Dagblaðið - 31.05.1978, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MAl 1978
Borgarstjóralaus meirihluti
mætir vandamáli í Grjótaþorpi
— Heitt taugastríð gaus þar upp í gær er skurðgrafa mætti
til leiksfskrúðgarði
Heitt tilfinningastríð skall á í Grjóta-
þorpi í gærdag er traktorsgröfu var ekið
inn á baklóð Fjalakattarins og hóf þar
umrót og niðurrif gamals skúrs, sem
sagður er hafa gegnt sögulegu hlutverki
er fyrsta kvikmyndahús höfuðborgar-
innar var starfrækt í Fjalakettinum.
Þessum bakskika Fjalakattarlóðarinn-
ar breyttu íbúar Grjótaþorps i grasi
þaktan garð, þar sem steinum var hlaðið
meðfram litlum stigum. íbúarnir mál-
uðu skúrinn og skreyttu lítils háttar.
Þarna myndaðist aðstaða fyrir börn í
rústir skúrhornsins og komu í veg fyrir
frekari aðgerðir.
Lögreglan kom á vettvang og reyndi
að stilla til friðar. Fulltrúar íbúasamtaka
og annarra sem vernda vilja það gamla í
Reykjavík stóðu fast á sínu. Húseigand-
inn stóð á rétti sínum til umbóta á eigin
lóð, sem hann greiddi skatta af og kvaðst
m.a. hafa í höndum bréf frá brunavarn-
aryfirvöldum um að nauðsyn væri á
greiðri útgönguleið um kjallaradyr
Fjalakattarins ef húsið yrði tekið i notk-
un. Til þess að svo yrði þyrfti skúrinn áð
fara.
„Samið” var um að klára niðurrif
skúrþaksins en hlífa veggjum i bili. Var
þetta gert að beiðni lögreglu sem taldi
slysahættu af skúrnum eftir fyrstu högg
gröfunnar á honum. Þetta létu íbúasam-
tökin átölulaust.
Er verktakinn hugðist fjarlægja brota-
brot skúrsins með gröfu og setja þau á
bílpall og síðan fylla grunn skúrsins með
grús, sögðu íbúasamtökin stopp. Þau
heimtuðu að ruslið yrði fjarlægt með
handafli og frekari vélavinna yrði stöðv-
uð, þar til borgaryfirvöld tækju málið í
sinar hendur. Kváðu þau nóg að gert er
Traktorsgrafan að verki við steinskúrinn á lóð Fjalakattarins i gærdag. —
DB-mynd Hörður.
Tveir íbúa Grjótaþorpsins horfa á eyðilegginguna á litla garðinum, sem íbúarnir
höfðu mikið fyrir að koma upp í fyrra og höfðu leyfi þáverandi eiganda fyrir.
—■ DB-mynd JBP
Þráteflið á Fjalakattarlóðinni stóð
lengi dags — og mun sjálfsagt standa
lengi. Eigandinn hefur i raun engan um-
ráðarétt yfir sinni lóð. Fólkið bannar að-
gerðir. Yfirvöld hafast ekkert að. Heitt
tilfinningastrið geisar milli fólksins og
lóðareigandans annars vegar og eigand-
ans og borgaryfirvalda hins vegar. Málið
er i bið, en sýnt er að nýi borgarstjórnar-
meirihlutinn fær þarna sitt fyrsta „al-
vöruvandamál".
—ASt.
hverfinu til leikja. Allt þetta gerðu íbú-
arnir með leyfi þáverandi eiganda lóðar-
innar.
Þegar ýtan mætti til leiks var hún fljót
að róta garðinum litla upp og við fyrsta
högg hrundi horn úr þaki hússins og við
þau næstu féllu vegghlutar úr þvi.
Það var sem sprengja hefði fallið
þarna, hávaðinn raskaði ró hverfisins og
ibúarnir þustu að. Frekari framkvæmdir
voru stöðvaðar þvi fólk og börn settust á
Verktakinn meðgröfurnarvar kominn
á vettvang að beiðni eigandans og hóf
verkið þar til íbúarnir stöðvuðu það og
lögreglan kom á vettvang.
Fljótlega kom Adda Bára Sigfúsdóttir
borgarfulltrúi og stuttu siðar Jón Tóm-
asson sem nú gegnir stöðu borgarstjóra í
fjarveru borgarritara, sem lögum sam-
kvæmt er borgarstjóri þar til nýr verður
ráðinn að föllnum meirihlutanum i
Reykjavik.
grafan hefði eyðilagt margra mánaða
vinnu þeirra við garðbyggingu á lóðar-
spildunni og börnin hefðu misst sina vin
í miðborginni.
Eigandinn kom aftur á staðinn og
hafði i hótunum. Annað hvort yrði hald-
ið áfram verkinu eða ibúarnir gætu
brennt húsið (Fjalaköttinn). Álengdar
stóðu malarbílarnir tilbúnir til að grafa
grasið i gráa möl. Ef af því yrði hótuðu
ibúarnir að setjast undir malarsturtuna
og láta grafa sig.
léi er deilt við vinnuvélacigandann um framkvæmdirnar á lóðinni. — DB-mynd Hörður.
Svona leit garðurinn út, áður en stórvirk tæki voru send inn i hann i gær.
— DB-mynd Hörður.
Þorkell Valdimarsson, eigandi lóðarinnar sem um er deilt I Grjótaþorpi.
— DB-mynd JBP