Dagblaðið - 16.06.1978, Blaðsíða 35

Dagblaðið - 16.06.1978, Blaðsíða 35
39 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978. Utvarp Valgerður Jónsdóttir ætlar að bregða sér upp í Saltvik með krökkunum sem stunda reiðskólann þar. Útvarp á morgun kl. 15,00: Þetta erum við að gera Reidskólinní Saltvík Á morgun kl. 15.00 verður barnatimi Valgerðar Jónsdóttur i útvarpinu en hann nefnist Þetta erum við að gera. Ætlar Valgerður að nota þennan tima til að kynna Saltvik og reiðskólann þar. En i upphafi þáttarins mun Hugrún Gunnarsdóttir lesa sögu um hest áður en Valgerður stígur upp í rútuna og fer með krökkunum upp i Saltvik. Fyrir þessum reiðskóla standa Hestamanna- félagið Fákur og Æskulýðsráð Reykja vikur. Krakkarnir, sem eru 80 talsins, leggja af stað í tveimur rútum, kl. 8.20, og sjá þeir Ketill Larsen og Hjalti Jón Sveins- son um fjörið í bilunum á leiðinni. Þegar uppeftir kemur verður krökkunum skipt niður i fjóra hópa, þvi ekki eru til nema 20 hestar á staðnum. Meðan fyrsti hópurinn er i útreiðartúr sjá þeir Ketill og Hjalti Jón um að hafa ofan af fyrir hinum krökkunum þar til þeir komast að. Er þá alltaf glatt á hjalla og margt sér til gamans gert. Kennarar krakkanna eru þær Kolbrún Kristjánsdóttir og Aðalheiður Einarsdóttir. Og að loknum skemmtilegum degi koma kátir en kannski ofurlítið þreyttir krakkar aftur i bæinn kl. 17.00. Þáttur Valgerðar er 40 minútna langur og sagði hún að þessi Saltvikur- ferð tæki allan timann. -RK. Útvarp í kvöld kl. 19,35: Kynningá stjórnmálaflokkum ogframboðslistum FylkinginogAlþýðu- flokkurinníútvarpi íkvöld \ Svava Guðmundsdóttir. Árni Gunnarsson. Þá er komið að fimmta og siðasta kynningarþætti á stj^r.tmáldflokkum og framboðslistum til alþingis- kosninganna 25. júní nk. Tveir siðustu flokkarnir sem kynntir verða að þessu sinni eru Fylkingin og Alþýðuflokkur- inn. Fyrir Fylkinguna tala þau Ásgeir Danielsson og Svava Guðmundsdótt ir. Fyrir Alþýðuflokkinn talar Árni Gunnarsson. Hvor flokkur fær 10 minútur til umráða. RK Ásgeir Danielsson. Sjónvarp í) í fvrramáliö kl. 10.30 hefjast hátiðahöld á Austurvelli i Reykjavík og verður þeim útvarpað beint. Hefjast þau á þvi að Margrét S. Einarsdóttir, formaður þjóðhátiðar- nefndar, setur hátíðina. Síðan munfor- seti Islands, dr. Kristján Eldjárn, leggja blómsveig að fótstalli Jóns Sigurðssonar. Geir Hallgrímsson forsætisráðherra flytur ávarp og síðan flytur fjallkonan annað ávarp. Lúðrablástur hefur alltaf þótt vel við eiga við hátiðahöld og mun því Lúðrasveit Reykjavikur leika og Karlakórinn Fóstbræður syngja nokkur ættjarðarlög. Kynnir verður Hinrik Bjarnason. Kl. 11.15 verður siðan guðsþjónustu í Dómkirkjunni útvarpað og mun séra Þórir Stephensen messa. Ólöf K. Harðardóttir og Einsöngvara- kórinn syngja. Organleikari verður Marteinn Hunger Friðriksson. Og vitanlega verður öll dagskrá dagsins meira eða minna helguð þessum degi. Kl. 20.30 verður bein útsending sjónvarps frá útiskemmtun Þjóðhátiðar- nefndar Reykjavikur á Arnarhóli. Verður stjórnandi skemmtunarinnar Klemens Jónsson og kynnir VigdisFinn- bogadóttir. Margt skemmtilegt verður um að vera á Arnarhólnum þetta kvöld og mikið um tónlist. Má fyrst nefna Einsöngvara- kvartettinn, en hann skipa Sigurður Björnsson, Magnús Jónsson, Kristinn Hallsson og Guðmundur Jónsson. Mun kvartettinn syngja við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar. Þá munu félagar úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur sýna nokkra þjóðdansa. Þá verður fluttur leikþáttur er nefnist Simtal frá Bergþórs- hvoli og mun Rúrik Haraldsson leikari flytja hann, væntanlega af sinni alkunnu snilld. Lummurnar ætla að skemmta okkur með léttum lögum. Meðlimir Lummanna eru Gunnar Þórðarson, Jóhann Helgason, Linda Gísladóttir, Ragnhildur Gisladóttir og Valur Einarsson. Þá mun Guðmundur Guðjónsson syngja nokkur Reykja- víkurlög eftir Sigfús Halldórsson við undirleik höfundar. Hefur þessi dag- skrárliður verið nefndur Vor gamla borg. Þá mun Rúrik Haraldsson flytja þátt er nefnist Einleikur á saxófón. Ekki vitum við til að Rúrik kunni að leika á saxófón, en hver veit hvað hann ætlar sér i þessum þætti. Næsti dagskrárliður nefnist Vísa og Fiol og eru það sænskir söngvarar og fiðluleikarar sem skemmta, en Sviar hafa löngum verið þekktir fyrir snilli sina með fiðluna. Þá munu þeir félagar og bræður Halli og Laddi skemmta okkur og hafa þcir nefnt dagskrá sina Nú verður mjög snöggt bað. Að lokum munu Sigurður Björnsson og Sieglinde Kahmann syngja nokkur lög úr óþekktum óperettum, en þau fara einmitt með aðalhlutverkin i Kátu ekkjunni, sem verið er að sýna i Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Undirleik annastCarl Billich. Verður dagskrá þessi einnar og hálfr- ar klukkustundar löng og lýkur henni þvikl. 22.00. -RK. Á þjöðhátiðardaginn okkar safnast ávallt mikill fjöldi fölks saman i miðbænum. Útvarp á morgun kl. 10,30 og sjónvarp kl. 20,30: ÞJÓÐHÁTÍÐ í reykjavík Sjónvarpíkvöld kl. 21,30: iuniorBonner GLATAÐUR FRÆGÐARUÓMI Junior Bonner nefnist bandarísk biómynd frá árinu 1972, sem sýnd verður í sjónvarpinu kl. 21.30 i kvöld. Gerist sagan i Arizona í Bandarikj- unum. Hefst hún á því að Junior Bonner kemur til heimabæjar síns til að taka þátt i kúrekakeppni. Junior Bonner var eitt sinn mjög leikinn í að sitja ótamda hesta. Hann yfirgefur heimabæ sinn, en kemur aftur i þeim tilgangi að sýna listir sinar á hestbaki. En Junior Bonner er ekki lengur eins leikinn i listinni og hann var áður fyrr og þvi vafasamt hvort honum tekst að endurvekja fyrri frægðsína. Með hlutverk Junior Bonner fer Steve McQueen, en í hlutverki föður hans er Robert Preston og fer hann stórkostlega vel með hlutverk sitt. Hann er ávallt með vinflöskuna i annarri hendinni og með hina hönd- ina á öxlum vina sinna. Einnig fer Ida Lupino með eitt aðalhlutverkið i myndinni. Leikstjóri er Sam Peckinpah og tekur myndin um 100 minútur í sý ningu. Myndin er í litum og er þýðandi hennar Ragna Ragnars. RK Steve McQueen og Ida Lupino fara með aðalhlutverkin i myndinni um Junior Bonner.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.