Dagblaðið - 31.05.1978, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MAl 1978
Tilkynning frá
um fístabókstafi
í kjördæmunum
Samkvæmt tilkynningum yfirkjörstjórna
verða þessir listar í kjöri í öllum kjördæmum
landsins við alþingiskosningarnar 25. júní nk.:
A—Listi Alþýðuflokksins.
B—Listi Framsóknarflokksins.
D—Listi Sjálfstæðisflokksins.
F—Listi Samtaka frjálslyndra og vinstri manna.
G-Listi Alþýðubandalagsins.
í fjórum kjördæmum verða auk þess eftirfar-
andi listar í kjöri:
í Reykjavíkurkjördæmi:
K—Listi Kommúnistaflokks íslands.
R—Listi Fylkingar byltingarsinnaðra
kommúnista.
S—Listi Stjórnmálaflokksins.
í Reykjaneskjördæmi:
S—Listi Stjórnmálaflokksins.
V—Listi óháðra kjósenda.
í Suðurlandskjördæmi:
L—Listi óháðra kjósenda.
í Vestfjarðakjördæmi:
H—Listi óháðra kjósenda.
Landskjörstjórn.
Þetta ernýjaFUJICA AZ-1
Ijósmyndavélin
Þeir hjá FUJI FILM fóru ekki
troðnar sióðir þegar þeir hönnuðu
nýju FUJICA AZ-1 myndavélina.
í FUJICA AZ-1 myndavélinni er al-
sjálfvirk Ijósmæling með hinu nýja 12
L tölvukerfi, sem nefnt er „Digital
Shutter Speed Control”.
Þetta Ijósmælingarkerfi er mjög ná-
kvæmt jafnvel við hin erfiðustu
myndatökuskilyrði.
FUJICA AZ-1 er fáanleg með zoom-
linsu 43 til 75 mm sem aðallinsu. —
Og verðið er að sjálfsögðu FUJI-
verð — sem gerir grín að öllum
keppinautunum.
FUUICA ÆZ. -jjj_ Söluumboð f Reykjavik
ajinrnii.'.fc Amatörverzlunin
fuji photo film co„ ltd. Laugavegi 55. Simi 2-27-18.
Fasteignir
til sölu
2 herb. íbúð
við Arahóla. íbúðin er á 3.
hæð í fjölbýlishúsi, skiptist í
stofu, hoi, hjónaherbergi,
eldhús og bað. Verð 9 millj-
ónir, útborgun 6,5 milljón-
ir.
3 herb. íbúð
við Álftamýri. íbúðin er á
jarðhæð með útsýni yfir
nýja miðbæinn, laus fljót-
lega. Verð 11,5 milljónir,
útborgun 7,5—8 milljónir.
5 herb. endaíbúð
við Álfaskeið, Hafnarfirði.
íbúðin er á jarðhæð (ekkert
niðurgrafið) ca 115 fermetr-
ar með þrem svefnherbergj-
um og rúmgóðri stofu, sér-
þvottahús, bilskúrssökklar
fylgja. Verð 14 milljónir, út-
borgun 9—10 milljónir.
Fasteignasalan
Miðborg,
Nýja Bíó húsinu.
Símar 25590 og 21682.
Jón Rafn Jónsson söhi-
maður heima: 52844.
Hilmar Björgvinsson hdl.
EIGNAÞJÓNUSTAN
FASTEIGNA- OG SKIPASALA
NJÁLSGÖTU23
SlMI: 2 66 50
Við Álftamýri
Vorum að fá i einkasölu
mjög góða 110 ferm enda-
ibúð á 1. hæð. Góður bíl-
skúr fylgir.
ViðÁlftahóla
Nýleg mjög góð 4ra herb.
íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi.
Bílskúrsréttur. Skipti æski-
leg á eign í Laugarneshverfi
eða nágrenni.
Einnig íbúðir
og húseignir í Vestmanna-
eyjum, Neskaupstað, Eski-
firði, Njarðvík, Sandgerði
og Þorlákshöfh. Skipti oft
möguleg.
Seljendur
fasteigna
Okkur vantar fyrir trausta
kaupendur flestar stærðir
íbúða. Góðfúslega hafið
samband við okkur ef þér
hyggist selja.
Stærsta Ijósmynda-
safni heims
bjargaö naumlega
Vegna góðrar frammistöðu safn, er í Rochester i New York og er en hægt værj að bæta það tjón að
slökkviliðsmanna tókst að koma i veg, þar til húsa eitt mesta safn gamalla mestu með því aðfáeintök af hinum
fyrir óbætanlegt tjón er eldur kom upp kvikmynda, Ijósmynda og tækja til eyðilögðu munum frá öðrum söfnum.
á fyrrum heimili George Eastman, Ijósmyndunarí heimi. Stærsti hluti safnsins slapp
frumherja í gerð Ijósmynda og kvik- Að sögn safnvarða munu rúmlega óskemmdur. í fyrstu var talið að meira
mynda. Heimilið, sem nú er opinbert þrjú hundruð myndir hafa eyðilagzt en 100.000 myndir hefðu eyðilagzt.
ÍSRAELSMENN SAK-
AÐIR UM SK0THRÍÐ Á
Þ0RP
Útvarpsstöð Palestinuskæruliða sak-
aði i gær ísraelsmenn og hægrisinnaða
Dansaði lífið úr
sjúklingnum
Samkvæmt ákæru á hendur konu
einni í Trinidad mun hún hafa valdið
dauða nitján ára pilts sem hún ætlaði að
aðstoða við að losna við illa anda. I þeim
tilgangi dansaði hún á brjósti hans og
hálsi en ekki tókst betur til en svo að
hann rifbrotnaði og siðan eyðilögðust
lungun og hann lézt.
Hin ákærða sagði réttinum að
hún áliti sig hafa yfirnáttúrlega krafta.
íbúarnirfluttu
vegna
gaseitrunar
Allir ibúar lítils þorps í Flórída í
Bandarikjúnum urðu að yfirgefa heimili
sín í gær vegna eitraðs ammóniakgass
sem breiddist út í andrúmsloftið.
Járnbrautarlest með þrjátíu flutninga-
vagna hlekktist á og fóru tveir vagnanna
af teinunum og á hliðina. Mun hafa
komið leki að ammóníakgeymunum
með þeim afleiðingum að talið er að ekki
verði hættulaust að dveljast í þorpinu
eða nágrenni þess næstu tvo sólar-
hringa. Ekki var vitað um neinn sem
orðið hefði fyrir eitrun i gærkvöldi. í
þorpinu, sem nefnt er Mossyhead, búa
aðallega ellilífeyrisþegar.
Libani um að hafa gert stórskotaliðsárás
á þorp Palestinumanna i Suður-Líban-
on. Var sagt að minnst tuttugu og tveir
óbreyttir borgarar hefðu særzt. Ekki var
getið tölu fallinna en þess þó getið að
þrir þeirra hefðu verið svo illa farnir af
skotsárum að ekki hefði verið hægt að
þekkja þá.
Að sögn útvarpsstöðvarinnar hófst
skothriðin síðari hluta dags í gær en
þorpið er á því svæði sem friðarsveitir
Sameinuðu þjóðanna hafa verið að fá
viðurkennt sem hlutlaust svæði á milli
viglínanna í Líbanon.
Á svæðinu sem stórskotahríðin er
sögð hafa beinzt til eru rústir virkja sem
sagðar eru frá því á dögum krossfar-
anna. Herstjórp Palestínuskæruliða
segist hafa tilkynnt fulltrúum Samein-
uðu þjóðanna samstundis um árás ísra-
ela. Sagði í útvarpstilkynningu frá
skæruliðum að þeir gætu ekki rhikið
lengur horft upp á glæpsamlegar árásir
eins og þessa.
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti hefur áhyggjur af þvi um þessar mundir hve litils
álits hann og stjórnarstefna hans nýtur meðal þjóðar hans. Nýlega tók hann á
móti einum foringja indíánaflokks og skrýddist þá þessum glæsilega höfuðbúnaði.
Akveðið að
minnka blýinni-
hald bensíns
Blýinnihald bensíns i ríkjum Efna-
hagsbandalagsins verður minnkað
verulega frá og með árinu 1981 sam-
kvæmt samþykkt umhverfismálaráð-
herra ríkjanna í Brussel I gærkvöldi.
Þá á blýinnihaldið ekki að vera meira
en 0,15 grömm i hverjum lítra bensíns
undir venjulegum kringumstæðum en
ef orkukreppa ríður yfir er heimilt að
slaka á reglunum.
Vestur-Þjóðverjar munu nú þegar
hafa sett hjá sér reglur sem eru innan
samþykktar ráðherranna. 1 öðrum
rikjum Efnahagsbandalagsins er blý-
innihaldið um það bil 0,45 grömm i
hverjum litra og á írlandi meira að
segja 0,65 grömm. Hafa hinir síðast-
nefndu fengið heimild til allt að tíu ára
aðlögunartíma til að setja bensin sitt
niður fyrir 0,15 gramma blýmarkið.
Samþykktin um þlý í bensíni er gerð
vegna þess að talið er að loftmengun
verði því meiri sem meira er af blýi í
bensíni. Bensín með litlu blýi er aftur á
móti dýrara í framleiðslu vegna þess
að til þess þarf meiri hráolíu.