Dagblaðið - 16.06.1978, Side 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978.
—
13
N
Frá rannsóknarblada-
mennsku til Abingis
Þegar kosningar fara í hönd þá
breytir samfélagið töluvert um mynd.
Enginn vill segja það eða gera, sem
með fjarlægustu rökum má kalla að
slá undir beltisstað. Pólitiskar ávirð-
ingar, sem kannske hafa legið t loftinu
meira og minna allt kjörtimabilið, eru
ekki rifjaðar upp. Slikar umræður hafa
áður farið fram i smáatriðum.
Upprifjun yrði aldrei nema um útlinur
slikra mála. Og hætt er við að slikar
umræður yrðu um of upphrópana-
kenndar og á yfirborði. Fólk hcfur
þcgar myndað sér skoðanir á réttu og’
röngu. Upprifjun þjónar þvi efalitið
litlurrt tilgangi.
Það stendur heldur ekki til að fara
nú að rifja upp þau mál. sem rann-
sóknarblaðamennskan svokallaða
hefur fengizt við undanfarin ár. Þó
verður aö segjast að það kom mér svo-
litiðá óvart, að eftir að dagblaðið Tim-
inn (og raunar Mánudagsblaðið likal
hefur itrekað haldið þvi fram á þriðja
ár, að undirritaöur hafi, ásamt með
starfsbræðrum sinum. haldið uppi
svivirðilegustu rógsherferð lslandssög-
unnar á hendur tilteknum stjórnmála-
flokki, svo að úr blaöamanni hefur
orðið á máli blaösins einhver blanda af
Jónasi frá Hriflu og Kasavubu frá
Kongo, þá skyldi ekki vera minnzt á
neitt slíkt, þegar við Kjartan Jóhanns-
son frá Alþýðuflokki sátum fyrir
svörum i sjónvarpi fyrir Alþýðuflokk á
þriðjudagskvöld. Við vorum spurðir
um aðskiljanlega hluti, meðal annars
um frumvarp um grænfóður, en ekki
orð um hinar svivirðilegu árásir og
upplognu aðdróttanir. Spyrill
Framsóknarflokksins var að visu
Magnús Bjarnfreðsson, sem ekki telst
til hinna dæmigerðu Tímamanna, en
samt, þetta var undarlegt. Og sannar-
lega óvænt.
Haukur
Mér hafði verið sagt, að nú fyrir
kosningar ætti að hefjast i Tímanum
hin endanlega tangarsókn, sem sýndi
fram á það svart á hvitu, að rann-
sóknarblaðamennskan hefði aldrei
verið annað en svivirðilegt og upplogið
samsæri. Þessu hefur reyndar verið
haldið fram i þrjú ár, en nú áttu sann-
anirnar einnig að koma fram. Þetta
sagði mér gamall og Ijúfur fram-
sóknarmaður. En viti menn. Ekkert
gerist. Þeir senda eitt og eitt lesenda-
bréf undir dulnefni. Það er allt og
sumt.
Dómskerfið, sem getur ekki komið
upp um fjársvikamálin, kom upp um
Hauk Guðmundsson. Hann hafði
reynzt fara ólöglega að, þegar hann
handtók Guðbjart Pálsson, leigubil-
stjóra, fyrir hálfu öðru ári. Þetta vildu
einhverjir meina, að breytti einhverju.
Það var og er auðvitaö rangt. Enginn
hefur varið ólöglegar aðgerðir, hvorki
lögreglu eða annarra. Þaö fær aldrei
staðizt. Hitt er annað mál. að hér í
Dagblaðinu var skrifuð kjallaragrein
ekki alls fyrir löngu. þar sem sýnt vár,
að mál Guðbjarts Pálssonar hefur
dummað i dómskerfinu hátt á annað
ár, án þess að nokkuö gerist. Fjármála-
umsvif hans námu á fimm ára timabili
nær þremur milljörðum króna á
núgildandi verðlagi. Þau tengjast
bönkum, ríkisstofnunum, fjármála
mönnum. Samt gerist ekkert; málið
biður og biður. Það er augljóst að
umræðan um dómsmál verðúr að
halda áfram að kosningum loknum.
uppskurður og umbylting á dóms-
kerfinu verður að fara fram. Hverjum
ernúveriðaðhlífa?Oghvers vegna?
Hvað hefur áunnizt?
Snar þáttur rannsóknarblaða-
mennsku, hér eins og annars staðar,
hefur fjallað um notkun og misnotkun
opinbers fjár. Rannsóknarblaða-
mennska hvílir hins vegar alltaf á
þeirri meginforsendu að rétt sé farið
með staðreyndir. Ein alvarleg mistök
að þvi er tekur til staðreynda verða
V.
þess valdandi að trúnaðarbrestur
verður milli höfundar og lesenda.
Hvað svo sem Timinn segir og
Magnús Bjamfreðsson segir ekki. þá
hafa slik mistök ekki veriðgerð.
Það hefur verið fjallað um dóms-
kerfið. Með dæmum hefur verið sýnt
fram á, að það er hægt að misnota
valdið kirfilega til þess að hygla vinum
sinum. Og slæleg frammistaða dóms-
kerfisins við að fást við fjármálaafbrot
Kjallari á
föstudegi
VilmundurGytfason
i stærri stil hefur hjálpað þeim. sem
sizt skyldi. Þessu verður að breyta.
Það hefur verið fjallað um banka-
kerfið. Með dæmum hefur verið sýnt
fram á, hvernig bankaleyndin leiðir til
misnotkunar, hvernig sumir fá há lí.n
og aðrir ekki. Hvernig ranglætið
grefur um sig. Þessu verður að breyta.
Það hefur verið fjallað um rlkis-
stofnanir. Með dæmum hefur verið
sýnt fram á hvernig ósanngjörn for-
réttindi verða til, til dæmis bilakaup
rikisforstjóra. Þessu verðuraðbreyta.
Það hefur verið fjallað um Alþingi.
Með dæmum hefur verið sýnt,
hvernig Alþingi þykist vera fyrir utan
lög og rétt og til dæmis þverbrýtur
skattalög. Þessu verður að breyta.
Það hefur verið fjallað um Kröfiu.
Með dæmum hefur verið sýnt fram á.
hvernig fjármálaóreiöa (og ósannindi)
af öllu tagi hafa einkennt það fyrir-
tæki i smáu og stóru. Þcssu verður að
breyta.
Það hefur verið fjallað um svo-
kallaða greiðasemi ráðamanna. Með
dæmum hefur verið sýnt fram á;
hvernig aðstaðan hefur verið mis-
notuð fyrir skjólstæðinga. þannig að
troðið hefur verið jafnvcl á lögum.
Þessu verður að breyta.
Það hefur verið fjallað um
einokunarfyrirtæki. Með dæmum
hefur verið sýnt fram á. að einokunar-
aðstaðan er óeðlileg og þess vegna
einokunargróðinn of mikill. Þessu
verðuraðbreyta.
Þau almennu mál. sem hér eru
talin. eru aðeins brot af þvi, sem rætt
hefur verið og ritað. Það hefur verið
farið rétt með staðreyndir. Annars
hefði þetta ekki verið hægt. Samt er
það svo að nærfellt allir sem ábyrgð
hafa borið hafa farið i heiftúðuga
vörn. Fyrir tveimur árum kallaði
dómsntálaráðherra blaðamann raunar
þúfutittling i vörn sinni, og fyrir
nokkru kallaði formaöur Kröflu-
nefndar blaðamann mölflugu. Þetta
segir svo sem nógu mikið um Klúbb og
Kröflu. Skylt er samt að geta þess, að
Einar Ágústsson, utanrikisráðherra,
hefur svarað fyrir sig i annarri tón-
tegund og málefnalegri. Það virðist
stundum vera óravegur frá Timanum
til utanrikisráðherra.
En af hverju hefur þetta ástand
skapazt? Það eru eflaust samverkandi
ásatæður. Árum saman höfðum við
búið viö flokksklafa og flokksræði.
Stjórnmálaflokkarnir drottnuðu á
öllum sviðum, einnig fjölmiðlun. Þeir
hafa i aldarfjórðung setið ágreinings:
laust i bankaráðum. Svo bættist við
óðaverðbólga, neikvæðír vextir.
skömmtun lánsfjármagns. Þelta
ástand leiðir alls staðar til vandræðá-
mála eins og þeirra sem hér hefur
verið almennt getið. Þetta almenna
ástand hlýtur aö vera meginskýringin, .
Hvemigverður
haldið áfram?
Það stóð aldrei lil. að þessi urnræða
beindist að einunt stjómmálaflokki
fremur en öðrum. Einhvern veginn
þróaðist það sanit svo. bæði vegna
þess að málin voru mörg og Ijót. og
eins vegna þess að Timinn reyndist
vera forneskjulegasta dagblað. scm
hægt var að hugsa sér. Skrilsleg vörn
þeirra hlaut að vckja tortryggni. Ogsú
tortryggni átti séraugljóslcga ástæður.
En það skiptir ckki máii icngur. Og
alls ekki vegna þess. að mennirnir
virðast hafa gefizt upp.
En það sem skiptir máli .er þetta:
Hvernig verður haldið áfram?
Hvernig náum við árangri? Blaða-
ntennska óháð stjórnmálaflokkum er
ein af meginstoðum skoðanamynd-
unar og þess vegna lýðræðis. Nýjunt
mönnum getur fylgt ný tegund spill-
ingar. Framrás mannlifsins heldur
áfram. En á löggjafanum sjálfunt eru
verkefnin óendanleg. Þau ntál. scm að
framan voru talin. krcfjasl öll frekari
athugunar, og umhverfi þeirra krefst
untbóta Alþingi vcrður að skapa
aðstöðu til þess að veita aðhald og
hafaeftirlit.
I sjálfu sér hefur lítið annað verið
gert en að sýna innviöi santfélagsins
og vekja athygli á rangindunt og spill-
ingu. Nú ætti tími umbóta að fara i
hönd. Það er vilji hins siðaða nteiri-
hluta i samfélaginu.
Hver kýs hvem?
Þetta kjörtímabil hefur einkennst af
umræðum um misvægi atkvæða eftir
búsetu og ýmsa aðra annmarka stjórn-
skipunar- og kosningalaga.
Lengst af trúðu þingmenn þvi. að sú
stjórnarskrárnefnd, sem starfað hefur
siðan 1972, mundi á þvi þingi sem nú
er nýlokið, bera fram frumvarp til úr-
bóta á þeim helstu vanköntum, sem
eru á núverandi fyrirkomulagi.
Þegar ljóst var, að svo mundi ekki
verða, tóku einstakir þingmenn sig til
og reyndi að ná fram umbótum.
Ég vil hér með fáum orðum gera að
umtalsefni frumvarp það, er ég flutti á
síðasta þingi um skiptingu Reykjanes-
kjördæmis, fjölgun þingmanna og
fækkun uppbótarþingsæta.
Það fólst I frumvarpinu, að núver-
andi Reykjaneskjördæmi yrði skipt í
tvö kjördæmi, Reykjaneskjördæmi,
sem næði yfir byggðarlögin Hafnar-
fjörð. Gullbringusýslu. Grindavíkur
bæ. Njarðvikurbæ og Keflavik. enn-
fremur Suðvesturlandskjördæmi er
hefði innan sinna vébanda Kópavog.
Kjallarinn
OddurÓlafsson
Garðabæ. Seltjarnames og Kjósar-
sýslu. Kjördæmin skyldu hafa fimm
kjörna þingmenn hvort. Ennfremur
fólst það i frumvarpinu að kjömunt
þingmönnum Reykjavíkur skyldi
fjölga úr 12 i 14. Við þetta mundi
kjörnum þingmönnum fjölga úr 49 i
56, uppbótarþingmönnum fækka úr
11 i 4, en heildartala þingmanna verða
óbreytt.
Nú er það sannast mála. að við
þessa breytingu mundi ekki nást fullur
jöfnuður i vægi atkvæða. en þó mundi
munurinn á vægi atkvæða rnilli
Reykjavikur og Reykjaness annars
vegar og fámennu kjördæmanna hins
vegarjafnast verulega.
Það merkilega er. að þrátt fyrir
skiptingu núverandi Reykjaneskjör-
dæmis i tvö kjördæmi, sem hvort helði
jafnmarga kjörna þingmenn og núver
andi Reykjaneskjördæmi hefur. þá
yrðu þetta þó fjölmenþustu 5 þing-
manna kjördæmin i landinu.
Hvað mundi fleira vinnast en fjölg-
un þingmanna?
Við það, að þingmönnum Reykja-
víkur yrði fjölgað úr 12 i 14. mundu
möguleikar smáflokka vaxa til þess
Já, hver kýs hvern? — Enginn veit
hvað hún kaus, þessi unga stúlka, utan
kjörstaðar i Reykjavík. DB-mvnd
R.Th.Sig.
að koma frambjóðanda á þing. Þannig
er nærri öruggl. að flokkur. sem fengi
5—7% atkvæða i Reykjavík, fengi
þingsæti. Við fækkun uppbótarþing-
sæta gætu kjósendur frekar gert sér
grcin fyrir þvi hvaða frambjóðendum
þeir væru aðgefa atkvæði sitt.
Það er vissulega vaxandi áhugi fyrir
þvi. að kjósandinn geti gert sér sem
fyllsta grein fyrir þvi hvaða einstakl-
ingi hann er að hjálpa til við að konta
inn á Alþingi. Hinn hlutfallsíega mikli
l'jöldi uppbótarsæta getur gert þetta
ntjög erfitt ef nienn Ijá atkvæði sitt
þeim fiokkum. sem byggja þing-
mannafjölda sinn aðallega á uppbótar-
sætunum.
Eflir núverandi sveitarstjórnarkosn-
ingar er það til dæmis augljóst. aö A
og G-listinn i Reykjaneskjördæmi fá
kjördæmakosinn þingmann hvor.
Hverfandi möguleikar eru hins vegar á
þvi. að þeir fái tvo kjörna. en fullvist
að uppbótarmaður verður af þeirn list
um á þingi. Þar eð kosningalög kveða
á um það, að hver flokkur geli aðeins
fengiö einn uppbótarmann i hvcrju
kjördæmi. þá munu umframatkvæðin
ekki koma þriðja manni þessara lista i
Reykjaneskjördæmi að gagni.
Nýtast umframatkvæðin þá ekki?
Ójú. aldeilis. Þau nýtast til þess að
koma dreifbýlisframbjóðanda inn á
Alþingi. hver það verður er aftur á
móti ómögulegt aðgiska á.
Hitt má af reynslunni ráða. að
þarna verði um að ræða sérstaka
byggðastefnuaðila. sem hafa það að
leiðarljósi að þjarma þannig að búsetu
skilyrðum i Reykjaneskjördæmi. að
svæðið verði fráflutningssvæði eins og
þeir orða það.
Þetta hefur kontið mjög skýrt l'ram
nú upp á siðkastið. þar sem sérstakrar
tregðu hefur gætt varðandi l'lest þau
mál. er varða atvinnuöryggi á Reykja
nesi. Leiðrétting og breyting á ýmsum
atriðum stjórnskipunar- og kosninga
laga er þvi ibúum Reykjaneskjördæm
is mikil nauðsyn. ekki aðeinsTjölgun
þingmanna kjördæmisins. heldyreinn-
ig l'ækkun uppbótarþingsæta. þannig
að kjósendur viti nokkurn veginn
hvaða einstaklingum þeir eru að Ijá at-
kvæði sitt.
Oddur Ólafsson
alþingismaður.