Dagblaðið - 16.06.1978, Blaðsíða 36

Dagblaðið - 16.06.1978, Blaðsíða 36
!'.'ut it svo meðöllu illt. inu, Kffir það að verkutn að maðka- Kinnintiin, sem úðað er yfir me};in- smalar eiga auðvelt með að ná f-iirra landsmanna, sem valið hafa sér maðkinum, en þaö er gert á nóttunni. snina óþénuua húsetu á suðvesturhorn- Þessi á myndinni var önnum katinn. Ilann hrökk fyrst upp harkalef;a þepar svölum kaliaði: Hvað eruð þið að gera glampinn frá myndavélinni skall á þarna! Þegar skýringin fékkst, bauð hún honum. Hann jafnaði sig. Öðru sinni í kaffisopa og allt féll í Ijúfa löð. — DB- hrökk hann við þegar kona upp á mynd R.Th.Sig. i frjálst, óháð daghlað FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1978 Dagblaðið auglýsingar Yfir sumartímann verður auglýsinga- deild Dagblaðsins opin sem hér segir: mánudaga til föstudaga frá 9—22 laugardaga kl. 9—14 og sunnudaga kl. 18—22. 17. júnííKópavogi: Sérstök þjóðkróna á Rútstúni Það er skátafélagið Kópar sem gengst fyrir hátiðarhöldum í Kópavogi á þjóð- hátiðardaginn, 17 júní. Hátiðarhöldin verða með hefðbundnu sniði. Hefjast þau með setningu við Kópavogshælið og verður skrúðganga út á Rútstún. þar sem frant fer hátíðar- dagskrá. Á Rútstúni verður einnig starfrækt tivolí og felst það til nýlundu. Þar verður margt til skemnuunar en skátamir gcfa út sérstakan gjaldmiðil. sem notaður verður i tivolíinu. þjóðkrónu. Hljómsveitin Alfa Beta leikur svo fyrir dansi á Rútstúni þar til kl. 01:00 eftir miðnætti. Bráttfram- kvæmdirá jarðstöðvar- svæðinu Lokavinna við samanburð á tilboðunt í byggingu jarðstöðvar i Mosfellssveit fyrir Póst og sinia stendur nú yfir, og kvað Gústav Arnar deildarverk- fræðingur líklegt að áður en mánuður- inn væri allur yrði ákveðið hvaða tilboði yrði tekið. 1 sumar verður byrjað á vinnu á svæði því sem ákveðið er undir jarð: stöðina en hún ris austan til á Úlfarsfelli. Verður í sumar byggt yfir dísilstöðvar þær sem verða eiga varaaflstöðvar fyrir stöðina. Einnig verður lagfærður vegur af aðalvegi til stöðvarinnar. Þá mun og fást bráðabirgðarafmagn úr raflinu sem liggur skammt frá staðnum. Byggingaframkvæmdir við dísilstöðva- húsið hefjast þegar er teikningum er lokið. ASt. n BIADID kemur ekki út á morgun, 17. júní Næsta blað kemur út á mánudaginn. i i i i i i i i i i i \ i í PéturÓskarsson, Neskaupstað, um viðbrögð við upp- Ijóstrun um útlána- starfsemi Síldarvinnslunnar hf.: Andstæðingar niinir hafa miá orði að ég verði ekki lengi hafður í bænum og það eru ekki orðin tóm þvi í gær var ég kallaður fyrir fógeta að beiðni Jóhanns Kr. Sigurðssonar, úlgerðar- stjórn Sildarvinnslunnar hf og bæjar- stjórnarmanns, fyrir hönd Alþýðu- bandalagsins, og krafinn skýringa á hvar ég komst yfir þau gögn er birtust í grein minni í DB 29. maí sl., er sýna útlánastarfsemi fyrirtækisins I þeim tilgangi að tryggja Alþýðubanda- laginu sem ntest fylgi hér,” sagði Pétur Óskarsson, byggingameistari á Nes- kaupstað í viðtali við DB i gær. Jafnframt óskaði Jóhann Kr. eftir því að nánar yrði rannsakað innbrot i skrifstofur fyrirtækisins fyrir þrem Það á að flæma mig burt ~ sviptur starfsleyfi og grunaðurum innbrot áruni. er gögn þessi hurfu. Það mál hefur aldrei verið upplýst þrátt fyrir itarlega rannsókn og Pétur segist hafa fundið umslag með þessum gögnum i á viðavangi. Í umræddum gögnum kemur fram að Jóhann Kr. fékk 300 þús. kr. lán hjá fyrirtækinu 1974. í grein sinni varpar Pélur m.a. fram hvort fyrirtækinu sé leyfilegt að stunda útlánastarfssemi við hliðina á Landsbankanum og Sparisjóðnum. Sjálfur fékk Pétur lán hjá fyrirtækinu i þeim tilgangi að afla sannana um mál þetta, að eigin sögn. Vixill hans var meðal þess sem týnt er úr umslaginu en hann hefur verið dæmdur til að greiða hann. Þá skeði það í gær að bygginga- nefnd Neskaupstaðar dæmdi af honum starfsleyfi sem bygginga- meistara í þrjú ár og verður það mál sent bæjarstjórn til afgreiðslu. Pétur er með einn til þrjá menn í vinnu og sér nú fram á að þurfa að hætta við ýmis verkefni og að sjálf- sögðu að geta ekki unnið sína vinnu i náinni framtið með ófyrirsjáanlegum tekjumissi. Svipting Péturs var byggð á þvi að i fyrra reisti hann viðbyggingu við ibúðarhús sitt i óleyfi byggingar- yfirvalda. Sagði hann slikt i hæsta máta vafasöm rök þvi ef farið væri ofan i hverjir hefðu fengið að byggja santbærilegar viðbyggingar við hús sín undanfarin ár bærust böndin strax að áhrifum Síldarvinnslunnar og Alþýðu- bandalagsins, en Ólafur Gunnarsson, forstjóri Sildarvinnslunnar, er á fram- boðslista Alþýðubandalagsins. Sagðist Pétur hafa i hyggju að kæra þetta framferði og krefjast um leið rannsóknar á starfsháttum bygginga- nefndar sl. nokkur ár. Þá kæmi m.a. í Ijós að mönnum væri gróflega mismunað í úthlutum byggingalóða og viss verk á vegum bæjarins væru ekki einu sinni boðin út. Að lokum sagðist hann ekki ætla að gefast upp fyrir þessum öflum og sér kæmi í fljótu bragði i hug þrjú mismunandi ógnareinveldi, i Chile, Argentínuogá Neskaupstað. G.S. Söfnun fyrir iitasjónvörpum á sjúkrahúsin: Vilja frekar framlag en blóm og sælgæ ti Enn cr verið að salna lyrir litsjón- varpstækjum á sjúkradeildum sjúkra- húsanna i Reykjavík. Siðasta söfnunin sem við höfum frétt af cr á meðgöngu deild Landspitalans en þar dvelja þær konur sem verða einhverra hluta vegna að dvelja innan veggja sjúkrahússins um meðgöngutimann. Það er Lydia Einarsdóttir sem hefur haft aðalumsjón mcö söfnuninni. er „framkvæmdastjór- inn” eins og við höfum kallað það. Kon- urnar hafa safnað á annað hundrað þúsund krónum. og vantar þvi nokkuð uppá aðgetakeyptsértæki. Áður hefur verið bent á að sjúkling- arnir eru þakklátir fyrir ef þeir sem koma i heimsókn láta fé af hendi rakna i söfnunirnar á deildunum frekar en að koma færandi hendi með blóm eða munngát. A.Bj, Sunna vann málið gegn ráðuneytinu: SAMGONGURAÐHERRA GREIÐI SUNNU FJÓRAR MILUÓNIR — vegna valdmðslu, sem fyrirtækið varð fyriraf hálfu ráðherra árið 1969-70 Aðgerðir samgönguráðuneytis gegn Ferðaskrifstofunni Sunnu árið 1970 hafa verið dæmdar ólögmætar af Hæstarétti. í gær féll dómur í máli sem ferðaskrifstofan höfðaði vegna aðgerða ráðuneyjisins þegar þaðaftur- kallaði flugrekstrarleyfi skrifstof- unnar. Það var árið 1969 að leyfi fékkst nteð þvi skilyrði að aðeins yrði flogið utan áætlunarleiða íslenzku flugfélag- anna. Ferðir með sólarlandafarþega til Mallorka hófust 1970 og hafði Air Viking fengið Vickers Vanguard-flug- vélar til flugsins. Skömmu siðar kærðu innlendir aðilar yfir flugi Air Viking og var leyfi þá afturkallað til flugs frá íslandi en flogicj það sumar með leyfum sem fengust frá flugi til flugs. Siðar voru öll leyfi afturkölluð, þar á meðal fiug milli borga erlendis fyrir erlendar ferða- skrifstofur. Leyfi til fiugrekstursins fékkst aftur i nóvember 1970, en þá taldi Guðni Þórðarson, eigandi Sunnu og Air Viking, að fyrirtæki hans hefðu orðið fyrir verulegum skakkaföllum vegna valdniðslu sem hann taldi sig hafa orðið fyrir af hálfu ráðuneytisins, Krafðist hann 50 milljóna króna skaðabóta. Hæstiréttur dæmdi Guðna og fyrir- tækjum hans 4 milljón krónur í skaða- bætur og eru þær krónur miðaðar við árið 1973, en siðan hefur verðlag allt 3—4 faldast i það minnsta. Þá ber ráðuneytinu að greiða vexti af fénu og málskostnaðallan. Samgönguráðherra á þessu tímabili var Ingólfur Jónsson frá Hellu — Málið sótti fyrir hönd Sunnu og Guðna Þórðarsonar, Brynjólfur Kjartansson, hrl, en vörn fyrir ráð- herra hafði Óttar Petersen, hrl., Málið var prófmál beggja lögmanna. JBP

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.