Dagblaðið - 21.07.1978, Side 11
Kjallari á
föstudegi
Verkaðýðshreyfing-
in
Það hefur komið fram í blöðum, að
Benedikt Gröndal, formaður Alþýðu-
flokksins, leitaði til Snorra Jónssonar,
forseta ASÍ, og óskaði eftir viðræðum
við hliðina á stjórnarmyndunarvið-
ræðum. Þetta hefði verið eins konar
fyrsta útfærsla kjarasáttmála, það er
virkrar samvinnu launþega og rikis-
valds. Nánari útfærsla verður auð
vitað að ráðast af reynslu og af nánari
samráði. Það einkennilega gerðist að
án þess að ráðfæra sig við kóng eða
prest hafnaði Snorri Jónsson þessum til-
mælum. Hvernig þetta er hugsað er
auðvitað öldungis óskiljanlegt. En það
vekur til umhugsunar um, að laun-
þegaforustan er um of einangruð póli-
tísk forusta, sem er að leika valdatafl,
gersamlega óháð vilja umhverfisins
eða öllum venjulegum leikreglum.
Verkalýðshreyfingin á við sömu
vandamál að etja og gömlu stjórn-
málaflokkarnir. Félagslegur doði og
flókið lýðræði verður til þess að á
toppnum sitja fámennisstjórmr, sem
e^u að leika valdaleik. Þessi neitun
hefur sennilega verið flokkspólitískt
mat hjá Snorra Jónssyni. Þetta er
auðvitað gersamlega óþolandi fram-
koma, þegar verið er að reyna að
mynda stjórn í landinu. En leiðir enn
einu sinni hugann að nauðsyn þess að
gerbylta félagslegri uppbyggingu laun-
þegahreyfingarinnar. Þegar lýðræði
verður virkt, þá kemur æ ofan í æ i
Ijós að launþegaforingjar eru eitt og
launþegar eitthvað allt annaö. Þetta
ásand er óheilbrigt og þingræðið þolir
það ekki að þetta gervilýðræði hafi af-
gerandi áhrif á það, hvort tekst að
mynda stjórn eða ekki.
Hvað við sögðum —
hvað við gerum
Það þarf hvorki vinstri stjóm eða
hægri stjórn. Það þarf fyrst og fremst
viðnámsstjórn. Stjórn sem hefur það
að meginmarki að skrúfa niður verð-
bólgu, gera efnahagslifið heilbrigt á
ný. Stjórn sem styrkir samvinnu við
lýðræðisríkin en gerir rækilega úttekt
og uppskurð á stjómkerfí, spillingu og
forréttindum, sem hér hafa grafið um
sig og ýkzt til muna í óðaverðbólgu
síðustu ára. Þá eru auðvitað enn
óleyst stórmál eins og kjördæmamál
og endurskipulagning landbúnaðarins.
En stjórn með þessi meginverkefni
verður að koma. Og það er hægt.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1978.
/ ............................
Er verið að spila á fiðlur á meðan
Rómaborg brennur? Frystihúsin
ýmist að komast eða komin í þrot og
saltfiskmarkaðurinn í Portúgal að
hrynja? Það er verið að reyna að
mynda stjórn. Það er staðreynd að það
gengur verr að mynda stjórnir, þegar
miklar breytingar hafa orðið á
kjörfylgi. Samanburðurinn við 1942 er
eðlilegur. Þá jókst fylgi Sósíalista-
flokksins mikið, í tvemur áföngum að
vísu, en með þvi höfðu skapazt nýjar
forsendur valdahlutfalla.
Nafnið er
aukaatriði
Það er auðvitað i sjálfu sér fullkomið
aukaatriði hvaða nafn ríkisstjórn
gefur sjálfri sér. Orð eins og vinstri
stjórn, nýsköpunarstjórn eða við-
reisnarstjórn eru einasta söguleg orð
sem lýsa módelum meirihlutastjórna
en ekkert meir. Orðið vinstri stjóm er
þar að auki sérstaklega villandi og vit-
laust, einfaldlega vegna þess að þau
mál sem mótað hafa pólitík undan-
farin misseri falla engan veginn undir
þessar skilgreiningar. Uppskurður á
verðbólguástandinu, vandi landbún-
aðar, vandi sjávarútvegs, úttekt á
vamarmálum eða úttekt á spillingu og
forréttindum, hvar liggja þessi mál á
markalínu hægri og vinstri.
Orðið vinstri, þegar um stjómar-
myndun er að ræða, virðist enda ekki
eiga að hafa pólitískt inntak, heldur
sálfræðilegt gildi. Sálfræðilega gildið
virðist eiga að vera fólgið i þvi að vinn-
andi fólk sé sannfært um að þetta sé
„þeirra” stjórn. En málið ruglast og
þvælist þegar því er bætt við að eink-
um á Suðvesturhorninu er stór hópur
fólks, sem fyrst og fremst kennir sig
við menntir, sem telur að vinstri sé alls
ekki efnahagslegt hugtak fyrst og
fremst, heldur þýði það einfaldlega að
herinn eigi að fara og íslendingar að
hætta allri samvinnu við hemsvalda-
sinnana í Bandaríkjunum, og jafnvel
helzt allri samvinnu við útlendinga.
Hvers vegna þetta er vinstri stefna og
ekki hægri stefna eða eitthvað enn
annað hefur raunar aldrei orðið Ijóst.
En hitt er ljóst að þama ganga þver-
sagnir þvers og kruss i gegn um hug-
myndafræðinga. Þetta gæti verið
vinstri stefna vegna þess að upphaf-
legir andstæðingar þessarar stefnu-
mörkunar voru hreinir kommúnistar
sem tóku afstöðu með Sovétríkjunum
og gegn Vesturveldunum á árunum
fyrir um og eftir 1950. En nú á að
heita að þau sjónarmið eigi ekki upp á
Vinstri stjérn?
VilmundurGylfason
andi stéttir og hyggst styðja sig við
vinnandi stéttir, en er að nokkrum
misserum liðnum komin i súrrandi
styrjöld við launþegasamtökin. Það er
haldlítið að setja slíka ríkisstjóm á
laggirnar nema menn átti sig til hlitar
á þessum sögulegu staðreyndum. Og
þetta gerðist þrátt fyrir það, að báðar
þessar ríkisstjórnir hefðu vinsæl mál,
þar sem sótt var út á við en ekki skertir
hagsmunir innanlands: nefnilega land-
helgismál.
Samstjórn Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Framsóknarflokks getur
verið og á að vera skynsamleg stjórn.
En staðreyndin er samt einfaldlega
sú, að það þarf að mjög verulegu leyti
að vera upp á býti Alþýðuflokksins.
Bæði að þvi að tekur til gerbreyttrar
efnahagsstefnu og kjarasáttmála, sam-
vinnu við vestrænar lýðræðisþjóðir og
gagngeran uppskurð á stjórnkerfi,
spillingu og forréttindum. Slík stjórn
er líkleg til að takast, sé horft til lengri
framtiðar. Hefðbundin „vinstri
stjórn” með gömlu aðferðunum er
dæmd til að mistakast.
pallborðið lengur, það á að heita sem
lokað hafi verið á Brynjólf Bjamason
og Einar Olgeirsson. En að þetta eigi
þá skylt við „vinstri”, það er nokkuð
sem einfaldlega gengur ekki upp.
Það er haldið uppi andmenntaleg-
um blekkingum í sambandi við nafn-
giftir á ríkisstjómir. Framsóknarflokk-
urinn hefur viljað halda í ónýta land-
búnaðarstefnu sem dregur niður
lifskjörin í landinu, hann hefur viljað
halda í rangláta kjördæmaskipan,
hann hefur varið óbreytanleika kerfis-
ins með mestri hörku undanfarin ár.
Hann byggir á SÍS. Er það vinstri
stefna? Varla.
Þetta er ekki sagt vegna þess að
samstjórnir Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Framsóknarflokks séu
verri eða betri en aðrar stjórnir eða
samsetningar. Þetta er aðeins sagt til
undirstrikar því að nafngiftin er röng
og út I hött.
Hvernig stjórn?
Sagan kennir okkur þetta: Þær
tvær ríkisstjórnir, sem kallað hafa sig
vinstri stjórnir, gáfust ekki vel. Árferði
var gott og peningar í sjóðum, gagn-
stætt því sem nú er. Engu að siður
spiluðu þær báðar vitlaust. Hermann
Jónasson var forsætisráðherra 1956—
1958. 1958 var það Alþýðusam-
bandið, sem neitaði honum um efna-
hagslegan frest og felldi þar með stjórn
hans. Stjórn Ólafs Jóhannessonar
1971—1974 lenti í nákvæmlega sömu
vandræðum. Það var ausið skipulags-
lítið eða — laust úr sjóðum framan af,
og raunverulega voru það launþega-
samtökin, sem felldu stjórnina árið
1974. Hvaða lærdóma er hægt að
draga af þessu? Einfaldlega þá, að
nafngiftin er langt frá því að vera ein-
hlít.
Það er einhver alvarleg þversögn í
rikisstjórn, sem kennir sig við vinn-
ÞAÐ NÆST BEZTA
— um sýningu á grafíkmyndum Louise Nevelsení
Listasaf ni íslands
Af skiljanlegum landfræðilegum
ástæðum, þá eru sýningar á verkum
erlendra myndhöggvara heldur sjald-
séðar hér á landi og kannski er þetta
ein ástæðan fyrir þeirri lægð sem virð-
ist rikja i islenskri höggmyndalist eða
skúlptúr. Ein leiðin til að fá að sjá og
eignast erlendan skúlptúr er hreinlega
að bjóða myndlistarmönnum utan úr
heimi að skapa verk sin á staðnum, en
vísi að þess konar skipulagi má nú sjá
að Kjarvalsstöðum um þessar mundir.
í bili komust við þó nálægt erlendum
myndhöggvurum með því að skoða
teikningar þeirra og grafik og um þess-
ar mundir sýnir Listasafn íslands 30
grafikmyndir eftir hina öldruðu en sí-
ungu Louise Nevelson sem umlangt
skeið hefur verið í fararbroddi þeirra
sem setja saman þrívíðan skúlptúr.
Fjölbreyttur
ferill
Nevelson á að baki all fjölbreyttan
listamannaferil, sem málari, grafíker,
söngvari, leikari og dansari, en á þri-
tugsaldri ákvað hún að helga sig þri-
víðri myndlist. Á árunum 1930—50
vann hún i ýmis efni, leir, brons og ál,
en upp úr 1950 hóf hún að setja sam-
an tréverk. Og „setja saman” er ná-
kvæmlega það sem hún gerði. í stað
þess að tálga viðinn til eða breyta lög-
un hans að marki, safnaði hún viðar-
bútunt frá hendi annarra, — frá tré-
smiðum, húsasmiðum, og af haugun-
um og þeim bútum tefldi hún saman að
hætti Súrrealista, en þó með kúbískar
vinnuaðferðir i huga. Málaði hún
siðan þessar samsetningar i einum lit,
gjarnan í hvitu eða kölsvörtu. Þetta
var I fyrstu hringsær og ekki fyrirferð-
armikill skúlptúr, en brátt varð Louise
Nevelson stórtækari,verk hennar urðu
mikil um sig og mynduðu loks heila
veggi. Til að stemma af þennan skúlp-
túr sinn og gefa honum einhvers kon-
ar beinagrind tók Nevelson upp á því
að kompónera í trékassa, en kössunum
hlóð hún síðan saman. Nú eru verk
hennar yfirleittt griðarstór, ná yftr
heila veggi eða þá umkringja áhorf-
andann alveg og samleikur hinna
ýmsu tréforma innan verkanna er
orðinn feikilega flókinn og líflegur.
Blómstrar
í Tamarind
Grafikmyndir Louise Nevelson end-
urspegla að vissu marki skúlptúr henn-
ar, a.m.k. nú í seinni tið. Ekki var það
þó ávallt þannig. Hún hafði dútlað
lengi við graflk, var m.a. í forsvari
fyrir graflkverkstæði Heyters i Paris'
frá 1950—53. Fyrstu þroskuðu
myndir hennar i þessum miðli má sjá
hér á þessari sýningu, a.m.k. skynsam-
legt úrtak þeirra. Þetta eru ætingar, af
figúratifum toga eða þá með stöku
tilvisun í flatarmálsfræði afstraktlist-
ar, — ósköp notaleg verk og vel gerð,
en þó I engu frábrugðin grafikverkum
fjölda annarra á þessum tima. Gaman
er t.d. að bera þau saman við stein-
prent Braga Ásgeirssonar frá þessum
árum. En það er fyrst í hinu sögu-
fræga Tamarind verkstæði sem Nevel-
son fer að blómstra sem grafíker, upp
úr 1963. Tamarind verkstæðið í Los
Angeles var sett á stofn árið 1960 með
styrk frá Ford-sjóðnum og þar má
segja að endurreisn amerískrar grafik-
listar hefjist, að ógleymdu Universal
Art Editions verkstæðinu í New York.
Ekkert bruðl
Fjöldi myndlistarmanna lærði
þama að vinna í steinprent, þi m. Nev-
elson, Warhol, Sam Francis, Larry
Nr. 29 „Dögun”
Rivers, Johns og Rauschenberg. 1
þeirri grafík sem hún gerði þar og síðar
meir, hóf Nevelson að spila á svipaða
strengi eins og í skúlptúr sínum og ber
mjög á kassaforminu sem byggir upp
eða stillir af óstýrilátari form í mynd-
unum. Nevelson hefur síðan gert afar
skemmtilega hluti i grafik sinni, með
samspili grafikur og klippimynda, með
„intaglio” prenttækni, í akvatintu og
nýverið hefur hún samræmt grafik og
lágmyndina að vissu marki, með gerð
forma sem prentuð eru í pappirsmassa
og eru þau tvö verk sem gerð eru með
þeirri tækni á þessari sýningu einna
mest heillandi af seinni myndum Nev-
elson. Þótt hún virðist á seinni árunt
!hafa náð fullu valdi á öllum þeini að-
ferðum í grafiklist, sem hún hefur lagt
fyrir sig, bruðlar hún ekki með þær.
Verk hennar eru stíft uppbyggð með
sterkum láréttum-lóðréttum áherslum
(kúbiska arfleifðin) og hún leggur
mikið upp úr stórum dökkt tónuðum
flötúm, — með stöku blossa af skær-
um litum innan um.
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
Myndlist