Dagblaðið - 16.06.1978, Side 18
18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16.JÚNÍ 1978.
G
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Núrignirí
Argentínu
Úrhellisrigning helltist yfir Argentínu í
Kær o(> nótt — mest i Buenos Aires og
Rosario — og þar skolaðist burt mesta
spennan eftir fyrstu leikina í milliriðiunum.
Kitt gott hafði þó rigningin i fór með sér.
l>okan, sem legið hefur yfir landinu undan-
farna daga, hvarf. Allt komst á fleygiferð á
flugvöllum landsins.
Hátíðahöld vegna sigurs Argentinu á
Póllandi féllu loks niður — en fram-
kvæmdanefnd HM hefur áhyggjur ef
mikið rignir því vellirnir sumir hverjir eru
orðnir slæmir og þola illa mikla rigningu.
Spáð er þó g(>ðu veðri um hclgina, þegar
keppnin i milliriðlunum lieldur áfrain.
Skotareru
komnir heim
Skozku HM-leikmennirnir, sem voru
kvaddir með svo mikilli viðhöfn á
Hunipdcn Park áður en þeir fóru til
Argentfnu, komu heim í gær. 40 manns
tóku á móti þcim, þegar flugvél þeirra lenli
á fiugvellinum í Glasgow.
Leikmennirnir voru strax drifnir inn í bíl
og þeir töluðu ekki við blaðamenn frckar
en þjálfari þeirra Ally McLeod. Ilann
sagði aðeins. „Kg hef alls ekkert að
segja”. Kyrir keppnina sagði hann oft og
hátt, að Skotar vrðu heimsmeistarar.
Meöal þeirra, sem voru á flugvellinum,
og hiðu eftir knattspyrnumönnunum, voru
tvær ungar stúlkur, hcldur daprar á svip.
Þær höfðu tekið sér frí úr skólanum og
önnur þeirra sagði. „Kennarinn okkar
vissi að við ætluðum liingað. Ilann hlö að
okkur og sagði, að við hlytum að vera eitt-
hvað skrítnar”.
Kempes—
hetja í
Argentínu
Stjörnurnar eru farnar að skína á
knattspyrnuhimninum — en engin þó
eins í Argentfnu og Mario Kempes, fram-
herjinn snjalli i liði Argentfnu. Kempes,
hávaxinn með flaksandi svart hár, er
beinlinis þjóðhetja i Argentfnu eftir
mörkin tvö, sem hann skoraði gegn Pól-
verjum.
Hann er 23ja ára — útlagi, sem kom
aftur heim. Fyrir keppnina hafði Menotti
þjálfari tilkynnt, að hann myndi ekki nota
neina leikmenn. sem lékju erlendis —en
hann komst fljótt að því, að hann gat ekki
icrið án Kempes.
Sem strákur lék Kempes með liði í Bell
Ville, smáþorpi í Argentfnu, þegar Rosario
uppgötvaði hann. 19 ára hóf hann að leika
með þvi liði — og komst í HM liðið 1974.
Hann var markahæstur í Argentínu 1974.
Skoraði 29 mörk og 35 árið eftir. Frægð
hans barst til Kvrópu. Valencia á Spáni
kevpti hann á .60 milljónir kr. islenzkar
— Rosario hafði ekki efni á því að neita.
Kcmpcs átti ekki í erfiðleikum að sam-
lagast knattspyrnunni á Spáni og liann var
markahæstur á Spáni á síðasta leiktímabiii
með 24 mörk — og stefnir nú á að verða
einn bezti framherji heims.
Heimsmet
Yuri Vardanan, Sovétríkjunum, setti nýtt
heimsmet á Kvrópumeistaramótinu í
lyftingum í Havirov í Tékkóslóvakiu í gær.
Hann snaraði 170.5 kg. í léttþungavigt
(82.5 kg. flokki). Það er hálfu kílöi meira
en eldra heimsmetið, sem Búlgarinn
Blagojev, átti.
Fimleikar eru fögur iþrótt. DB-mynd Ragnar Th.
Norskirþjálfararí
fimleikum á íslandi
— héldu námskeið í alþjóðaæfingum
Islenzku fimleikafólki bárust góðir
gestir nýlega er norsku hjónin Sven Krik
og Anna Lisa Liljan héldu hér fimlcika-
námskeið á vegum Gerplu, Bjarkar og
Ármanns. Þau hjónin eru vel þekkt í
Noregi fyrir störf sín og hafa þjálfað
landslið Noregs, en nú þjálfa þau margt
af bezta fimlcikafólki Noregs.
Þau Anna Lisa og Sven Erik voru
ánægð með framfarir þær er orðið hafa i
islen/.kum fimleikum þau fimm ár sem
l'imleikara hafa verið slundaðir sem
keppnisíþrótt. Námskeið þau er þau
héldu voru ekki eflir fimleikastiganum
heldur alþjóðaæfingum þcim er keppt er
iá HM ogölympiuleikum.
Þau hjón hafa nú haidið utan aftur,
eftir námskeiðin sent heppnuðust ákaf-
lega vel. H.Halls.
Staðan í 1 1. deild eftir leik Vals og
Þróttar I gærkvöld er nú þannig.
Akranes 6 5 10 19—5 11
Valur 5 5 0 0 13—4 10
Frani 6 4 0 2 10—7 8
ÍBV 5 3 11 9—6 7
Þróttur 6 13 2 7—9 5
KA 5 12 2 5-6 4
Víkingur 5 2 0 3 9—12 4
Kefiavík 6 12 3 9—10 4
FH 6 0 2 4 6-17 2
Breiðahlik 6 0 15 3—14 1
Anna l.isa og Sven F.rik leiðbeina ungu fimlcikafólki. DB-mynd Ragnar 'fh.
Heiinsmethafinn í 1500 nt. hlaupi,
Filbert Bayi, sigraði á þeirri vegalengd
eftir mikla keppni við Finnann Ari
Paunonen á alþjóðamóti í Helsinki i
gær. Bayi hljóp á 3:39.50. Paunonen á
3:39.70. Jim Crawford, USA, varð þriðji
á 4:43.2 mín.
í kúluvarpi sigraðt Finninn Staalberg
örugglega. Varpaði 20.77 m. Al Feuer-
bach, USA, varð annar með 20.59 m. í
kringlukasti sigraði Juhani Toumola.
Kastaði 59.84 m. og Raimo Vento.
Finnlandi. varð annar nteð 57.38 m.
Ricky Graybehl, USA. sigraði i 400 m
grindahlaupi á 50.73 sek. Markku
Taskinen, Finnlandi. i 800 m. hlaupi á
1:50.65 ntin en Mike Manke. USA. varð
annar á 1:50.94 ntín. í 200 m. sigraði
Clancy Edwards. USA, á 21.05 sek. Bob
Polland. USA. stökk 5.10 m i stangar-
stökki. Penti Sinersaari. Finnlandi.
kastaði spjóti 81.86 m.
Keppni var skemmtileg i 5000 m
hlaupinu. Martti Vaino. Finnlandi.
sigraði á 13:30.5 min. Suleinman
Nyambui, Tanzaniu. varð annar á
13:31.0 min. Jeff Wells. USA, þriðji á
sama tima. Olympiumeistarinn Lasse
Viren. Finnlandi. varð fjórði á 13:33.8
ntin. og Craig Virgin. USA fimmti. á
13:34.1 ntin.
íHelsinki
Valur hefui
ekki tapað
Sigraði Þrótt 1-0 á Laugardalsve
voru langt f rá sínu bez
Valsmenn lentu í erfiðleikum með hið
efnilega lið Þróttar I I. deildinni í gær-
kvöldi á hálum Laugardalsvellinum. Það
var ekki fyrr en tíu minútur voru til
ieiksloka, að Valsmönnum tókst loks að
koma knettinum í mark Þróttar. Albert
Guðmundsson lék þá með knöttinn upp
að endamörkum og gaf knöttinn vel fyrir
markið. Þar var Ingi Björn Albertsson á
réttum stað eins og honum einum cr
lagið. Skallaði örugglega í mark. Sigur-
mark Vals og eina mark leiksins. Það
var raunverulega í eina skiptið, sem Ingi
Björn sást í leiknum — en mark hans
varð til þess, að áhorfendur litu framhjá
öðru hjá honum í leiknum.
Þar brást honum bogalistinn. Spyrnti
knettinum beint i Sigurð markvörð
Haraldsson. Leikurinn var jafn —
en fátt sem gladdi augað. Bæði liðin
fengu allsæmileg tækifæri, sent voru
misnotuð.
Eftir því, sem á leikinn leið var þungi
sóknar Vals meiri og þegar loks Ingi
Björn skoraði uppskáru Valsmenn þann
sigur, sem þeir áttu skilið i leiknum.
Hins vegar fer ekki ntilli niála að þeir
verða að taka sig verulega á ætli þeir að
veita Akurnesingum keppni um íslands-
meistaratitilinn.
Hjá Val var Dýri Guðmundsson
bezti maður liðsins. Öruggur i vörn —
Valsliðið hefur verið í einhverri lægð
að undanförnu en það fór þó ekki milli
mála, að liðið var sterkari aðilinn i
leiknum gegn Þrótti.Einkumiseinnihálf-
leik — og þá mest, þegar liða tók á hálf-
leikinn. Hinir ungu leikmenn Þróttar
voru þá orðnir örþreyttir — auk þess
sem þeir urðu fyrir þvi áfalli. að Páll
Ólafsson. helzti ógnvaldur liðsins varð
að yfirgefa völlinn um miðjan hálf
leikinn. Lengi vel höfðu leikmenn
Þróttar verið fljótari á knöttinn en
Valsmenn — eða þar til úthaldið sagði
til sín.
Valur hefði þó með smáheppni átt að
geta náð góðri forustu strax í byrjun.
Guðmundur Þorbjömsson átti stangar
skot — og Albert misnotaði opið færi.
Guðmundur hefði getað skorað þrennu i
leiknum. Auk stangarskotsins átti hann
spyrnu ofan á þverslá og spyrnti yfir
autt markið rétt fyrir leikslok.
En eftir að Þróttarar kontust .yfir
taugaspenning upphafsminútnanna
héldu þeir vel sinum hlut lengi vel. Og
þcir fengu bezta tækifæri leiksins. Eftir
hroðaleg varnarmistök varnar Vals kom
Þorgeir Þorgeirsson frir að marki Vals.
Heil um
deild um
Heil umfcrö f I. deildinni í knatt-
spyrnu verður um helgina. Fyrsti
leikurinn á morgun, 17. júní en þá leika
Fram og Vlkingur á aðalleikvanginum i
Laugardal. Vegna þjóðhátiðarmótsins
hefst leikurinn ekki fyrr en kl. fimm.
Á sunnudag verða þrir leikir. íslands-
meistarar Akraness fá Keflvikinga i
heimsókn — og ættu þar að bæta enn
tveimur stigum i safn sitt. Leikurinn
hefst kl. 15.00. Klukkustund siðar hefst
leikur KA og ÍBV á Akureyri — og á
Laugardalsvelli leika Þróttur og
FH um kvöldið, eða kl. 20.00 Úrslit í
báðum þessum leikjum geta orðið
tvisýn.
Bayi sigraði