Dagblaðið - 16.06.1978, Síða 12

Dagblaðið - 16.06.1978, Síða 12
12 fijálst, úháð dagblað Útgefandi Dagblaðið hf. Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjótfsson. Rrtstjóri: Jónas Kristjánsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfultriji: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjóman Jóhannos Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aöstoöarfróttastjórar: Adi Steinarsson og Ómar Valdimarsson, Handrit: Ásgrimur Pálsson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur Sigurðs- son, Guðmundur Magnússon, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, Ragnar Lár., Ragnhoiður Kristjánsdóttir. Hönnun: Guöjón H. Pálsson. Ljósmyndir: Ari Kristinsson Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurösson, Sveinn Þormóðsson. Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóMsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Drerfing- arstjóri: Már E.M. Halldórsson. Ritstjóm Síðumúla 12. Afgreiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverhóiti 11k Aðalsími blaðsins er 27022 (10 línur). Áskrift 2000 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 100 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaöiö hf. Síðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf. Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 10. Sjálfstæðismál þjóðarinnar Landsmenn halda þjóðhátíð að þessu sinni í lokasennu kosningabaráttu og skugga nokkurs efnahagsvanda. A þeim degi ættu menn að hrista af sér pirring harðvítugra kosningaátaka og leiða hug- ann að því, hvernig sjálfstæði þjóðarinnar stendur í raun. Þar eru skýrari hættumerki en oft áður. í umræðu síðustu vikna hefur komið fram, að stjórn- málamennirnir eru í reynd sammála um ýmis slík hættumerki, hvar í flokki sem þeir standa og hvort sem telja má ábyrgð þeirra á vexti vandans mikla eða litla. Deilurnar standa um, hverjum þetta eða hitt sé að kenna og hvað eigi að gera til úrbóta. Efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar er í nokkurri hættu. Við kunnum að verða sífellt háðari erlendum lánardrottnum, ef ekki verður kúvending. Erlendar skuldir nálgast að vera sjö hundruð þúsund krónur á hvern landsmanr,, þrjár og hálf milljón fyrir hverja fimm manna fjölskyldu. Sjöunda hver króna, sem þjóðin aflar með útflutningi afurða sinna, fer nú þegar til að greiða vexti og afborganir af erlendum lánum. Löngu áður en gjaldþrot vofði yfir, mundu erlendir lánardrottnar seilast til stóraukinna áhrifa. Þetta hefur komið fyrir aðrar þjóðir. Jafnvel alþjóðlegar lána- stofnanir taka að gefa ríkisstjórnum ákveðna forskrift. Við slíkt mundi sjálfsforræði þjóðarinnar að sjálfsögðu skerðast til muna. Við þessa hættu bætast afleiðingar langvarandi óðaverðbólgu. Þetta viðurkenna allir stjórnmála- foringjarnir. Sjávarútvegsráðherra hitti til dæmis naglann á höfuðið, þegar hann sagði í sjónvarpi, að við gætum ekki átt viðskipti við aðrar þjóðir, ef verðbólgan hér væri 50—60 af hundraði. Engin sérstök ástæða er til að búast við, að hratt dragi úr verðbólgu á næstunni. Þessi hákarl verður vafalaust lengi enn í kjölfari þjóðar- skútunnar. Óðaverðbólgan ógnar til langframa stöðu íslendinga meðal þjóða. Undirstaða velmegunar á íslandi riðar vegna ofveiði þorskstofnsins. Stjórnmálamennirnir hafa þar sofið á verðinum. Tvímælalaust er fiskiskipastóll landsmanna orðinn of stór miðað við þá einbeitingu að þorskinum, sem verið hefur. Illa hefur gengið að beina honum að öðrum veiðum. Á þjóðhátíð ættu landsmenn að hugleiða þessa miklu hættu og setja sér að þrýsta að stjórnmála- mönnunum um raunsæjar aðgerðir. Við getum fagnað sigri í meginorrustum landhelgismálsins, þótt á ýmsu hafi oltið, meðan hann var knúinn fram. Þar réði al- menningsálitið úrslitum. En hið raunverulega landhelgis- mál verður, hvernig okkur tekst að fara með sigurinn. Jafnframt ættu menn að hugleiða, að öryggi íslands verður ekki fremur en annarra / þjóða tryggt með einföldum yfirlýsingum um hlutleysi í átökum stórvelda. Stórveldi okkar tíma munu eins og stórveldi allra tíma seilast eftir áhrifum og landsvæðum eftir megni. íslendingar ættu að halda áfram samstarfi við vestræn ríki en gæta þess jafnframt að leggjast ekki hundflatir undir vald þeirra. Mál þjóðarinnar eru hins vegar ekki í neinum þeim ógöngum, sem ekki verður komizt úr við sæmilega stjórn. Dagblaðið óskar landsmönnum gleðilegrar bjóðhátíðar. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR I6.JÚNÍ 1978. Sovétríkin: Fyrsta konansem vaið skipstjóri lætur af störfum Helzta tómstundagaman Önnu Sjetininu er kvikmyndun og hefur hún tekið ótal kvikmyndir á feröurn sínum sem skip- stjóri víðsvegar um heiminn. m Anna Sjetinina hefur siglt skipinu ..Jan Jores" 17 sinnum vestur yfir At- lantshaf. „Þessi rússneska kona stjórn- ar skipinu betur en margir amerískir karlmenn” — sögðu hafnsögumenn- irnir i bandarísku borgunum sem hún kom til. Enn einn þáttur i ævisögu þessa sovéska sæfara er sigling um- hverfis jörðin á skipinu „Ohotsk”. en sú ferð tók 6 mánuði og lauk i sovésku hafnarborginni Nahodkaárið 1968. En Sjetinina skipstjóri á ekki aðeins þúsundir sjómilna að baki. Á stríðsár unum lauk hún námi sem skipaverk- fræðingur við háskóla i Leningrad. Hún hefur einnig stundað kennslu- störf og veitt hundruðum ungra stýri- manna tilsögn. auk þess sem hún hefur haldið áfram sínu námi og hlotið kandidatsgráðu i vísindum. Þá hefur hún skrifað nokkuð um skipstjórn. Kennslustörfin hefur hún stundað bæði i Leningrad og Vladivostok. í sumarfrium hefur hún tekið að sér að stjórna skólaskipum — og einu sinni fór hún ásamt nemendum sínum i sigl- ingu umhverfis jörðina. Leiðin lá frá Vladivostok til Svartahafs, þaðan til Kúbu, Japan og aftur heim til Vladi- vostok. Anna Sjetinina á sér áhugamál sem ef til vill er ekki algengt meðal skip- stjóra: hún er kvikmyndagerðarmað- ur. Hún hefur gert ótal kvikmyndir um ferðir sinar, fólkið sem hún hefur unnið með og skipin sem hún hefur siglt. Þessar myndir eru oft sýndar við mikla hrifningu um borð. Anna hefur lika gert kvikmyndir um náttúruna, voriðog Vladivostok. Þessi merka kona varð sjötug fyrir skömmu. Hún er nú hætt siglingum, en aðrar sovéskar konur halda merki hennar á lofti og sigla stórum skipum um heimsins höf. Anna Sjetinina er skipstjóri í sovézku langferðaskipi. Ævi hennaret um margt óvenjuleg. Hún ólst upp skógunum við Ússúrí-fljót, þar sem faðir hennar var skógarhöggsmaður Á morgnana sá hún oft spor eftii tigrisdýr rétt við húsið þar sem þai áttu heima. Rándýr voru algengir gestir í garðinum þeirra. Seinna fór hún á sjóinn. Fyrst vai hún háseti á farþegaskipinu „Simfero pol” og vann siðan ýmisleg störf á tog urum og flutningaskipum. Draumur inn um að verða skipstjóri á langferða skipum kom því til leiðar að hún hól nám við sjómannaskólann í Vladivo stok. Því námi lauk hún með glæsi brag og starfaði síðan sem aðstoðar skipstjóri á Norðurhöfum. Árið 1935. þegar hún var 27 ára, fór hún til Ham- borgar og tók þar við stjórn skipsins „Tsjavisja” sem hún sigldi fyrst til Odessu við Svartahaf og síðan til Kamtsjatka i austurhéruðunum. Þannig hófst ferill hennar sem fyrsta kvenskipstj. í Sovétríkjunum Hún sigldi til hafna i Asíu, Evrópu. Ameríku og Ástraliu, og á stríðsárun- um stjómaði hún flutningaskipum sem sigldu með vörur til vígvallanna. Á skipinu „Saule” flutti hún um Eystrasalt hermenn, vopn, matvörur og kol. Oftar en einu sinni var skotið á skipið. Sumarið 1941 varð skipið fyrir grimmdarlegri sprengjuárás við eyna Gotland og skemmdist mikið, stýrisút- búnaður þess var eyðilagður og hluti áhafnarinnar fórst. Á átta sólarhring- um var gert við skipið þrátt fyrir stöð- ugar loftárásir Þjóðverja. og að við- gerð lokinni sigldi „Saule” til Lenin- grad.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.