Dagblaðið - 16.06.1978, Side 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978.
27
Hvernig væri nú aö prufa aö sauma
skemmtileg sumarföt sjállar? Þótt
mörgum veitist það kannski erfitt í
byrjun vitum við að æfingin skapar
meistarann. Þá er bara að telja i sig
kjark og byrja. Hér eru nokkrar
hugmyndir að fatnaði sem við getum
saumað sjálfar, Sýningarstúlkan er
engin önnur en Marie Osmond, söng-
konan fræga, og fylgir það sögu að
hún hafi sjálf saumað þau föt sem hún
er í á þeint.
Þetta vesti er hvítt með svörtum röndum og mjög auðvelt að sauma,
Auk þess eru vesti alltaf í tízku og þvi vel þess virði að reyna.
1»
Þessi skokkur lítur ekki úf
fyrir að vera erfiður viðfangs
í saumaskap. Hann er
rósóttur og léttur og
skemmtilegur.
Shaun Cassid*'
einmana og
vonlaus
táningur
Víð blússa og skemmtilegt vítt pils við.
Það er alltaf auðveldara að sauma víð
föt svo að þau passi heldur en þröng. .
Shaun í essinu sínu á
einhverjum tónleika
sinna.
stuðnings mins. Eg gat veitt þeim
þennan stuðning og þetta var eiginlega
það sem hélt mér uppi um þetta leyti."
Shaun segist stundum vera að þvi
kominn að láta yfirbugast af þreytu og
þrýstingi frá aðdáendum sinum og
hann segir að stundum, þegar hann
hefur farið viða á stuttum tíma og
haldið tónleika eitt kvöld í hverri borg,
gleymi hann í hvaða borg hann er
hverju sinni.
Hann segist gera sér fulla grein fyrir
þvi að frægð hans geti fölnað á einni
nóttu og þess vegna reyni hann að
flytja tónlist sem komi til með að lifa
eitthvaðáfram.
Shaun virðist þvi ekki vera á þvi að
leggja upp laupana alveg strax. þrátt
fyrir einmanakennd og yfirfylli aðdá-
enda.
Shaun Cassidy er án efa frægasi
ungiingur Bandaríkjanna un
þessar mundir.
Shaun Cassidy, bróðir David
Cassidy, er nú eitt mesta aðdáunarefni
unglinga um allan heim. En þessar
miklu og skjótu vinsældir eru taldar
heldur vafasamur ágóði fyrir hinn 19
ára gamla Shaun, því komið hefur í
Ijós að vinsældirnar hafa ekki aðeins
fært honum fjöldann allan af aðdá-
endum, heldur líka stöðuga einveru og
vonleysi. Hann er nefnilega anaðhvort
á ferðalögum, þar sem hann heldur
tónleika eitt og eitt kvöld og kynnist
því ekki mörgu fólki á þessum snöggu
skiptum á dvalarstöðum, eða hann er i
felum heima hjá sér i Hollywood.
„Það er ekkert i heiminum sem mig
langar eins mikið til og að lifa eðlilegu
lífi,” segir Shaun. „Það er aftur á móti
gjörsamlega útilokað fyrir mig vegna
þess að það er mjög erfitt fyrir mig
að eiga stefnumót eða stofna til varan-
legra kynna við fólk."
Shaun segist alltaf verða að dulbúa
sig eftir tónleika til þess að komast
burtu. Þá er hann ýmist klæddur sem
lögregluþjónn eða umboðsmaður.
Jafnvel heima hjá sér er hann ekki
óhultur fyrir aðdáendum sinum, þóað
út um allt séu bjöllur sem tengdar eru
við næstu lögreglustöð.
„Stundum líður mér eins og ég sé
James Bond," segir Shaun heldur
argur.
„Jafnvel um nætur, þegar ég hef
allt bjöllukerfið i sambandi, komast
aðdáendur minir inn í húsagarðinn og
hringja dyrabjöllunni hjá mér." Eina
nóttina neyddist hann meira að segja
til að flýja heimili sitt og leita á náðir
nágranna sinna.
Og þrátt fyrir allar stúlkurnar sem
dást að og tilbiðja Shaun á hann fáa
vinkonur og ekki eina einustu
„kærustu”. Hann á þó tvær góðar
vinkonur sem heimsækja hann oft, og
eru það Debby Boone söngkona og
Gina Martin, dóttir Dean Martins.
í samböndum okkar Debby og
Ginu er engin rómantík. Við höfum
verið góðir vinir frá því við vorum
smákrakkar. Okkur líður bara vel i ná-
vist hvers annars.”
En þrátt fyrir hinn gifurlega
árangur sem Shaun hefur náð á lista-
brautinni segir hann að þeir séu mjög
fáir, sem þekki hann sjálfan eins og
hanneri raun.
„Stundum virðist ég vera mjög
sterkur og kaldur fyrir því sem gerist í
kringum mig. En sannleikurinn er sá
að ég er mjög viðkvæmur og auðvelt
er að særa mig. Þeir sem raunverulega
þekkja mig eru þrir eða fjórir vinir sem
ég eignaðist áður en ég varð frægur.
Einnig er ég mjög nátengdur
fjölskyldu minni og i rauninni er hún
það sem skiptir mig mestu máli."
Shaun er sonur leikkonunnar
Shirley Jones og Jack Cassidy sem lézt
árið 1976.
„Ekkert hefur haft eins djúp áhrif á
mig og dauði föður mins." segir
Shaun. „Einn af minum beztu
eiginleikum er að ég get verið sterkur
ef ég vil og þegar faðir minn lézt vissi
ég að móðir mín, David og yngri
bróðir okkar myndu þarfnast
Ritari — heyrnartæknir
Ritari óskast á heyrnardeild Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur nú þegar.
Einnig vantar fóstru eða þroskaþjálfa í
heyrnarmælingar, í hálft starf, frá 1. sept.
1978. Skriflegar umsóknir berist fyrir 26. júní.
Upplýsingar veitir forstöðumaður hevrnar-
deildar, Birgir Ás Guðmundsson.
Laus staða
Staba fulltrúa viö Menntaskólann viö Sund er laus til um-
sóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir meö ýtarlegum upplýsingum um námsferil og
störf skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu, Hverfis-
götu 6. Reykjavik, fyrir 10. júli n.k.
Menntamálaráðuneytið, 13. júní 1978.
A UGL ÝSINGAR
UMHELGINA
Auglýsingadeild Dagblaðsins verður opin
til kl. 22.00 í kvöld, föstudag. Lokað á
morgun 17. júní en opið á sunnudag frá kl.
18.00 til 22.00
Tekið er á móti smáauglýsingum og
nýjum áskriftum í síma 27022.
WIABIB
ÆFINGIN SKAPAR
MEISTARANN