Dagblaðið - 16.06.1978, Síða 10

Dagblaðið - 16.06.1978, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16.JÚNÍ 1978. Bettv Williams sem hlaut friöarvcrðlaun Ndbels i fyrra. Leone segist saklaus af skattsvikum Giovanni Leone. sem sagði af sér embætti forseta ítaliu i gær. hefur lýst því yfir að hann sé saklaus af öllum á- kærum um skattsvik og fjármála spillingu. Vinstrisinnuð blöð og flokkar hafa ásakað hann um það undanfarna mánuði en Leone bar á móti öllu og sat sem fastast þar til Kommúnista- flokkurinn — næst stærsti flokkur landsins — tók undir spillingar- ákærurnar í þessari viku. Leone. sem aðeins átti eftir að gegna embætti í sex mánuði, ávarpaði þjóð sína i gær og ítrekaði sakleysi sitt. Fanfani flokksbróðir hans og forseti ítalska þingsins. mun gegna forseta- embættinu. þar til nýr forseti verður kjörinn. Hannyrðavörur — Prjónagarn Heklugarn — Hnýtingagarn Mikið úrval — Athuf’ið breytt heimilisfanfi — Velkomin ú nyja staðinn. HANNYRÐAVERSLUNIN ÓÐINSGÖTU 1 SÍM113130 SKÚTANINGA ER TIL SÖLU! Skútan er til sýnis i bátanaustinu í Garðabæ. Lysthafendur góðfúslega leggi inn tilboð hjá auglýsingadeild Dagblaðsins merkt: Skútan Inga. Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Forfalla- eða stundakennara vantar að Menntaskólanum við Hamrahlíð næsta skóla- ár. Kennslugreinar stærðfræði og eðlisfræði. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans, þar sem tekið verður á móti umsóknum. Umsóknarfrestur til 30. júní. Poi#*«r Auglýsing Staða varaskattstjóra Skattstofu Reykjavíkur er laus til umsóknar. Varaskattstjóri er staðgengill skattstjóra og gegnir jafnframt störfum skrifstofustjóra. Umsóknarfrestur er til 9. júlí. 1978. Fjármálaráðuneytið, 15. júní 1978 írland: FRIÐARHREYFINGIN STAÐFESTIR SAGNIR UM PYNTINGAR HERS Betty Williams, önnur þeirra kvenna er tóku við friðarverðlaunum Nobels i fyrra fyrir forustu þeirra i friðarbaráttu á írlandi, hefur lýst því yfir að ásakanir Amnesty International um að pyntingar fari fram i norður-ískum fangelsum og lögreglustöðvum séu réttar. Segist Betty Williams sjálf hafa tekið þátt i rannsóknum á pyntingum og sitji meðal annars i nefnd með ýmsum þeirra sem orðið hafi fyrir slikri meðferð á und- anförnum árum. Hún vill ekki gefa ná- kvæmar upplýsingar um málið á þessu stigi vegna ótta við að yfirvöld geti þá lagt stein i götu starfsins. Boðaði hún opinbera skýrslu nefndarinnar eftir um það bil einn mánuð. Nóbelsverðlaunahafinn sagði að opinber rannsókn á aðförum hers og lög- reglu yrði að fara fram því allt of lenei hefði yfirvöldum leyfzt að reyna að fela verknaðina. Friðarhreyfing sú sem hún hefur staðið fyrir fordæmir að hennar sögn allt ofbeldi, hryðjuverk og pyntingar hvort sem það er framkvæmt af skæruliðum. hryðjuverkamönnum. lögreglu eða her. Þeir sem segjast vilja berjast fyrir virðingu fyrir lögum og reglu eigi ekki að leggjast svo lágt að gripa til ofbeldis og pyntinga. Kristnir hægrimcnn I Líbanon hafa tekið við af sveitum ísraelsmanna i Suður-Libanon í stað sveita Sameinuðu þjóðanna. Var þetta samkvæmt tilmælum ísraelsmanna, sem ekki treysta gæzlusveitunum til að hafa nægilegan hemil á skæruliðum Palestinuaraba. CARTER FORSETI TIL PANAMA Jimmy Carter bandarikjaforseti kemur i dag til Panama en þar hyggst hann ræða við Torrijos forseta landsins í tilefni af gildistöku samnings landanna, þar sem gert er ráð fyrir að Panama fái full yfirráð yfir skipaskurðinum frá og meðárinu 2000. Talsmenn Hvita hússins sögðu að ekki hefði komið til tals að fresta ferðinni vegna óeirða i Panama undan- farinn sólarhring. Hefur verið tilkynnt að nokkrir hafi látizt i átökum milli stúdenta og herlögreglu. Eru stúdentar mjög óánægðir með samkomuiagið um Panamaskurð. Carter forseti var gagnrýndur mjög af andstæðingum sínum á þingingu i Washington og fleirum fyrir sam- komulagið og voru á tímabili slæmar horfur á að það fengist staðfest. REUTER Sviss: Burt með brjóstin Samtök i Sviss berjast nú hatrammri baráttu til að koma i veg fyrir að konur fái óáreittar að ganga berbrjósta við sundstaði i Bern. Samtökin, sem nefna sig Baráttuhreyfinguna fyrir mann- sæmandi böðunaraðstæðum hafa lýst yfir mikilli óánægju með slælegar undirtektir opinberra aðila með hið hneykslanlega ástand sem staðið hafi við sund- staði síðan i vor. Ætlunin er að safna i það minnsta tólf þúsund undirskriftum um að allsherjaratkvæðagreiðsla fari fram um málið. Fremur matvæli en morðvopnin Alþjóðamatvælaráðið, sem er stofnun á vegum Sameinuðu þjóðanna, skoraði i gær á þjóðir heims að verja þeim fjármunum sem spöruðust i vopnabúnaði til aðstoðar við vanþróuð riki. Sérstaklega var undirstrikuð nauðsyn þess að bæta úr fæðuskorti í heiminum. Þing ráðsins situr nú að störfum i Mexico og eru þar fulltrúar þrjátiu og sex rikja. Frönsku fulltrúarnir lögðu fram tillögu þar sem gert var ráð fyrir að skarpar væri til orða tekið og skorað á ríkin heims að draga úr fjárframlögum til hernaðarþarfa og verja heldur til þróunarhjálpar. Tókst ekki að fá samþykkt hennar vegna andstöðu sovézku fulltrúanna. Hlutverk matvælaráðsins er að kanna og reyna að finna leiðir til að auka framfarir og sérstaklega bæta matvælaástand í vanþróuðum ríkjum. Á fundinum í Mexico hefur einnig verið skorað á hveitiframleiðsluriki að leggja árlega fram í það minnsta tiu milljónir tonna af heimsuppskerunni til hjálpar þurfandi svæðum heimsins.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.