Dagblaðið - 03.08.1978, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978.
Vantar strax
amerískan eða japanskan bíl árgerð 1976—
1977. Útborgun 2.4 milljónir.
Símar 81199 - 81410.
Fallhlífarstökk
Fallhlífaklúbbur Akureyrar mun gang-
ast fyrir námskeiði í fallhlífarstökki fyrir
byrjendur dagana 8.—13. ágúst nk.
Uppl. í símum 96-24938 og 96-24152
eftir kl. 17.
Húsnæði óskast
Söngskólinn í Reykjavík óskar eftir að taka á
leigu húsnæði fyrir starfsemi sína.
Húsnæðið þyrfti að vera 250—400 fm.
Uppl. á skrifstofu skólans að Laufásvegi 8, í
síma 21942 næstu daga á skrifstofutíma og í
símum 83670 og 41197.
HjaMafiskur
Morkið s«m vann harðfisknum nafn
Fœst hjð: iKaupfélag Skaftfellinga,
Vik f Mýrdal. _
Hjallur hf. - Sölusími Z3472
Hótel Akureyri
býöur
allagesti
velkomna
HÓTEL AKUREYRI
HAFIMARSTRÆTI98
SÍMI96-22525.
Smurbrauðstofon
BJORNINN
NjéUgötu 49 - Slmi 15105
Lögfræðingurinn
var timbraður og
eyðiiagði málið
_■ ■ ■ ■ ■ ■ .
Patty Hearst erfinginn að blaðaauð-
æfinum sem dæmd var fyrir þátttöku í
bankaránum með Symbíónesiska frels-
ishernum hefur krafizt þess að mál
hennar verði tekið upp aftur. 1 skjöl-
unum, sem lögð hafa verið fram af
nýjum lögfræðingi hennar og eru eitt
hundrað tuttugu og fimm blaðsíður,
segir aö fyrri lögfræðingur hennar hafi
gert réttarhöldin að skripaleik. Hann
hafi auk þess stöðugt verið illa haldinn
og þruft að neyta róandi lyfja gegn
timburmönnum. Hafi hendur hans
stundum skolfið svo mikið að hann
hafi orðið að spenna greipar til að
stöðva skjálftann.
Hafi fyrri lögfræðingurinn fengið
hana gegn vilja sínum, til að undirrita
heimild um að hann mætti rita
bók um réttarhöldin.
Patty Hearst er að afplána sjö ára
fangelsisdóm fyrir þátt sinn í banka-
ránum með Symbíónesiska frelsishern
um, sem rændi henni frá heimili henn-
ar árið 1974. í fyrstu dvaldist hún tvo
mánuði í fangelsi árið 1976 en var þá
látin laus gegntrygginguámeðankrafa
um endurupptöku málsins var af-
greidd. Henni var hafnað og fór hún
aftur í fangelsi fyrir tveim mánuðum.
M
Patty Hearst á leið til réttarhalda í
fylgd með lögreglukonu þeirri sem
gætti hennar stöðugt á meðan á þeim
stóð.
Stóráætlun Kínverja:
Vilja tileinka sér
allt hið nýjasta í
tækni Vesturlanda
f imm hundruð kínverskir stúdentar til Kanada árlega
Kínverjar hafa nú hug á því að
senda um 500 nemendur árlega til
Kanada til frekara náms. Þetta er
aðeins byrjun á framkvæmd áætlunar
um að senda nokkur þúsund nem-
endur árlega til iðnvæddra rikja á
Vesturlöndum. Hér er um að ræða
nám á háskólastigi samkvæmt kanad-
ískum heimildum.
Meðal annarra landa, sem leitað
hefur verið til um slíkar námsdvalir
eru Bretland, þar sem áætlað er að
1200 nemendur setjist i háskóla,
Vestur-Þýzkaland, Frakkland og
Japan, 500 nemendur í hverju þeirra,
og Ástralía með 150 nemendur.
Vist þykir að leitað verði hófanna í
fleiri löndum, meðal annars Bandaríkj-
unum. Þar hefur verið nefnt að 5 þús-
und nemendur verði sendir til náms.
Þetta er hluti af áætlun um að Kína
tileinki sér hið nýjasta i tækni og vis-
indum i heiminum. Sú áætlun er utan
við samkomulag um skiptinema, sem
nokkuð kveður að. Kinversk stjórn-
völd borga allan kostnað við þessa
áætlun.
EITURLYFJ ASALAR SKOTNIR
ÁN RÉTTARHALDA í BANGKOK
— reyndu að selja 40 kg af heróíni
Tveir kínverskir eiturlyfjasalar voru
skotnir til bana með vélbyssum i Bang-
kok að skipun Kirangsak Chamanand
forsætisráðherra.
Eiturlyfjasalarnir voru handteknir i
apríl sl., þegar þeir reyndu að selja 40
kg. af heróíni. Væntanlegur kaupandi
var reyndar starfsmaður eiturlyfjalög-
reglunnar.
Lögregluyfirvöld segja að mennirnir
hafi játað að þeir hafi unnið heróínið á
heimilum sínum.
Samkvæmt þarlendum lögum getur
forsætisráðherrann, Kriangsak hers-
höfðingi, fyrirskipað refsingu án
réttarhalda, þegar um er að ræða al-
varleg brot á lögum og reglu í landinu.