Dagblaðið - 31.05.1978, Qupperneq 24
Fjárhagsvandi Orkustofnunan
RÍKISSTJÓRN-
INMELTIR
T1LLÖGURNAR
— gert er ráð
fyrir50 milljón
króna niður-
skurði á fjár-
veitingunni
Ríkisstjórnin hcfur nú til
umfjöllunar tillögu . stjórnskipaðrar
nefndar sem aetlað var að gera úttckt á
fjárhagsvanda Orkustofnunar.
Páll Flygenring, ráðuneytisstjóri
iðnaðarráðuneytisins, sagði í samtali
við DB að tillögurnar væru trúnaðar-
mál á meðan ríkisstjórnin hefði þær til
umfjöllunar. Tillögunum var skilað á
þriðjudaginn i síðustu viku og hafa
litillega verið ræddar i ríkisstjórninni.
Skv. þeim upplýsingum sem blaðið
hefur aflað sér gera tillögurnar m.a.
ráð fyrir að fjárveiting til
Orkustofnunar á þessu ári verði skorin
niður um fimmtíu milljónir. 130
milljónir til viðbótar, sem teknar hafa
verið af fjárveitingu Orkustofnunar á
þessu ári til greiðslu óreiðuskulda
vegna Kröflu, verða endurgreiddar
stofnuninni, skv. heimildum blaðsins.
í nefndinni áttu sæti Kristmundur
Halldórsson frá iðnaðarráðuneytinu,
Sigurður Þórðarson frá fjármálaráðu-
neytinu og Hjalti Zóphaniasson frá
dómsmálaráðuneytinu.
ÓV.
Breyttirtímar
RadíóþoníKeflavík:
HEFUR VAKAÐÍ RÚMA TVO DAGA
Ekki vitum við svo gjörla hverl
ferðinni var heitið. En þessi gamli
göðborgari var á ferðinni í miðborg
Reykjavíkur í gærdag með hand-
vagninn sinn. Slík facartæki sjást
ekki oft á götum nú orðið, en einmitt
á þessum slóðum var krökkt af sliku
hér áður fyrr þegar vörum var ekið
þannig að og frá pakkhúsum í
bænum.
-DB-mynd Hörður.
Einn af plötusnúðum útvarpsstöðvar-
innar á Keflavikurflugvelli, Sam Spears,.
hefur nú vakað í rúma tvo sólarhringa
og leikið plötur allan þann tíma í beinni
útsendingu.
„Hann lítur betur út en ég og samt er
ég búinn að sofa,” sagði einn starfs-
manna útvarpsstöðvarinnar í viðtali við
DB i morgun.
Tilgangurinn með þessu er að safna fé
fyrir hjálparstofnun bandariska sjóhers-
ins og getur fólk pantað sér ákveðin lög
gegn greiðslu. Minnsta pöntun er eitt lag
sem menn greiða einn dollar fyrir en
„sumir hafa borgað 40 dollara fyrir að fá
einn klukkutíma af einhverju ákveðnu
tónlistarefni og landgönguliðar flotans
eru búnir að borga 100 dollara til þess að
fá einkennislag landgönguliða leikið
einu sinni á klukkustund,” sagði starfs-
maðurinn.
„Spears er að reyna að slá stöðvar-
metið sem í gildi er hér í stöðinni, það
eru 103 klukkustundir. Ég veit ekki
hvort honum tekst það en hann er alla-.
vega í góðu formi núna.”
- HP
Rannsókna- ogþróunarstarfsemi hér vanrækt með fjársvelti:
ÁSTANDIÐ eins og í þróunarríkjunum
— lág laun rannsóknamanna reka þá út í aukavinnu, jaf nvel í vinnutímanum
1 langtimaáætlun Rannsóknaráðs
ríkisins um rannsóknir og þróunar-
starfsemi í þágu atvinnuveganna,
kemur m.a. fram að við íslendingar
erum á sama stigi og frumstæð
þróunarríki hvað varðar framlag til
slíkrar starfsemi og mat á henni.
Þannig verjum við 0,4 til 0,5% af
vergum þjóðartekjum lil sliks á meðan
aðrar þjóðir á svipuðu hagþróunarstigi
verja til þess 1 til 2,5%.
Þetta segir þó ekki nema hálfa
söguna þar sem þetta fjársvelti gerir að
verkum að ekki er unnt að standa að
rannsóknaverkefnum sem skyldi og
því fæst oft ekki nægilega ábyggileg
niðurstaða.
Ein meginniðurstaða athugana
OECD á stöðu þessara mála hér, sem
gerð var 1971, er að vandamálin liggi
ekki í skipulagi rannsóknamála í
landinu, heldur í þvi hve rannsóknir
séu takmarkaðar og umhverfi lítt
mótað, svo og í þeim starfsháttum sem
þróazt hafi innan þeirra.
Þá hafa rannsóknamenn OECD
komizt að þeirri niðurstöðu að sér-
menntaðir starfsmenn rannsókna-
stofnana hér eru mun lægra launaðir
en starfsbræður þeirra i einkafyrir-
tækjum. í skýrslunni er bent á hinar
ýmsu óheillahliðar þessa máls, fyrir
þróun rannsóknastarfseminnar og-
nefnd atriði s.s.: Tilhneiging til að
taka launuð kennslustörf og önnur
störf sem unnin eru á venjulegum
starfstima stofnana og koma niður á
rannsóknastörfunum, og sérstakir
erfiðleikar við að halda þjálfuðu
starfsfólki sem getur unnið marg-
háttuð tæknileg eftirlitsstörf, prófanir
o. fl. í iðnaði ogá öðrum stofnunum.
-G.S.
frjálst, áháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR31. MAÍ 1978.
Handtökumálið:
AÐSTODARMENN
HAIIKS Á HÁLFUM
LAUNUM
„Ég hef enn ekki fengið rannsókn
málsins til athugunar og hef því ekki
tekið ákvörðun um hvort þessir tveir
lögreglumenn taka aftur við störfum
sinum,” sagði Jón Eysteinsson bæjar-
fógeti í Keflavík í samtali við fréttamenn
DB um handtökumálið svonefnda.
Eins og kunnugt er af fréttum voru
tveir keflvískir lögreglumenn, sem tóku
þátt í handtöku þeirra Karls Guðmunds-
sonar og Guðbjarts heitins Pálssonar á
sínum tima, leystir frá störfum um
stundarsakir á meðan lokarannsókn
handtökumálsins fór fram. Hafa þeir
verið á hálfum launum siðan.
Fógetafulltrúi við bæjarfógetaemb-
ættið í Keflavík, sem breytti framburði
fínum í málinu eftir að „huldumeyjarn-
ar” játuðu aðild sína að því, sagði starfi
sínu lausu að fullu og öllu.
Fógeti sagði í samtalinu við DB að
þegar hann hefði fengið rannsóknina
hiyndi hann taka sína ákvörðun. „Ég sé
þá til hvort ég bíð eftir ákvörðun ríkis-
saksóknara eða ekki,” sagði fógeti.
ÓV
Garðabæn
Enn óvissa
um nöf n á
D-listanum
— verið eraðreikna
útmikið af
útstrikunum
Sjálfstæðismenn i Garðabæ hlutu
fjóra menn kjörna i bæjarstjórn en enn
er óljóst hverjir þeir eru nema hvað
öruggt er talið að bæjarstjórinn vcrði á
listanum.
Fjöldi stuðningsmanna 6. manns á
listanum, Ágústs Þorsteinssonar, stóð
fyrir útstrikunum og vinnur yfirkjör-
stjórn nú úr gögnunum og lýkur því
væntanlega i dag. Ekki er blaðinu ná-
kunnugt um hverjir voru aðallega strik-
aðir út nema hvað algengast mun hafa
verið að strika út 4. og 5. mann.
-G.S.
Drukknir
foreldrarmeð
kornabarn
Lögreglan hafði í gær afskipti af
drukknum hjónum sem voru á ferð í
borginni með kornabarn sitt. Þótti mál
þetta svo alvarlegs eðlis að maðurinn
var fluttur í fangageymslu en kona og
barn fengu aðhlynningu hjá Félagsmála-
stofnun.
- ASt.