Dagblaðið - 16.06.1978, Síða 32

Dagblaðið - 16.06.1978, Síða 32
36 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR I6.JÚNÍ 1978. Illjómsveit Raunars Bjarnasonar, Þuríður Sinurðardóttir sönt-kona ok skemmtikraftarnir Bessi Bjarnason og Ómar Rajjnarsson oi> lluuvélin Frú sem gerir þeim Ómari og Bessa kleift að fara mun hraðar um landið en hljómsveitinni. A mvndina vantar þriðja skemmtikraftinn, Klla Prestsins. RAGNAR BJARNASON ER SUMARGLAÐUR AÐ VANDA — Sumargleði hljómsveitar hans, Ómars ogBessahefstíjúnílok Raunar Bjarnason o)> hljómsveit hans eru nú sem óðast að húa sír undir árletta landreisu sina — Sumart>lcðina. Að vanda eru auk hljómsveitarmeðlim- anna nokkrir skemmtikraftar með í förinni. Að þessu sinni eru það Bessi Bjarnason, Ómar Rannarsson o(> Klli Prestsins scm ætla að líf|>a upp á frosin hros landsmanna. „Guð hjálpi þér. ép er búinn að fara um landið á hverju sumri siðastliðin fimmtán til tuttugu ár." sagði Ragnar Bjarnason er hann var spurður að þvi hvar i röðinni Sumargleðin '78 væri i Laus staða Staða aöstoðarskólastjóra við Menntaskólann við Sund er laus til umsóknar. Samkvæmt 53. gr. reglugeröar nr. 270/1974, um mennta- skóla, skal aöstoöarskólastjóri ráöinn af menntamála- ráöuneytinu til fimm ára i senn úr hópifastra kennara á menntaskólastigi. Umsóknir um stööu þessa, ásamt upplýsingum um náms- feril og störf, skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 10. júli n.k. Menntamálaráöuneytið, 13. júni 1978. BILASALA Seljum í dag: Renault 16 TL árg. ’76 Renault 16 TS árg. '75 Renault 16 TL árg. '73 Renault 12 TL árg. 77 Renault 12 TL árg. '76 Renault 12 TL árg. '74 Renault 12 TL árg. '73 Renault 12 TSAutomatic árg. '78 Renault 10 árg. ’69 Renault 6 TL árg. ’72 Renault 4 TL árg. ’75 Renault 4 VAN árg. ’75 BMW 316 árg. '77 BMW 518 árg. '77 Kristinn Guðnason hfr Suðurlandsbraut 20. Sími 86633. landsreisum hans. „Ég held hins vegar að Sumargleðin í ár sé sú sjötta frekar en sjöunda með því nafni,” bætti Ragnar við, „áður fórum við á vegum Sjálfstæðisflokksins og enn áður var ég með hljómsveit Svavars Gests i þessuni ferðum.” Fyrsta skemmtun hljómsveitar Ragnars Bjarnasonar, Ómars, Bessa og Ella Prestsins verður i félags- heimilinu Stapa föstudaginn 30. júni. Vissara er að mæta timanlega á staðinn þvi að skemmtiatriðin hefjast klukkan niu og standa yfir næstu tvær klukkustundirnar. Eftir að skemmti- dagskránni lýkur verður stiginn dans svo lengi sem lög leyfa. Á dansleikjun- um verður spilað bingó. Á hverju kvöldi verður spilað um þrjár sólar- landaferðir frá Ferðamiðstöðinni. Auk bingósins bjóða Ragnar Bjarnason og félagar einnig upp á gjafahappdrætti og fylgja happdrættis- miðar bingóspjöldunum. Aðalvinning- arnir i happdrættinu eru Marantz- hljómflutningstæki, Candy þvottavél, Malló sófasett og sófaborð og sólar- ferð fyrir tvo. Jafnframt verða tiu aukavinningar í boði, fimm hárbursta- selt og fimrn ferðarakvélar frá Braun. Dregið verður I happdrættinu á lokadegi Sumargleðinnar að Kirkju bæjarklaustri þann 20. ágúst. Vinningsnúmerin verða birt i dagblöð- unum viku siðar. Óhætt er að segja að Ragnar Bjarnason og hljómsveit hans finkembi landið i ferð sinni. Alls verður komið við á þrjátiu stöðum allt frá Reykjavik til Raufarhafnar, Kópa- skcri til Kirkjubæjarklausturs. Höfn I Hornafirði til Hríseyjar og þannig mætti lcngi teija. Nánari upplýsingar um hvar Sumargleðin '78 er á ferðinni hverju sinni verður að finna í Dagbók Dagblaðsins á hverjum föstudegi. ÁT Moody Blues eru vaknaðir til lífsins á ný — Platanþeirra, Octave, erkominút Eftir tæplega fimm ára aðskilnað komu meðlimir ensku hljómsveitar- innar Moody Blues loksins saman og er afleiðing þess nú að lita dagsins ljós, sex mánuðum siðar. Það er sumsé komin út ný Moody Blues-plata, Octave, sú áttunda sem hljómsveitin sendir frá sér, þegar samsafnsplötur eru frátaldar. Það tók þá Ray Thomas, Graeme Edge, John Lodge, Michael Pinder og Justin Hayward sex mánuði að koma Octave saman. „Þegar við ákváðum að hætta eftir hljómleikaferð um allan heiminn árið 1973 vorum við ákveðnir i því að koma saman einhvern tima aftur.” sagði Justin Hayward I blaðaviðtali i siðustu viku. „Ef aðskilnaðurinn hefði ekki einmitt orðið á þeim tíma er ég þess fullviss að allt hefði farið i bál og brand innan hljómsveitarinnar fyrir lifstíð. Nú gleðjumst við allir yfir sam- fundunum. Það er dálitið skrítið, en siðan við skildum hafa plöturnar okkar selzt meira en nokkru sinni áður.” hélt Justin Hayward áfram. „Við fengum afhentar 42 platinuplötur núna fyrir nokkrum dögum, sem þýðir sem sagt 42 milljónir seldra platna." Á meðan starfsemi Moody Blues lá niðri tóku allir meðlimirnir upp sóló plötur. John LodgeogJustin Hayward unnu reyndar saman að einni, Blue Jays. Á sinum tima var Moody Blues sú hljómsveit sem ferðaðist meira en nokkur önnur. Til þess að yfirkeyra ekki alveg aðstoðarmannaliðið var þvi skipt i tvennt og annar hlutinn hafður í fríi meðan hinn vann. Mesti áheyrendafjöldi á hljómleikum Moody Blues kom saman árið 1968. Þá lék hljómsveitin á 350.000 manna úti- fundi franska kommúnistaflokksins. Nú er áformað að hljómsveitin heimsæki allar stærstu hljómleika- hallir Bandarikjanna á næstu mánuðum. Reiknað er með henni til Englandseinhvern tima fyriráramót. Moody Blues er ein af „gömlu” hljómsveitunum. Hun var stofnuð árið 1964 og var gúarleikari Wings. Denny Laine, einn af stofnendunum. Hann söng revndar einnig fyrsta lagið sem náði vinsældum með hljómsveit- inni. Það lag heitir Go Now. Vinsælasta lag Moody Blues fyrr og siðar er hins vegar Nights In White Satin. Það kom fyrst út árið 1967 og vakti þá miðlungs mikla hrifningu en sló síðan hressilega i gegn er það var endurútgefiðárið 1973. ' ÚRDAILYMIRROROC.RECORDMIRROR MOODIK BLUES — Saman á ný eftir fimm ára fjarveru. Enginn þeirra hefur þó verið aðgerðalaus á fónlistarsviðinu því að sólóplötur hafa komið út með öllum mcðlimum hljómsvcitarinnar. JÓMFRÚARÚTGÁFAN KAUPIR JÓMFRÚAREYJU Hljómplötuútgáfufyrirtækið Virgin Records festi nýlega kaup á einni af þeim áttatiu eyjum sem saman mynda eyjaklasann Virgin Islands (Jómfrú- KLLKN KRISTJÁNSDÓTriR — Byrjuð að syngja aftur á fornunt slóðum. DB-mvnd Ragnar Th. Tfvolí endurheimt- irEllen Hljómsveitinni Tivolí hefur bætzt álitlegur liðsauki — söng- konan Ellen Kristjánsdóttir. Hún hefur dvalið i Bandarikjunum sið- an l'yrir áramót, meðal annars við söngnám. Hún syngur sitt fyrsta vers nteð Tivoli á Rock-Reykjavik- dansleik i kvöld. Á morgun skemmtir hún siðan með hljóm- svcitinni á Arnarhóli og við Mela- skólann. Ellen er Tivolí ekki með öllu ókunnug þvi að hún söng með hljómsveitinni allt frá því að nafninu var breytt úr Kvintett Ól afs Helgasonar i Tivoli þar til hún fór vestur um haf. Meðlimir Tivolis eru nú orðnir sex talsins. —ÁT— eyjar). Að níu mánuðum liðnum er áætlað að þar verði risið glæsilegt 32ja rása hljómver, nákvæm eftirliking Manor Studios i Oxfordshire i Eng- landi, sem einnig er I eigu Virgin. Til byggingar hljómversins á Jómfrúar- eyjum er áformað að verja hálfri millj- ón sterlingspunda. Hugmyndin uni eyjarkaupin kom i huga yfirmanns Virgin Records er hann var i heimsókn á Jamaica fyrir nokkru. Hann athugaði í snatri hvort nokkur eyja væri til sölu og var svo heppinn að rekast á eina. Yfirmaður- inn. Richard Branson, leigði sér þyrlu i snatri, flaug yfir eyjuna, aftur til baka og undirritaði samning um kaupin samstundis. Auk þess að reisa hljómverið hefur verið ákveðið að byggja fimmtán íbúð- arhús til áð tónlistarmennirnir, sem konia til að nýta aðstöðuna, geti tekið fjölskyldur sínar jjieð sér. Vélar til að vinna ferskvatn úr sjónum, svo og rafstöðvamótorar. eru meðal tækja sem fyrst þarf að koma fyrir. Siðar munu risa tennisvellir og sundlaugar á eyjunni og þegar alll er komið I gagnið verður hægt að leigja vinnuaðstöðu eyjarinnar fyrir um það bil 35.000 krónurá klukkustundina. Hljóðritamenn, herðið ykkur i bar- áttunni . . . ÚrMELODY MAKER.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.