Dagblaðið - 31.05.1978, Side 1
dagblað
4.ÁRG,— MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978- 113.TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.— AÐALSÍMI 27022.
Utflutningsbann áfram
yfirvinnubann frá 10. júní
— Verkamannasambandið herðir aðgerðirnar
Útflutningsbanniö verður áfram í
gildi en þó verða beiðnir um undan-
þágur metnar hverju sinni og með þær
farið eftir atvikum, svo sem hingað til
hefur verið gert.
Hafi samningar á grundvelli tilboðs
Verkamannasambands íslands ekki
tekizt fyrir hinn 10. júní skorar stjórn
Verkamannasambandsins á aðildar-
félögin að boða yfirvinnubann frá 10.
til 30. júní.
Á þeim tima sem yfirvinnubannið
stendur, ef ekki verður hjá þvi komizt,
er skorað á alla aðila að gera alvar-
legar tilraunir til samningagerðar.
Meðal annars verður ekki fram hjá
því litið að tilraunir til samninga-
gerðar við einstök bæjarfélög kunni að
verða reyndar.
„Enda þótt bráðabirgðalögin sýni
ákveðið undanhald eru í þeim fáránleg
og óaðgengileg atriði sem valda því að
stjóm Verkamannasambandsins og
formenn aðildarfélaganna hafna
þeim,” sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson í viðtali við DB i morgun.
1 ályktun sem var samþykkt ein-
róma á fundinum i gær er skorað á
ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að
samningar geti tekizt á grundvelli til-
boðs Verkamannasambands íslands.
Takist þeir ekki skorar stjóm sam-
bandsins á aðildarfélögin að boða yfir-
vinnubann frá 10. júní eins og fyrr
segir. Ráðgert er að yfirvinnubannið
verði til 30. júni. Á þeim tíma sem
bannið stendur yfir verði reynt til hins
ýtrasta að ná samningum á áðurnefnd-
um grundvelli. Gert e_r ráð fyrir því að
áður en sá timi sé liðinn komi stjórnin
saman og meti stöðuna í kjaradeil-
unni. • BS
Ung kona settist með barn sitt við rústirnar fyrir framan ýtuskófluna miklu. Krakkarnir úr hverflnu ærsluðust f brakinu.
DB-myndir JBP og Christian Roger.
Menn, eða bílastæði?
Til ýfinga kom í gærdag í
Grjótaþorpi. Eigandi Fjalakattarins,
Þorkell Valdimarsson, hugðist rifa
steinskúr á baklóðinni en ioúar
hverfisins mótmæltu. Þá voru stór-
virk tæki búin að eyðileggja litinn og
skemmtilegan garð sem ibúarnir höfðu
komið sér upp með ærinni fyrirhöfn
og kostnaði. í raun lentu borgar-
fulltrúar hér margir hverjir í fyrsta
stórmáli sins kjörtímabils að huga að
.spursmálinu: Mannlif eða bílastæði.
Nánar á bls. 8.
Brotizt inn hjá
Listahátíð í Gimii
í nótt var brotizt inn í skrifstofur í hefði verið stolið og allmikið rótað til i
Gimli við Lækjargötu en þar eru höfuð- skrifstofum.
bækistöðvar Listahátiðar. Þegar rann- Rannsóknarlögreglumenn voru enn á
sóknarlögreglunni bárust boð um inn- staðnum er blaðið varbúið til prentunar.
brotið fylgdi það sögunni að skiptimynt - ASt.
Fjárhagsvandi Orkustofnunar:
Ríkisstjórnin meltir
tillögurnar — baksíða
Tuttugu ogsex tónlistar-
f orkólfar á Ítalíu í fangelsi
fyrir mútur og svik
— Sjá erlendar
f réttir blaðsíðu 6 og 7
Vildi ekkert með lögreglu hafa
Ökumaður af Snæfellsnesi ók i nótt
fram á bíl sem ekið hafði verið út af vegi
skammt frá Félagsgarði í Kjós og lá þar
á hliðinni. Er hann var að huga að hvort
fólk leyndist i bilflakinu spratt upp
maður skammt frá. Var hann óslasaður.
Fékk hann far með Snæfellingnum i
bæinn en er þangað kom vildi hann með
engu móti hitta lögregluyhrvöld og vildi
bara losna við sinn velgeróarmann.
Snæfellingurinn tilkynnti slysið. Nú er
eigandans leitað þvi grunur lék á um
ölvun. Billinn var nteð R-númeri.
-ASt.
Hér er Frakkinn Gerard Lemarquis ásamt syni sinum, Tómasi. Þeir stöðvuðu
upphaflega frekari framgang við niðurriflð.