Dagblaðið - 16.06.1978, Síða 20
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978.
24
Deiltum
efnahags-
ráðstaf-
anirnar
DB FYLGIST MEÐ FRAMBJÓDENDUM í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI - EYSTRA
Eru stjómarflokkamir verri
eða betri en hinir?
Átti að gera þær ráðstafanir sem gerðar
voru i landinu í febi uar í efnahagsmálum? Og
var rétt að setja bráðabirgðalögin í mai? Um
þetta snúast deilur stjórnmálamannanna á
Norðurlandi eystra þessa dagana. Þeir hafa
haldið eina 13 fundi með kjósendum sínum á
hinum ýmsu stöðum þar sem þeir deila um
þessi atriði og nokkur önnur sem þeir telja
greinilega sjálfir að skipti ekki eins miklu máli
núna.
Stjórnarandstöðuflokkamir finna því sem
þeir kalla kaupránslög allt til foráttu en stjórn-
arflokkarnir segja aðekki hafi verið um annað
að ræða undir þeim kringumstæðum sem
ríkjandi voru á þeim tima sem lögin voru sett.
Auk þess hafi hinir flokkarnir gert mjög
svipaða hluti þegar þeir voru sjálfir i ríkis-
stjórn og farist því ekki að tala um.
Gengið út eftir
tölu Árna
Dagblaðiðbrásérá tvofundi í Norðurlands-
kjördæmi eystra. Þar bjóða fram fimm flokkar
og höfðu áður komið sér saman um fundar-
form, sem leyfði engar fyrirspurnir. Á fundun-
um á Grenivík og Ólafsfirði mættu fáir áheyr-
endur til að hlýða á stjórnmálakappana
deila, enda búa fáir á Grenivík og veður var
lítt til fyrirmyndar á Ólafsfirði, hvöss
sunnanátt og úrhellisrigning.
Undirtektir Grenvíkinga við ræðum stjórn-
málakappanna voru mjög kurteislegar en af
þeim var litið hægt að merkja um hverja
menn studdu, ámóta jafnt var klappað fyrir
öllum og engin frammiköll heyrðust. Á Ólafs-
firði var einnig kurteisin í algleymingi en það
mátti heyra að mest höfðu menn álit á Lárusi
Jónssyni (D—2) (tala i sviga þýðir sæti á lista)
enda er hann Ólafsfirðingur. Það vakti athygli
að eftir að Árni Gunnarsson (A—2) hafði
lokið ræðu í annarri umferð af þrem gekk stór
hópur út. Slikt hið sama gerðist eftir ræðu
Stefáns Jónssonar (G—1), en þó var hópurinn
ekki eins fjölmennur. Hvort menn komu bara
til þess að hlusta á þessa menn eða að þeir
voru svona óánægðir með ræðurnar að þeir
þoldu ekki meira skal ósagt látið.
Frá fundinum á Grenivik. Fátt mætti til að hlýða á kappræður stjórnmálamann-
anna. En kurteisin sát i fvrirrúmi. DB-m.vnd FAX.
Halldor Blöndal: „Viltu vera með
mérT’
Engin vinstri stjóm
án Framsóknar
Stjómmálamennirnir höfðu
greinilega mikinn áhuga á því hvernig
sú stjórn yrði sem tæki við eftir
kosningar. Halldór Blöndal (D—3)
spurði til dæmis Stefán Jónsson (G—
I) hreint út að því hvort hann gæti
hugsað sér að fara i stjórn með Sjálf-
stæðisflokknum. Stefán sagði að það
væri ei málið, heldur það hverjir gætu
sætt sig við að vinna eftir þeirri stefnu
sem Alþýðubandalagið hefði sett
fram. Sér sýndist ekki að sjálf-
stæðismenn væru til þess líklegir og
því væri svarið nei.
Framsóknarmenn lögðu á það rika
áherzlu að án þeirra yrði engin vinstri
stjórn mynduð. Margir af and-
stæðingum þeirra væru hins vegar á
þeirri skoðun að til þess að vinstri
stjórn yrði mynduð þyrfti Framsókn
að tapa það miklu að hún þyrði ekki i
stjóm með íhaldinu aftur, eins og það
varorðað.
Alþýðuflokkurinn kvað þá Fram-
Ingvar Glslason: „Engin vinstri stjórn
án okkar”
sóknarllokk og Sjálfstæðisflokk alls
óhæfa til að stjórna saman, þeir
kölluðu fram það versta hvor i öðrum.
Þorsteinn Jónatansson (F—I) spurði
hvort þetta þýddi að Alþýðu-
flokkurinn vildi stjórna með Sjálf-
stæðisflokknum og með því að kalla
fram það bezta i honum. Væri von á
nýrri viðreisnarstjórn. Við þessu væri
Stefán Jónsson „Nei, ég vil ekki vera
meö þér.”
ekki hægt að gefa svar, sögðu krat-
arnir, því allt réðist af úrslitum kosn-
inganna.
Fáir lögðu nokkra áherzlu á
Samtökin. Hinir flokkamir virtust
vera á þeirri skoðun. að án þeirra væri
hægt að komast. Þetta töldu samtaka-
menn ekki vera rétt og lögðu áherzlu á
að Samtökin gætu ráðið úrslitum um
stjórnarmyndun.
Sjá ekki björtu
hliðarnar
Ingvar Gíslason (B—I) lagði i
ræðum sinum ntikla áherzlu á að and-
stöðuflokkarnir hefðu beitt einhliða
áróðri i sambandi við laun og kjör al-
mennings. Þeir sæju ekki björtu
hliðarnar á hlutunum. Með bráða-
birgðalögunum hefði launajöfnuður
aukizt og afkoma manna i heild aldrei
verið eins góð og núna. Alþýðubanda-
lagið misnotaði hins vegar að-
stöðu sína i launþegasamtökunum
sjálfu sér til framdráttar og misbyði
þannig lýðræðinu. Framsóknar-
flokkurinn hefði átt mjög mikinn þátt í
þeim framförum sem gerðu þetta að
verkum.
Sárir og
volandi
Bragi Sigurjónsson (A— 1) sagði það
viturra manna háttu að leita or-
sakanna að því sem úrskeiðis hefði
farið. Slikt ættu menn að gera með
stjórnina sem gerðu sér ljós mistök sin
og nú kæmu meðlimir hennar hver af
öðrum sárir og volandi i ræðustól.
Lofað hefði verið fullri vinnu og það
efnt með því að hið opinbera fram-
kvæmdi mikið en algjörlega stefnu-
laust og sprengdi með því upp vinnu-
markaðinn. Erlendar skuldir hefðu
enda stóraukizt og væri sá skuldabaggi
sem biði barna er þau fæddust anzi
þungur. Rikisstjórnin hefði verið sér-
lega klaufsk í sambandi við launþega
og hefði orðið að rifta eigin
samningum og setja lög á lög ofan.
Alþýðuflokkurinn væri með ráð á
takteinum til þess að bæta úr
erfiðleikunum. Koma ætti á betra
þjóðfélagi þar sem jöfnuður ríkti og
frelsi einstaklingsins væri í heiðri haft.
Árni Gunnarsson „Viö erum vinir
bænda”
Gera á áætlanir um framkvæmdir
rikisins fyrirfram en hafa þó ávallt
svigrúm til breytinga vegna reynslu.
Samtökin lömuð
vegna svika
tveggja manna
Jón Lútherson (F—3) sagði að fólk
Soffia Guðmundsdóttir „Kjósum ekki
kaupránsflokkana”
sem ekki yndi kyrrstöðu hefði myndað
Samtök frjálslyndra og vinstri manna.
Þau hefðu hins vegar lamazt vegna
svika tveggja manna en væru nú að
rétta sig við aftur. Rikisstjómin sem
setið hefur siðustu 4 ár væri skýrt
dæmi um það hvernig ekki ætti að
vinna að stjórn landsins. Hún sinnti
ekki sambandi við launþega og gæti
því ekki stjórnað af netnu viti. Her-
stöðinni á Keflavíkurflugvelli hefði
verið haldið hér nógu lengi, hún sýndi
bezt þá eymd og niðurlægingu, sem
þjóðin væri komin í og virtist engin
takmörk sett.
Við erum sam-
einingaraflið
Soffia Guðmundsdóttir (G—2) var
mjög harðorð í garð ríkisstjórnarinnar
og „kaupránslaga hennar". Hún sagði
að kjarabaráttu væri hægt að heyja á
margvíslegum grundvelli, núna væri
hún háð kjörklefunum. Alþýðan yrði
að tryggja sér stjórn, sem ekki ryfi
samninga. i þeim málum væri Alþýðu-
bandalagið sameiningaraflið. Fyrst og
fremst væri áriðandi eftir kosningar að
byggja upp islenzka atvinnuvegi og
hætta að selja útlendingum hér ódýrt
rafmagn.
Enginn hefði
getað farið
örðuvísi að
Jón Sólnes (D—1) sagði að miðað
við þær aðstæður sem voru í landinu
er ríkisstjórnin tók við hefði tekizt vel
að greiða úr málum. Varnarmálum
væri fylgt í fullu samræmi við vilja
mikils meirihluta þjóðarinnar, land-
helgismálið hefði verið til lykta leitt og
verðbólgan hefði þegar hægt nokkuð á
hraða sinum. Til þess að svo yrði hefði
verið nauðsynlegt að setja lögin í
febrúar. Allt hefði siðan gengið betur
en menn þorðu að vona og þvi hefði
verið hægt að bæta kjör hinna lægst-
launuðu í maí. Enginn flokkur hefði
getað farið öðruvísi að því að hægja á
verðbólgunni.
Herinn burt
Pétur Björnsson (B—4) lagði mikla
áherzlu á að hann kærði sig ekki
lengur um veru hersins hér og myndi
beita sér fyrir að hann færi. Hann vildi
einnig nýta fiskiflotann betur og beina
honum á aðrar brautir. Þá vildi hann
tryggja næga atvinnu um ailt land.
Jafnvel atvinnu-
rekendur fordæma
kjaraskerðingar-
lögin
Jón Helgason (A—3) fordæmdi
mjög efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar og sagði að til væri að at-
vinnurekendur væru lika á móti þeim.
Hann sagði það skoðun sína að ákveða
ætti lágmark og hámark launa og raða
mönnum siðan þar á milli.
Jón Sólnes sýndi andstæðingunum ekki alltaf þá þolinmæði að hlusta á þá. Hvaö
skyldi Vilmundur skrifa í dag? virðist hann vera að hugsa.
5 listar
r m mmm m
i kjori
A-listi
Alþýðuflokks
Bragi Sigurjónsson
Árni Gunnarsson
Jón Helgason
Ásta Jónsdóttir
Hreinn Pálsson
Hrönn Kristjánsdóttir
Sigtryggur V. Jónsson
Pálmi Ólafsson
Áslaug Einarsdóttir
Siguröur Gunnarsson
Friðrik Gylfi Traustason
Steindór Steindórsson.
B-listi
Framsóknarflokks
IngvarGislason
Stefán Valgeirsson
IngiTryggvason
Pétur Björnsson
Heimir Hannesson
Valgerður Sverrisdóttir
Grimur Jónsson
Ármann Þórðarson
Bjami Aðalgeirsson
Guðmundur Bjarnason
Hilmar Daníelsson
Sigurðuróli Brynjólfsson.
D-listi
Sjálfstæðisflokks
JónG.Sólnes
Lárus Jónsson
Halldór Blöndal
Vigfús Jónsson
Stefán Stefánsson
SvavarMagnússon
Skirnir Jónsson
Hlaðgerður Oddgeirsdóttir
Svanhildur Björgvinsdóttir
Björgvin Þóroddsson
Benjamin Baldursson
Friðgeir Steingrimsson.
F-listi Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna
Þorsteinn Jónatansson
Jóhann Hermannsson
Jón Gei'r Lúthersson
Eirikur Jónsson
Hörður Adólfsson
Þórarinn Stefánsson
Kristin Hólmgrimsdóttir
Bryndis Guðjónsdóttir
Rúnar Þorleifsson
Margrét Rögnvaldsdóttir
lngólfur Árnason.
Hallmar Freyr Bjamason.
G-listi
Alþýðubandalags
Stefán Jónsson
Soffia Guðmundsdóttir
HelgiGuðmundsson
Steingrimur Sigfússon
Kristján Ásgeirsson
ÞorgrimurStarri Björgvinsson
Geirlaug Sigurjónsdóttir
Þorsteinn Hallsson
Hólmfriður Guðmundsdóttir
Oddný Friðriksdóttir
Bjöm Þór ólafsson
Einar Kristjánsson.