþýðubandalag og hlaut
listinn 3 menn kjörna af 7.
Hann kvað átak nauðsynlegt í gatna-
og gangstéttagerð, svo og i holræsalögn-
um sem vægast sagt væru í sumum til-
fellum á algjöru frumstigi.
„Það er einnig höfuðnauðsyn að efla
hér iðnað og annað atvinnulíf en að
slíku hefur ekki verið nægilega vel unnið
að okkar dómi,” sagði Guðmundur.
„Einnig þarf að fá þvi framgengt að úti-
bú frá bæjarfógetaembættinu i Hafnar-
firði komi í Mosfellssveit.
„Hér þarf líka að bæta skipulagið og
nægir að nefna hin stórhættulegu gatna-
mót Skólabrautar, Þverholts og Vestur-
landsvegar en um þessi gatnamót liggja
leiðir flestra íbúa sveitarfélagsins dag-
lega.”
Guðmundur ræddi lika um götu-
lýsingu sem væri mjög ábótavant, ekki
sizt við Vesturlandsveginn. Margt fleira
þyrfti að gera en til þess þyrftu fjármál
sveitarfélagsins að komast i viðunandi
horf. Nú væri skuldaböggum velt á
undan sér og virtust þeir aukast frekar
en minnka. Fjárhags- og framkvæmda-
áætlun sveitarstjórnarinnar nú virtist
alveg út í hött og marklaust pappírs-
gagn.
Guðmundur kvað Alþýðuflokkinn
liklegan til að fá fulltrúa I sveitarstjórn-
ina en það eina kosningaloforð væri
gefið nú að allt yrði gert til að vinna
heilshugar að þeirri höfuðnauðsyn að
koma fjármálum sveitarfélagsins i við-
unandi horf á næstu mánuðum. Til þess
þyrfti að rjúfa núverandi einsflokks-
stjórnkerfi Sjálfstæðisflokksins. ASt.
Guðmúndur deildarstjórí hjá Innkaupastofnun rikisins.
Haukur býr nokkru sauðfjárbúi að Helgafelli. Hér er hann með unga tvilembinga.
Atvinnu- og æsku-
lýðsmálin eru mér
efst í huga
— sagði Haukur Níelsson bóndi á Helgafelli
efsti maðurá B-lista
„Stækkun skólanna beggja tekur rif-
legan hlut af þvi fjármagni sem við í
hreppsnefnd Mosfellshrepps höfum til
ráðstöfunar og auðvitað verðum við að
huga að gatnagerð og öðru sem kostar
mikið fé,” sagði Haukur Nielsson bóndi
á Helgafelli sem skipar efsta sætið á lista
framsóknarmanna í Mosfellssveit. Hann
hefur setið I hreppsnefnd í 12 ár.
„Það sem ég mun beita mér fyrir er að
fleiri atvinnufyrirtæki, einkum á sviði
iðnaðar, komi i hreppinn. Ég tel að
greiða ætti fyrir slíku með lægri gatna-
gerðargjöldum og aðstöðugjöld yrðu lítil
fyrstu 2—3 árin.
Jafnofarlega eru mér í huga æskulýðs-
málin. Hér er stækkandi hópur barna og
unglinga sem sinna þarf á ýmsum
sviðum. '
Það þarf líka að styrkja hina blóm-
legu frjálsu félagsstarfsemi í sveitinni.
Við viljum ekki stofna neitt bákn eða
opinbera maskínu. Hér er æskulýðsfull-
trúi í hálfu starfi. Það þyrfti að verða
fullt starf. Hér þarf lika að nýta húsnæði
sem hreppurinn á til aukinnar starfsemi,
skólana og kirkjurnar, sem hér i sveit
eru tvær, og erum við í þeim efnum
rikari en ýmis önnur sveitarfélög,” sagði
Haukur.
„Ef við svo ekki getum fengið vega-
gerðina til að lýsa Vesturlandsveginn,
sem um byggðina liggur, verðum við að
gera þaðsjálfir.”
Haukur kvaðst hafa orðið fyrir gagn-
rýni út af fólksfjölgun I hreppnum. Það
taldi hann frá sínum dyrum vera sjálf-
stæðismál að hreppurinn réði fjölgun-
inni sjálfur en að Reykjavik gleypti ekki
meira af Mosfellshreppi en orðið væri.
Hann taldi að Mosfellssveit gæti státað
af mörgu. Margt væri þó ógert en fólk
væri yfirleitt nokkuð sammála um verk-
efnin sem gengju hægar en æskilegt væri
þar sem 75% fjármagns sveitarfélagsins
ár hvert væri bundið í ákveðnum verk-
efnum, til skóla.sjúkraskamlagso.fl.ASt.
Úrslití
fyrri
kosningum
1974 1970 1966 1962
Sjálfstæðisflokkur 307-4 Óhlutbund- Óhlutbundin kosning
Vinstri menn og óháðir 299-3 in kosning
Framsóknarmenn bundin
og óháðir 95-1
Frjálslyndir kjós. 197-3
Listi Ásbj. Sigurjónss. 85-1
Fjórir listarí kjöri
A-listi
Alþýðuflokksins:
1. Guðmundur Sigurþórsson deildarstjóri,
2. Kristján Þorgeirssonskrifstofumaður,
3. Bryndis Óskarsdóttir húsmóðir,
4. Hreinn Ólafsson bóndi,
5. Reynir Hugason verkfræðingur,
6. Gréta Aðalsteinsdóttir hjúkrunarfr.,
7. Hreinn Þorvaldsson byggingastjóri,
8. Margrét Þóra Baldursdóttir skrifst.maður,
9. Guðjón Haraldsson verktaki,
10. Kristjana Jessen húsmóðir,
11. Atli Hraunfjörð málari,
12. Guðrún Ólafsdóttir húsmóðir,
13. Ragnheiður Rikharðsdóttir húsmóðir,
14. Guðbjörg Pálsdóttir sjúkraliði.
B-listi
framsóknarmanna
1. Haukur Nielsson bóndi,
2. Sigrún Ragnarsdóttir húsmóðir,
3. Pétur Bjamason skólastjóri,
4. Kristján B. Þórarinsson bifreiðarstjóri,
5. Sigurður Skarphéðinsson verkstjóri,
6. Sólveig Guðmundsdóttir laganemi,
7. Sigurður Sigurðsson tæknifræðingur,
8. Jón Jónsson járnsmiður,
9. Gylfi Guðjónsson rannsóknarlögreglum..
10. Lúðvik ögmundsson rafvirki,
11. Diðrik Ásgeirsson garðyrkjumaður,
12. Þór Rúnar Bakes matreiðslumaður,
13. Arnaldur Þór garðyrkjubóndi,
14. Sigurður Hreiðar blaðamaður.
G-listi
Alþýðubandalags
og annarra
vinstri manna:
1. Úlfur Ragnarsson rannsóknarmaður,
2. Ásdis Kvaran kennari,
3. Sturlaugur Tómasson nemi,
4. Aðalheiður Magnúsdóítir kennari,
5. Trausti Leósson byggingafræðingur,
6. Þórður Axélsson húsgagnasmiður,
7. Guðlaug Torfadóttir skrifstofum.,
8. Fróði Jóhannsson garðyrkjubóndi,
9. Helga Hólm húsmóðir,
10. Runólfur Jónsson verkstjóri,
11. Sigriöur Halldórsdóttir kennari,
12. AnnaS.Gunnarsdóttir kennari,
13. Ásgeir Norðdahl verkamaður,
14.Sigurður A. Magnússon rithöfundur.
D-listi
Sjálfstæðisflokksins
1. Salóme Þorkelsdóttir gjaldkeri,
2. Jón M. Guðmundssonoddviti ogbóndi,
3. Bcrnhard Linn bifreiðarstjóri,
4. MagnúsSigsteinsson ráðunautur,
5. öm Kjærnested rafvirkjameistari,
6. Hilmar Sigurðsson viðskiptafræðingur,
7. Ingunn Finnbogadóttir húsmóðir.
8. EinarTryggvasonarkitekt,
9. Hilmar Þorbjömsson varðstjóri,
10. Svanhildur G uðmundsdóttir húsmóðir,
11. Björn Baldvinsson verktaki,
12. Július Baldvinsson fulltrúi,
13. Þorlákur Ásgeirsson húsgagnasmiðameistari.
14. Gunnlaugur Jóhannsson skrifstofustjóri.
Spurning
dagsins
Bima Gunnarsdöttir húsmöðir: Ég held
að Sjálfstæðisflokkurinn haldi meiri-
hluta sínum en Framsókn og Alþýðu-
bandalagið skipti hinum þremur sætun-
um milli sin og Alþýðuflokkurinn fái
ekki mann kjörinn. Hvað ég kýs er
leyndarmá! — og hef meira að segja
aldrei sagi manninum minum frá þvi
hvað ég kýs.
Herdis Valdimarsdöttir húsmöðir með
meiru: Ég held að sjálfstæðismenn haldi
meirihluta í hreppsnefndinni, þó nú sé
erfitt að spá. Það er óskhyggja mín að
breytingar verði á en maður fær ekki
allar óskir sínar uppfylltar.
Jön Sverrir Nielsson böndi: Eg spái
aldrei um svona lagað. skipti mér aldrei
af kosningum. Ætli maður kjósi nokkuð.
Þetta er ekki mitt sveitarfélag, ég er bara
hérá minni torfu.
Glsli Snorrason iðnverkamaður: Sjálf-
stæðisflokkurinn heldur sinum meiri-
hluta, fær fjóra menn. Hinir fá einn
mann hver. Fyrst vinstri menn gátu ekki
komið sér saman um einn lista eru það
lika beztu úrslitin.
Benedikt ívarsson starfsmaður Álafoss:
Vinstri menn fá fjóra menn, hægri
menn þrjá. Það verður einn af A-lista,
annar af B-lista, 2 af lista Alþýðubanda-
lags og þrír sjálfstæðismenn í næstu
hreppsnefnd. Hvað ég kýs gef ég ekki
upp.
Sveinbjörn Sævar Ragnarsson prentari:
Ég á nú von á þvi að sjálfstæðismenn
haldi meirihlutanum þó breyttar
aðstæður séu. Framsókn fær svo tvo
ihenn og Alþýðúbandalagið einn frekar
len Alþýðuflokkurinn.