Dagblaðið - 16.06.1978, Side 9

Dagblaðið - 16.06.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978. Búið að selja Hjalteyri! Hreppurinn kaupir fyrir 18 milljónir meira en einstaklingurinn bauð Þá er búið að selja Hjalteyri, nýr kaupandi búinn að fá afsal og byrjaður að borga af. Það er Arnarneshreppur sem fær góssið en Davíð Kristjánsson sem bauð 18 milljón krónum hærra en hreppurinn situr uppi eyrarlaus. Davíð rekur reykiðju og annan matvælaiðnað á Akureyri en hugðist flytja til Hjalteyr- ar fengi hann eignina. Upphaflega bauð Davið 51 milljón króna í Hjalteyri en undanskildi þá 8 ibúðir af tíu og þær þrjár bújarðir sem tilheyrðu eigninni (voru þær jarðir und- anskildar í öllum tilboðum). Gegn þessu bauð Arnarneshreppur 33 milljónir í alla eignina en 40 milljónir til vara. Eftir þetta fóru framámenn í hreppn- um á fund Stefáns Valgeirssonar þing- manns og báðu hann beita sér fyrir þvi að hreppurinn hlyti hnossið. Ingimar Brynjólfsson sagði þessa beiðni um aðstoð vera komna til vegna þess að hreppurinn á engan að suður í Reykja- vík. Eftir þetta barst tilboð frá hreppnum upp á 52 milljónir. Davið vildi ekki sleppa eyrinni umyrðalaust og bauð 70 milljónir og í þetta sinn i alla eignina. Hann lýsti því þá yfir opinberlega að hann hygðist ekki vera einn i ráðum á Hjalteyri þvi hann væri búinn að fá aðila til að sjá þar um oliusölu og annan til að reka verzlun að minnsta kosti hluta úr degi. Davíð hugðist koma upp aðstöðu fyrir 4 báta til landa á Hjalteyri. Hann ætlaði að gefa ibúum þeirra húsa sem búið er i (þau eru 6 eða 7) kost að að kaupa þau á kostnaðarverði. Gufuketill einn. sem nýlega var seldur austur á land til loðnu- bræðslu var allan tímann undanskilinn í tilboðum og var það af hálfu Lands- bankans. 18 milljónir til snyrtingar Eftir að tilboð voru opnuð leið langur timi án þess nokkuð gerðist. Miklar deilur voru manna á milli um það hvað gert yrði og ýmsar tilgátur uppi um lausn mála. Að lokum ákváðu for- ráðamenn Landsbankans að taka tilboði hreppsins og var það að sögn Stefáns Valgeirssonar gert til þess að koma i veg veg fyrir að fjárglæframenn næðu eign- unum á sitt vald. Davið var þungur yfir þessum orðum Stefáns þar sem hann þóttist hafa gert fulla grein fyrir fjár- málum sinum og þau hefðu verið vand- lega rannsökuð og væri ekki ástæða til að ætla að hann gæti ekki staðið i skilum með afborganirnar. Hann sagði að Stefán væri að ýja að þvi að aðrir stæðu á bak við sig, liklega þeir Sólnes- feðgar, en slikt væri algjör firra. Á hreppsnefndarfundi á sunnudaginn kom fram að ástæðan til að Lands bankinn tók tilboði hreppsins um kaup á Hjalteyri væri sú að þvi fylgdi kvöð frá Náttúruverndarráði um að eignin yrði öll hreinsuð og þau hús sem grotnaé höfðu niður á meðan Landsbankinn átti eignina yrðu rifin. Davið Kristjánsson varð alveg undrandi þegar hann heyrði um þessa kvöð því um slika kröfu hafði hann aldrei heyrt talað fyrir nú utan að hann hefði alltaf talið meira en sjálfsagi að hreinsa til á Hjalteyri. Kom ekki til greina að KEA keypti Hjalteyri Snemma var rætt um það að KEA hygðist kaupa Hjalteyri og oft talað um það sem eina aðilann sem ráð hefði á sliku. Þegar KEA bauð ekki i eignina komst sú saga á kreik að það gæti ekki að svo komnu máli staðið í meiri fjárfestingu en það gerir þegar. Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri sagði þessar sögur algjörlega út i blá- inn. Aldrei hefði komið til greina að KEA keypti Hjalteyri, bæði vegna fjárhagsstöðunnar og eins að talið væri rétt að hreppurinn ætti að minnsta kosti landið undir verksmiðjunum. Hins vegar væri nú verið að athuga hvers konar at vinnustarfsemi unnt væri að reka á Hjalteyri og gæti vel verið að KEA fengi þar einhverja aðstöðu. Slikt væri þóalgjörlega óvíst. Valur sagði að til þess að hægt væri að starfa eitthvað á Hjalteyri af viti þyrfti að konia þar upp hal'skipa- bryggju. Óvist er um hversu margir myndu fá vinnu á Hjalteyri þegar allt verður komið i fullan gang. Davið Kristjánsson hugðist koma upp fiskverkun á Hjalteyri og var búinn að bjóða hreppnum að vera með i hlutafélagi sem stofnað yrði af þeim og einstaklingum. Hins vegar sagðist Davið ekki vilja leigja af hreppnum þar sem ein hreppsnefnd sæti i dag og önnur á mörgun og ekkert öryggi væri i sliku. Þetta kom Ingimar á óvart þvi hann sagði Davið hafa verið þess fýsandi að leigja litinn skúr til fiskverkunar. Skúrinn sá ama væri of gamall til þess að hægt væri að selja hann einum eða öðrum. Þetta er eins og annað með Hjalt- eyri. menn eru alls ekki sammála um hvað gerzt hafi. Þó er það Ijóst eins og fram kom í greinum i DB að Lands- bankinn tók eignirnar upp i skuld Kveldúlfs hf., en gerði síðan ekkert við eignina i fjölda ára. Einstaklingar sem bjuggu á Hjalteyri sóttu um að fá að kaupa húsnæðið og ýmislegt annað en fengu aldrei jákvætt svar. Hins vegar hefur nokkuð af hlutum þeim sem voru i sildarverksmiðjunni á Hjalteyri verið selt út fyrir þorpið. Nú er hins vegar búið að selja allt saman og má þá fara að búast við að eitthvað gerist. DS. KOSNINGAGETRAUN RAUÐA KROSSINS Úlfar Þormóðsson kosningastjóri G-listans. ÉG SPÁI: Fjöldi þingmanna er verður Alþýðubandalag 11 /4* Alþýöuflokkur 5 9 Framsóknarflokkur 17 /5 Samtök frjálsl. og vinstri manna 2 o Sjálfstæðisflokkur 25 22. Aðrir flokkar og utanflokka O Samtals 60 60 Svona einfalt er að vera með. Klippið þessa spá út og berið saman við aðrar sem birtast. ALLIR MEÐ! + RAUÐI KROSS ÍSLANDS HJÁLPARSJÓDUR HJALTEYRl — talsveró barátta hefur oróið um eignarréttinn. DB-mynd Fax. x- GAGNRÝNK) - EINNIG ÞÁSEM GAGNRÝNA

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.