Dagblaðið - 16.06.1978, Side 34
38
I
GAMLA BIO
9
CARUSO
amiu«6.
^ STARRINC
Nýtt eintak af þessari frægu og vinsælu |
kvikmynd.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5,7 og 9.
MONTESA
ENDURO 360
Kvikmyndlr
FÖSTUDAGUR
AUSTURBÆJARBiO: KUler Force, aðalhlutverk:
Telly Savalas (Kojak) og Peter Fonda, kl. 5, 7 og 9.
Bönnuðinnan 14ára.
BÆJARBÍÓ: Dauðagildran, kl. 9.
GAMLA BÍÓ: Caruso, hin fræga og vinsæla
músikmynd um ævi mesta söngvara allra tima, kl. 5,7
og9.
HAFNARBÍÓ: Mannrán, aðalhlutvcilc:
George Ardisson, Bascale Audret og Christa Linder,
kl. 3,5,7,9og 11.
HÁSKÓLABÍÓ: Leikfang dauðans (The Domini
Principle), aðalhlutverk: Gene Hackman og Candice
Bergen, kl. 5.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Bráðin (The naked Prey)
kl. 9.
LAUGARÁSBÍÓ: Keðjusagarmorðinginn,
aðalhlutverk: Gunnar Hansen, kl. 5,7,9 og 11.
NÝJA BÍÓ: Þegar þolinmæðina þrýtur, aðalhlut-
verk: Bo Svenson, Robert Culp og Breaking Point, kl.
5,7 og 9. Bönnuð innan 16 ára.
REGNBOGINN: A: Billy Jack í eldlinunni, kl. 3,5,7,
9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. B: Hvað kom fyrir Roo
frænku, aðalhlutverk: Shelley Winters og Mark Lest-
er, kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05, og 11.05. Bönnuð innan
16 ára. C: Harðjarxlinn. Aðalhlutverk: Rod Taylor og
Suzy Kendall, kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10.
Bönnuð innan 16 ára. D: Sjö dásamlegar dauðasyndir,
kl. 3.15,5.15,7.15,9.15 og 11.15.
STJÖRNUBÍÓ: Serpico, aðalhlutverk: A1 Pacino kl.
9. Bönnuð innan 12 ára. Við erum ósigrandi kl. 5 og 7.
TÓNABÍÓ: Sjö hetjur (The magnificent seven),
leikstjóri: John Sutrges, aðalhlutverk: Steve
McQueen, Charles Bronson og James Cobum, kl. 5,
7.30 og 10. Bönnuð innan 16 ára.
Föstudagur
16. júní
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
15.00 Miðdegissagan: „AngeUna” eftir Vicki
Baum. Málmfríður Sigurðardóttir les (5).
15.30 Miðdegistónleikan Guy Fallot og Karl
Engel leika Sónötu fyrir selló og pianó cftir
César Franck.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.I5 Veöur
fregnir). Popp.
17.20 Hvað er að tarna? Guðrún Guðlaugs
dóttir stjórnar þætti fyrir börn um náttúruna
og umhverfið; III: Fuglar.
17.50 Fermingin: Endurt. viðtalsþáttur frá
síðasta þriðjudagsmorgni.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.TilVynningar.
19.35- Kynning á stjórnmálaflokkum og fram-
boðslistum við Alþingiskosningarnar 25. þ.m.;
— fimmti og siðasti hluti. Fram koma
fulltrúar frá Fylkingunni og Alþýðuflokknum.
Hvor listi fær 10 mínútur til umráða.
20.00 Hornin gjalla. Lúðrasveitir norska land-
og sjóhersins leika. Stjórnandi: Rolf Nadersen
majór.
20.30 Frá listahátfð: (Jtvarp frá Háskólabiói.
France Clidat píanóleikari frá Frakklandi
leikur sex tónverk eftir Franz Liszt. a. Etýður
nr. 10, 4 og 12. b. „Heilagur Franz frá Assisi”. c.
„Gosbrunnamir i Villa d’Este”. d. Ungversk
rapsódía nr. 12.
2l.l5 Andvaka. Annar þáttur um nýjan skáld-
skap og útgáfuhætti. Umsjónarmaður: Ólafur
Jónsson.
21.50 Konscrt I C-dúr fyrir flautu, strengjasveit
og sembal op. 7 nr. 3 eftir Jean-ðMarie Lecair
Claude Monteux flautuleikari og St Martin
in-the-Fields hljómsveitin leika. Stjórnandi:
Neville Marriner.
22.05 Kvöldsagan: „Dauði maðurinn” eftir
Hans Schcrfig. öttar Einarsson les (3).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Kvöldvaktin. Umsjón: Ásta R. Jóhannes-
dóttir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur
17. júnf
ÞjöAháttðardagur islendinga
8.00 Morgunbæn. Séra Þorsteinn L. Jónsson
flytur.
8.05 íslenzk ættjarðarlög, sungin og leikin.
9.00 Fréttir. Forustugreinar dagblaöanna
(útdr.).
9.20 „Esja”, sinfónla I f-moll eftir Karl O.
Runólfsson. Sinfóníuhljómsveit íslands leikur;
Bohdan Wodiczko stj..
10.00 Fréttir. 10.10. Veðurfregnir.
10.30 Fri þjóöhátfð i R.vík. a. Hátíðarathöfn
á Austurvefli. Margrét S. Einarsdóttir, for
maður þjóðhátíðamefndar setur hátiðina. For
seti íslands, dr. Kristján Eldjám, leggur
blómsveig að fótstalli Jóns Sigurðssonar. Geir
Hallgrimsson forsætisráðherra flytur ávarp.
Ávarp fjallkonunnar. Lúðrasveit Reykjavíkur
og Karlakórinn Fóstbræður leika og syngja
ættjarðarlög, þ.á.m. þjóðsönginn. Stjórn-
endur: Brian Carlile og Jónas Ingimundarson.
Kynnir: Hinrik Bjamason. b. 11.15
Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Séra Þórir
Stephensen messar. ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir og Einsöngvarakórinn syngja.
Organleikari: Marteinn H. Friðriksson.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 Úr islenzkum fornbókmenntun:. Forseti
íslands, dr. Kristján Eldjám velur og les.
14.00 íslenzk hátfðartónlist. a. „Minni íslands",
forleikur op. 9 eftir Jón Leifs. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands leikur, William Strickland stj. b.
Alþingishátíðarkantata 1930 eftir Pál ísólfs-
son við hátiðarljóð Daviðs Stefánssonar frá
Fagraskógi. Flytjendur: Guðmundur Jónsson
baritónsöngvari, Söngsveitin Filharmonia,
Sinfóníuhljómsveit lslands og Þorsteinn ö.
Stephensen leikari, sem segir fram. Stjórnandi:
Dr. Róbert A. Ottósson.
15.00 Þetta erum við að gera, bamatimi i umsjá
Valgerðar Jónsdóttur
15.40 íslenzk einsöngslög: Kristinn Hallsson
syngur. Ámi Kristjánsson leikur á pianó.
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir Á
Njáluslóðum í fylgd Jóns Böðvarssonar og
Böðvars Guðmundssonar. Böðvar stjórnaði
þættinum, sem var áður á dagskrá 15. júli
1973.
17.35 Tónhomið^ Guðrún Birna Hannesdóttir
sér um þáttinn.
18.05 Söngvar i léttum tón. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Íslenzk ættjarðarljóð. Sigurður Skúlason
magister les.
20.00 Lúðrasveitin Svanur (yngri deild) leikur.
Stjórnandi: Sæbjöm Jónsson..
20.30 Homstrandir. Samfelldur dagskrárþáttur í
samantekt Tómasar Einarssonar. Viðtöl við
Hjálmar R. Bárðarson siglingamálastjóra og
Guðna Jónsson kennara.
21.20 Sönglög eftir Helga Pálsson og Áma
Björasson. Sigriður E. Magnúsdóttir syngur.
Ólafur Vignir Albertsson leikur á pianó.
21.40 Stiklur. Óli H. Þórðarson stjómar
blönduðum þætti.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög af hljómplötum. Þ.á.m. leikur og
syngur hljómsveit Hauks Morthens í hálfa
klukkustund. (23.55 Fréttir).
02.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. júní
8.00 Fréttir.
8.05 MorgNMudakL Séra Pétur Siguifdnson
vigslubiskup fly tur ritningarorð og bæn.
8.15 Veðurfregnir. Forustugreinar dagbl.
(útdr.). Dagskrá.
8.35 Létt morgunlög. Filharmóniusveitin I
Vlnarborg leikur „Rósamundu”, leikhústónlist
eftir Schubert. Stjórnandi: Rudold Kempe.
9.00 DægradvöL Þáttur I umsjá Ólafs
Sigurðssonar fréttamanns.
9.30 Morguntónleikar. (10.00 Fréttir. 10.10
^600^^6^^^.) a. Sinfónia nr. 98 i B-dúr eftir
Haydn. Hljómsveitin FUharmónía i Lundún-
um leikur: Otte Klemperer stj. b. Sónata i G-
dúr fyrir flautu, fiðlu og sembal eftir Bach.
Leopold Stastny, Alice Hamoncourt og Her-
bert Tachezi leika. c. Trió i D-dúr op. 70 nr. I
eftir Beethoven. Wilhelm Kempff leikur á
píanó, Henryk Szeryng á fiðlu og Pierre
Foumieráknéfiölu.
11.00 Messa i Kópavogskirkju. Prestur: Séra
Ámi Pálsson. Organleikari: Guðmundur GUs-
son.
12.15 Dagskráin.Tónleikar.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978.
Útvarp í kvöld kl. 22,50: Kvöldvaktin
TÓNUST OG FLEIRA GOTT
Kvöldvaktin í kvöld kl. 22,50 er í
umsjá Ástu R. Jóhannesdóttur. Mun
u.þ.b. helmingur þáttarins verða létt og
skemmtileg tónlist.
Einnig munu ljóð verða flutt. Sagði
Asta að nokkuð hefði borizt af efni á
spólum og einnig hefði fólk utan af landi
hringt og látið vita að efni væri á leið-
inni, en það er vitanlega lengur að berast
heldur en efni sent úr Reykjavik og
nágrenni. Meðal aðsends efnis sem við
fáum að heyra í kvöld er brot úr einþátt-
ungi og lög sem Leikfélag Borgarness
sendi. Einnig verður lesin smásaga eftir
húsmóður sem ekki vill láta nafns síns
getið. Þá fáum við að heyra hve
unglingarnir sem sóttu hljómleika
Smokie voru duglegir að taka undir með
hljómsveitinni í sumum lögunum, Ásta
brá sér nefnilega með hljóðnemann á
hljómleikana.
Eins og áður hefur komið fram er allt
aðsent efni i þáttinn mjög vel þegið og
einnig er fólk minnt á að hringja í út-
varpið og láta vita ef það veit um eitt-
hvert gott hæfileikafólk. Hæftleg lengd
er 2 til 5 mínútur og nú er um að gera að
vera ófeiminn og láta hugmyndaflugið
ráða.
RK
Ásta R. Jóhannesdóttir kennari sér um Kvöldvaktina á móti Sigmari B.
Haukssyni.
Sjónvarp á morgun kl. 22,00: í kjölfar papanna
Fylgzt með ferðum
húðbátsins Brendan
Á þjóðhátíðardaginn okkar, á
morgun, verður sýnd i sjón-
varpinu mynd er nefnist 1 kjölfar
papanna, og er hún I litum. Lýsir hún
ferð húðbátsins Brendans frá írland:
og vestur um haf með viðkomu á
lslandi.
Leiðangursstjóri i þeirri ferð, sem
hófst sumarið 1976, var Timothy
Severin. Severin er brezkur rithöf-
undur og sagnfræðingur og taldi hann
Kólumbus ekki hafa verið fyrstan til
að finna Ameríku árið 1492, heldur
írska munnka u.þ.b. níu öldum áður.
Hélt hann því af stað í þennan leiðang-
ur ásamt þremur félögum sínum. Var
bátur þeirra útbúinn úr 25 nauts-
húðum, 12 m langur og 2,5 m breiður
og gekk 2—3 mílur.
Á leið sinni vestur um haf komu
þeir félagar við á Islandi og fór bátur
þeirra í slipp á Gelgjutanga.
Margir erlendir sem innlendir
fréttamenn höfðu mikinn áhuga á ferð
þeirra og fylgdust vel með öllu sem
fram fór. M.a. komu hingað frétta-
menn og ljósmyndarar National
Geographic, en það blað hafði fengið
réttindi á greinum og myndum úr leið-
angrinum.
Ferð þeirra félaga yfir hafið gekk til-
tölulega vandræðalaust fyrir sig. Þó
lentu þeir i mörgum ævintýrum og
áttu t.d. i nokkrum erfiðleikum með is,
sem reif gat á bátinn. Þeim tókst þó að
gera við þann leka og komu heilu og
höldnu til Nýfundnalands 27. júni
1977, og var þar vitanlega tekið með
kostum.
Þýðandi og þulur er Ingi Karl
Jóhannesson.
RK
Sjónvarp
Útvarp
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 Landbúnaður á íslandi; — áttundi og
siðasti þáttur. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson.
Tæknivinna: Guðlaugur Guðjónsson.
14.30 Miðdegistónleikar. Itzhak Perlman leikur
á fiðlu Kaprisur op. 1 eftir Paganini.
15.00 Framboðsfundur I sjónvarpssal (sjón-
varpað og útvarpað samtímis.). I umræðunum
taka þátt allir þingflokkamir, fimm að tölu, og
verða umfcrðir fimm. Vilhelm G. Kristinsson
fréttamaður kynnir ræðumenn og hefur tíma-
vörzlu á hendi. Röð flokkanna: Framsóknar-
flokkur, Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur,
Sjálfstæðisflokkur, Samtök frjálslyndra og
vinstri manna. (Síðdegisfréttir og veðurfregnir
falla m.a. niður).
18.00 Harmönikulög. Jo Basile leikur.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvökisins.
19.00 Fréttir.Tilkynningar.
19.25 Um skoðanakannanir. Kristján E.
Guðmundsson menntaskólakennari flytur
síðara erindi sitt.
19.50 íslenzk tónlisL a. Sónata fyrir trojrnpet og
pianó op. 23 eftir Karl O. Runólfsson Lárus
Sveinsson og Guðrún Kristinsdóttir1 leika. b.
„KISUM”, tónverk fyrir klarinettu, viólu og
pianó eftir Þorkel Sigurbjömsson. Gunnar
Egilsson, Ingvar Jónasson og höfundurinn
leika.
20.30 Útvarpssagan: „Kaupangur” eftir Stefán
Júllusson. Höfundurinn les (12).
21.00 „Myndir úr lifi bams” op. 15 eftir Robert
Schumann. Hans Pálsson leikur á pianó.
21.20 Alþingiskosningamar 1908 og Uppkastið.
Dagskrá i samantekt Brodda Broddasonar &
Gisla Ágústs Gunnlaugssonar. Lesari ásamt
Gísla: Guðrún Guðlaugsdóttir.
22.10 Frá tónleikum Sinfóniuhljómsveitar
íslands. i Háskólabíói 28. april i vor. Stjórn-
andi: Marteinn H. Friðriksson. Tilbrigði op.
56a eftir Johannes Brahms um stef eftir
Joseph Haydn.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Kvöldtónleikan Frá ' tónUstarhátíðum I
Finnlandi I fyrra. a. Jassye Norman syngur lög
eftir Charles Gounod og Emanuel Chabrier.
Dalton Ðaldwin leikur á pianó. b. Tom Krause
syngur lög eftir Henri Duparc. Irwin Gage
lcikur á píanó. c. Roman Jablonski leikur
Sellósónötu eftir Arthur Honegger. Krystyna
Borucinska leikur á pianó.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
^ Sjónvarp
Föstudagur
16. júní
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Prúðu leikaramir (L). Gestur i þessum
þætti er leikarinn Bob Hope. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
21.00 Faðir Rauða krossins. Heimildamynd
um mannvininn Jean Henri Dunant (1828—
1910), stofnanda Rauða krossins, sem fæddist
fyrir 150 árum. Þýðandi Pálmi Jóhannesson.
(Evróvision — Svissneska sjónvarpið).
21.30 Junior Bonner (L). Bandarísk bíómynd frá
árinu 1972. Leikstjóri Sam Peckinpah. Aðal-
hlutverk Steve McQueen, Robert Preston og
Ida Lupino. Sagan gerist i Arizona-fylki i
Bandaríkjunum og hefst með þvi, að Junior
Bonner kemur til heimabæjar sins til að taka
þátt i kúrekakeppni. Þýðandi Ragna Ragnars.
23.10 Dagskrárlok.
Laugardagur
17. júní
18.00 Hdmsmelstarakeppnin I knattspymu (L).
(A78TV — Evróvision — Danska sjónvarpið).
Hlé.
20.00 Fréttír og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Þjóðhátíð I Reykjavik. Bein úucnding frá
útiskemmtun þjóðhátíðamefndar Reykjavflcur
á Amarhóli.
22.00 í kjötfar papanna (L). Sú kenning nýtur
vaxandi fylgis, að írskir munkar hafi orðið
fyrstir Evrópumanna til að sigla til Ameriku,
mörgum öldum á undan vikingunum. Kunn er
sigling ævintýramannsins og rithöfundarins
Tims Severins og þriggja annarra manna yFu
Atlantshaf 1976—77 á húðbátnum Brendan,
sem talinn er gerður á sama hátt og skip munk-
anna forðum. Þessi breska heimildamynd
lýsir ferð Brendans frá írlandi og vestur um
haf með viðkomu á Islandi. Þýðandi og þulur
Ingi Karl Jóhannesson.
22.50 Leikið lausum hala (L). James Taylor,
Billy Joel, Earth, Wind & Fire, T Connection,
Chicago, Neil Diamond, Ram Jam, Jackson
Five og Santana skemmta í hálftima, og siðan
verður 50 mínútna þáttur með hljómsveitinni
Bay City Rollers.
00.10 Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. júní
15.00 Framboðsfundur (L). Þriggja klukku-
stunda bein útsending úr sjónvarpssal, sem
' fulltrúar allra flokka taka þátt í, og verða fimm
ræðuumferðir. Vilhelm G. Kristinsson frétta-
maður kynnir frambjóðendur flokkanna og
hefur tímavörslu með höndum, en öm
Harðarson stjómar útsendingunni.
18.00 Kvakk-kvakk(L). Nýr flokkur klippimynda
ánorða.
18.05 Hraðlestín (L). Breskur myndaflokkur.
Lokaþáttur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.30 Ætlarðu I róður á morgun? (L). Dönsk
mynd um telpu, sem á heima í sjávarplássi og
fær stundum að fara í róður með fiskimönn-
um. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir (Nord-
vision — Danska sjónvarpið).
18.50 Hlé.
20.00 Fréttirog veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Gæfa eða gjörvfleiki (L). Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur. 7. þáttur. Efni sjötta
þáttar Wesley er fluttur á spitala eftir rysk-
ingamar við verkfallsverði, en reynist ekki
alvarlega slasaður. Scotty, foringi verkfalls-
manna, gengur til samninga við Rudy. Maggie
fréttir, að fyrrverandi einkaritari og ástkona
Esteps sé geymd á hæli. Hún hverfur þaðan,
en Maggie reynir að hafa upp á henni.
Falconetti situr fyrir Rudy og Wesley, þegar
þeir aka heim frá spítalanum, og skýtur á þá.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.20 Frá Listahátíð 1978. Tónleikar írska þjóð-
lagaflokksins Dubliners I Laugardalshöll.
Stjóm upptöku Andrés Indriðason.
22.20 Arfur Nobels (L). Leikinn, breskur
heimildamyndaflokkur. Lokaþáttur.
Morðíngjar á meðal vor. Martin Luther King
(1929— 1968) hlaut friðarverðlaun Nobels árið
1964. Hann var yngsti maður, sem verðlaunin
hafði hlotið, og þá voru þau veitt blökku-
manni öðru sinni 1 sögunni. Þýðandi óskar
Ingimarsson.
22.45 Að kvöldi dags. (L). Séra ólafur Jens
Sigurðsson, sóknarprestur á Hvanneyri, flytur
hugvekju.
22.55 Dagskrárlok.